Morgunblaðið - 13.12.1956, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.12.1956, Qupperneq 10
10 MORCVSBLAÐIT> Fimmtudagur 13. des. 1956 SMIÐJUSALAN við Háteigsveg (Ofnasmiðjan) selur nytsamar jólagjafir: Easylux smáskúffuskápa, 4 gerðir, Þvegla með gúmmísvömpum. Jólatrésfætur úr stáli, vatnsfyllta. Vaskaborð, rafsuðupotta, ýmis konar bakka, föt, kastarollur o. m. fl. allt úr ryðfríu stáli. Ryðfríir hlutir ,— tilvalin jólagjöf. tekin fram í dag. ATH. Góð bílastæði — Fljót afgreiðsla. Mikið úrval í litlum stærðum (Pétite). I Nú er kominn tími til að líta í kringum sig eftir jólafötunum — og þéf gerið áreiðanlega rétt í að líta inn hjá Guðrúnu næstu daga — Það borgar sig að verzla nú, í stað þess að bíða eftir mestu jólaösinni. Tökum fram í dag ameríska kjóla og svissneskar vetrarkápur Einnig fjölbreytt úrval af pr j ónak j ólum og hinum vinsælu filtpilsum Rauðarárstíg 1 gott úrval MARKAÐURINN HAFNARSTRÆTI 11 MARKAÐURINN HAFNARSTRÆTI 5 — LAUGAVEGI 100 S auðfjáreigenchir Fjárræktarfélag F.R. M. heldur fund í Breiðfirðinga- búð, uppi, sunnudaginn 16. des. kl. 2. Fundarefni: 1. Fyrst rætt um fjárræktarframkvæmdir. 2. Ráðstöfun á kyn- bótahrút félagsins. 3. Önnur mál. Áríðandi að allir félags- menn mæti og aðrir, sem í félagið vilja ganga. Pétur Hjálmsson ráðunautur mætir á fundinum. STJÓRNIN. Uppboð Opinbert uppboð verður haldið í Lækjarbug í Blesugróf hér í bæ, föstudaginn, 21 .desember n.k. kl. 1,30 e.h. eftir beiðni lögreglustjórans í Reykjavík. Seld verður jörp óskilahryssa ca. 3 vetra gömul. Mark fjöður aftan hægra. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetinn í Reykjavík. Hóf eleig'endur ! TIL SÖLU nú þegar við hagstæðu verði eftirtaldir munir: Fullkominn fyrsta flokks sænskur stálborðbúnaður með merki fyrir 180 manns, ásamt súpuskálum, kartöflu- skálum, sósukönnum, smjör og brauð stativ, steikarföt, ýmsar stærðir o. fl. 'allt úr sænsku stáli. Óbrothætt vatnsglös, pottar, borðdúkar, tauserviettur og ýmisleg eldhúsáhöld. Mjög fullkomið segulbandstæki, ásamt magnara, migrófón og hátölurum. Nánari uppl. í síma 2502 kl. 2—4 í dag og á morgun. I Húsgögn til jólagjafa Höfum innskotsborð, spilaborð, póleruð stofuborð og kommóður í fjölbreyttu úrvali. Húsgagnaverzlun Guðmundar Guðmundssonar, LAUGAVEGI 166. Skrúfstykki nýkomir. í mörgum mismunandi stærðum. =HEÐINN =S SKOTFÉLAGID SKOTFÉLAG Reykjavíkur hefur þann sið að bjóða blaða- mönnum til sín árlega til að kynnast starfsemi félagsins og einni æfingu.'Jafnframt efnir félagið á þessum kvöldum til skotkeppni milli blaðamanna og er hún afar vinsæl meðal þeirra. Þetta „heimboð“ til Skotfélagsins var um daginn og var hið ánægjulegasta að venju. Blaðamenn kynntust þar enn fastmótaðri starfsemi félagsins, kynntust þeim anda öryggis sem einkennir æfingar vegna aga og hlýðni við regl- ur og síðast en ekki sízt kynnt- ust þeir hve skemmtilegt það getur