Morgunblaðið - 07.03.1957, Page 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Fímmtudagur 7. marz 1957
Aina í Konungiega leikhúsinu
i
Stokkhólmi
Unnu 10 þús. kr. í sjónvarpsþæfti
KONUNGLEGA leikhúsið í
Stokkhólmi sýnir um þessar
mundir leikritið „Aina“, eftir
sænsku skáldkonuna Söru Lid-
man. Sara Lidman er ungur höf-
undur, sem þó hefur aflað sér
mikillar viðurkenningar. Hún
hefur gefið út tvær skáldsögur,
„Tjárdalen", árið 1953, og „Hjor-
tronlandet", 1955. Þá er einnig
þessa dagana sýnt leikrit eftir
hana á öðru leikhúsi hér í Stokk-
hólmi og nefnist það „Dóttir
Jobs úrsmiðs“. Hlutu bæði leik-
ritin lofsamlega dóma.
Skáldkonan lætur þess getið,
að sagan um Kain, Abel og Jahve
liggi til grundvallar „Ainu“. Sér
hafi ætíð runnið til rifja misk-
unnarlaus örlög Kains, en við
samningu verksins hafi sér skil-
izt, að hinum miskunnarlausa
geti líka verið vorkunn. Með
þetta ævagamla vandamál úr
Gamla Testamentinu, sem aðal-
uppistöðu, glímir hún einnig við
þau þjóðfélagsvandamál, sem
tuttugasta öldin hefur lagt á
herðar mannkyninu og þá einkum
konunum.
□-
AINA, unglingsstúlka, sem aldrei
hefir notið móðurástar — var út-
skúfuð þegar í móðurkviði, gerir
árangurslausar tilraunir til að
betla blíðuatlot frá móður sinni.
Þrælsleg undirgefni hennar ger-
ir aðeins illt verra og í örvænt-
ingu sinni hrópar móðirin: „Er
það skylda mín að þykja vænt
um þetta barn, þó ég sé móðir
þess? Er ég ekki líka mann-
eskja?“ Móðirin, Svea, — hin
gáfaða, athafnasama kona, vinn-
ur ötullega í sósíaldemókratíska
flokknum og vanrækir heimilið,
en Aina vinnur eldhússtörfin. Og
víst skal tryggð framtíð Ainu og
séð fyrir velferð hennar, engu
síður en hinna undirokuðu stétta.
Sá hængur er samt á, „að strax
og manninum hafa hlotnazt lífs-
nauðsynjar, vill hann sýna, að
hann lifir ekki á brauði einu sam-
an“. Aina þráir það eitt að fá
sönnun fyrir kærleika móður
sinnar. Svo langt gengur, að hún
reynir í óráðsæði að drepa föður
sinn, af því að hún heldur, að
með því geri hún móður sinni
greiða. Sú tilraun misheppnast og
verður aðeins til þess að breikka
bilið milli mæðganna og færa
hjónin nær hvort öðru. Faðir
Ainu, sá eini, sem þykir vænt um
hana, færir að lokum stærstu
fórnina, sitt eigið líf, og ryður
þannig úr vegi síðustu hindrun-
inni milli konu sinnar og dóttur.
Fórnin er ekki færð til einskis.
Móðir og dóttir sameinast í sorg-
inni og hugga hvor aðra. í for-
mála segir Sara Lidman: „Ef að-
eins Jahve og Kain hefðu getað
sætzt án þess að drepa Abel. Frá
þeim degi hefur mönnum verið
svo óhugnanlega gjarnt að fórna
hver öðrum“.
□-
-□
LÍFSSPEKI Söru Lidman og
hnyttnar setningar gefa leikhús-
gesti næg tilefni til heilabrota.
Háttur hennar að skýra hlutina
út frá öðrum sjónarmiðum en
þeim hefðbundnu kemur skemmti
lega á óvart. Heildarsvipur leiks-
ins er prýðilegur og gerir skáld-
konan aukahlutverkum jafngóð
skil og aðalhlutverkum. Enda
nýtur hún þar vandvirkni stjórn-
enda leikhússins, sem gera sér
aevinlega far um að velja leik-
endur í aukahlutverk af jafnmik-
illi kostgæfni og hin veigameiri.
