Morgunblaðið - 07.03.1957, Qupperneq 10
w
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 7. marz 1957
Vilja að stofnaður
verði veitinga- og
gistihúsasjóður
frá aðaSfundi Sambands maf-
reiðslu- og framSeiðslumanna
Sveinn
Símonarson
Færeyingar láta ekki
eyhibýli á Austurlandi
Ef þeir flytjasf til íslands vilja þeir
helzt búá í Reykjavík
IFRÉTTABRÉFI frá norsku fréttastofunni NTB, er frá því sagt, að
færeysk blöð hafi getið allýtarlega tillagna, sem fram hafa
komið á íslandi um að Færeyingum yrði gert kleift að setjast að
á eyðibýlum á Austurlandi. En sem kunnugt er var um þetta rætt
á fjórðungsþingi Austurlands.
AÐALFUNDUR Sambands mat-
reiðslu- og framreiðslumanna
(9. þing) var haldið í Breiðfirð-
ingabúð mánudaginn 4. marz, og
setti formaður sambandsins,
Sveinn Símonarson, þingið kl.
24,30. Fundarstjóri var kjörinn
Böðvar Steinþórsson.
Formaður sambandsins og
gjaldkeri gáfu skýrslu yfir starf-
semi sambandsins umliðið ár, og
lásu og skýrðu reikinga þess. —
Umræður urðu nokkrar um
skýrsluna. Samtök matreiðslu-
og framreiðslumanna áttu þrí-
tugsafmæli 12. febr. sl. Ákveðið
hefur verið að halda innan
skamms fund allra sambands-
meðlima, og mun þar verða rætt
um uppsögn samninga við
vinnuveitendur. Eitt sambands-
félag, Félag framreiðslumanna,
hefur sagt upp samningum sín-
um við kaupskipaeigendur og
einnig við veitingamenn, og má
búast við að fleiri félög hugsi til
samningsuppsagnar.
Meðal samþykkta er aðalfund-
urinn gerði, var svohljóðandi á-
lyktun:
„Aðalfundur SMF 1957 telur
nú sem fyrr, að koma ferða-
manna til landsins geti veitt þjóð-
inni gífurlegan erlendan gjald-
eyri og fjölda atvinnustétta
vinnu. Til að efla þennan at-
vinnuveg telur aðalfundurinn
nauðsynlegt að stofnaður verði
veitinga- og gistihúsasjóður, sem
hefur því hlutverki að gegna, að
veita lán til bygginga gisti- og
veitingahúsa í Reykjavík, og um
gjörvallt landið, sem heppilegast
getur talizt fyrir þessa starfsemi
að áliti sérfróðra manna, með
það fyrir augum að fá erlenda
'menn til þess að sækja staðina
og njóta náttúrufegurðar lands-
ins.
Aðalfundurinn skorar á sam-
göngumálaráðherra, að skipa nú
þegar nefnd sérfróðra manna og
áhugamanna um ferðamannamál,
til að gera tillögur um þetta efni,
og semja frumvarp um landkynn-
ingu og ferðamannamál, og skal
hraða þessu þannig að frumvarp
um þetta mál verði lagt fyrir
næsta Alþingi“.
Vegna frétta í útvarpi og blöð-
um óskast það leiðrétt að Félag
matreiðslumanna hefur ekki sagt
upp samningum sínum um kaup
og kjör matreiðslumanna.
Við kosningu stjórnar SMF
voru þau Sveinn Símonarson for-
maður sambandsins, Böðvar
Bteinþórsson ritari, Magnús Guð-
jnundsson gjaldkeri og Guðný
Jónsdóttir endurkosin. Aðrir í
Félag eigenda rússn.
bifreíða sfofnað
SUNNUDAGINN 3. marz var
stofnað í Reykjavík Félag eig-
enda rússneskra bifreiða, skamm
stafað FERB.
Tilgangur félagsins er að vinna
að hagsmunum eigenda bifreiða
frá Ráðstjórnarríkjunum, svo
sem að ætíð séu fyrir hendi nægi-
legir varahlutir til bifreiðanna.
Vinna að fræðslu og leiðbeining-
um um meðferð og notkun
þeirra, og vinna að bættri um-
ferðarmenningu í landinu.
