Morgunblaðið - 24.11.1956, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.11.1956, Qupperneq 10
10 MORCVISBLAÐIÐ Laugardagur 24. nóv. 1956 BifreiAaeigendur! (SÍU Aufo-Coat hlýfir bifreið yðar fyrir regni og snjó. IKU Auto-Coat er bílskúrinn, sem hægt er að hafa í skottinu. Nokkur stykki fyrirliggjandi fyrir 4ra og 6-manna bíla. Erl. Blandon & Co. h.f. Bankastræti 10 Jólaskreytingar fyiir verzlanir Iðnaðoi'sanmavélar Eigum nokkrar saumavélar fyrir grófan saum og leðursaum. Kristjón G. Gísiasoœ ki. Eggert Kristjárisson €r Co. h.f. Þýzka undraefnið ilSA - 53 gerhreinsar gólfteppi og húsgagnaáklæði. Eyðir hvaða blettum sem er og lyftir bældu flosi. — Notkunarreglur á islenzku fylgja hverjum pakka. — Fæst í flestum hreinlætisvöru- og málningarverzlunum. Einkaumboð: Erl. Blandon & Co. h.f. Bankastræti 10, Reykjavík „WEED ACCð“ Snjókcðjar Höfum nú fyrirliggjandi allar stærðir af hinum velþekktu „WEED ACCO“ snjókeðjum, fyrir fólks- og vörubíla. Margra ára reynsla hefur sann að ágæti þessara snjókeðja. Þeir, sem reynt hafa, nota æt- íð ,,Weed“ snjókeðjur. Send- um gegn póstkröíu hvert á land sem er. Umboðsm. á ísl. fyrir American Chain & Cable Company SírasltriRi Guðnason^ Klapparstíg 27 — Sími 2314 Bruno Weber bókari Hellu Mlnningarorð BRUNO WEBER, bókari hjá kaupfélaginu Þór, Hellu, andað- íst 25. október síðastliðinn. Hann var á ferðalagi í Þýzkalandi og varð bráðkvaddur í járnbrautar- vagni — mun hjartað hafa bilað. Bruno var fæddur í Þýzka- landi 3. apríl 1897. Hann átti góða foreldra og ágætt æsku- heimili. Hann ólst upp við goð kjör í föðurgarði ásamt þrem bræðrum og einni systur. Bruno var vel greindur og varð vel menntaður. Hann var prýðilegur málamaður og ágætur í stærð- fræði og sögu. Dómgreind hans var glögg og skýr og skoðanir hans ákveðnar og mótaðar af raunsæi og íhugun. Á æskuheim- ilinu í Þýzkalandi byggði Bruno upp framtíðaráætlanir um mörg og mikilvæg verkefni í þágu ætt- landsins. í huga hans fæddust há- leitar hugsjónir og starfið fram- undan var mikilvægt. Hann vissi að Þýzkaland hafði jafnvel mögu leika til þess að skara fram úr öðrum þjóðum í vísindum, list- um, iðntækni og margvíslegum framkvæmdum. Hann hét því að búa sig vel undir lífsstarfið og gera það sem í hans valdi stæði til þess pð hugsjónir hans gætu rætzt. En þegar allt virtist leika í lyndi og framtíðin vera björt, dró skyndilega ský fyrir sólu. Styrjöldin 1914 skall á. — Áhyggjur og kvíði grúfði yfir. Bruno Weber var 17 ára gamall og Þýzkaland kallaði á alla verk- færa menn til starfa í þágu styrjaldarinnar. Bruno fór á víg- völlinn ásamt tveim bræðrum sínum. Hann særðist oft en aldrei alvarlega, skotsárin greru, en andlegu sárin r.em hann hlaut á þessurn árum, hygg ég að hafi aldrei gróið til fulls. Bræður hans féllu á vígstöðvunum, æskuté- lagar og vinir fóru margir sömu leiðina. Þýzka þjóðin var öll í sárum og hugsjónir og vonir um bjarta framtíð Þýzkalandi til handa virtust vera að engu orðnar. Stríðinu lauk, en árin eftir stríðið voru mjög erfið, eins og kunnugt er. Fjárhagslegt hrun og efnahagsleg vandræði steðjuðu að. Á þessum árum kynntist Bruno nokkrum íslend- ingum í Berlín. Voru það aðal- lega stúdentar og nokkrir kaup- sýslumenn. Bruno líkaði vel við fslendingana og varð kunnings- skapur hans við þá til þess að hann ferðaðist til íslands. Átti sú ferð í fyrstu að verða skyndi- ferð, en leiddi til þess að hann settist hér að 1928. Síðan hefur Bruno verið á Hellu nema einn vetur sem hnnn dvaldist í Reykja vík. Hann gerðist verzlunarmað- ur og bókari hjá Þorsteini Björns syni, sem byrjaði að verzla þetta ár á Hellu. Bruno gekk í þjón- ustu Kaupfélagsins Þór er það var stofnað 1935. Hann varð ís- lenzkur ríkisborgari og að áliti allra sem þekktu hann vel, ís- lendingur í eðli og starfi. Ekk- ert tnínnti á erlendan uppruna nema nafn hans. Hann talaði hreina og rétta íslenzku og gerði sér far um að kynnast sem bezt íslenzkum málefnum. Bruno var sérstaklega skyldurækinn og trúr í starfi. Hann var afburða ó- eigingjarn maður, hjálpsamur og velviljaður. Hann átti því marga vini en enga óvini. Ég vil nota tækifærið og þakka Bruno fyrir ánægjulegt