Morgunblaðið - 19.02.1957, Side 10

Morgunblaðið - 19.02.1957, Side 10
10 MORCVNfíLAÐIÐ f»riðjii«íníHH- 19 íebrúar 1957 — Bæjurútgerðin Bv, Ingólfur Arnarson Sigríðnr Magnúsdóttir Laiidakofi, Saodgerði 70 ára Framh. af bls. 9 1951 var hitaveituvatn leitt í stöð ina. Var 11. s. m. byrjað að nota það eingöngu við þurrkun á fiski og lestarborðum, og hefur svo verið gert síðan, þegar vatnsins er ekki þörf til hitunar íbúðar- húsa. Olíukyndingin er því aðeins notuð í miklum kuldum, en að öðru leyti höfð til öryggis. Bæjarútgerðin hóf harðfisk- verkun vorið 1951. Lét hún í þvi skyni reisa hjalla í Breiðholts- og Digraneslandi, sem hægt er að herða á 6—7000 tonn af slægð- um og hausuðum fiski. Saltgeymsluhús hefur Bæjar- útgerðin ekki látið reisa ennþá, en hefur notazt við herskála til þeirra þarfa, svo og til geymslu á húðum og ýmsum öðrum út- gerðarvörum. STARFSEMIN SÍFELLT AUKIZT Eins og sjá má af framan. greindu, hefur starfsemi Bæjar- útgerðarinnar alltaf aukizt jafnt og þétt, frá því er fyrsti togarinn, „Ingólfur Arnarson", kom til landsins, 17. febrúar 1947. Auð- sætt, er, að þegar togararnir voru orðnir átta að tölu, bar til þess brýna nauðsyn að koma upp salt- fiskverkunarstöð og harðfiskverk unarstöð, sem rekin væri í sem nánustu sambandi við togaraút- gerðina til nýtingar aflans. Hefur rekstur togaranna á margan hátt verið auðveldari og hagkvæmari fyrir hin nánu tengsl milli fisk- vinnslunnar í landi cg togaranna sjálfra, þar sem betri skilyrði skapast við þetta til nýtingar afl- ans, gjaldeyrisöflunar og vinnu fyrir unga og gamla. Um leið og starfsemin hefur aukizt, hafa auðvitað allar vinnu- launagreiðslur aukizt að sama skapi, og má geta þess, að á ár- inu 1947, fyrsta ári sem Bæjar- útgerðin starfaði, námu launa- greiðslur samtals kr. 1.916.000.00, en launagreiðslur fyrir árið 1956 námu samt. um kr. 36.000.000.00. Má af þessu marka aukningu starfseminnar. Hins vegar munu launagreiðslur frá ársbyrjun 1947 til ársloka 1956 samtals nema um kr. 190.000.000.00. Auk þessa hefur Bæjarútgerðin átt margháttuð viðskipti við bæjar- búa. Framleiðsla togara Bæjarút- gerðarinnar og fiskverkunar- stöðvarinnar hefur jafnframt mjög aukizt á tímabilinu, eins og yfirlitstaflan ber meo sér, þar sem bæði er gerð grein fyrir magni og verðmæti framleiðsl- unnar: (Ath. töflu á bls. 9). Eins og að framan getur, hefur Bæjarútgerðin starfrækt tvær af þremur helztu framleiðslugrein- um sjávarútvegsins, saltfisjsfram- leiðslu og harðfiskframleiðslu, en hina þriðju grein vantar ennþá, þ. e. hraðfrystinguna. NAUÐSYN ÁHRAÐ- FRYSTIHÚSI Forráðamönnum Bæjarútgerð- arinnar hefur lengi verið það Ijóst, að mikil nauðsyn er fyrir útgerðina að eignast hrað- frystihús og hefur því verið leitað eftir kaupum á Fiskiðjuveri rík- isins, eins og getið hefur verið um í blöðum fyrir skömmu, en Fiskiðjuverið hefur ekki reynzt falt til kups, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Bæjarstjóm Reykjavík- ur hefur samþykkt að fela