□-
-□
skemmstu. Er þáttur þessi snið-
inn eftir amerískri fyrirmynd og
hagað þannig, að fróðir menn
ganga fram fyrir sjónvarparann
og leysa úr spurningum í ásýnd
alþjóðar. Fá þeir góð verðlaun
ef úrlausnir reynast réttar og
tvöfaldast launin við hvert rétt
svar. Geta gáfaðir og margfróðir
menn haldið þannig áfram unz
verðlaunaupphæðin nemur 10
þúsund krónum sænskum, en það
samsvarar 31,500 íslenzkum. —
Geta menn á þennan hátt s.elt
kunnáttu sína dýru verði. Ef
stendur á svari er draumurinn
búinn og gengur þá viðkomandi
slyppur frá borði.
□-
-□
SÁ FYRSTI, sem greiddi úr öll-
um spurningaflækjunum og hlaut
hinar fyrirheitnu 10 þúsundir
Sjónvarps-Ulfur.
var 14 ára drengur, sem vissi allt
um búrfiska. Drengur þessi heit-
ir Úlfur en var kenndur til iðnar
sinnar og nefndur Sjónvarps-
Úlfur, er séð varð hve glæsileg
skil hann gerði spurningum þeirr.
ar stofnunar. Ekki komst þessi
ungi maður þó slysalaust að
marki og um eitt skeið var hann
sagður úr leik. Hann hafði verið
spurður að því hvort einn fiska
þessara hefði augnalok. Sá fisk-
ur er á sænsku máli nefndur
„slamkrypare" en vér kunnum
ekki að nefna hann á íslenzku.
Svaraði drengur þvi neitandi og
var þá talinn fallinn. Málið var
þó ekki úr sögunni því lærða
menn greindi á um hvort rétt
væri að tala um augnalok á
„slamkryparanum" eða ekki. —
Fékk sjónvarpið þrjá sérfræð-
inga til að skera úr þessu vanda-
máli. Voru það málfræðingur,
dýrafræðingur og dómari. Eftir
langar og hávísindalegar vanga-
veltur komust þeir að þeirri nið-
urstöðu að jafnrétt væri að segja
að margumdeildur búrfiskur
hefði augnalok og ekki augnalok.
Var spurningin þá dæmd ógild
og drengurinn fékk að spreyta
sig á annarri, sem hann leysti
greiðlega úr. Síðan tók hann á
móti 10 þúsund króna spurning-
unni, sem hann afgreiddi einnig
skammlaust og vakti þá almenna
undrun er hann afþakkaði lengd-
an umhugsunartíma.
Ulf Palme og Margit Carlqvist.
□-
-□
NÆSTI maður, sem vann 10 þús-
undin hlaut þó snöggtum meiri
aðdáun en Sjónvarps-Úlfur. Var
það sagnfróður eldri maður. —
Svaraði hann hverri spurning-
unni á fætur annarri og gerði
þeim langtum fyllri skil en til
var ætlazt og tíndi fram meiri og
ýtarlegri fróðleik en um var
spurt. Er hann hafði unnið fimm
þúsund hafði hann við orð að
draga sig í hlé því hann þarfn-
aðist þessara peninga til að geta
dvalizt í Suðurlöndum sér til
heilsubótar. En þá hafði hann
aflað sér slíkra vinsælda að
hann var óspart kvattur til að
freista gæfunnar einu sinni enn.
Lét hann til leiðast og gekk fram
fyrir sjónvarpið. Spurningameist.
arinn spurði þá hvernig hónum
væri innanbrjósts. Sá sagnfróði
lét ekki standa á svarinu og
sagði að sér mundi líða líkt og
aðlinum áður en septembermorð-
in voru framin. „Jæja“, sagði
spurningastjórinn, „við segjum
eins og Caesar: „Teningunum er
kastað, við förum yfir Rubicon".
