Morgunblaðið - 24.11.1956, Qupperneq 6
M ORCVNBLAÐID
Laugardagur 24. nóv. 1956
«
ffleiur unmið váÖiækt sluri iyrir
ÉslBudinffu á Hainursiéð
Samtal við Þorfinn Krisljánsson,
sem gefur út æviminningar.
ÞAÐ eru nú liðin næstum fjörutíu ár siðan ég fluttist til TCaup-
mannahafnar, en ég hef alltaf haldið góðu sambandi við
ísland og vini mína hér heima, sagði Þorfinnur Kristjánsson prent-
ari, hinn vinsæli íslendingur á Hafnarslóð, sem hefur imnið þar
mikið og gott starf í félagslííi landanna og gert margt til að kynna
citt gamla Frón og halda uppi hróðri þess.
Þorfinnur er nú staddur í Reykjavík, í sambandi við útgáfu á
endurminningurn sínum, en bók hans, er hann nefnir „í útlegð“
mun koma út næstu daga.
BORGIN BREYTIST
STÖÐUGT
Þegar fréttamaður Hbl. hitti
Þorfinn að máli gat hann þess
að ætíð er hann kæmi heim til
íslands sæktu endurminningarn-
ar á sig. Fg ólst upp hér í
Reykjavík, flutti til Kaupmanna-
hafnar 1918. í hverri heimsókn
hefur hann fundið með hve
miklum geysihraða borgin hefur
stækkað og breytzt.
Ég fann til þessa strax, þegar
ég sneri heim í fyrstu heimsókn
minni árið 1925. Þá þegar stóð
íátt eftir af torfbæjunum, holtin
og móarnir umhverfis bæinn
voru rudd og ræktuð, brunnam-
ir voru horfnir og í stað þeirra
komin vatnsleiðsla í hvert hús
I bænum. Lokræsi var komið í
stað ofanjarðarfrárennslis, höfn
í stað hafnleysis, breiðir og þol-
anlegir vegir í stað vegleysisins.
Þessar breytingar fann hann þeg-
ar 1925. Og hversu stórstígari
hafa breytingarnar á Reykjavík
ekki orðið á þeim árum sem síð-
an hafa liðið. Fyrir mig sem ólst
upp í Reykjavik kringum alda-
mótin, er borgin nú orðin nær
óþekkjanleg. Ég man það t. d.
að þegar ég kom heim árið 1947,
fann ég ekki leiði föður míns
í kirkjugarðinum.
FRÁ leikfélögunum
Og Þorfinnur heldur áfram:
— tilgangur minn með því að
skrifa endurminningar mínar er
að bregða upp mynd af bænum
og lífinu þar eins og það kom
mér fyrir sjónir fyrir 50 árum.
Segja frá hinni gömlu Reykja-
vík, einkum þó lífi unglinganna.
Ég er fæddur 1887 í Hlíðarhús-
um í Reykjavík. Vorið 1891 flutt-
umst við að Fúlutjörn sem þá
var fyrir innan bæ, en aftur
fluttum við „til Reykjavíkur“
1896.
BJÖRN JÓNSSON
Og fyrri hluta æviminninganna
fjallar um uppvaxtarár mín í
Þingholtunum, frá leikfélögunum
og síðan kem ég að lærdómsár-
unum í ísafoldarprentsmiðju og
frásögn af Birni Jónssyni, sem
ég var mjög hrifinn af. Ég sé
hann enn fyrir mér, er hann
gekk um góif í prentsmiðjunni
með hendumar aftur á baki und-
ir jakkanum. Oftast var hann í
hvítum jakka og með enska húfu
á höfðinu. Hann gekk lengi með
slíka húfu, enda þótt það væri
brunagat á henni. Stundum stóð
hann upp að reól eða letur-
kassa, tók pappírsspjald upp úr
vasa sínum og skriíaði á því,
ýmist greinar í ísafold eða leið-
rétti prófarkir. Oftast notaði
Hálka á göfunum
- tvö smáslys
Á fimmtudagsmorguninn, var
mjög hált á götum bæjarins, en
um nóttina hafði kastað éljum við
og við. Var ísing mikil og sleipt
fram eftir degi og talsvert um
bílaárekstra.
Tvö minni háttar slys urðu í
gærdag. Lítil telpa hljóp fyrir bíl
á Kaplaskjólsveginum og meidd-
ist lítils háttar. Einnig varð litill
drengur fyrir bifhjóli á Lauga-
veginum og viðbeinsbrotnaði.
hann ritblý, enda munu sjálf-
blekungar ekki hafa þekkzt þá.