í stjórn félagsins voru kjörnir:
Oddur Kristjánsson form., Sig-
urður Guðmundsson varaform.,
Hermann Guðmundsson ritari,
Kristján Elíasson gjaldkeri og
Bolli Ólafsson meðstjórnandi. í
varastjórn: Magnús Aðalsteins-
son og Andrés Guðnason.
stjórn eru: Sigurður E. Pálsson,
Sem er varaformaður, Guðmund-
ur Halldórsson Jónsson, Harald-
ur Hjálmarsson, Sveinbjörn Pét-
ursson og Theódór Ólafsson. Til
vara: Elís V. Árnason, Guðrún
Bjarnadóttir, Janus Halldórsson
og Borgþór Sigfússon.
Endurskoðendur voru kosnir:
Einar Olgeirsson og Sveinsína
Guðmundsdóttir, til vara: Jenný
Jónsdóttir og Þórður S. Arason.
IHÆSTARÉTTI hefur verið
kveðinn upp dómur í máli út
af dánarbótum. Ung kona, sem
missti unnusta sinn í slysi, Stef-
anía Lóa Valentínusdóttir, Múla-
búðum 12 hér í bænum, höfðaði
þetta mál gegn fjármálaráðherra
f. h. ríkissjóðs, til greiðslu skaða-
bóta vegna sjálfrar sín og barna
sinna ólögráða.
Aðdragandi máls þessa er sá
að í byrjun september 1954 varð
dauðaslys á Hafnarfjarðarvegi á
móts við Engidal. Maður að
nafni Magnús Karl Líndal Þor-
steinsson, Hamarsbraut 9 í Hafn-
arfirði, varð þar fyrir áætlunar-
bíl frá bandaríska byggingafélag-
inu Hamilton á Keflavíkurflug-
velli. Beið Karl bana af. Hafði
hann komið á mikilli ferð hlaup-
andi á móti bílnum og skollið á
hann áður en vagnstjórinn fengi
vagninn alveg stöðvaðan. Það
kom fram við krufningu að mað-
urinn hafði verið mikið drukk-
inn.
í sakadómi Keflavíkur var
vagnstjórinn á bílnum dæmdur
vegna fyrrgreinds slyss, þar eð
sannað þótti að hann hefði að
nokkru verið samvaldur að slys-
inu. — Vagninn var ekki í lagi.
í undirrétti gerði Stefanía Lóa
Valentínusdóttir bótakröfur í
nokkrum liðum alls að upphæð
kr. 459,082,00.
Hún og Magnús Karl höfðu
heitbundizt haustið 1950 og opin-
berað með hringum í ágústmán-
uði 1954. Höfðu þau gert margar
tilraunir til þess að útvega sér
íbúð til að geta stofnað bú, en
ekki heppnazt Þegar slysið varð
var Stefanía Lóa 22 ára og börn
hennar, hið eldra fætt í sept.
1951, en yngra í marz 1954. —
Magnús heitinn Karl var þá 31
árs.
Magnús Karl stundaði sjó-
mennsku frá Hafnarfirði og skrif-
aði sig þar, þó hann hefði þar
hvorki húsnæði né fæði. Það
sannaðist fyrir undirrétti að þau
Stefanía Lóa Valentínusdóttir og
Magnús Karl Þorsteinsson hefðu
búið saman ógift frá því seint á
árinu 1951 og þar til hann lézt
og heimili þeirra verið á hans
framfæri.
í undirrétti var á það fallizt að
Stefanía Lóa ætti rétt til bóta
fyrir missi framfærslu við dauða
Magnúsar Karls. Ekki taldi þó
undirréttur hægt, við ákvörðun
bótanna að jafna sambandi þeirra
að fullu til hjúskapar.
Tjónbætur þær sem undirrétt-
ur dæmdi fjármálaráðherra ríkis-
sjóð til greiðslu á voru að helm-
TIL REYKJAVÍKUR
Fréttastofan segir þó að fær-
eysku blöðin hafi tekið heldur
dræmt undir slíkar fyrirætlanir.
Þau segja að fjöldi Færeyinga
hafi að vísu flutzt til íslands eftir
stríðið og tekið sér þar bólfestu.
En þau benda hins vegar á það,
að hér um bil allir Færeyingar,
sem flutzt hafi tíl íslands hafi
ingi á kr. 323,000,00 eða kr. 161,
500,00 auk 6% vaxta.
