Morgunblaðið - 13.12.1956, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.12.1956, Qupperneq 20
M ORGTJ TS BL AÐIÐ Fimmtudagur 15. des. 1956 2« GULA |[||| herbet'efið eftir MARY ROBERTS RINEHART Fiamhaldssagan 4 pangað einar. Lucy Norton verð- ur þar, hvort sem er — eða er það ekki? Elinor virtist þetta áhuga- mál. — Nei, ég fer á sunnudaginn. Það er ekki hægt að breyta því héðan af. Hún horfði á Elinor við snyrti- borðið, sem var þakið alls konar fegrunaráhöldum úr gulli og svo krukkum og ilmvatnsglösum, sem virtust eins mikill hluti af henni og vandlega lituðu augnabrún- irnar. Nú var hún að draga bursta yfir augnabrúnirnar, en línan varð hlykkjótt. Elinor var sjálfhent. 2. Ferðin til Boston var hreinasta martröð. Lestin var troðfull af sunnudagsferðafólki og stanzaði oft með rykkjum, svo að Carol fannst hún ætla að hálsbrotna. Ennþá var kasheitt, og hugur hennar var uppfullur af viðburð- um síðustu þriggja daganna. Allar tilraunir til að komast í samband við Greg í Washington höfðu farið út um þúfur og frú Spencer hafði lokað sig inni í herberginu sínu og haldið uppi virðulegri þögn. En þegar sunnu- dagurinn kom, hafði hún risið upp á afturfótunum. — Ég held ég ætti að fara með þér, Carol. — Það er eins gott og að vera hér. Ef Elinor hefur ekki annað að bjóða mér en fæði UTVARPIÐ Fimintudagur 13. desember: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Á frívaktinni“, sjó- mannaþáttur (Guðrún Erlends- dóttir). 18,30 Framburðarkennsla í dönsku, ensku og esperantó. — 19,00 Harmonikulög. 19,10 Þing- fréttir. — Tónleikar. 20,30 Frá- sögn: Á söguslóðum Gamla testa- mentisins; sjöundi hluti (Þórir Þórðarson dósent). 20,55 Tónlistar kynning: Lög eftir Eyþór Stefáns son. Flytjendur: Guðmunda Elías- dóttir, Guðrún Á. Símonar, Þuríð- ur Pálsdóttir, Guðmundur Jónsson, Þorsteinn Hannesson og Kirkju- kór Sauðárkróks undir stjórn höf- undar. Fritz Weisshappel leikur undir einsöngvunum og undirbýr þennan dagskrárlið. 21,30 Útvarps sagan: „Gerpla“ eftir Halldór Kiljan Laxness; X. (Höfundur les). 22,00 Fréttir og veðurfregn- ir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Upp- lestur: „Meðan þín náð“, kaflar úr prédikunum eftir Sigurbjörn Einarsson prófessor (Baldur Pálmason). 22,30 Sinfónískir tón- leikar (plötur). 23,10 Dagskrárlok Föstudagur 14. desember: 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18,30 Framburðarkennsla í frönsku. 18,50 JJétt lög. 19,10 Þing fréttir. — Tónleikar. 20,30 Dag- legt mál (Glímur Helgason kand. mag.). 20,35 Kvöldvaka: a) Páll Bergþórsson veðurfræðingur talar um veðrið í nóvember o. fl. b) Jó- hannes úr Kötlum les ljóðaflokk sinn „Mater Dolorosa". c) Islenzk þjóðlög, sungiri og leikin (plötur). d) Raddir að vestan: Finnbogi Guðmundsson ræðir við Vestur- Islendinga. 22,00 Fréttir og veður fregnir. — Kvæði kvöldsins. 21,00 sjálfsævisaga Þórbergs Þórðarson Upplestur: „Steinamir tala“, (höfundur les). 22,30 Tónleikar Björn R. Einarsson kynnir djass- plötur. 23,10 Dagskrárlok. og húsnæði, er engin ástæða til að vera að hanga hér. Carol var hálftíma að fá hana til að vera kyrra. Það var oft kalt í júní norður í Maine, og húsið myndi vera rakt, hvað sem öllu veðri liði, sagði hún. Auk þess hefðu stúlkurnar meira en nóg að gera, og það myndi aldrei fara almennilega um hana, fyrstu dag- ana. Betra að bíða nokkra daga. Að minnsta kosti hefði hún al- mennilegt fæði og húsnæði þar sem hún var nú. Þegar þessum bardaga var rétt aðeins lokið, kom Virginia Demarest í heimsókn. Hún var há, grönn og rauðhærð, mjög lag- leg og mjög ung — og, í þessari andránni að minnsta kosti, mjög reið. — Ég vildi að þið gætuð sagt mér, hvar hann Greg er niður- | kominn. Eða vitið þið það kann- ske ekki heldur? Ég hef ekki heyrt neitt frá honum síðan hann fór frá San Francisco áleiðis til Washington, fyrir heilli viku. Hún kveikti í vindlingi og fleygði frá sér eldspýtunni, næst- um vonzkulega. — Við vitum ekki annað en, að hann er í landinu, Virginia mín. Nú ætlum við að fara að gera Crestview í stand, vegna hans. En ég fann nú samt ekki upp á því, bætti Carol við, er hún leit framan í Virginiu. — Mamma heldur, að hann þurfi svalt