Morgunblaðið - 07.03.1957, Síða 12

Morgunblaðið - 07.03.1957, Síða 12
12 MORCVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 7. marz 1957 GULA herbewtji eftir MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 69 rólega. En áhyggj usvipurinn var farinn af andliti hennar. Marcia gaf Dane skýrslu sína á heimleiðinni. Hún var þreytuleg og heldur niðurdregin. — Ef yður er nokkurt gagn í að vita það, sagði hún, — þá eru þau bæði hrædd. Að minnsta kosti hún. Hún vildi ekki, að I.ann færi til dyra þegar hringt var. En hún var helzt undrandi á á- herzlu þeirri, er Dane lagði á sögu hennar um teppin. — Sagði hún, hvenær þetta var? spurði hann. — Ekki annað en, að það hefði verið rétt fyrir skömmu. . En síðasta s_/urningin var henni þó mest undrunarefni. — Hvernig er sjónin hjá hon- um Ward gamla? Þarf hann alltaf að nota gleraugu? — Hann er sama sem blindur án þeirra. Hann gaf enga frekari skýr- ingu. Áður en hún fór, sagði hann henni, að hún væri sú ágætis- manneskja, sem hann hefði alltaf haldið, og að hún hefði gert fleiri en eitt góðverk þessa nótt. í hverju íau væru fólgin sagði hann ekki, en hún ók heim til sín, lofinu fegin, en jafnframt, botnaði hún ekki neitt í neinu. 24. Þetta var á laugardag 1 tvo daga hafði Greg setið í fangels- inu. Þar fór ekki sem verst um hann. Þarna var«mjótt rúm, stóll og kommóða. Hann gat pantað sér mat, en gerði honum lítil skil. Hann hafði enga hugmynd um all- an þann'æsing, sem handtaka hans hafði vakið, fyrirspurnirnar til Washington og blaðasnápana, sem LTVARPIÐ Fimmtudagur 7. marz: Fastir liðir eins og venjulega. 12.50—14.00 „Á frívaktinni“, sjómannaþáttur (Guðrún Erlends dóttir). 18.30 Framburðarkennsla í dönsku, ensku og esperanto. 19.00 Harmonikulög. 19.10 Þing- fréttir. — 20.30 íslenzkar haf- rannsóknir; VIII. erindi: Um karfa og karfaveiðar (dr. Jakob Magnússon fiskifræðingur). 20.55 Frá liðnum dögum: Bjarni Björns son syngur gamanvísur (plötur). 21.30 Útvarpssagan: „Synir trú- boðanna“ eftir Pearl S. Buck; III. (Séra Sveinn Víkingur). 22.10 Passíusálmur (18). 22.20 Sinfóníu hljómsveit íslands leikur. Stjórn andi: dr. Václav Smetácek hljómsveitarstjóri frá Prag. (Hljóðr. á tónleikum í Þjóðleik- húsinu 18. f.m.). 23.05 Dagskrá- lok. höfðu hópazt til þorpsins. Einn þeirra lét meira að segja taka sig fastan, til þess að komast sem næst Greg. Leiðinlegast þótti honum iðju- leysið. Hann gerði ekki annað en reykja og ganga um gólf og þarna var gólfrúmið heldur takmarkað. Hann reyndi að hugsa málið, en annars hafði hugsanastarfsemi aldrei verið hans sterkasta hlið. Aðeins vissi hann, að réttarhöld- unum átti að flýta. Hart var far- inn en von á frægum sérfræðingi í sakamálaflutningi í staðinn. En mesta þrá hans var að kom- ast út úr þessum ógöngum og geta farið til hersveitar sinnar aftur, Hann efaðist aldrei um möguleikana á þessu og jafnvel ást hans til Virginiu varð smá við hliðina á þessari ósk hans. Hann hafði þó viljað giftast Virg- iniu. Vitanlega. En hann langaði bara ennþá meira að komast út í frelsið, komast í hernaðinn aft- ur, og gera óvinunum helvíti heitt, koma aftur, skila skýrslu sinni, éta, sofa og leggja svo af stað aftur. Hann hafði enga hugmynd um, að Virginia var komin til Bay- side. Og það hafði Dane heldur ekki, þar sem hann sat og fékk sér hressingu fyrir matinn við borðið í herberginu, sem hann kallaði vinnustofu sína, og beið eftir því, að Alex kæmi aftur úr sendiferð. Fyrsti fyrirboði eldgossins var, er hann heyrði einn stólinn frammi í forstofunni detta á hlið- ina og hurð skella. Á næsta vet- fangi stóð fyrir framan hann lag- leg stúlka, rauðhærð. — Svona farið þér að því að hjálpa Greg, sagði hún. — Sitjið hér og drekkið, meðan þessir bölv- aðir blábjánar eru að reyna að koma honum í rafmagnsstólinn. — Eafmagnsstóll er ekki til í þessu ríki. Rósemi hans og bros gerði stúlk- una orðlausa. Hún glápti nú að- eins á hann. — Ég skil. Það er ekki yðar eigið líf, sem um er að ræða. — Hvers vegna fáið þér yður ekki sæti? Hvaða gagn haldið þér, að þér gerið með því að haga yð- ur eins og krakki, ungfrú Dema- rest? Því það heitið þér víst. Hún lét fallast niður í stól, en svipurinn var enn eins og á rell- óttum krakka. Dane gat ekki ann- að en brosað að henni. — Þetta var bétra, sagði hann. — Annars get ég upplýst yður um það, ef þér kærið yður um, að fleiri vandamál eru leyst við skrif- borð — með eða án áfengis — heldur en á hlaupum, þó að vitan- lega þurfi stundum að hlaupa