fram- kvæmdastjórunum að hefjast handa um útvegun lánsfjár til byggingar hraðfrystihúss og hefja annan nauðsynlegan undir- búning að byggingarframkvæmd- um. Áður hafði borgarstjóri lagt til við útgerðarráð og bæjarráð, að hafizt yrði handa um þessar und- irbúningsframkvæmdir, og yrðu framkvæmdastjórum Bæjarút- gerðarinnar faldar allar fram- kvæmdir. Gerð hefur áður verið grein fyrir hinu fyrirhugaða hrað frystihúsi, en gert er ráð fyrir, að það geti fryst 30 tonn af fiski á sólarhring, miðað við venjuleg an vinnutíma. fsframleiðsla á sól- arhring verði um 30—40 tonn, geymslur fyrir hraðfryst flök á- ætluð að rúmi um 2.500 tonn. Jafnframt er ráð fyrir því gert, að stöðin verði þannig staðs. við vesturhluta Reykjavíkurhafnar, að hægt verði að flytja fiskinn beint úr togurunum á færibönd- um inn í frystihúsið, þar sem fiskurinn er tekinn til vinnslu. Kostnaður við hraðfrystihúsið er lauslega áætlaður kr. 16.000 000.00. Fullyrða má, að nægileg verk- efni bíði þessa hraðfrystihúss, þegar haft er í huga hið mikla framleiðslumagn togara Bæjar- útgerðar Reykjavíkur. Jafnframt má benda á, að væntanlega mun togaraútgerð aukast frá Reykja- vík innan skamms, ef hlutdeild Reykjavikur á að haldast svo sem verið hefur. En til þess að þessi aukning verði að fullu gagni fyrir Reykjavík og landið í heild, þurfa auðvitað öll framleiðsluskilyrðí í landi að vera hin fullkomnustu, og við það miðuð, að unnt sé að veita hámarksafla viðtöku og verka hann í verzlunarhæfa vöru, en hingað til hefur þetta ekki verið hægt. Þess vegna hafa Reykjavíkurskipin mjög oft orðið að leggja aflann á land utan Reykjavíkur, oftlega til mikilla óþæginda fyrir áhafnir skipanna og útgerðina í heild. _FRÚ Sigríður Magnúsdóttir, Landakoti, Sandg., varð 70 ára á sunnudaginn 17. þ.m. Hún er fædd að Tungu, Örlygshöfn við Patreksfjörð hinn 17. febrúar 1887. Foreldrar hennar voru hjón- in Bergljót Gunnlaugsdóttir og Magnús Einarsson, sama stað. — Sigríður missti föður sinn þegar hún var 8 ára gömul, og eftir það ólst hún upp hjá vandalausum í Öriygshöfn til 13 ára aldurs. Þá flutti hún til Patreksfjarðar, þar sem hún dvaldi með móður sinni og systkinum um fjögurra ára skeið. Til Reykjavíkur flutti Sigríður árið 1913 og dvaldi þar í nokkur ár og stundaði aðallega sauma- skap, en hún var ágæt og mjög vandvirk saumakona, og raunar vandvirk við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Um áramótin 1918—19 flutti hún til Sandgerðis og tók við heimilisstjórn hjá Árna Magnús- syni, bónda og formanni, sem þá bjó að Flankastaðakoti. Árið 1922 giftis hún Árna Magnússyni, og fluttu þau að Landakoti um það leyti, og hafa búið þar síðan. Þeim Árna og Sigríði varð sex barna auðið. Eitt þeirra dó í vöggu, en hin öll eru komin til fullorðinsára, og eiga þau Árni og Sigríður því láni að fagna að börn þeirra öll eru hin mann- vænlegustu. Börn þeirra eru: Ásta, gift í Keílavík; Óskar, út.