í Hæstarétti var einnig fallizt
á þær niðurstöður að Stefanía
Lóa Valentínusdóttir ætti kröfur
á greiðslu bóta eftir Magnús Karl
en nokkuð lækkaði Hæstiréttur
þær. I forsendum dómsins, þar
sem fjármálaráðherra f. h. ríkis-
sjóðs er nefndur aðaláfrýjandi og
Stefanía Lóa Valentínusdóttir
gagnáfrýjandi, segir svo:
Aðalaáfrýjandi gerir aðallega
þær dómkröfur, að hann verði
algerlega sýknaður og honum
dæmdur málskostnaður úr hendi
gagnáfrýjanda. Til vara krefst
hann þess, að dæmdar fjárhæðir
verði lækkaðar og hvorum aðilja
um sig dæmt að bera kostnað
sinn af málinu fyrir báðum dóm-
um.
Gagnáfrýjandi, sem hefur feng-
ið gjafsókn hér fyrir dómi,
krefst þess, að aðaláfrýjanda
verði dæmt að greiða henni sjálfri
kr. 315.121.00, henni f. h. sonar
hennar Bjarna Ragnars Magnús-
sonar kr. 70.274.00 og f. h. dóttur
hennar Sólveigar Sigríðar Magn-
úsdóttur kr. 73.687.00 ásamt 6%
árvöxtum af dæmdum fjárhæð-
um frá 12. ágúst 1955 til greiðslu-
VEL TIL IIÓFSINS VANDAI)
Samkoman hefst kl. 8 um
kvöldið með ávarpsorðum for-
manns, Guðbjartar Egilssonar, en
síðan verður borðhald. Verður
íslenzkur matur á borðum og
mun kvennadeild félagsins al-
gjörlega sjá um undirbúning mál
tíðarinnar. Undir borðum fara
fram ýmis skemmtiatriði svo
sem almennur söngur, einsöngur
Jóhanns Konráðssonar frá Akur-
eyri og einnig mun ungfrú Sig-
ríður Hannesdóttir syngja gam-
anvísur. Að lokum verður dansað.
MIKIL FÉLAGSSTARFSEMI
Barðstrendingafélagið er nú 13
ára. Aðalhvatamenn að stofnun
farið til Reykjavíkur eða hinna
stærri kaupstaða, alveg á sama
hátt og fólkið í dreifbýlinu á ís-
landi hefur verið að flytjast til
borganna.
KREFJAST JAFNRÉTTIS
Færeyska blaðið „Dagblaðið“
segir, að það hafi lítið að-
dráttarafl í augum Færeyinga,
dags. Ennfremur krefst gagn-
áfrýjandi málskostnaðar úr hendi
aðaláfrýjanda.
Málsatvikum er rétt lýst í hin-
um áfrýjaða dómi. Ekki er í Ijós
leitt, að bifreiðarslys það, sem í
málinu greinir hefði orðið, þótt
bjfreiðin hefði verið í lagi og
ökumaður sýnt fulla aðgæzlu og
varkárni. Má því staðfesta úr-
lausn héraðsdóms um sakar-
skiptingu.
Með skírskotun til raka héraðs-
dóms má fallast á, að gagnáfrýj-
andi, Stefanía Lóa Valentínus-
dóttir, eigi rétt á bótum eftir hinn
látna, Magnús Karl Þorsteinsson.
En þar sem sambandi þeirra verð
ur ekki jafnað til hjúskapar,
þykja bætur henni til handa fyrir
missi fyrirvinnu og röskun á hög-
um, þegar litið er til framan-
greindrar skiptingar á ábyrgð á
á slysinu, hæfilega ákveðnar kr.
60.000.00.
Börn gagnáfrýjanda og Magn-
úsar Karls Þorsteinssonar hafa
notið óendurkræfs lífeyris sam-
kvæmt lögum um almannatrygg-
ingar frá næstu mánaðamótum
eftir að slysið varð, og haldast
þær greiðslur til 16 ára aldurs
þeirra. Bætur fyrir missi fyrir-
vinnu og röskun á högum úr
hendi aðaláfrýjanda til Bjarna
Ragnars þykja hæfilega ákveðnar
kr. 24.000.00 og til Sólveigar Sig-
ríðar um kr. 26.000.00.
Af dæmdum fjárhæðum ber
aðaláfrýjanda að greiða 6% árs-
vexti frá 12. ágúst 1955, svo sem
krafizt er.
Aðaláfrýjanda ber ,að greiða
gagnáfrýjanda málskostnað bæði
í héraði og fyrir Hæstarétti, sam-
tals kr. 21.000.00.
þess voru þeir Jón Hákonarson
frá Reykhólum, sem látinn er
fyrir nokkrum árum og Guðmund
ur Jóhannsson frá Skáleyjum.