lofts- lag, eftir þetta sem hann hefur verið í. Sennilega er hann ein- hvers staðar í Washington. Hann átti að taka þar við heiðurspen- ingnum sínum, eða hvað það nú er, í þessari viku. Auðvitað er hann önnum kafinn. — Það ætti nú að vera símasam band við Washington, sagði Virg- inia, bálvond. — Allir símar lands ins virðast hafa verið sendir þang að. Eins býst ég við, að ennþá séu til þriggja-senta frímerki. Hvað segir Elinor? — Hún er í New York og veit heldur ekki neitt um hann. Virginia leit á hana. — Hún og Greg halda þó víst vel saman, er það ekki? Carol brosti. — Ég fæddist seinna, og var víst enginn aufúsugestur, skilst mér. Já, þeir.r þykir víst mjög vænt hvoru um annað. Virginia var hætt að hlusta. Hún var að horfa á mynd af Greg, sem var hávaxinn og fallegur ung ur maður í flugmannsbúningi og með hjálm. Nú virtist allur bar- dagahugur horfinn úr henni. Hún slökkti í vindlingnum og horfði hálf-vandræðalega á Carol. — Það hlýtur éitthvað að vera að, sagði hún. Síðan hann fór héðan í síðasta leyfinu sínu, hafa bréfin hans verið öðru vísi. Já, karlmennirnir geta víst orðið af- skotnir, ekki síður en skotnir. — Hvaða vitleysa, svaraði Carol. — Ef ég hef nokkurn tíma séð mann, yfir sig ástfanginn, var það Greg. En auðvitað eru bréfin hans öðru vísi en áður, síðan farið var að skoða hvert bréf. En Virginia lét ekki sannfær- ast. — Þeir hafa allar möguleg- ar stúlkur þarna í öllum þessum hjálparsveitum, og hann hefur kannske rekizt á einhverja, sem hann hefur orðið hrifinn af. Hann er ekkrt barn lengur. Orðinn 34 ára og búinn að flækjast víða. Þú þekkir hann. Carol þekkti hann, varð hún að játa með sjálfri sér. Hún hafði alltaf dáðst að fríðleik hans, og vingjarnlegri framkomu, jafnvel því, hvernig hann komst frá ávirð ingum sínum. Það hafði verið hún, sem fyrir mörgum árum læddi til hans höfuðverkjartöfl- um og jafnvel viskíi, til þess að hressa sig á, ef hann var timbr- aður, svo að hann gæti sýnt sig fjölskyldunni. Og hún hafði skil- ið hann betur en Elinor. — Þú ættir að fara að verða fullorðinn, hafði hún einu sinni sagt við hann, þegar hún stóð, háfætt og rengluleg, við rúmið hans. En hann glotti til hennar. — Til hvers ætti ég það? Nei, það er gaman að vera ungur — eða að minnsta kosti var það í gærkvöldi. Carol vaknaði fyrir full og allt, þegar komið var til Boston. Henni tókst að komast á Norðurstöðina í leiguvagni, sem virtist ætla að sligast þá og þegar, og þar fann hún þrjár niðurdregnar stúlkur, sem engan mat höfðu fengið og stóðu nú yfir ferðatöskum, sem þær höfðu orðið að bera sjálfar. Aðeins Maggie, eldabuskan, bar við að brosa til hennar. — Jæja, svona langt erum við komnar, ungfrú Carol. Og ef þér vissuð, hvar við getum fengið okkur kaffibolla.. Hún útvegaði þeim eitthvað að borða, með miklum erfiðismun- um, og sat hjá þeim við borðið og reyndi að koma ofan í sig þurri brauðsneið með osti. Btúlkurnar hresstust talsvert, við matinn. Þarna voru engir burðarmenn fáanlegir, svo að þær drösluðu farangri sínum upp í lestina, eins og bezt gekk. Nú voru þessir erf- iðleikar orðnir hálfgert ævintýri í augum ungu stúlknanna, ekki sízt af því að Carol var nú komin þeim til hjálpar. En þegar hún reyndi að komast inn í setustof- una, sem hún átti að hafa aðgang að, sagði umsjónarmaðurinn, að hún væri þegar setin. Þar dugðu engin mótmæli. Ef tveir miðar KELVINATOR COBRA er B Ó N I Ð sem þér eigið að nota. Reynið og sannfærist um gæðisq, Heildsölubir gðir: Eggert Kristjánsson & Co. h.f. ♦> ♦:♦ •> <* •> ❖ ♦> *:* *> •> »> *> ♦> *> •> *> •> ♦> ♦> *i MARKÚS Eftir Ed Dodd _ NO„ MR. I TRAIL...I'/V\ TAKIMG HIM HOME ... NOW / m 1) — Jæja, og nú er ég komin til þess að fara aftur með þig heim. Það voru sannarlega mikil mistök að leyfa að þú færir í svona ferð. 2) — En mamma, ég hef það alveg dásamlegt. Ég vil ekki fara heim. 3) — En Finnur minn, ef þú bara vissir, hve áhyggjufull ég hef verið. Ég hef ekki getað sofið og hef alltaf höfuðverk af áhyggj- um. 4) — Finnur stendur sig ágæt- lega. Ég vildi að þér leyfðuð hon- um að vera áfram með okkur. — Nei, Markús. Það kemur ekki til mála. Hann kemur strax heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.