Morgunblaðið - 30.12.1956, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.12.1956, Blaðsíða 14
14 MORGvnnr, 4ðið Sunnudagup 30. des. 1950 GLEÐILEGT NYTT AR! í>ökkum viðskiptin á liðna árinu. VOGABÚÐ, Karfavog 31. GLEÐILEGT NYAR! í>ökkum viðskiptin á liðna árinu. Verzlunm Guðmundur H. Albertsson, Langhol tsvegi 42 Óskum öllum viðskiptavinum okkar I og þökkum viðskiptin á liðna árinu. Verzl. Hamrafell. GLEÐILEGT NYAR! jÞökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Húsgögn og innréttingar, Ármúla 20. GLEÐILEGT NYTT AR! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. GLEÐILEGT NYAR! Þakka viðskptin á liðna árinu. SJOLAXINN Njálsgötu 26. LANDSTÓLPI HF. óskar ölium viðskiptavinum GLEÐILEGS NYARS! og þakka viðskiptin á liðna árinu GLEÐILEGT NYAR! Þökkum viðskiptia á liðna árinu. Vetrargarðurinn. GLEÐILEGT NYAR! Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Verziunin Brú, Akranesi. GLEÐILEGT NYAR! Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Þórarinn F.yjólfsson frá Kefiavik. Hvergerðingar fengu jólatré að gjöf frá Brande IHVERAGERÐI voru sett upp tvö mjög falleg og skrautleg jóla- tré fyrir jólin. Er annað þeirra gjöf frá vinabæ Hveragerðis Brande í Danmörku og var það tré sent austur s.1. föstudag. Var kveikt á því strax það kvöld, eftir að komið hafði verið fyrir fagurri stjömu í toppi þess, og annaðist það verk Guðjón Pálsson rafvirkjameistari. Er þetta í fyrsta skipti sem Hvergerðingar fá jólatré að gjöf frá vinabæ. Hitt jólatréð er allmerkilegt, og þá sérstaklega fyrir það, að það „stendur í sinni moldu kyrrt“. Tré þetta er nefnilega uppfóstrað hjá Páli Michaelsen, garðyrkju- manni. Tréð er um það bil 15 ára gamalt og hefur nú náð 3% rnetra hæð. Er það með bezta þroska sem grenitré ná hér á landi. Tréð prýddi eigandi þess fyrir jólin með marglitri jólaseríu, sem er margvafin um greinar þess og stofn. Tréð er í garði Páls, en hann býr í þorpinu miðju, við aðalgötu þess. Bæði þessi tré eru Hvergerðingum til mikillar gleði, ekki hvað sízt yngri kynslóðinni. Þetta eru önnur jólin sem Hver- gerðingar hafa glatt sig við úti- jólatré, og múnu þeir hafa í hyggju að láta þann srð haldast hér eftir. Steingrímur Jónsson fyrrv. bœjarfógeti látinn Steingrímur Jónsson, fyrrv. bæjarfógeti á Akureyri andaðist í gær, 89 ára að aldri. Hann var fæddur 27. des. 1867 að Gautlöndum við Mývatn, son. ur Jóns alþm. Sigurðssonar og konu hans Sólveigar Jónsdóttur. HIjómlisfarskóli F. I. H. tekur til starfa mánudaginn 7. janúar nk. — Nemendur mæti til viðtals í húsnæði skólans, Breiðfirðingabúð, við Skólavörðustíg föstudaginn 4. janúar og laugardaginn 5. janúar klukkan 1—3, báða dagana. Nemendur, sem enn hafa ekki látið skrá sig, geta gert það á sama tíma. Hljómlistarskólinn. Var Steingrímur einn af hinum landskunnu Gautlandsbræðrum og hinn síðasti þeirra, sem á lífi var. Steingrímur lauk lagaprófi frá Hafnarháskóla 1894, varð aðstoð- armaður í ísl. stjórnardeildinni í Höfn sama ár, en 1897 sýslumað- ur Suður-Þingeyjarsýslu. Gegndi hann því embætti til ársins 1920 