Morgunblaðið - 20.03.1957, Blaðsíða 8
8
MORGVNBL'Afíin
Miðvíkudagur 20. marz 195T
Ötg.: H.f. Arvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Ami Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinssoo.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið. j
Hvor er stíflan í lónsútvegunum
vinstri stjórnurinnnr ?
Eitthvað dularfullt virðist vera
að gerast á kærleiksheimili
„vinstri stjórnarinnar". Aðalmál-
gagn ríksstjórnarinnar „Þjóðvilj-
inn“ kvartar yfir því daglega að
hún vanefni loforð sín.
Fyrir skömmu komst blaðið t.
d. að orði á þessa leið í forystu-
grein sinni:
„Eins og áður er sagt hefur Al-
þingi fyrir alllöngu samþykkt frv.
rkisstjórnarinnar um kaup 15
nýrra togara. Hins vegar hefur
ekki síðan orðið vart við neina
tilburði hjá ríkisstjórninni til að
semja um smíði á þessum togur-
am og ganga frá kaupum á þeim“.
í þessari sömu forystugrein
kommúnistablaðsins, sem birtist
s.l. föstudag er einnig deilt á rík-
isstjórnina fyrir að „ný löggjöf
um húsnæðismál láti enn bíða
eftir sér“.
Blað kommúnista beinir hér
árásum sinum gieinilega að ráð-
herrum „Alþýðubandalagsins* í
ríkisstjórnmni. Annar þeirra er
sjávarútvegsmálaráðherra og
heyra togarakaupin því að veru-
legu leyti undir ráðuneyti hans.
Hinn er félagsmálaráðherra og
heyra húsnæðismálin því undir
hann.
En það hlálegasta í þessu
öllu saman er þó það, að sjálft
konunúnistablaðið lýsir því
yfir í þessari sömu forystu-
grein sinni, að nóg lánsfé bjóð
ist í þessiu skyni, þ.e. til að
byggja togara og til húsnæðis-
umbóta. En rikisstjórnin fáisf
bara ekki til þess að hag-
nýta lánsmöguleikana!!
.Eiga kost á mjög hag-
stæðum lánum“
Um þetta kemst „Þjóðviljinn
að orði á þessa leið sl. föstudag:
„Það er vitað, að fslendingar
eiga kost á mjög hagstæðum lán-
um til skipakaupa, lánum, sem
fást til langs tíma og með lágum
vöxtum, og þegar fjármunir bjóð
ast er eina verulega torfæran yf-
irunnin. Ríkisstjórnin hefur vit-
að um þessa hagkvæmu lána-
möguleika í hálft ár, hún gaí ver-
ið búin að taka lán fyrir löngu
og hefði getað samið um togara-
smíðina þegar er Alþingi af-
greiddi lögin.
En þetta hefur ekki verið gert,
og það vekur dagvaxandi undr-
un almennings um land allt“.
Þetta upplýsir málgagn
stærsta stjórnarflokksins. Ríkis-
stjórnin á kost á „hagstæðum lán
um“ „til langs tíma og með lág-
um vöxtum“. Og hún hefur „vit-
að um þessa hagkvæmu lána-
möguleika í hálft ár“. En ekkert
gerist. Hvers konar ástand er
þetta eiginlega?
Stjórnina vantar lán til ótal
hluta, sem hún hefur lofað þjóð-
inni. Henni býðst lánsfé með
einkar hagstæðum kjörum. En
hún fæst ekki til að taka lánið,
segir „Þjóðviljinn". Það er von
að almenningur spyrji:
Hvar er stíflan í lánsútvegun-
um vinstri stjórnarinnar? Er
þetta satt, sem „Þjóðviljinn“ hef-
ur sagt, eða er það aðeins venju-
legur þvættingur og raup úr Ein-
ari Olgeirssyni?
Það væri vissulega æskilegt áð
fá ótvíræð svör um sannleikann í
þessu öllu.
Þáttur Siálfstæðis-
manna í húsnæðis-
umbótunum
Eins og kunnugt er höfðu Sjálf
stæðismenn forgöngu um það í
tveimur síðustu ríkisstjórnum, að
efnalitlir einstaklingar væru
styrktir með aukinni lánastarf-
semi til þess að byggja yfir sig
og bæta úr tilfinnanlegum hús-
næðisskorti víðs vegar um land.
