Morgunblaðið - 20.02.1957, Qupperneq 15
Miðvikudagur 20 febr. 1957
MORGUIVBLAÐÍÐ
15
Garry Davis komst
inn án vegabréfs
GARRY DAVIS, hinn frægi al-
heimsborgari, sat rúma þrjá tíma
í flugvél hollenzka flugfélagsins
KLM á flugvellinum í Idlewild í
New York, meðan vegabréfaeft-
irlitið og fulltrúar flugfélagsins
reyndu að komast að einhverri
niðurstöðu varðandi lagalega að-
stöðu hans.
Davis afsalaði sér borgararétt-
indum í Bandaríkjunum árið
1948 og gerðist þá alheimsborgari.
Hann kom til Idlewild fyrir
nokkru ásamt 26 öðrum farþeg-
um. Eftir að farþegarnir voru
farnir neitaði Davis að hreyfa
sig, nema hann fengi loforð um
það frá innflytjenda-yfirvöldun-
um, að hann yrði ekki tekinn
fastur.
Þá komu tveir fulltrúar aðal-
skrifstofu innflytjenda í New
York, og var svo um samið, að
honum yrði hleypt inn í landið
gegn drengskaparloforði. En þeg-
ar öllum formsatriðum var lokið,
sagði Davis, að nú hefði hann
gefið fordæmi með því að koma
inn í Bandaríkin án vegabréfs
frá nokkru ríki.
„Ég hafði engin lögleg skilríki
frá þjóðernislegu sjónarmiði“,
sagði hann. En yfirmaður innflytj
enda-skrifstofunnar var ekki að
öllu Ieyti á sama máli. Hann
sagði: ,Hvað svo sem Davis seg-
ir, þá hefur honum ekki verið
hlcypt inn í landið sem útlend-
ingi. Hann verður hér um óákveð-
inn tíma gegn drengskaparheiti.
Við settum engin skilyrði fyrir
komu hans til landsins vegna
hinna óvenjulegu kringum-
stæðna“.
Ný hók
íslenzk — Dönsk
orðabók
með málfræðiskýringum.
eftir Ágúst Sigurðsson magister
440 bls. í góðu bandi. — Verð kr. 95.00.
Nauðsynleg bók öllu skólafólki, kaupsýslumönnum,
iðnaðarmönnum . . .
Handhæg heimilisbók.
Ný sending
MARKAÐURINN
HAFNARSTRÆTI 5
Mýtt — Mytt
Hálsklútar Höfuðklútar Pils Blússur
CLUCCINN
Laugavegi 30
Veríð velkomin
að
Laugavegi 33
Verzlunin verður opunð að nýju í dag
miðvikudaginn 20. febrúar klukkan 2 e.
h. í stærri og betri húsakynnum 1 hjarta
verzlunarhverfisins, og vona ég að geta
með því veitt gömlum og nýjum við-
skiptavinum mínum enn þá betri þjón-
ustu.
S'c
oieu
Til leigu er
Skrifsfofuhúsnœði
200 fermetrar í nýstandsettu húsi
við miðbæinn.
Tilboð sendist afgr. Mörgbl. merkt: 2058.
MR-WICK - AIR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandhundraefni.
Njótið ferska loftsins innan húss allt árið.
Aðalumboð:
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Sími 81370
Afgreiðslustúlka
Ó S K A S T
Umsókn með mynd sendist blaðinu fyrir laugardag
merkt: „Blóm —2057“.
7—2 málmsteypumenn
Ó S K A S T
nú þegar, eða sem fyrst.
Keilir hf.
Sími 6550 og 1981.
Bíleigendur
Málarameistari vill kaupa bíl. Útborgun 30. þús.
Önnur greiðsla í málningaarvinnu nú eða síðar.
Ekki eldri gerð en 1949. — Tilboð merkt: „Hag-
kvæmt —2060“, sendist fyrir 22. þ. m.
Einbýlishús
4 herbergi, eldhús og bað,
ývottahús og geymsla við Langholtsveg til sölu.
Útborgun helzt 170 þús. kr. Laust 14. maí n. k.
Nýja fasteignasalan
Bankastræti 7. Sími 1518 og kl. 7,30-8,30 e. h. 81546.
RY K S U G U R
Höfum fyrirliggjandi amerískar ryksugur;
Verð kr. 2,258.00
— kr. 1.867,00
— kr. 2.258,00
Nokkur stykki óseld.
Kristján Siggeirsson hf.
Laugavegi 13. Sími 3879.
Hús óskast keypt
Læknir óskar að kaupa minnst 8 herbergja íbúð eða
einbýlishús með þessum herbergjafjölda. Þarf að liggja
innan Hringbrautar, á svæðinu milli Laufásvegar og
Laugavegar eða í Norðurmýri. Tilboð auðkennt „Læknir
—2059“, sendist Morgunbl. fyrir sunnudag.