Morgunblaðið - 08.02.1957, Page 1
Er ætlunin að breyta úrslitum Alþingiskosn-
inga 1956 með nýrri löggjöf settri 1957?
* Skilaboð Hermanns Jónassonar
Fyrir nokkrum dögum var skýrt frá því í fréttum, að fangar í
ríkisfangelsinu í Palermo á Sikiiey hefðu gert uppreisn. Klifruðu
þeir upp á þak fangelsisins og vörðust þar, unz lögreglan beitti
vélbyssum. Myndir þessar voru teknar um morguninn eftir að
uppreisnarfangarnir höfðu hýizt á þakinu næturlangt. Efri myndin
sýnir brynvarðan vagn lögreglunnar utan fangelsismúranna. Neðri
myndin sýnir hóp fanga uppi á þakinu.
---------------------------«
Þetta gerðist í gær.„
.. í stuttu máli
•jf Washington — Lincoln White
fulltrúi bandaríska utanríkisráðu-
neytisins sagði, að það yrði að
teljast brot á ályktun S. í>. frá
því í okt. s. 1. ef Kússar héldu
áfram vopnasendingum til Egypta
lands. London—Bankavextir í
Englandi hafa verið lækkaðir úr
5%% í 5%. Thorneycroft fjár-
málaráðherra sagði þetta þó ekki
túlka neina breytingu á banka-
málastefnu stjórnarinnar. ★
Washington —Utanríkisráðuneyt-
ið tilkynnti að á næstunni kæmi
pólsk sendinefnd til Washington
og væri hlutverk hennar að auka
efnahagssamstarf við Bandaríkin.
Vilja Pólverjar fá bandarísk mat-
væli, aðallega hveiti og feitmeti.
New York—Paul Henri Spaak
kom fljúgandi til Bandaríkjanna.
Hann ætlaði að semja um sam-
starf milli Norður- og Vesturálfu
um notkun kjarnorku til frið-
samlegra starfa. ir Kairo—Hinn
opinberi egypzki saksóknari
krafðist í dag dauðadóms yfir 20
manns, sem sakaðir eru um njósn-
ir. Þeirra á meðal eru fjórir Bret-
ar. Moskva—Rússar vísuðu úr
landi tveimur flotamálafulltrúum
við bandaríska sendiráðið í
Moskvu, sem þeir saka um njósn-
ir. Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið mótmælir þessu og segir full-
trúana saklausa.
Wallenberg dó í Lubjanka-fangelsi
Rússar hafa 20 sinnum svarað
að Gestapo hefði skotið hann
Stokkhólmur, 7. febrúar — Einkaskeyti frá NTB.
CJOVÉTRÍKIN hafa upplýst sænsku stjórnina um það, að
^ hinn sænski sendifulltrúi Raoul Wallenberg, sem hvarf
í Búdapest 1945, eftir að rússneski herinn tók borgina, hafi
látizt af hjartaslagi tveimur árum síðar í Lubjanka-fangels-
inu í Moskvu.
GLÆPASTARFSEMI
RÁÐHERRA
Upplýsingar þessar voru gefn-
ar í tilkynningu (memorandum),
sem Gromyko, varautanríkisráð-
herra, afhenti Rolf Sohlman,
sendiherra Svía í Moskvu. í
henni segir, að Wallenberg hafi
látizt í fangelsinu aðfaranótt 17.
júlí 1947. Hafi þetta nýlega komið
í ljós við rannsókn á skjölum
Abakumovs, öryggismálaráðh.,
sem var einn af meðhjálpurum
Berías og tekinn af lifi í desem-
ber 1954.
Segir í tilkynningu sovétstjórn-
arinnar, að glæpastarfsemi Aba-
kumovs, sovétráðherra, hafi ver-
ið undirrót þess, að Wallenberg
var haldið í fangelsi og að rúss-
neska utanríkisráðuneytinu voru
gefnar rangar upplýsingar um
þetta mál.