í þessu skyni var Lánadeild smá-
íbúða sett á laggirnar og síðan
nýtt veðlánakerfi. Ennfremur
beittu Sjálfstæðismenn sér fyrir
því í samvinnu við Framsóknar-
flokkinn að dregið var úr höml-
um á byggingu íbúða af hóflegri
stærð.
Alit þetta hafði í för meðl
sér miklar umbætur í húsnæð-
ismálum þjóðarinnar. Á árun-
um 1955 og 1956 var varið nær
100 millj. kr. til lánastarfsemi
á vegum Húsnæðismálastjórn-
ar og hins nýja veðlánakerfis.
Voru veitt á þessum tæpl. 2 ár
um um 1400 lán í öllum lands-
hhitum.
Þau þrjú ár, sem smáíbúða-
deildin starfaði voru veitt úr
henni rúm 1600 lán, samtals
um 41 milj. kr.
Vitanlega nægði ekki þessi
lánastarfsemi til þess að
fullnægja hinni gífurlegu láns-
fjáreftirspurn. En með hinu nýja
veðlánakerfi var stórt og merki-
legt spor stigið í rétta átt. Var
það eindregin ákvörðun Sjálf-
stæðismanna að halda áfram að
efla það. Þeir höfðu tryggt mik-
ið fjármagn til starfsemi þess
meðan þeir fóru með völd í land-
inu.
Svik Ob ^etuleysi vinstri
st'órnarinnar
En það hörmulega hefur gerzt,
að með myndun vinstri stjórnar-
innar hefur starfsemi hins nýja
veðlánakerfis algerlega lamazt.
Hinir nýju valdhafar hafa ekki
getað útveg'að neitt nýtt fjár-
roagn til þess að halda áfram
hinni nauðsynlegu lánastarfsemi,
ekki eyri. Það eina, sem þeir hafa
gert er að reka upþ skræk og
barma sér yfir því, að Sjálfstæð-
ismenn skuli ekki hafa útvegað
fjármagn fram í timann þannig,
að hægt væri að halda áfram
starfsemi veðlánakerfisins!!
Aumingjalegri framkoma hefir
áreiðanlega aldrei sézt. „Þjóðvilj-
inn“ segir að 3000 umsóknir um
lán liggi fyrir hjá húsnæðismála
stjórn. En félagsmálaráðherrann,
kommúnistinn og „Alþýðubanda-
lagsmaðurinn" Hannibal Valde-
marsson hefur engan eyri get-
að útvegað til þess að fullnægja
þessum umsóknum. Og þó segir
Einar Olgeirsson að stjórnin geti
fengið nóg lán!!
Hvað er eiginlega á seyði innan
þessarar aumu og vesælu ríkis-
stjórnar? Hvers vegna fær veð-
lánakerfið ekki fé til starfsemi
sinnar, og hvers vegna er ekki
samið um smíði togaranna fyrst
aðalmálgagn stærsta stjórnar-
flokksins segir, að stjórnin eigi
kost á „mjög hagstæðum lánum“
„til langs tíma með lágum vöxt-
um“?!!
UR HEIMI
FlconhnniAv styttir sturlsdng sinn stöðugt
usennower vegnn hrakaBdi heUsu
tlrakandi heilsa Eisen-
howers er.nú stærsta yandamál-
ið í bandarísku stjórnmálalífi.
Fyrir kosningarnar óttuðust
Bandaríkjamenn mjög, að til
þess gæti dregið, er nú horfir
— sem sé, að heilsu forsetans
kynni að hraka það mjög, að
hann gæti ekki sinnt embættis-
slörfum sem skyldi. Fylgismenn
hans í kosningabaráttunni
reyndu að gera eins lítið úr þess-
ari hættu og hægt var.
En atburðir liðinna
mánaða hafa haft í för með sér
aukið starf fyrir Bandaríkjafor-
seta — starf, sem nú er Ijóst, að
hann hefur ekki getað lagt á sig.
Á sama tíma og geigvænleg styrj
aldarhætta vofir yfir Mið-Asíu
— og svo virðist sem Bandaríkja-
menn einir gætu borið sáttarorð
á milli deiluaðila — hefur for-
setinn neyðzt til þess að taka sér
hvíld í „sólríkara loftslagi“.