- gerðarmaður; Sigríður og Árni, öll búandi í Sandgerði; og Einar, flugstjóri hjá Loftleiðum, sem býr í Reykjavík. Upphaf þessa máls er að Sví- inn að nafni Bertil Hermannsson ók skömmu eftir áramótin í leigubil með rússneskum kunn- ingja sínum. Rússinn rétti honum í bílnum lokað umslag, sem Hermannsson vissi ekki og veit ekki enn hvað hafði inni að halda. Þegar hann hafði tekið við um- slaginu, breytti leigubílstjórinn um stefnu og ók með þá til næstu lögreglustöðvar. Tók lögreglan ReykvíklngafélagiS ræiur framkv.stj. REYKVÍKINGAFÉLAGIÐ hefur nú ráðið til sín framkvæmda- stjóra í stað Hjartar Hanssonat, sem látinn er fyrir nokkru. Hefur við starfinu tekið Sveinn Þórð- arson bankaféhirðir í Búnaðar- bankanum og hyggst hann á mið- vikudaginn kemur efna til skemmtifundar í Tjarnarkaffi, og hefur hann hug á að auka starfsemi félagsins eftir megni og koma aftur á fót félagsiífi, ■ sem verið hefur dauft að und- anförnu. Sigríður Magnúsdóttir hefur átt frekar erfitt ævistarf að ala upp stóran hóp barna, fyrst börn manns hennar frá fyrra hjóna- bandi, en hann var ekkjumaður, og síðan sín eigin börn. Oft voru lítil efni, því sjómannshluturinn var stundum stopuil í þá daga, eins og síldin hefur brugðizt í seinni ár. Þá var ekki kauptrygg. ing sem bjargaði málinu við á bátunum, ef illa gekk, eins og nú til dags, en Árni var viðurkennd- ur dugnaðarmaður, sem yfir- steig alla erfiðleika. Nú líta þau hjónin yfir sitt ævistarf að baki, og sjá að þau hafa sigrað í lífs- baráttunni, náð því takmarki sem keppt var að, að koma börnum sínum á legg, og gera þau að nýt- um og góðum þjóðfélagsþegnum. Þeir, sem komnir eru á efri ár, sem kallað er, geta bezt séð „tvenna tímana". Það er mismun- ur á lífskjörum okkar íslendinga fyrir og um síðustu aldamót og jafnvel talsvert frameftir þessari öld, borið saman við lífs- venjur og kjör okkar í dag. Fáir, ef þá nokkrir, hafa getað látið sig dreyma um að slíkar breytingar gætu átt sér stað. í gamla daga, þegar frú Sigríður Magnúsdóttir var að alast upp, var ekkert þeirra daglegu nauðsynja til, sem við höfum nú, og teljum að við getum ekki án verið, svo sem heimilsvélar, sími, rafmagn, bil- ar, flugvélar o. s. frv., svo eitt- hvað sé nefnt. Sigríður Magnúsdóttir ber með sér sérstakan presónuleika, hún er orðvör, athugul og orðheldin, annað er henni ekki að skapi. Ég veit einnig að hún er frábitin öllu oflofi eða skjalli um sig, lífs eða liðna. Sigríður dvelst nú að heimili sínu í Sandgerði. Hinir mörgu ættingjar og vinir Sigríðar senda henni kveðjur og árnaðaróskir í tilefni þessara merku tímamóta á ævi hennar og þakka henni fyrir gömul og góð kynni, og óska þess af alhug að hún megi eiga með fjölskyldu sinni, eiginmanni, börnum og barnabörnum gott og fagurt ævi- kvöld. T. K. umslaðið af Hermannsson, sem veit ekkert meira. Hann hafði ekki beðið um þetta umslag og veit ekki til að neinar upplýs- ingar hafi verið í því sem hættu- legar gátu verið. Rilsfjóraskipli við Víkinginn KOMIÐ er út jan.