Sænska stjórnin hefur birt at-
hugasemd vlð rússnesku tilkynn-
inguna. í henni segir, að þessar
upplýsingar Rússa séu samhljóða
sannaðri vitneskju sænska utan-
ríkisráðuneytisins. Það skal þó
harmað, að þessar upplýsingar
eru svo ófullnægjandi að ekki
verður komizt hjá að krefjast
þess að rússneska stjórnin veiti
fullkomna skýringu á handtöku
og allri dvöl Wallenbergs í rúss-
neskum fangelsum. Wallenberg
hafi verið opinber sendifulltrúi
sænsku stjórnarinnar og rúss-
neska stjórnin hafi ekki svarað
ítrekuðum fyrirspurnum sænsku
stjórnarinnar um örlög hans. Nú
verði hún að leysa frá skjóðunni.
Fyrirspurnirnar voru orðn-
ar rúmlega 20 talsins, og svör-
uðu Rússar þeim að jafnaði
svo, að Wallenberg hefði ver-’
ið skotinn af Gestapo.
En ítalskir utanríkisþjón-
ustumenn, sem Rússar slepptu
úr haldi 1951 upplýstu að
Wallenberg hefði setið í sama
fangelsi og þeir.
Russor stinga upp d aivopn-
unnrrúðstelnu í murz n.k.
New York, 7. febrúar — Einkaskeyti frá NTB.
SOVÉTRÍKIN lögðu í dag til, að utanrikisráðherrar stórveldanna
hittust í Lundúnum í marz n. k. til að ræða afvopnunarmálin.
Tillagan kom fram í bréfi Kusnetsov formanns rússnesku sendi-
nefndarinnar til hins brezka starfsbróðurs Allan Noble. Segir hann
að ef slík ráðstefna yrði haldin væri æskilegt að hana sætu einnig
æðstu menn stórveldanna á sviði hermála og efnahagsmála.
Alþingi neitar að taka Eggert
Þorsteinsson gildan sem rétt
kjörinn varaþingmann
AFUNDI Sameinaðs Alþingis í gær var til umræðu og ákvörð-
unar tillaga Áka Jakobssonar og Gísla Guðmundssonar um
að Eggert Þorsteinsson yrði tekinn gildw sem réttkjörinn vara-
þingmaður af lista Alþýðuflokksins.
Tillagan var felld með 24 atkvæðwm gegn 23.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins hétt Bjarni Benediktsson ýtarlega
ræðu um málið og treystust andstæðingarnir ekki tU að mótmæla
honum einu orði. Ræða Bjarna fer hér orðrétt á eftir:
Herra forseti.
ÉG TEL að eins og þetta mál
var afgreitt í kjörbréfanefnd, þá
hefði verið eðlilegra að afgreiða
hér í sameinuðu Alþingi fyrst
og sérstaklega kjörbref Geirs
Gunnarssonar. Öll nefndin var
sammála um það, og þeð mál
var tekið í n. fyrir á uudan hinu
málinu, og hv. þm. Siglf. var
kosinn frsm. allrar n. fyrir því
málið hér ranglega lagt fyrir af
fyrir máli Eggerts Þorsteinsson-
ar, sem var afgreitt í n. á eítir,
og er þar mjög umdeilt Tel ég
málið hér langlega lagt fyrir af
nefndarinnar hálfu að þessu
leyti.
En úr því að forseti lætur ræða
bæði málin samtímis, þá er rétt,
að ég lýsi afstöðu minni til kjör-
bréfs Eggerts Þorsteinssonar, og
áskil mér þó rétt til þess að
gera gleggri grein fyrir því i nfil.,
sem mér hefur ekki ennþá unnizt
tími til að semja, vegna þess hve,
bráðan ber nú að um fyrirtekt
málsins hér. Og skal ég ekki hafa
á móti því, að það sé afgreitt í
dag, svo lengi sem það hefur
frestazt, því að það var mánud.
28. jan. s. 1., sem fundur var hald-
inn í kjörbréfanefnd, og er bók-
að um þann fund:
MÁLIÐ LAGT FYRIR
K J ÖRBRÉFANEFND
Fundarefni:
Haraldur Guðmundsson óskar
þess bréflega, að Eggert Þor-
steinsson taki sæti hans á Alþ. í
fjarveru hans.