Jafnframt er Nixon varaforseti
á margra vikna ferðalagi um Af-
ríku — og Dulles situr fund Suð-
austur-Asíubandalagsins suður í
Ástralíu.
Þá spyrja stjórnmálasérfræð-
ingar í Washington: Hverjir
stjórna? Hverjir eiga að hafa
frumkvæðið?
Af hálfu stjórnarinnar
í Washington er því svarað, að
Eisenhower muni verða í stöðugu
sambandi við Washington á sjó-
ferðinni til Bermuda. Þessa ferð
ætlar hann að nota sér til hvíld-
ar, en það er í þriðja skiptið
sem hann tekur sér hvíldarfrí
síðan hann var settur inn í for-
setaembætti að nýju. Stjórnar-
völdin í Washington draga samt
enga dul á það, að stjórnartaum-
arnir hljóta smám saman að falla
úr höndum forsetans, ef þróun
málanna verður sú, sem horfur
eru á. Og það, sem mönnum þyk-
ir ískyggilegast í þessu efni, er
það, að enginn virðist vera bú-
inn undir að taka við taumunum,
ef Eisenhower fellur skyndilega
frá.
nda þótt Eisenhower
hafi látlaust átt við vanheilsu að
stríða síðan hann tók við for-
setaembætti að nýju, hafa banda-
rísku blöðin fram að þessu haft
sem minnst orð á því. Nú hefur
„New York Times“ hins vegar
tekið af skarið — og segir fyrir
skemmstu:
Að baki hinum miklu per-
sónulegu erfiðleikum forset-
ans liggur alvarlegt stjórnar-
vandamál. Stjórnvaldinu hef-
ur ekki verið breytt það mjög,
að það geti starfað með full-
um árangri án forsetans, sem
alltaf verður að gæta heilsu
sinnar — og löngum að dvelj-
ast fjarri höfuðborginni.
all Street Journal"
segir:
Hætta er á því, að forset-
inn muni, eins og einvaldar
fyrri alda, aðeins fá vitneskju
um það, sem undirmenn hans
vilja að hann viti. Þetta er
ekki gott fyrir landið. Enginn,
sem fjarlægzt hefur þjóðina,
getur leitt hana á þann hátt,
sem á að leiða hana.
7
Alsop-bræðurnir skrifa
í „New York Herald Tribune“:
Nánustu samstarfsmenn Eis
enhowers eru hræddir við
hann, ekki vegna vaxandi
Eisenhower hefur verið mjög
kvefaður að undanförnu — og
oft orðið að grípa til vasaklútsins
stirfni hans — heldur vegna
þess að þeim finnst hann stór.
bokkalegur. Enginn þorir að
yrða á hann eða andmæla
honum. Enginn þorir að vera
opinskár við hann og segja
honum frá erfiðleikum og
hættum, sem leynast fram
undan.
Síðustu vikurnar hefur
Eisenhower lagt allt starf, sem
forseti getur losað sig við, á hill-
una — og hefur hann m.a. af-
þakkað sex sinnum boð, sem
Bandarílcjaforseti er vanur að
þekkjast samkv. hefð. Hér er
um að ræða boð í hóf blaða-
mannafélagsins í Washington —
ásamt fleiru.
Sem dæmi um hina nýju trýgg-
ingu má nefna þetta: Ef innbú í
steinhúsi er brunatryggt fyrir
100.000 krónur. kostar það 180—
225 krónur. Ef tekin er 100.000
króna heimilistrygging í staðinn,
kostar hún 325 krónur og nær
yfir bruna á lausafé öllu, tjón af
sprengingum, eldingum, flugvéla-
hrapi, vatnsskaða, innbroti, snjó-
flóði, ráni, þjófnaði á reiðhjólum
eða barnavögnum, tjón af fjarvist
vegna bruna; veitir farangurs-
tryggingu, ábyrgðartryggingu
alls heimilisfólksins (barn brýtur
rúðu, eða heimilismenn valda
tjóni annars staðar) og loks er
slysa- og lömunartrygging fyrir
húsmóðurina.