Hann var mjög nærsýnn og hafði
því augun næstum niður á spjald-
inu. Hann skrifaði hratt, enda
gekk vel undan honum. Af því
dreg ég þá ályktun, að honum
hafi verið mjög létt um að
skrifa.
í ÍSAFOLDARLIÐINU
Sannleikurinn er sá, heldur
Þorfinnur áfram, að slcrif Björns
Jónssonar hrifu mig. Ég gleypti
bókstaflega hvert orð og hverja
setningu, er frá honum kom og
væri einhversstaðar hallað á
hann eða hans málstað, var það
sjálfsagður hlutur, að ég sæti
ekki þegjandi hjá, heldur verði
hann og málstað hans eftir mætti.
Ég var af lífi og sál í ísafold-
arliðinu, en svo voru þeir nefndir
er fylgdu Bimi Jónssyni að mál-
um. Þessvegna fjallar ekki lítill
hluti æviminninga minna um
stjórnmálaerjumar í Reykjavík
á fyrstu árum þessarar aldar,
en stjórnmálabaráttan var þá oft-
ast harðari, illskeyttari og per-
sónulegri en hún hefur orðið
síðan.
f PRENTSMIÐJU
S. A. MÖLLERS
— Hversvegna fluttuð þér svo
til Banmerkor?
— Það var einfaldlega vegna
þess að ég stóð uppi atvinnulaus.
Bogi Melsted útvegaði mér þá
starf sem prentara í prentsmiðju
S. A. Möllers í Kaupmannahöfn.
En sú prentsmiðja var fyrr á
19. öld stofnuð af íslendingnum
Einari Rangell og hafði ætíð tals-
verða íslenzka vinnu. Síðari
hluti æviminninga minna fjallar
að sjálfsögðu um lif mitt og starf
í Ðanmörku. En þó ég sé þá
búsettur í Danmörku, fjallar það
áfram um ísland, því að áhuga-
mál mitt hefur jaínan verið að
viðhalda samtökum íslendinga á
Hafnarslóð og treysta samband-
ið við heimalandið.
1200—140« ÍSLENDINGAR
— Hvað haldið þér að margir
íslendingar búi nú í Kaupmarma-
höfn?
— Það er erfitt að segja ná-
kvæmlega. Líklega eru þeir í
Þorfinnur Kristjánsson.
kringum 600 en í allri Dan-
mörku sennilega 1200—1400 ís-
lendingar. Það er mjög misjafnt
hve mikla tryggð þeir halda við
ísland. Sumir og þá að sjálf-
sögðu einkum þeir sem eru gift-
ir inn í danskar ættir slíta bráð-
lega mestöllu sambandi við aðra
íslendinga, en einkum eru það
Einar Halidórsson - minning
VESTUR á fsaíirði er greftraður
í dag Einar Halldórsson, Skag-
firðingur að ætt og uppruna, en
einn af elztu borgurum ísafjarð-
ai'kaupstaðar. Var hann einn
þeirra fnanna, er um langan ald-
ur hafði sett svip sinn á bæinn.
Síðustu misserin hafði hann dval
izt í spítalanum, en lengstum
fylgt fötum, þar til hann leið út
af eins og ljós 17. þ. m.
Einar Halldórsson var fæddur
í Álftagerði í Víðimýrarsókn 26.
maí 1868. Bjuggu þar þá foreldr-
ar hans Sigríður og Halldór. Var
hún Jónasdóttir bónda í Geldinga
holti Einarssonar bónda í Holts-
koti Jónssonar, en móðir Sigríð-
ar og kona Jónasar var Arnfríð-
ur Árnadóttir á Stóru-Seylu
Árnasonar bónda þar Jónssonar.
Halldór var Einarsson bónda og
forsöngvara í Krossanesi Magnús-
sonar prests í Glaumbæ Magnús-
sonar, en kona Einars og móðir
Halldórs var Euphemia Gísla-
dóttir sagnaritara Konráðssonar.
Einar var einn sonur foreldra
sinna, en systur hans fimm, og
einn hálfbróðir, þrjátíu árum
yngri en hann. Varð Einar þegar
ungur að aldri að vinna hörðum
höndum, og gerðist hann snemma
bæði lagvirkur og afkastamilcill.
Um tvítugt fór hann suður og
stundaði sjóróðra frá Reykjavík
um hríð. Átti hann þá góðu að
mæta hjá Indriða föðurbróður
sínum og konu hans. — Þessi miss
eri kynntist Einar húnvetnskri
stúlku, er vann á klæðskeraverk-
stæði H. Andersen. Lágu leiðir
stirifap ús*
dagtega iífinu
ÞAÐ virðist svo sem eitt allra
vinsælasta umræðuefni eldri
kynslóðarinnar í landinu sé það
hver hætta okkur æskumönnum
sé búin af freistingum lífsins og
hvað sé eiginlega hægt að ge*'a
til þess að bjarga æskunni frá
því að verða hinum hættulegu
hnossum nútímamenningarinnar
að bráð, leggjast í sukk og óreglu
og gleyma sjálfum sér.