„Árið 49 fyrir Krist“, sagði sögu-
maðurinn. Þá var hin örlagaríka
spurning borin upp. Var hún svo-
hljóðandi: „Ein af hinum frægu
friðarráðstefnum 19. aldarinnar
var nefnd Berlínar-ráðstefnan.
Hvaða ár var hún haldin og hvert
var viðfangsefni hennar? Nefnið
minnst sex af sjö þátttökuríkjun-
um og 4 stjórnmálamenn, sem
sbrifar úr
daglega lifinu
,3LÉTT eða tvöfalt" nefnist
spurningaþáttur, sem sænska
sjónvarpið tók upp nú fyrir
Að gefa á bauklnn
JÚLÍUS HAVSTEEN sýslumað-
ur skrifaði grein hér í blaðið
í fyrradag um sjómannaheimili.
Ekki ætium við hé að ræða um
það málefni sem hann tók til
meðferðar, heldur drepa lííillega
á orðið baukur, sem sýslumað-
urinn minntist á í grein sinni.
Sýslumaðurinn segir .....bauk-
ur er gamalt íslenzkt oið fyrir
þau húspláss, sem nú kallast
„knæpur" og dregið af sögninni
„að gefa á baukinn“, sem nú
heitir að gefa á kjaftinn og er
ljótt“.
Við erum sammála sýslumanni
um, að það sé ljótt að gefa á
kjaftinn og er sennilega skömm-
inni skárra að gefa í. baukinn.
En hvað sem því líður, þá er
orðið baukur yfir veitingahús af
fyrrneíndri tegund mjög
skemmtilegt og væri gaman að
það hyrfi ekki úr málinu. Það
er vafalaust komið af því að
gefa einhverjum á baukinn, eins
og sýslumaðurinn segir, svo að
í orðinu felst bæði mikil saga
og skemmtileg þjóðlífslýsing. Má
ætla, af þessu, að menn hafi
ekki verið fyrirferðarminni, þeg-
ar þeir voru að skemmta sér í
gamla daga en nú tíðkast og er
það góð áminning til þeirra sem
öllum stundum tala um að heim-
ur versnandi fari.
Baukur á Akureyri.
HITT er svo annað mál, hvað
orðið baukur í merkingunni
knæpa er gamalt í málinu. Vel-
vakandi leit pví að gamni sínu
í Blöndal og fékk þær upplýs-
ingar, að á síðari hluta 19. aldar
hafi verið gistihús eða knæpa á
Akureyri sem hét Baukur. Þetta
orð hafi svo færzt yfir á önnur
slík hús, og þá sennilega án þess
að menn hafi haft í Jiuga, hvað
á bak við bjó — þ. e. a. s. að
gefa á baukinn, eins og sýslu-
maðurinn gat um.
M1
Til eru fljóð ....
ENNTLIN G AR eru gaman-
samt fólk og af blaðinu
þeirra að dæma eru þeir á-
hyggjulausir, svo að til fyrir-
myndar er. Þá virðast þeir líka
taka sjálfa sig heldur lítið alvar-
lega og geta sumir stjómmála-
menn (og ung skáld) mikið af
þeim lært í þeim efnum. Jæja,
en hvað um það. Við erum ný-
búnir að fá skólablaðið þeirra
og kennir þar ýmissa grasa. Höf-
um við alltaf haft gaman af að
blaða í því, enda kemst maður
yfirleitt í ágætt skap af að blanda
geði við menntlingana. — í blað-
inu er þess m. a. getið, að ráð-
gert sé að breyta íþöku í n.k.
félagsheimili, svo að „hægt sé
að laða nemendur þangað frem-
ur en þeir leggi stimd á kaffi-
húsasetxir á kvöldin“, eins og
rektor komst að orði í stuttu við-
tali. Þykir okkur þetta prýðis-
góð hugmynd. Nú, á ýmislegt
fleii-a er drepið í blaðinu, þess
t. d. getið í einni greininni, að
fyrsta bindindisfélag í skóla hafi
verið stofnað í Menntaskólanum
í Reykjavík og greinarhöfu.ndur
bætir við: „Ja, mikið hafa
menntaskólanemendur breytzt
á ekki löngum tíma.“ Þykir okk-
ur þetta allmikil upphrópun. —
Ýmislegt fleira skemmtilegt er í
ritinu t. d. þetta ljóð eftir Simon
Sveinsson:
Til eru fljóð, sem fengu dóminn
þann
að falla ung, en ná þó hvergi í
mann.
