Morgunblaðið - 08.02.1957, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.02.1957, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐ1Ð lTostudagur 8. febrúar 1957 GULA he eítír MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 47 Hún hélt áfram að aia á þessu, rétt eins og hún væri bara að stríða honum. — Þú skilur, það er verið að fleygja því, að þú haf- ir verið hér á ferðinni nóttina, sem morðið var framið. Þú ættir aó útbúa þigr með nokkrar fjar- verusannanir. Greg virtist verða hissa. Hann setti frá sér glasið og leit í kring- um aig á hópinn. — Égr skil ekki almennilega, hvað þú átt við. Hvaða saga er þetta? Ég hef sjálfur ekki heyrt hana. — O, bara það, að þú hafir sért hérna, að koma innan af braut- inni hingað í bílnum hennar Elinor. — Bílnum hennar? Hvað í dauðanum hefði ég átt að vera að gera í hennar bíl? Louise hló. — Nú, það er nú einmitt sú hin mikla spurning, sagði hún og tæmdi glasið sitt. Það var Peter Crowell, sem loks rauf þögnina, sem á eftir kom. — Hvers vegna læturðu þetta ekki afskiptalaust, Louise? spurði hann. — Auðvitað komast alls konar sögur á kreik, Greg. Það gretur aldrei hjá því farið. Þetta er bara ein slík. Láttu eins og ekkert sé. Enginn trúir henni. Hann stóð upp. — Það er vist kominn timi til að fara. Og meira en það, bætti hann við. 15. Dane frétti ekki lát Lucy fyrr en Alex kom úr kaupstaðarferð sinni þennan morgun. Ekkert hafði enn heyrzt frá Tim í St. Louis og Dane var eirðarlaus. Hann hafði enn einu sinni gengið yfir alla brekkuna. Flestir varð- mennimir voru famir og síðasti vottur af eldi var horfinn, en hann vissi vel, hversu tilgangslaus öll LTVARPIÐ Föstudagur 8. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18,30 Framburðarkennsla í frönsku. 18,50 Létt lög. 19,10 Þing fréttir. — Tónleikar. 20,30 Dag- legt mál (Amór Sigurjónsson rit- stjóri). 20,35 Kvöldvaka: a) Sig- urður Þórarinsson jarðfræðingur flytur erindi: „Hérað milli sanda“ og eyðing þess. b) Islenzk tónlist: Lög eftir Þórarin Guð- mundsson (plötur). c) Raddir að vestan; Finnbogi Guðmundsson ræðir við Vestur-lslendinga. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Erindi: Um fora bókasölu eftir Benjamín Sigvalda son fræðimann (Þulur flytur). —- 22,25 Tónleikar: Bjöm R. Einars- son kynnir djassplötur. — 23,10 Dagskrárlok. Laugardtigur 9. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). — 16,30 Veður- fregnir — Endurtekið efni. 18,00 Tómstundaþáttur bama og ungl- inga (Jón Pálsson). 18.30 Útvarps saga bamanna: „Veröldin hans Áka litla“, eftir Bortil Malmberg; X. (Stefán Sigurðsson kennari). 18,55 Tónleikar: Lög úr ópemm eftir Gounod (plötur). 20.30 Ein- leikur á píanó: Frægir píanóleik- arar og tónskáld leika. 21 10 Leik- rit: „Nitchevo" eftlr Tennessee Williams, í býðingu Sverris Thor- oddsen. — Leikst.jóri: Einar Páls son. 22,10 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. leit var orðin nú. Á heimleiðinni ásetti hann sér að ná tali af Lucy Norton, hvort sem lögreglan vildi eða ekki. Enn var ósvarað þeirri spurningu, hvers vegna hún hefði farið að hýsa bláókunnuga stúlku, hefði farið að búa um hana og jafnvel útvegað henni handklæði og sápu. Hvaða sögu gat stúlkan hafa haft reiðubúna, svo að Lucy snerist svona við komu hennar. Hann fann, að allur leyndardóm- urinn hvíldi á þessu atriði. Hann braut heilann uai þetta meðan hann var aó blaða i minnis- greinum sínum. Hann hafði alltaf haft mesta trú á því að rannsaka aðalatriði málsins fyrst, og hér var það aðalatriði að fá að vita deili á stúlkunni. En nú fór hon- um að detta í hug, hvort sagan, sem stúlkan hafði borið á borð fyr- ir Lucy, gæti ekki verið fullt svo mikilsverð. Lucy var tortryggin, vissi hann, en samt hafði hún gleypt agnið, sem til hennar var kastað. Hverá vegna? Hvaða sönn- unargögn hafði stúlkan haft með sér? Hvað t. d. hafði hún sýnt Lucy? Nafnspjald? Bréf? Án vafa hafði hún sýnt eitthvert sönnunar gagn. Eitthvað, sem hún hafði haft í töskunni sinni og sem nú var eyðilagt eða í höndum morð- ingjans. Honum brá því heldur illa í brún við andlátsfregnina. — Þeir fundu hana á gólfinu, sagði Alex. — Og nú hleypur Floyd og eltir rófuna á sjálfum sér. Að því ég bezt get skilið, held- ur