Miksl umhyggja
OTAL blaðagreinar hafa verið
ritaðar um þetta girnilega
efni, tillögurnar til úrbóta eru
vafalaust orðnar legíó og margir
góðir menn hafa þar látið ljós
sitt skína. En einhvern veginn
finnst mér oft að öll þessi um-
hyggjusemi og umbótaviðleitni
stafi meira og minna af því að
þeir sem hana hafa í frammi séu
alveg búnir að gleyma því að
þeir voru einu sinni ungir — og
á hálum brautum sjálfir. Það er
svo oft auðvelt að gleyma því
hvað er að vera ungur, æskan
fer ekki að sofa klukkan ellefu
á kvöldin, né les hún íslendinga-
aögurnar og Horfna góðhesta öll-
um stundum sem hinir ráðsettari
velja sér gjarna að lesefni. Sinn
er siðurinn á hverjum aldri, og
engar predikanir fá því breytt að
hið sama hæfir ekki unglingi um
tvítugt og eldri manni, rosknum
og ráðsettum um fimmtugt,
hvorki lífsvenjur, lesefni eða
skoðanir. En þeim eldri hættir
stundum til að gleyma þessari
staðreynd og miða allt við sinn
eigin sjónarhól — gleyma því að
það sem mundi vera kallað fland-
ur, vökur og óregla á þeirra aldri
er oft ekki annað en hiti, ævin-
týraþrá og nýjungagirni æsku-
mannsins sem er að hlaupa af sér
hornin og reyna að finna sinn
stað í hinni margbrotnu og stór-
fenglegu veröld.
Engu verri
ÞVÍ er ekki ástæða til að óttast
svo mjög. Æskan er í dag
sannarlega engu verri en hún hef
ur alltaf verið. Henni standa aft-
ur á móti til boða þúsund fleiri
freistingar en öllum eldri kyn-
slóðum sem hafa lifað hér á
landi, sökum peningaflaums og
góðæris, og það er hennar heiður
að hafa ekki fallið nema að sára-
litlum hluta fyrir þeim.
En þrátt fyrir allt þetta og
þá bjartsýni sem ég óneitan-
lega ber í brjósti í þessum efn-
um og held að sé fyllilega rök-
studd, væri samt fávíslegt að
hyggja ekki vendilega að öllum
þeim ráðum sem tiltækileg eru
til þess að ala æskuna upp í heil-
brigðara andrúmslofti og kenna
henni nýja siðu og betri háttu
að hlúa í öllu sem bezt að upp-
eldismálum þjóðarinnar.
Tómstundagaman
MARGT hefur veriö um þessi
mál rætt og ritað, sumt
gáfulegt, sumt heimskulegt eins
og gerist og gengur. En ef marka
má reynslu annarra þjóða er það
vfst að eitt höfuðráðið til þess
að ala upp snjalla og heilbrigða
æsku hér í margmenni höfuð-
borgarinnar er að fá henni nægi-
legt tómstundagaman því vinnan
er fjandi allra lasta svo sem al-
kunna er.
Með því að sjá vel fýrir starfs-
þörf æskunnar er komið í ve^»
fyrir að æskumenn eyði tíma
sínum í marga hluti verri, sjoppu
setur og vínsúp svo eitthvað sé
nefnt, enda eru velflestir sam-
mála um að hér sé höfuðverkefni
fyrir höndum.
Hallardraumur
LENGI hefur verið skeggrætt
, um að koma æskulýðshöll upp
hér í bænum til þessara nota, en
ekki bólar á blessaðri höllinni.
Það sannaðist á henni að íslend-
ingar virðast ganga með krón-
iska hallardrauma, líklega af því
að þeir hafa fram að þessu flest-
ir kúrt í moldarkofum um aldir.
Eini gallinn við draumana er að
hinar veglegu hallir rísa aldrei
af grunni, og er það vel um
æskulýðshöll.
Hún er nefnilega ekki fram-
tíðin heldur lítil félagsheimili í
hverju hverfi þar sem börn og
unglingar geta vel unað að starfi
og leik í hollu umhverfi.
Nú hefur æslculýðsráð bæjar-
ins ráðið ungan mann, séra Braga
Friðriksson, sem áður var prestur
vestanhafs í Lundar, til þess að
vinna aðþessum félagsheimila- og
tómstundastörfum og er það vel.
