Morgunblaðið - 20.03.1957, Qupperneq 15
j\íí íftr’lr 11 /3! <j rftji* 2n
i# /i v? nwiN- n r j ptf)
15
— Iðjufundurinn
Frh. af bls. 2
ið af sjóðum félagsins, bæði
sjálfri sér, gæðingum sínum
og KRON og festir fé
félagsins þannig fyrirfram
og í mjög hæpnum veðum, eins
og skýrsla kauphallarinnar segir
og í öðru lagi það, að þeir hafa
tortimt fylgiskjölum fyrri ára,
þannig að það er ekki hægt að
láta fara fram nógu ýtarlega
rannsókn á bókhaldinu, og varðar
við lög að eyðileggja slík fylgi-
skjöl.
Fleira tók Guðjón Sigurðsson
fram af ávirðingum hinnar frá-
farandi kommúnistastjúrnar, en
meira verður ekki taiið hér að
sinni af því tagi.
ÉG KANN KANNSKK EKKI
Ato SKAMiVlAST MIN
Á fundinum í gærkvöldi urðu
fjörugar umræður og harðar á
köflum. Ekki tókst komm'únistum
að hrekja þessa ræðu Guðjóns,
né þann áburð, er fram kom á
stjórnina. Hins vegar bauðst
Björn Bjarnason tii þess að
greiða fyrir næstu mánaðamót
skuld þá er hann er í við fé-
lagið út af bifreiðakaupum sín-
um og orðrétt sagði hann um
ávirðingar þær sem á stjórn hans
voru bornar um leið og hann
játaði á sjálfan sig allar sakir
sem stjórninni væru kenndar:
„Ég kann kannske ekki að
skammast min, en ég geri það
að minnsia kosti ekki fyrir
þetta.“
Skákþing
Siiðwrnesja
SUNNUDAGINN 24. marz hefst
Skákkeppni Suðurnesja í Tjarn-
arlundi í Keflavik, en það hefir
verið haldið um árabil. Teflt
verður um titilinn skákmeistari
Suðurnesja 1957. Teflt verður
eftir svonefndu Mondrat kerfi,
og verða alls tefldar 9 umferðir.
Einnig fer fram keppni í ungl-
ingaflokki. Þátttökurétt í móti
þessu hafa allir sem búsettir eru
á Suðurnesjum. Þátttaka til-
kynnist til Vilhjálms Þórhallsson
ar formanns Taflfélags Keflavík-
ur í síma 501 b. Sigurvegarinn í
mótinu fær rétt til þátttöku í
landsliðsflokki á skákþingi ís-
lands.
Framhaldsaðalfundur Tafl-
.félags Keflavíkur verður í Bíó-
kjallaranum fimmtudaginn 21.
þ. m. kl. 8 e. h.
— í fáum orium sagt
Framh. af bls. 6
fá, fylltum hann af fiski og héld-
um til Hafnarfjarðar að losa afl-
ann. Það var gaman að koma í
höfn í það skipti. Allir fögn-
uðu manni svo innilega eftir
þessa hörmungarför.
— En segðu mér, hvernig leið
þér f Mannskaðaveðrinu?
Nú hlær Sturlaugur hátt og
baðar út höndum:
— Eins og núna, svarar hann.
Eins og núna. Maður kunni ekki
að hræðast. Allt miðast að því
að bjarga því sem bjargað verð-
vr.
Upp úr þessu förum við að
ræða um trú og forsjón og þá
varð mér fyrst ljóst, aS karl-
mennska á ekki alltaf rætur að
rekja til stríðslundar. Hún getur
einnig verið sprottin af blíð-
lyndri þrá eftir góðri uppskeru.
— Ég hef verið trúaður allt
mitt líf, segir Sturlaugur með
votan glampa í augum, og hef
alltaf falið mig þeirri forsjón
sem skapaði tungl og stjörnur.