—febr. hefti Sjómannablaðsins Víkings. Rit- stjóraskipti hafa nú orðið við blaðið og er Halldór Jónsson loft- skeytamaður tekinn við blaðinu á ný, en hann var ritstj. Víkings á árunum 1942—1945. f þessu hefti Víkings má meðal annars geta þessara greina: Farmanna- og fiskimannasam- band íslands 20 ára, eftir Ásgeir Sigurðsson. Myndarlegt framtak i Neskaupstað. Brimlending, eft- ir Þórð Jónsson á Látrum. Furðulegar deilur um Hamrafell. Þá eru í heftinu ýmsar þýddar greinar. Framhaldssagan, Þjóð- verjinn sem slapp úr fangelsi. Frívaktin. Fréttaopna o. fl. HIJSGÖGIM (Lítið notuð) Sófi og tveir stólar úr rauðu leðri. Útskorið skrifborð og stóll. Til sýnis og sölu í Áhaldahúsi rafveitunnar að Barónsstíg 24. Ný endurbœtt gerð af OLSENSKÖTLUM í þessari auglýsingu ætlum við að vísa til meðfylgjancú vottorðs frá sundhallarstjóranum í Keflavík. Við höfum oft áður bent alþýðu manna á, að miðstöðvarkatlar okk- ar, bæði katlar fyrir sjálfvirkar fýringar, sem framleidd- ir eru í öllum stærðum frá 2 og upp í 50 fermetra, og katl- ar með blásara, sem framleiddir eru frá 1 upp í 5 ferm., eru gerðir eftir nákvæmum athugunum, sem við höfum gert sjálfir og miða við það, að gera katlana sparneytna, — að geyma hitann, en glata honum ekki út um reykháf- inn. Meðfylgjandi vottorð talar sínu máli í þessu efni. Við höfum aldrei látið staðar numið í viðleitni okkar til þess að bæta katlana og nýi ketillinn, sem er endurbætt gerð af eldri kötlum, er árangur af þessu þrotlausa starfi. Við höfum bent á það áður og viljum gera það enn, að alþýða manna á heimtingu á því að henni sé leiðbeint um það, hvaða katlar fullnægi kröfunni um ítrustu sparneytni — svo dýrt sem eldsneytið er orðið. Hugsum okkur að við spöruðum 13 lítra af oliu á dag að jafnaði, það yrði með núverandi olíuverði kr. 4.223.05 yfir árið. Hvað þá ef við spöruðum 12—13 þúsund lítra á 4 mánuðum? Vottorðið frá Sundhallarstjóranum í Keflavík er svo- hljóðandi: „Samkvæmt beiðni Ol. Olsen, Ytri-Njarðvík, skal það hér með vottað, að í Sundhöll Keflavíkur var um síðustu áramót settur 25 ferm. miðstöðvarketill frá vélsmiðju framangreinds og er hann kynntur með „Gil- barco“ olíubrennara, er brennir venjulegri húsaoliu. Áð- ur var notaður koxketill kynntur með sjálvirkum olíu- brennara. Mismunur á brennslu í þessum kötlum miðað við jan., febr., marz og apríl 1955 koxketillinn 26.366 ltr. jan., febr., marz og apríl 1956 Olsens-ketill 13.642 ltr. Keflavík, 29. maí 1956. F.h. Sundhallarnefndar Keflavíkur. Hafsteinn Guðmundsson, sundhallarstjóri (sign), J Hér þarf engu við að bæta, nema að tala við okkur áður en þér festið kaup annars staðar. — Varist eftirlíkingar. j Vélsmiðja Ol. Olsen h.f., Njarðvik Leyndarmál loka5a umslagsins Stokkhólmi, 16. febr. Einkaskeyti frá NTB. RÚSSNESKA utanríkisráðuneytið hefur krafizt þess að tungu- málasérfræðingur sænska sendiráðsins í Moskvu fari þegar úr landi vegna misnotkunar stöðu sinnar. Sænska utanríkisráðu- neytið hefur mótmælt þessu og staðhæfir að maðurinn hafi ekkert brotið af sér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.