Fyrsti formaður félagsins var
Helgi Hermann Eiríksson. Þótt
félagið sé ennþá ungt að árum
hefur starfsemi þess verið mjög
öflug og þróttmikil. Innan fé-
lagsins starfa nú bridge-deildir
karla og kvenna, kvennanefnd
og ferðanefnd.
BJARKARLUNDUR
Fyrir rúmum 10 árum, sam-
einuðust félagsmenn Barðstrend-
ingafélagsins í stóru átaki, er
sumarveitingahúsið Bjarkarlund-
ur í Reykhólasveit reis af grunni.
Er það myndarlegt veitingahús
bjciða sér
er þeim sé baðið að setjast
að á eyðibýlum, sem íslend-
ingar hafa yfirgefið. Ef Fær-
eyingar flytjist þangað norð-
ur, muni þeir ekki láta bjóða
sér lakari kjör né viðurværi,
en íslendingar sjálfir heimta.
Magnús Guðmundsson.
Stjórn Malsveinafél.
SM. F.
FYRIR nokkru var haldinn aðal-
fundur Matsveinafélags SMF og
var listi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs sjálfkjörinn, en hann
er þannig skipaður: Magnús Guð-
mundsson form., Hafnarfirði;
Þórður Arason varaform., Rvík;
Borgþór Sigfússon ritari, Hafn-
arfirði; Bjarni Jónsson gjaldkeri,
Hafnarfirði; Ingvald Andersen
varagjaldkeri, Vestmannaeyjum.
Meðstjórnendur: Haraldur Hjálm
arsson, Reykjavík; Sigurður
Magnússon, Reykjavík.
Varastjórn: Guðjón Guðjóns-
son, Patreksfirði; Bjarni Sumar-
liðason, Hafnarfirði, og Björn
Jónsson, Akranesi.
sem rúmar 30 manns til gistingar
í einu. Hefur Bjarkarlundur ver-
ið starfræktur hvert ár síðan
hann var byggður, af myndar-
skap og mikilli prýði. Láta fé-
lagsmenn BarðstrendingaféL
sér sérstaklega annt um Bjarkar-
lund sem heita má „sæluhús Barð
strendinga" þótt í alfaraleið sé,
en annað veitingahús er ekki í
allri sýslunni. Er það mikið á-
hugamál allra félagsmanna, að
Bjarkarlundur þjóni sem bezt því
hlutverki sem honuna var ætlað,
að vera hvíldarstaður ferða-
manna á þessari leið og að þeir
geti notið sem beztrar fyrir-
greiðslu þar sem kostur er á.
„SKÍRDAGSFAGNAÐURINN“
Einn er sá þáttur í starfsemi
félagsins, sem lítið hefur borið
á, en er ef til vill einn sá merk-
asti í störfum þess. Það er hinn
svonefndi „Skírdagsfagnaður“,
sem félagið heldur á hverju ári.
Til þessa fagnaðar, sem ævinlega
er í Skátaheimilinu er eingöngu
boðið öldruðum Barðstrending-
um, eða fólki sem komið er yfir-
sextugt. Eru þetta mjög vinsælar
samkomur og vel til þeirra vand-
að. Kvennanefnd félagsins ann-
ast ævinlega undirbúning þeirra
og hefir gert það af mikilli prýði.
Munu allir þeir eldri Barðastrand
arsýslubúar, sem boðnir hafa
verið til þessa fagnaðar, hugsa
með hlýleika til félagsins og sér-
staklega • kvennanefndarinnar,
sem á miklar þakkir skyldar fyr-
ir óeigingjarnt starf.
Eins og gefur að skilja, þarfn-
ast félagið mikils fjár til þess
að geta staðið straum af fram-
kvæmdum sínum og starfsemL
Síðastliðið haust efndi það ttl
happdrættis og mun bráðlega
verða dregið í því. Þá heldur
það skemmti- og spilakvöld einu
sinni í mánuði að vetrinum í
fjáröflunarskyni og hafa þau
verið vel sótt.
Átfi kröfu á fébófum eftir
unnusfa sinn
Þau höfðu búið saman en áður gert árangurs-
lausar tilraunir ti! að ná í íbúð
Afmælisfagnaður Barð
strendingafélagsins
verður á laugardaginn r Skátaheimilinu
NÆSTKOMANDI laugardag, 9. marz, heldur Barðstrendinga-
félagið í Reykjavik hinn árlega afmælisfagnað sinn í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut, svo sem verið hefur undanfarin ár.
Eru Barðstrendingar allfjölmennir hér í bænum og telur félagið
nú um 500 meðlimi.