hann, að einhver hafi klifrað upp brunastigann og rotað hana. Dane flýtti sér að éta hádegis- verð og skundaði síðan til þorps- ins. Hann fann Floyd í illu skapi og alls óliklegan til þess að fræða hann mikið. — Hún er dáin, og annað hafið þér ekki upp úr mér. Opinberi ákærandinn er á leiðinni hingað. Ég vildi óska, að hann vildi halda sér á sínum rassi. Ég hef nóg til að angra mig, þó að hann bætist ekki við. — Hvers vegna er hann að koma? spurði Dane. — Ef þetta hefur bara verið hjartabilun. ... — Jú, það er að vísu sumt, sem ég felli mig ekki við, sagði Floyd dræmt. Eitt er það, að einhver hefur slitið bjöllustrenginn, sem var við rúmið. Og svo hafa einir tveir sjúklingar borið það, að um klukkan eitt hafi einhver opnað hjá þeim dyraar og litið inn. Senni lega verið að leita að gömlu kon- unni. Hefur ekki vitað í hvaða herbergi hún var. — Það ætti nú að sýkna nokkra af þeim, sem þér hafið helzt grunaða. — Kannske. En hverja? Af Spencer-fólkinu vissi Carol ein, h/ar hún var. Og Greg segist hafa verið að aka út um hvippinn og hvappinn á þessum tíma. Hann minntist alls ekki á bruna stigann og það gerði Dane heldur ekki. Hann fjasaði dálítið um þessar máltregu konur, sem vildu ekki segja það, sem þær vissu, og hann vorkenndi Lucy garminum, nú, en ef hún nú bara hefði tal- að.... Samt sem áður gaf hann £ skyn, að hann væri á einhverju spori. Og svo var myrta stúlkan. — Sennilega hefur hún komið einhvers staðar frá Miðvestur landinu. Segjum frá St. Louis, ha? Hann glotti til Dane, sem svar- aði með glettnislegu brosi. — Ég býst við, að við fáum að vita það áður langt um líður, svar- aði hann. Það var mjög kyrrlátt í sjúkra- húsinu, þegar hann kom þangað. Þar voru menn svo alvanir dauð- anum. Samt var fólk þarna önn- um kafið, svo að enginn tók sér- staklega eftir Dane á göngu hans, fyrst utanhúss og síðan á göng- unum. Floyd hafði tekið rétt eft- ir brunastiganum. Á honum voru nýlegar rispur á ryðguðu jám- inu. Og þegar upp kom, veittist honum auðvelt að sjá herbergið, sem Lucy hafði verið í. Það var auðvitað tómt, en samt urðu hon- um það nokkur vonbrigði, að allt hafði verið tekið þaðan, svo sem rúmföt og munimir, sem Lucy hafði haft með sér. Hann var þreyttur og gramur á heimleiðinni. Ef eitthvað hafði hrætt Lucy svo mjög, að hún hefði fengið hjartaslag af því og dáið, hvað gat það verið? Eða hver? Frá upphafi hafði framkoma Lucy sett hann í vandræði. Að þvi er hann bezt vissi, hafði hún alls ekki nefnt nærveru stúlkunnar í húsinu á nafn, þegar hún var flutt í sjúkrahúsið. Aðeins hafði hún sagt frá hendinni, sem seild- ist út úr skápnum. En við réttar- prófið hafði hún sagt frá þv£. Hafði það orsakað dauða henn- ar? Sent þennan næturgest upp brunastigann og inn i herbergið hennar til þess að hræða úr henni líftóruna? En hvaða erindi átti slíkur gestur, nema Lucy vissi eitt hvað, sem gat orðið honum til falls? Það var þetta, sem hafði komið honum til að heimsækja sjúkra- húsið: vonin um, að Lucy hefði haft eitthvað það f fórum sínum, sem gæti bent til þess, hver stúlk- an hefði verið. Hann var enn að brjóta heilann um þetta þegar Tim hringdi hann upp frá St. Louis. — Ekkert hér að hafa, og heit- LTSALA - LTSALA Nýjar úfsöluvörur svo sem: teknar fram í dag Barna undirföt 1 Kven blússur — háleistar — peysur — sportsokkar 1 — húfur — húfur i — hálsklútar | hárspangir ullargarn. GLUGGINN Laugavegi 30 Stúlka &. strax til afgreiðslu í mjólkurbúð. suiisimuu, Langholtsvegi 4f Gulrófur úrvalstegund fyrirliggjandi Eggert Kristjánsson & Co. hf. NYKOMNAR margar tegundir af Gnmmískó- fotnnði fyrir konur, karla og böm. H E C T O K Laugavegi 11 SKÓBÚÐIN, Spítalastíg 10 MARKÚS EftirEdDodd NOW THAT ANPY S HERE, JOHNNY, LET'S <SET AFTER THAT BLASTED WOLVERINE 0EFORE HE STEALS ANV 1) — Jæja, Jonni, fyrst við er- um búnir að fá Anda hingað, þá skulum við þegar f stað hefja her- ferðina gegn jörfanum, áður en hann eyðileggur meira fyrir þér. 2) — Já, við skulum ekki tefja eina minútu. Allt er tilbúið til ferðarinnar. 3) Þegar Markús og Jonni leggja af stað, er komin norðan átt og er hann heldur dimmur til loftsins. — — Fyrst skulum við fara til Eldvatnsins. — Ágætt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.