verið, að æfa skotfimi, því leikni við þá íþróttagrein krefst geysilegrar þjaifunar, öryggis og margt er það sem þarf að læra áður en skot- maðurinn verður öruggur, en félagar Skotfélagsins hafa náð slíku öryggi að þeir hljóta oft 100 stig af 100 mögulegum. Þeir eru sérfræðingar um allt er að byssum lýtur, þeir búa til sín eigin skot o. s. frv. Skotkeppni blaðamannanna var geysihörð og tvísýn og mátti lengi vel ekki sjá nver sigraði. En úrslit urðu þessi: Atli Steinarsson, Morgunblaðið, hlaut 94 stig af 100 mögu- legum. Indriði Þorsteinsson, Tíminn, hlaut 88 stig. fvar Jónsson, Þjóðviljinn, hlaut 86 stig. Sigurður Sigurðsson, 75 stig. Guðni Guðmundsson, Alþýðu- blaðið, hlaut 65 stig. Karl ísfeld, Vísir, hlaut 31 stig. Að þessari keppni lokinni, iíom þegar upp óánægja meðal stuðn- ingsmanna Hræðslubandalagsins. Kváðu þeir Morgunblaðsmanninn mundu hafa æft sig á laun. Heyrðust raddir um, að rétt væri að Tímamaðurinn og Alþýðublaðs maðurinn — stuðningsmenn Hræðslubandalagsins, fengju a3 leggja saman sín stig og ná sigri á þann hátt. En á þetta var ekkl fallizt og úrslitin standa óhögguð. I viðtali, er formaður félags- ins átti við blaðamenn, að lok- inni skotkeppni þeirra, lagði hann áherzlu á tvö atriði í sambandi við Skotfélagið og meðferð skot- vopna. Hið fyrra var að allir þeir, sem gaman hafa af að fara með byssu, eða þurfa þess vegna at- vinnu sinnar, ættu að kynna sér starfshætti félagsins og koma á æfingar þess, því á æfingunum læra menn meðferð skotvopna og æfingasvæði félagsins er viður- kennt til skotæfinga, enda greini- lega merkt. Þar geta skyttur því áreitnislaust skotið af byssum sínum, hvort heldur er til að æfa skotfimi eða stilla þær. Hitt atriðið var, að slys, sem verða af byssum stafi yfirleitt alltaf af vanþekkingu og kæru- leysi. Skotfimni iðkuð af þekk- ingu, er eitt áhættulausasta sport sem til er. Góð skotfélög leggja allt kapp á, að skotæfingar fari þannig fram, að slys geti ekki komið fyrir og flest skotfélög erlendis geta bent á áratuga starf- semi án þess að slys vilji tiL Þannig er það líka með Skotfé- lag Reykjavíkur. Þetta skal sér- staklega tekið fram, þar sem þeirri skoðun er oft á loft haldið, að skotæfingar séu hættulegar. Félagið hefur á hverju ári látið blöðum í té öryggisreglur sínar um meðferð skotvopna. Ef þeim reglum er fylgt forðast menn slysin. Félagið heldur skotæfingar á hverjum miðvikudegi kl. 9.20—11 að íþróttahúsinu Hálogalandi að vetrinum, en að sumrinu á æfinga svæði félagsins. Innanhúss eru aðeins notaðir rifflar cal. 22, en úti allar stærðir riffla. Þriðjudaginn 4. des. var aðal- fundur Skotfélags Reykjavíkur haldinn og var Erlendur Vil- hjálmsson deildarstjóri endur- kjörinn formaður og aðrir í stjórn Aðalsteinn Sigurðsson, Eyjólfur Jónsson, Leó Schmidt, Róbert Schmidt, Sverrir Magnússon og Tryggvi Árnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.