Morgunblaðið - 19.02.1957, Page 1

Morgunblaðið - 19.02.1957, Page 1
í fyrri viku kom upp eldur í Jaguar-bifreiðaverksmiðjunum í Coventry í Englandi. Skemmdir urðu geysimiklar — og er ætiað að þær nemi mörgum milljónum sterlingspunda. Myndin að ofan er tek- in í sal þeim, er fullgerðar bifreiðir voru geymdar í. En yfirsýnin er dapurleg, þvi að allar eru þær nú ónýtar. Ætla Bandaríkin að verja siglingaleiðina um Akabaflóa? „Rússarnir börðu mig“ Búdapest, 18. febr. YRSTU opinberu réttarhöldin yfir Ungverjum þeim, er teknir hafa verið höndum og sakaðir um þátttöku í upp- reisninni á fyrra ári, hófust í Búdapest í dag. Áður hefur herréttur fjallað um mál fjölmargra — og hafa tugir þeirra verið dæmdir til dauða af honum — og líflátnir. ★ í dag voru 11 karlmenné- og ein kona leidd fram í rétt- inum — og eru sakargiftirnar morð, vopnaburður og árásir á stöðvar kommúnista. lir Mjög öflugur hervörður var í réttarsalnum. Enda þótt réttarhöldin ættu að heita op- inber, var engum hleypt inn í salinn nema hann hefði sér- stakt leyfi stjórnarvaldanna. Allmargir erlendir fréttaritar- ar voru viðstaddir, er réttar- höldin hófust. Fyrsti sakborn- ingurinn, sem Iciddur var fram, var spurður að því, hvort hann væri við góða heilsu. „Nei, Rússaarnir börðu mig“ — svaraði hann. ir Ekki var þessum manni leyft að segja meira, heldur leiddur út í skyndi. 26.604 flótfamenn NEW JERSEY, 18. febr. — A sunnudaginn kom 272. flug- vélin til Camo Kilmer, sem flytiur ungverska flóttamenn frá Austurríki til Bandarikj- anna. Með flugvélinni voru 55 flóttamenn, og eru flótta- mennirnir, sem komið hafa til Bandarikjanna orðnir 26.604 að tölu. Heildartala flóttamanna, sem flúið hafa XJngverjaland síðan uppreisnin var gerð í lok liðins árs, nálgast nú óð- um 200 þúsund. New York og London, 18. febr. DULLES utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Eban, ambassador ísraels í Washington, hafa átt ‘langar viðræður að und- anförnu. Stjórn ísraels hefur nú kvatt Eban heim til þess að gefa fkýrslu um viðræðurnar. Eisenhower hefur látið svo um mælt, að ísraelsmenn hefðu nú fengið eins örugga tryggingu fyrir því, að ekki yrði gengið á rétt þeirra í Akaba-flóa og á Gaza-svæðinu, og þeir gætu vænzt á þessu stigi málsins. Krúsjeff gefur atliyglísverða yfirlýsingu: „Nú munum við ekki yfir- gefa Stalin" Sfalinisminn í blóma á riý Moskvu, 18. febrúar. IGÆR höfðu höfðingjarnir í Kreml boð inni fyrir búlg- örsku sendinefndina, sem nú er stödd í Moskvu. Var glatt á hjalla og margar skálaræður haldnar. Athygli vakti það, að Shepilov var ekki meðal veizlugesta, en Gromyko var þar — svo og Búlganin og Krúsjeff. Nú sem endra nær var það Krúsjeff sem mesta athyglina vakti, því að við þetta tækifæri hlóð hann miklu lofi á félaga Stalin — og hrósaði honum á hvert reipi. Um þessar mundir er ártíð ræðunnar frægu, sem Krúsjeff flutti á flokksþinginu á fyrra ári — þegar hann kallaði Stalin „brjálaðan fjöldamorð- ingja.“ Fréttaritari brezka útvarps- ins í Jerúsalem kveðst hafa það eftir mönnum í utanríkis- ráðuneyti fsraels, að Dulles hafi boðið Eban það, að Bandaríkjamenn sendu her- skip inn á Akabaflóa, er ísraelsmenn hefðu flutt lið sitt þaðan — til þess að tryggja þeim siglingaleiðina um fló- ann — ef þess yrði þörf. Ræða tillögu Eisenhowers WASHINGTON, 18. febr. — For- maður utanríkismálanefndar öld ungadeildar Bandaríkjaþings, demokratinn Theodore Green, fór í dag lofsamlegum orðum um áætlun Eisenhowers um að veita þjóðum Mið-Asíu hernaðar- og efnahagsaðstoð, ef þær óskuðu. Flutti Green framsöguræðu í deildinni, er umræða um áætlun- ina hófst, en umræða þessi mun standa í nokkra daga. Bar demo kratinn jafnframt fram tillögu, sem felur í sér samþykki á áætl- un Eisenhowers — nær óbreyttri. ÁLASUNDI, 18. febr. _ Vetr- arsíldarvertíðinni lauk í Nor- egi á föstudaginn. Frá lokum styrjaidarinnar hefur afla- magnið á hverri vertíð vaxið jafnt og þétt — að einu ári undanskildu — en að þessu sinni öfiuðu Norðmenn nær helmingi minna en á vertíð- inni í fyrra. Er þetta þó enn verri útkoma, er tillit er tek- Einnig mun Dulles hafa sagzt skyldu sjá til þess, að herir SÞ yrðu áfram við Ak- abaflóa þar til ísraelsmenn yrðu farnir úr landinu. Sam- kvæmt upplýsingum frá her- stjórn ísraels munu ísraels- menn alls ekki vera fúsir til þess að fara með her sinn brott frá flóanum fyrr en SÞ tryggi það, að vera hers SÞ í Egypta- landi sé ekki algerlega komin undir duttlungum Egypta. „Borazori' NEW YQRK. — Hingað til hefur demant verið harðasta efni, sem við höfum þekkt. Nú hefur banda rískum vísindamönnum við Wis- consin-háskólann í Bandaríkjun- um tekizt að búa til enn harðara efni. Er þetta nýja efni, sem hef- ur verið nefnt „Borazon“, svo hart, að með því er hægt að rispa demant. í það eru notaðir ókenndir kristallar sem eru hert- ir í ofsahita og við mikinn þrýst- ing. ið til þess, að aldrei hafa jafn mörg síldveiðiskip verið gerð út sem nú. Mörg skipanna öfl- uðu nú ekki fyrir útgerðar- kostnaði. í fyrra öfluðust um 9,3 millj ónir hi. á vetrarvertíðinni — og var það alger mctveiði. Nú var veiðin nær því helmingi minni — eða 5,3 milljónir hl. Útflutningsverðmæti aflans En siðan hefur mikið vatn runnið til sjávar — og miklar breytingar orðið á högum manna í Kreml sem víða annars staðar í ríkjum kommúnista. Krúsjeff hóf ræðu sína á því að minnast lítillega skiptanna, sem urðu í utanrikisráðherra- embættinu á dögunum — og kvað nemur 200 milljónum norskra króna. Síldveiðinni er enn haldið á- fram, en nú nefnist síldin vorsíld. Sýnt er, að aflinn verður rýr — og margir bát- ar eru að hætta veiðum. Þorsk veiðarnar við Lofoten hafa einnig verið tregar og segja má, að mikil óáran sé í vetur við sjávarsíöuna í Noregi. hann Gromyko halda þeirri stefnu, er Shepilov hefði mark- að. Þá fór að færast fjör í Krúsjeff — og hann kvað Rússa ekki mega sýna neinum þeim miskun, sem berðust á móti þeiin. „Við verðum að svara með enn öfiugri högg- um“. Þá barði Krúsjeff í borðið og hrópaði: Við unnum styrj- öldina við fasistana undir handleiðslu Stalins. Og nú munum við ekki yfirgefa Stal- in. Hann hafði sína galla, og við höfum gagnrýnt hann, en við erum sömu skoðunar og hann, því að hann var mikill kommúnistaforingi og vernd- ari stefnunnar, sem mörkuð hcfur verið“. Nú þarf hinn vestræni heim ur ekki lengur vitnanna við. Aftur hefur forystan í Kreml horfið til Stalinismans. Ráð- herraskiptin á dögunum hafa ekki verið nein tilviljun. „Við munum ekki yfirgefa Stalin,“ sagði Krúsjeff. Þeir munu ekki yfirgefa stefnu „hins brjálaða fjöldamorðingja“. Neitunarvaldið Bandaríska tímaritið „News week“ skýrir frá því, að Mac- millan hafi nú í undirbúningi tillögur um breytta starfs- hætti S. Þ. — og m.a. nmni hann leggja til að neitunar- valdið verði afnumið í Örygg- isráðinu. Ef slíkt nær fram að ganga munu viðhorfin innan S.Þ. breytast mjög — og bú- ast má við því, að stofnunin verði ólíkt áhrifameiri og virk ari aðili á alþjóðavettvangi, en hún hefur verið hingað tii. Nýtt Kominiorm SAMKVÆMT erlendum blaða- fregnum mun sterkur orðrómur vera á kreiki — þess efnis, að ákveðið hafi verið á kommúnista- þinginu í Moskvu á dögunum að endurvekja „Kominform". Er álitið, að ekki líði langur tími þar til allt verði komið í kring. Áreiðanlegt er talið, að nú muni „Kominform“ verða nefnt „AI- þjóðaverkalýðshreyfingin“ — og aðalaðsetur samtakanna verði í Prag, því að þar er miklu betri aðstaða til þess að líta eftir lepp- ríkjunura en í Moskvu. Velrarsáldim brást Norðmönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.