líka. Og ég vil bæta því við, að ung- frú Carl Spencer hefur haft nóg á sig lagt, undanfarið, þó að hún fái ekki yfir sig svona óhemju- skap í þokkabót. — Ég er engin óhemja. — Þá skuluð þér ekki látast vera það. Hann gaf henni vindling og fékk sér annan sjálfur, skýrði henni síðan frá aðalatriðum málsins svo og trú sinni, að Greg væri sak- laus, að hann hefði enn dálítið í bakhöndinni, sem að gagni gæti komið, og loks, að jafnvel þótt mál Gregs kæmi fyrir kviðdóm, þyrfti það ekki að þýða sektar- dóm. Sjálf var hún orðin svo utan við sig, að hún gat ekkert sagt honum, sem gagn var í. Hún vissi, að Greg drakk, „þegar honum leið illa“- Hún vissi, að til voru stúlk- ur, sem giftust hermönnum, til þess að ná £ launahlutann þeirra. En sjálf var hún í „bölvuðum vandræðum“, að því er hún sjálf sagði. Hún ætlaði ekki að endur- senda brúðkaupsgjafirnar. Hún elskaði Greg og ætlaði að giftast honum, þó að það yrði í fanga- klefa. Svo fór hún að gráta og dró upp vasaklút, sagðist hafa verið bjáni og fór loks, stórum þöglari en íún hafði komið. Þegar hún var farin, hugsaði Dane sig um, stundarkorn, síðan bætti hann aftan við minnisgrein- arnar sínar: (15) Allt í lagi. Hr. Ward get- ur verið rólegur. Alex kom þama að honum, þar sem hann reykti, með fullan öáku- bakka af vindlingastúfum fyrir framan sig. Einn stúfurinn var með varalit á og Alex tók eftir honum, en lét eins og ekkert væri. — Mér tókst að ná í Hank Mill- er, sagði Alex. — Það er nú ekki auðvelt á laugardagsmorgni, en ég held ekki, að hann hafi grunað neitt. — Hefur hann niðursuðuvörur? — Fullt af þeim. Allar tegund- ir. Ég sagðist hafa heyrt, að þetta væru svartamarkaðsvörur, en Hank sýndi mér reikningana sína. — Er hann enn aðþessu? — Ekki síðustu vikuna eða svo. — Það ætti að vera hægt að finna, hvert vörurnar voru send- ar. Dane fór út að aka með Car seinnipart dagsins, bæði til þess að losa hana við Yirginiu og eins til þes að geta haft hana eina út af fyrir sig. En nú fór hann ekki með hana upp í fellið, eins og í fyrra skiptið, heldur ók hann til Grænuhlíðar. Þar staðnæmdist hann og leit kringum sig. — Nú er bezt, að þú hjálpir mér að leita að verksummerkj- um, sagði hann. — Hvers konar? Ég er hrædd um, að það sé lítið gagn í mér til þess, Jerry. KELVINATOR KÆLISKÁPAItHIR 8 cub. fet. komnir aftur. THfekía Austurstræti 14. Sími 1687. Styrktar- og sjúkrasjóður Verzlunarmanna í Keykjavík AÐALFUNDUR , verður haldinn fimmtud. 7. marz í Tjarnarcafé kl. 8.30 e.h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Tillögur um lagabreytingar liggja frammi hjá Sigurði Einarssyni, Ritfangaverzlun V. B. K. Stjórnin. Veitingastofa í fullum gangi í miðbænum er til sölu. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins ásamt nafni og heimilisfangi og síma, ef til er, fyrir laugardag, merkt: Framtíð —2227. Efrsaverkfrœðinguir Samband íslenzkra samvinnufélaga óskar eftir efnaverkfræðingi til starfa. Nánari upplýsingar hjá * StarfsmanmhaBdl S.I.S. Sambandshúsinu, Sími: 7080. Hvað vantar yBur? Við höfum nú: Rafmagnsofna, margar gerðir Eldhúsviftur Brauðristar, sjálfvirkar Eldhúsklukkur, (amerískar) Eldavélahellur, (hraðsuðu’). Arinofnar og glóðir fyrir arina, (kamínur). Píanólampar, (þýzkir) Eldavélar, (þýzkar) 3 hellur og 4 hellur. Útidyraljós með húsnúmeri. Lykteyðandi fyrir kæliskápa. Þvottaduft fyrir uppþvottavélar. Apex uppþvottavélar með og án vasks. Fluoresentlampar, 48” og 24”í einnar peru og tveggja peru. Véla- og Raftækiaverzlanin hi. Bankastræti 10 — í Keflavík: Hafnargötu 28. M A R K Ú S Eftir Ed Dodd Föstudagur 8. marz: Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 Framburðarkennsla í frönsku. 18.1:0 Létt lög. 19.10 Þingfréttir. 20.30 Dag'legt mál (Arnór Sigurjónsson ritstjóri). 20.35 Kvöldvaka: a) Páll Berg- þórsson veðurfræðingur talar um veðrið í febrúar o. fl. b) Laugar- vatnskórinn syngur; Þórður Krist leifsson stjórnar (plötur). c) Hallgrimur Jónasson kennari flyt- ur frásögu og stökur: Á fjöllum. d) Kjartan Bergmann skjala- vörður flytur frásöguþátt af Fjalla-Bensa. 22.10 Passíusálmur (17). 22.20 Upplestur: Hugrún les frumort kvæði. 22.30 Tónleik- ar: Bjöm R. Einarsson kynnir djazzlög. 23.10 Dagskrárlok. 1) Sleðinn er of þungur fyrir ísinn. Allt í einu brotnar ísinn, sleðinn og Jonni falla í vökina. 2) Markús æpir af undrun og skelfingu. 3) Meðan Markús hjálpar Jonna upp rir vökinni, aka hinir keppendurnir áfram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.