Það er rétt braut og vel hefur
tekizt um byrjunina og er þess að
vænta að mikill meiður vaxi af
því fræi sem nú hefur þegar ver-
ið sáð.
stúdentarnir, sem koma nýir og
ferskir að heiman, sem treysta
sambandið við heimalandið.
VBÐTÆKT STARF FYRIR
ÍSLAND
Það yrði langt mál að greina
frá öllu starfi Þorfinns Kristj-
ánssonar í þágu félagslífs ís-
lendinga í Kaupmannahöfn. 1
nærri 30 ár hefur hann setið
í stjórn íslendingafélagsins. Hann
hefur gefið út tímaritið „Heima
og erlendis“ og hann hefur starf-
rækt fréttaskiúfstofuna „Presse-
buráet Island“, sem hefur dreift
upplýsingum um ísland til
danskra blaða og stofnana. Síð-
ast en ekki sízt ber að minnast
þess, að fyrir nokkrum árum
beitti hann sér fyrir, með að-
stoð Guðbrandar Magnússonar,
að gömlum íslendingum í Dan-
mörku yrði boðið heim. Á hverju
ári er einhverjum einum íslend-
ingi frá Danmörku boðið heim
og er sú starfsemi kúnn af mörg-
um fréttum í dagblöðunum og
samtölum við gestina, sem óspart
láta ánægju sína í ljós yfir því.
Þ. Th.
þeirra saman síðar á ísafirði, eu
þar settist Einar að upp úr 1890.
Stundaði hann þar sjó og ýmsa
aðra vinnu. Þótti hann afbragðs
sjómaður. Leið honum svo vel á
sjónum, að undrum sætti, þegar
þess var gætt, að hann var fædd-
ur og uppalinn langt uppi í sveit.
Glímumaður þótti Einar góður,
enda grannur, hjólliðugur og
allra manna fimastur, og kenndi
hann þá íþrótt á ísafirði í sinn
hóp.
Einar festi ráð sitt 1. febrúar
1896. Gekk að eiga heitmey sína
Halldóru Hjálmarsdóttur. Voru
þau 35 ár í farsælu hjónabandi.
Halldóra sál. var kvenna bezt
verki farin, þrifin og snillingur
við klæðskurð. Voru þau hjón
samhent, og sýndu verkin þar
merkin. Var heimili þeirra hið
mesta snyrti- og þrifnaðarheimili.
Jafnframt algengri vinnu stund
aði Einar lengi búskap. Átti hann
fallegar kindur. Dáðust allir, er
sáu, að hirðingu þeirra og fóðrun.
Söngmaður var Einar ágætur,
svo sem hann átti ætt til. Hænd-
ist hann því snemma að kirkj-
unni, og var hanri' hringjari Eyr-
arkirkju í Skutulsfirði í aldar-
fjórðung, og fórst honum það hið
bezta.
Einari og konu hans varð 6
barna auðið. Fæddust tvö and-
vana. Drengur andaðist á 7. ári
og annar, er hét Halldór Indriði,
dó 16 ára, mjög efnilegur piltur
og skáldmæltur vel. Tvö lifa,
Jón Stefán Júlíus, sjómaður á
ísafirði, kvæntur færeyskri konu,
eiga þau börn og Lovísa Sigríður
Ingibjörg, ógift og barnlaus kona
í Reykjavík, og er hún elzt syst-
kina sinna. — Síðastliðin þrjátiu
ár var Einar sál. heimilisfastur
í húsi sínu við Sólgötu 3 á ísa-
firði.
Góðtemplari var Einar síðast-
liðin 58 ár samíleytt. Var hann
einn af stofnendum St. Nönnu á
ísafirði. Hafði Einar sál. tekið öll
stig Reglunnar, og brást hann
aldrei málefni bindindismanna.
Einar Halldórsson var tæpur
meðalmaður á vöxt, í grennra lagi
gangfrár til hinztu stundar, vel
farinn í andliti, og þegar hann
sagði frá því, sem tók hug hans
allan, brá fyrir glampa í augum
og brosi á vör. Hann var ein-
stakur fjörmaður, glaður í skapi,
og það var dauður maður, sem
gat ekki hlegið sig máttlausan,
þegar hann sagði frá kátlegum
atburðum, en öll kímni hans var
græskulaus. Hann var hins vegar
enginn spilagosi, heldur þvert á
móti var hann líka alvörumað-
ur. Hann treysti óhvikull Drottni
og fór með helg fræði af hjartans
þrá. — Hann var maður vinsæll
og vel látinn, og hvarvetna bar
hann með sér birtu og yl í bae-
inn.
Hinn glaði og reifi Skagfirð-
ingur vestur á Skululsfjarðareyri
er nú allur.
Guð blessi minningu hans.
Frændi.