Lagt fram afrit af bréfi Haralds.
Ennfremur lagt fram eftirrit af
bréfi yfirkjörstjórnar, þar sem
hún vísar 'málinu varðandi kosn-
ingu Eggerts Þorsteinssonar til
Alþingis. Tillaga frá Áka Jakobs-
syni: Nefndin samþykkir að
leggja fyrir þingið, að Eggert
Þorsteinsson verði tekinn gildur
sem rétt kjörinn varaþingmaður
af lista Alþýðuflokksins. A. G.
leggur til, að ofangreindri tillögu
verði frestað til næsta fundar.
Formaður fellst á frestun máls-
ins og heitir að kalla saman fund
hið fyrsta. Fundi slitið.
Gísli Guðmundsson, Alfreð
Gíslason".
Hér vantar raunar í, að bæði
ég og hv. 11. landsk., Friðjón
Þórðarson, lýstum okkur reiðu-
búna til að taka afstöðu til þessa
máls þegar í stað á fundinum 28
janúar. En þrátt fyrir það taldi
form. rétt að fresta fundinum, og
þrátt fyrir loforð um það að kalla
n. saman hið fyrsta, þá hefur
honum ekki unnizt tími til þess
fyrr heldur en í morgun, hinn T.
febrúar. Veit ég þó ekki til þess,
að þingmenn hafi verið mjög
störfum hlaðnir þann tíma, sem
síðan er liðinn. En það var fyrir
sérstakan atbeina hæstv. forseta,
Emils Jónssonar, að málið var
tekið fyrir á fundinum í morgun.
Og var þá bókað um þetta:
ANNAR FUNDUR KJÖR-
BRÉFANEFNDAR
„Tekið fyrir mál frá síðasta
fundi um varamann 4. þm. Reykv.
Formaður skýrði frá því, að
forsrh. hafi tjáð sér, að ríkis-
stjórnin mundi leggja fyrir- Al-
þingi, sennilega í dag, frv. um
breytingu á lögum um kosningar
til Alþingis, sem meðal annars
snerti þetta mál, og mundi, að
því er formanni skildist, ef að
lögum verður, fela i sér úrskurð
Alþingis um það.
A. G. leggur fram svohljóðandi
tillögu:
„Kjörbréfanefnd telur það utan
verksviðs síns samkvæmt 4. gr.
þingskapa að fjalla um þetta mál,
eins og það er fyrir hana lagt. og
skilar því ekki áliti á þessu
stigi“.
Þessi tillaga var borin upp og
felld með tveimur atkvæðum
gegn einu. Tveir greiddu ekki at-
kvæði.
Bjarni Benediktsson óskar bók-
að: Hann hefur óskað upplýst,
velja, úrskurðað hvern þann kos-
inn ,sem því lízt?, ef Alþingi þorir
ekki að gera það eftir lögunum
eins og þau voru, þegar menn
gengu til kosninga, þá er bara
að breyta lögunum einu eða
tveimur árum siðar og segja: ARt
annar maður átti að vera kosinn
eftir þeim nýju lögum heldur en
hvort fordæmi væru fyrir því,
að þingið tæki til meðferðar
þingsetu kjörbréfalauss þing-
manns, og þar eð hann hefði ekki
fengið þær upplýsingar enn, sæti
hann hjá við ofangreinda at-
kvæðagreiðslu.
Tillaga Áka Jakobssonar frá
síðasta fundi var borin upp. Tveir
greiða henni atkvæði: Gísli Guð-
mundsson og Áki Jakobsson.
Tveir á móti: Bjarni Benedikts-
son og Friðjón Þórðarson. Einn
greiðir ekki atkvæði: Alfreð
Gíslason, og gerir grein fyrir því
með tilvísun til tillögu sinnar.
Fleira var ekki tekið fyrir.
Fundi slitið“.
Framh. á bls. 3