er hann varð bæjarfógeti á Ak- ureyri og sýslumaður Eyfirðinga, en því embætti hélt hann til árs- ins 1934, er hann hætti störfum fyrir aldurssakir. Steingrímur Jónsson var kon- ungskjörinn alþm. 1906—16 og gegndi mörgum trúnaðarstörfum. Hann átti sæti í sambandslaga- nefndinni 1908 og var siðastur á lífi þeirra nefndarmanna. Steingrímur var kvæntur Guð. nýju Jónsdóttur, sem látin er fyrir nokkrum árum. Var heimili þeirra annálað fyrir myndarskap, en Steingrímur var landskunnur maður af stjórnmálaafskiptum sínum og embættisferli. Var hann kunnur fyrir gáfur og lærdóm og góðvild í viðskiptum sínum við menn, enda var hann mjög vin- sæll og vel látinn þar í sýslum, sem hann gegndi embætti. Tilkynning Umsóknir um fjárfestingarleyfi fyrir næsta ár, bæði ný leyfi og endurnýjanir, þurfa að berast Innflutnings- skrifstofunni fyrir 15. janúar eða vera pósttagður þann dag í síðasta lagi. Eyðublöð undir umsóknir fást hiá Innflutningsskrif- stofunni í Reykjavik og oddviíum eöa byggingamemdum utan Reykjavíkur. 27j desember 1956. Innflutningsskrifstofan. TILKYNNING Athygli allra, er það varðar, er hér með vakin á því, að enn er í gildi bann við hækkun á öllum vörum í heildsölu og smásölu og hverskonar þjónustu, sem auglýst var samkv. bráðabirgðalögum frá 28. ágúst s.l. og endurtekið hefur verið samkv. 33. gr. laga nr. 86 frá 22. desember sl., nema samþykki Innflutningsskrifstofunnar komi til. Ennfremur er lagt fyrir innflytjendur og iðnrekendur að skila verðútreikningum sínum til skrifstofu verðlags- stjóra, þegar eftir tollafgreiðslu eða eftir að vara er að öðru leyti tilbúin til sölu. Reykjavík, 29. desember 1956. INNFLUTNINGSSKRIFSTOFAN úfvarpsins slofnaðar SAMKVÆMT skipulagsskrá dagg 26. sept. s.l., er menntamálaráðu- neytið hefur staðfest, hefur verið stofnaður sjóður við Ríkisútvarp- ið, er nefnist Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins, og er honum ætlað að styrkja íslenzka rithöf- unda til ritstarfa eða undirbún- ings undir þau, einkum með uían ferðum, og láta Ríkisútvarpinu í té nýtt efni til flutnings eftir heimkomuna. Sjóðurinn er nú rúmlega 230 þúsund krónur. í samræmi við skipulagsskrá sjóðsins hefur menntamálaráðu- neytið í dag skipað Kristján Eld- járn, þjóðminjavörð, formann, en aðrir í sjóðstjórninni eru Vil- hjálmur Þ. Gíslason, útvarps- stjóri, og Andrés Björnsson, dag- skrárstjóri, af hálfu Ríkisút- varpsins, Helgi Sæmundsson, rit- stjóri, af hálfu Félags íslenzkra rithöfunda, og Jakob Benedikts- son, magister, af hálfu Rithöf- undafélags íslands. (Frá menntamálaráðuneytinu). Sfettin-réftarhöld hefjast UM miðjan janúar munn hefj- ast réttarhöld vegna óeirð- anna, sem urSu í pólskn hafn- arborglnni Stettin 10. des. s.L Verða sex ntenn þá leiddir fyrir rétt sakaðir fyrir aS hafa stjórnað árás á lögreglu- stöðina og fangelsið í borg- inni. Óeirðirnar hófust á sín- um tíma með mótmælaaðgerð- um til þess að sýna andúð á hersetu Rússa í Póllandi. 70 manns voru handteknir eftir þær og sitja nú í fangelsi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.