samstarf í tuttugu og eitt og hálft ár við Kaupfélagið. Það var mikils virði að hafa starfsfélaga sem mátti treysta í einu og öllu. Það verður ekki þakkað með orðum, en mað- ur og starfsfélagi eins og Bruno, gleymist ekki. Minningin um hann verður geymd. Fyrir hönd héraðsins og Kaup- félagsins vil ég þakka Bruno fyr- ir gott starf, fyrir ágæta þjón- ustu, fyrir félagsmenn og aðra viðskiptamenn Kaupfélagsins. — Eklci er að efa að hann átti stór- an þátt í því að gera Kaupfélagið vinsælt, skapa því traust og gera það að stóru fyrirtæki. Nú er skarð íyrir skildi og góðs manns og dugandi er mjög saknað af mörgum þar eystra. Bruno fór sína síðustu fferð I heimsókn til ættlandsins. Hann fór til bróður síns, Georgs Web- er, prófessors, í norrænum fræð- um. Georg á tvo syni og var ann- ar þeirra hér á íslandi síðastliðið sumar. Hafði Bruno miklar mæt- ur á frændum sínum. — Aðnr nákomnir ættingjar hans eru ekki á lífi en fyrrnefndir feðgar Georg skrifaði mér eftir að Bruno dó og sagði að hann hefði dvalizt á heimili þeirra í Mar- burg frá 13.—25. október. „Það voru ánægjulegir dagar“, segir Georg. Engum datt í hug að dauðinn var á næsta leiti, en „hvenær sem kallið kemur kaup- ir sig'enginn frí“. Bruno var jarðsettur í fjöl- skyldugrafreit í Marburg. Hann hvílir því í jörð feðranna. Ekki vil ég fullyrða um hvort hann hefði heldur kosið að hvíla í ís- lenzkri jörð en þýzkri, hitt veit ég að hann unni íslandi mjög og einnig að hann átti alltaf rætur í þýzkum jarðvegi. Þannig hlaut það að vera, Bruno var trýgg- lyndur og vinfastur og laus við að vera eitt í dag og annað á morgun. Þótt hann hefði eignazt nýtt föðurland, þá er það, eigi að siður víst, að honum þótti mjög vænt um þýzku þjóðina og hafði mikla samúð með henni þegar erfiðleikar steðjuðu að. Bruno hefði viljað byggja brú á milli íslands og Þýzkalands, ef hann hefði átt þess kost. Aukin kynni og tengsl á milli þessara landa voru honum mjög að skapi. Þess vegna hefur stjórn Kaup- félagsins ákveðið að stofna sjóð til minningar um Bruno Weber. Verkefni þessa sjóðs verður ákveðið í skipulagsskrá, en aðal- verkefnið verður að vinna að aukinni kynningu og sambandi milli íslands og Þýzkalands, t.d. með því að styrkja unga íslend- inga til dvalar í Þýzkalandi og gagnkvæmt. Sunnudaginn 11. þessa mánað- ar var minningarathöfn um Bruno í Oddakirkju. Var fjöl- menni rnikið og lýsti það vinar- hug í garð hins látna. Fór at- höfn þessi vel og virðulega fram. Það má segja um Bruno Weber, að hann hafi verið ferðbúinn, þegar hann var héðan kvaddur. Hann var sáttur við alla og hafði lokið miklu og góðu dagsverki. Hann hafði um mörg ár verið heilsuveill og gerði sér grein fyrir því að kallið gæti komið fyrirvaraiítið. En hann kveið ekki þeirri stund og hefði því getað tekið undir það sem í sáhninum stendur: „Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt. í Kristí krafti ég segi, kom þú sæll þegar þú vilt“. Vinir Brunos og samstarfsmenn munu geyma minningu um góðan dreng og vera þakklátir fyrir að hafa átt þess kost að kynnast honum. í. J. TEL AViV, 22. nóv.: — ísraelska hermálaráðuneytið tilkynnti að s.l. nótt hefði hópur vopnaðra skæruliða farið yfir landamærin frá Jórdan og sprengt upp hluta af járnbrautinni milli Beersheeba og Tel Aviv. Skæruliðarnir kom- ust aftur til Jórdaníu. — Reuter. JÓLAHJALP Tvær duglegar afgreiðslustúlkur óskast í vefnaðarvöru- verzlun frá 1. des. til jóla. — Umsóknir merktar: „Jóla- hjálp — 3447“ óskast sendar afgr. blaðsins fyrir n.k. mánudagskvöld. Skrifstofuherbergi óskast sem næst miðbænum, 10—20 ferm. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudags- kvöld merkt: „3440“. Húseigendur 2 reglusamar og kyrrlátar mæðgur óska að leigja eða kaupa 2—3 herb. íbúð í góðu húsi helzt á hitaveitusvæð- inu. Upplýsingar í síma 7416 í dag. T ilkynning Framkvæmdum við hafnargerðina á Akranesi lýkur um miðjan desember nk. og hefst ekki fyrr en á vori 1957. Kröfur á oss framvísast á skrifstofu vora í síðasta lagi fyrir 10. desember. Annars getur svo farið, að þeim verði ekki sinnt. Hoclitief A. G. Hafnargerð Akraness.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.