Eins er kók, sem kaupa vill ei
neinn,
og kennarar, sem gefa flestum
einn,
og áfengt tár, ef til er ekkert
bland,
og togarar, sem rygða upp við
land,
og heirnskingjar, sem halda, að
allt sé grín,
og Höskuldur, sem aldrei
drekkur vín.
Til eru ljóð, sem lítið í ég skil,
og lítil börn, sem aldrei verða til.
í blaðinu er þess getið, að
Davíð Stefánsson muni koma og
halda fyrirlestur fyrir nemend-
ur á næstunni — og skulum við
þá vona, að leiðir þeirra Símon-
ar liggi saman. Það ættu að geta
orðið fagnaðarfundir!
sátu ráðstefnuna". Ekki stóð á
svarinu. Hinn sagnfróði nefndi
þegar árið og mánuðina, sem ráð.
stefnan stóð. Þá skýrði hann frá
hvert hefði verið viðfangsefni
ráðstefnunnar, taldi upp öll þátt-
tökuríkin og sex þátttakendur. —
Hafði hann þannig með miklum
sóma unnið sín 10 þúsund, en
hlaut auk þess fimm þúsund
krónur frá aðdáanda, sem ekki
vildi láta nafn síns getið, og lít-
inn fólksbíl.
Öðrum keppendum í þessum
vinsæla þætti hefur gengið mið-
ur. Sumir hafa líka gefið sig fram
til þátttöku eingöngu vegna þess
að þá langaði til að eignast 10
þúsund krónur, en ekki af því að
þeir hefðu af svo miklum fróð-
leik að státa. Lengst komst ein
fróð ungfrú, sem vissi næstum
því allt um konungsættir, en
missti af 10 þúsundunum er hún
gat ekki rakið ætt núverandi
'Svíakonungs til Maríu Stúart.
Þessi spurningaþáttur sjón-
varpsins hefur náð gífurlegum
vinsældum. Almenningur fylgist
með keppendunum af miklum
áhuga og sennilega stuðlar þetta
að aukinni sérhæfingu í fram-
tíðinni.
Stokkhólmi í febrúar 1957.
J. H. A.
Byggingafélag
lögreglumanna
10 ára
UM þessar mundir eru liðin 10
ár frá því 25 lögreglumenn komu
saman á fund og stofnuðu með
sér Byggingafélag lögreglumanna
sem síðan hefur stækkað og
eflzt mjög. Hafa félagsmenn síð-
an 1949 komið sér upp 65 íbúð-
um, og hefur félagið nú á prjón-
unum frekari byggingafram-
kvæmdir við Gnoðarvog og í Há-
logalandshverfi. Eru félagsmenn
nú um 150, en ekki eru það allt
lögreglumenn. Hefur félagið jafn
an notið góðrar fyrirgreiðslu hjá
ríki og bæ, en sérdeilis þó hjá
bæjaryfirvöldunum, sem komið
hafa mjög til móts við félags-
menn við að efla félagið og varð-
andi lóðaumsóknir þess.
Á aðalfundi félagsins á sunnu-
daginn verður þessa afmælis
minnzt. — í stjórn þess eru nú
Björn Kristjánsson, formaður,
Ragnar Bergsveinsson gjaldkeri,
Halldór Einarsson ritari og með-
stjórnendur Bogi Bjarnason og
Hörður Valdemarsson. Fjármála-
ritari er Bjarki Elíasson. — Aðal
hvatamenn að stofnun bygginga-
félagsins voru þeir Jónas Jónas-
son og Ingibergur Sæmundsson.