Morgunblaðið - 18.01.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.01.1957, Blaðsíða 13
TTöstudagur 18. Jan. 1956 HrOnCUlKBr 4ÐJÐ 13 Um óþurrkalánin FYRIR Alþingi liggur þingsálykt- unartillaga frá 1. þingrn. Rangæ- inga og 2. þingm. Árnesinga, um að óþurrkalánin svonefndu verði felld niður, þ.e. að lántakendur þurfi ekki að greiða þau aftur. Mér er ekki kunnugt um, að bændur almennt hafi óskað eftir að þeir væru leystir frá greiðslu- skyldum á þessum lánum. Ég er þess fullviss, að megin- þorri þeirra bænda á Suður- og Vesturlandi, sem þessi lán fengu, bæði geta og vilja greiða þau, og hafa tekið þau með það fyrir aug- um, að þau yrðu greidd. Ef um það hefði verið að ræða að þessi aðstoð hins opinbera yrði veitt sem óafturkræft framlag mundu hreppsnefndirnar, sem sáu um dreifingu lánanna hafa haft önn- ur sjónarmið en þær höfðu, þar sem þeirri reglu mun alla jafna hafa verið fylgt, að lánin væru í nokkru hlutfalli við bústofn, að þeir sem áttu flest búfé fengu stærst lán enda virtist það vera í samræmi við tilgang aðstoðar- innar, að komið yrði í veg fyrir verulega bústofnsrýrnun, sem gæti orsakað skort á vissum land- búnaðarvörum. Enda liggur bað nú fyrir að því markmiði hefur verið náð, þar sem mjólkurfram- leiðslan á félagssvæði Mjólkur- samsölunnar sem er aðalóþurrka- svæðið, var hin sama 1955 og ár- íð áður, en nálægt 1000000 1 meiri fyrstu 10 mánuði þ.á. Ég skal fúslega viðurkenna það, að til eru þeir bændur, sem ekki geta, eða eiga mjög erfitt með að greiða þessi lán, t.d. menn sem hafa verið að byrja búskap og fengu þetta vandræðasumar i byrjun, svo og menn með þunga ómegð og máske einhverjar fleiri ástæður. Það er siður en svo að ég VBji mæla á móti því.að þess- ir rnenn fái eftirgjöf á lánum sín- um, en það ætti að vera ínnan handar að ganga svo frá því, að fela hreppsnefndunum að meta það hverjir yrðu þeirrar. eftir- gjafar aðnjótandi. Þótt það yrði máske óvinsælt fyrir nrepps- nefndirnar, þá eru þær sá aðili sem þessu eru kunnugastar. Þó að þessi lán verði endur- greídd er ekki þar með sagt. að þessi fjárupphæð eiga að hverfa úr vörslu landbúnaðarins, og mun ég koma með ákveðna tillógu um það efni. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvaða erfiðleikar eru á því fyrir unga menn að byrja búskap í sveit, þar sem flestar jarðir eru komnar í sjálfseignarábúð og þess vegna seldar þegar eigandi hætt- ir búskap og engin lánsstofnun starfhæf vegna fjárskorts til að veita lán til jarðakaupa, saman- ber útvarpserindi starfsmanns Búnaðarbankans nú fyrir nokkru. Þá tel ég þessum peningum betur varið, að jafnóðum og lánin greið ast, verði þau lögð í veðdeild Búnaðarbankans er lánaði síðar ungum mönnum til jarða- og bú- stofnskaupa. Hliðstætt stofnlána deild sjávarútvegsins. Það ei alveg víst að með þessu móti ver< ur þetta fé að hagkvæmari not um fyrir landbúnaðinn í framtíð inni en þótt fjöldi velefnaðri bænda verði leystir undan þeirn sjálfsögðu skyldu að greiða skuld ir sínar. Það er alveg lífsnauðsyn fyrir íslenzkan landbúnað r.ð itthvað verði gert til að ungir menn geti hafið búskap í sveit, er þeir vilja fara að stofna heimili. Ég er sann- færður um að fjöldi þeirra manna Happdrœtti Háskóla íslands * I dag er næsf siðasfi söludagur Sölumiðar eru á þrofum . Vitjið númera yðar áður en þau verða seld öðrum 700 00 vinningar — Samtals 13,440,000 kr. er flytja nú í kaupstaði og sjáv- arþorp til að geta stofnað sitt eig- ið heimili, mundu vilja vera kyrr- ir í sveitunum, ef þeim væri skóp- uð aðstaða til þess, og þar sem æskan vill vera þar er framtíðin. Einar Ólafsson, Bækj arhvammi. Verzlunarhusnæði óskast til leigu nú þegar. Tilboð merkt: „Laugavegur —7184“, sendist Morgunbl. fyrir 21. janúar. ÚTSALA ÚTSALA KVENKÁPUR mikill afsláttur BÚTASALA mjög ódýrir bútar KÁPU- OG LAUGAVEGI DÖMUBÚÐIN 15. Frúaleikfími hefst í í. R. húsinu í dag klukkan 4 síðdegis. ★ Kennari: Frú UNNUR BJARNADÓTTIR, 7 % Verið með frá byrjun. Afgreiðslusfúlka óskast nú þegar. Uppl. í verzlufíinni frá kl. 5—7. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Marteinn Einarsson & Co. Tapað 15. þ. m. tapaðist af bíl þrýstiloftshamar ásamt nokkrum fleygum á leiðinni frá Laugarásvegi nr. 1 um Sunnutorg, Langholtsveg og Kleppsveg að Lýsissamlaginu. Skilvís finnandi beðinn að gera aðvart á hafnarskrif- stofunni. Hafnarstjóri. IMIOUR SETT VERÐ Jk Seljum í dag og næstu daga ÓDÝRA KARLMANNASKÓ brúna, nieð svampsólum. Verð 198.00 Birgðir takmarkaðar. Aðalstræti 8 — Laugavegur 38 — Garðastræti 6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.