18 FLOKKAR
Af þessu sést, að heimilistrygg-
ing á að vernda fólk á heirnilum
og raunar utan eigin heimilis
gegn margvíslegu tjóni, sem
menn verða fyrir í daglegu lífi.
Alls er um að ræða 18 mismun-
andi flokka tjóna, sem bætt eru
þeim, er slíka tryggingu taka.
Sem dæmi má nefna fyrsta tjón-
ið, er bætt var samkvæmt hin-
Eisenhower gefur sér góðan
tíma til miðdegishvíldar — og
hann hefur fækkað blaðamanna-
fundum sínum. Einnig hefur
hvíldartími hans um hel'gar
lengzt nokkuð. Það orkar því
ekki tvímælis, að Eisenhower
reynir nú mjög að stytta vinnu-
tíma sinn. Stjórnmálasérfræðing-
ar segja hins vegar, að stjórnmál-
in krefjist af honum meira starfs.
Y
Jl msir hafa að undan-
förnu gagnrýnt það, að Eisen-
hower annast eingöngu her-
læknar. í þessu sambandi er
bent á það, að einkalæknir for-
setans, Snyder herforingi, hefur
þá tilhneigingu allra herlækna
að vilja lækna sem flesta sjúk-
dóma með líkamsæfingum.
Á það er og bent, að Eisen-
hower fékk kransæðastífluna-árið
1955, er hann dvaldist í Colorado
og iðkaði fjallgöngur, lék lát-
laust golf og fór í veiðiferðir.
Síðustú veikindi hans, kvefið og
eyrnabólguna, bar að höndum
er hann hvíldist suður í Thomas-
ville — og fór þá m.a. í stuttar
veiðiferðir.
v
T axandi umræður Um
heilsu Eisenhowers forseta setja
nú mjög svip sinn á dagblöðin í
Bandaríkjunum — og hin minnk
andi starfshæfni forsetans virð-
ist nú einkenna ískyggilega mik-
ið bandarískt stjórnmála-
líf. Margir Bandaríkjamenn eru
sagðir minnast þessa dagana að-
vörunar Trumans fyrir síðustu
forsetakosningar, er hann varaði
landsmenn við að velja sér „hálfs
dags-forseta“, eins og hann orð-
aði það.
um nýju heimilistryggingum. —.
Ungur maður hafði breytt inn-
bústryggingu í heimilistryggingu
fyrir 100 kr. aukagjald. Nokkru
síðar braut kona hans dýrrnætan
hlut á heimili, þar sem þau voru
gestkomandi, og Samvinnutrygg-
ingar bættu fyrir þau hlutinn,
700 kr. virði.
Húsmóðir er með heimilis-
tryggingu tryggð, ef hún verður
fyrir slysi eða lömun, 10.000 kr.,
ef hún deyr, 100.000 krónur, ef
hún verður fyrir algerri örorku,
BREYTIST EFTIR VÍSITÖLU
Þessar tryggingar skapa leið
til nýs öryggis fyrir heimilin og
geta bjargað þeim frá óvæntum
útgjöldum, er nema verulegum
upphæðum árlega.
Það hefur verið mikið vanda-
mál fyrir tryggingafélögin, að
fólk hefur vanrækt að hækka
innbústryggingar sínar í sam-
ræmi við breytt verðlag. Með
hinum nýju heimilistryggingum
taka Samvinnutryggingar upp þá
nýjung, að tryggingarupphæðin
breytist einu sinni á ári eftir
hinni opinberu framfærsluvísi-
tölu.
(Lausl. þýtt úr „Dagens
Nyheder").
Samvinnutryggingar
hefja sérstakar
heimilistryggingar
SAMVINNUTRYGGINGAR hafa nú tekið upp nýjar Heimilis-
tryggingar, sem ætlað er að gefa hinum almennu borgurum
sem mesta tryggingavernd í daglegu lífi og á heimilum. Auk þess
er hægt að fá, auk brunatryggingar á húsmunum, víðtæka trygg-
ir.gu á alls konar skemmdum lausafjármuna, ábyrgðartryggingu
fyrir heimilisfólkið og slysatryggingu fyrir húsmóðurina. Er þessi
trygging alger nýjung hér á landi, en hefur náð miklum vinsæld-
um í öðrum löndum.