Maður stendur aldrei lengur en
maður er studdur. Ef við trúum á
sjálf okkur og forsjón guðs, verð-
ur alltaf eitthvað til bjargar.
Og hann bætti við:
— öll skipstjóraár mín bað
ég fyrir skipi og mönnum, um
leið og við sigldum úr höfn.
Og það reyndist vel. Það meidd-
ist aldrei maður undir
minni stjórn, en eitt sinn missti
ég stýrimann fyrir borð — og
náði honum á síðustu stundu.
Og að lokum:
— Ég er orðinn sjötugur og
þessu fer að ljúka. En ég kviði
ekki meira fyrir að deyja en að
ganga hér út um dyrnar.
— M.
Ungling
vantar til blaðburðai
Hverfisgötu S
— Heknlwi til Moskvu
Framh. af bls. 9
mun vafalaust spyrja: —
Hvers vegna? — Að sinni
getum við þá aðeins beðið og
séð hvað gerist. Önnur víð-
brögð af okkar hálfu styðjast
ekki við staðreyndir.
Við verðum að vona, að menn
skilji fyrst almennt, að Sovét-
ríkin eru einræðisríki af sér-
stakri gerð. Fyi-r er vart hægt
að halda samskiptunum áfram
við Rússa. Hin blóðugu för eftir
rússneska skriðdreka í Ung-
verjalandi eru enn ekki storknuð.
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæbtarcltarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund.
Ung stúlka
óskast til starfa við kvik-
myndahús, seinni hluta
dags, 4—5 daga í viku. Þarf
að veita húshjálp fyrri hluta
dags á barnlausu heimili. —
Herbergi með sér inngangi,
fullt fæði, gott kaup. Uppl.
Reynimel 27 frá kl. 4—7,
ekki í síma.
Snyrtivörur
Allir tízl ulitir í
varalit
naglalakki
kinnalit
augnaskug'gum
Fuilkomið úrval af ölluni
snyrtivörum.
Bankastræti 7.
LJÓS OG HITI
(horninu á Barónsstíg)
/ r íjölritarar og
^jeóLeleier'f*™
^ fjolntunar.
Einkaumboð Finnbogi Kjartansson
Austurstræti 12. — Sími 5544.
I. O. G. T.
St. Einingin nr 14
Fundtir í kvöld kl. 8,30. Kosning
fulltrúa til Þingstúku. — A.-flokk
ur sér um skemmtiatriði fundar-
ins. Einsöngur, tríó syngur, flokks
söngur og útvarpsdagskrá með
sjónvarpsþætti í. — Hvor fiokkur-
inn verður fjölmennari? — Æ.t.
St. Sóley
Munið fundinn í kvöld. Emb-
ættismannakosningar o. fl. — Til
skemmtunar er upplestur og fé-
lagsvist. — Æ.t.
Félagslíl
Handknattleiksatúlkur
Ármanns!
Engin æfing í kvöid.
Árnienningar----Ármenningar
Spilakvöld verður haldið annað
kvöld £ Silfurtunglinu kl. 8,30.
Skemmtiatriði á eftir. Eldri og
yngri félagar, fjölmennið. — Stj.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Æfingar í dag:
Gömlu dansarnir, byrjendur kl.
8. Islenzkir dtnsar o. fl. kl. 9. —
Þjóðdansar, framhaldsflokkur kl.
10. — Sýningarfl. og unglingafl.:
Æfingar á morgun á venjulegum
tíma. — Stjórnin.
Flugbjörgunarsveitin
Kvikmyndasýning í Tjamar-
café, uppi, fimmtudaginn 21.
marz kl. 8,30, f jölmetmið.
— Stjómin.
Samkomur
Bræðrahorgarstíg 34
Samkoma í kvöld kl. 8,30. Sæ-
mundur G. Jóhannesson talar. —
Allir velkomnir.
Kristniboðshúsið Betanía
Laufásvegi 13
Almenn samkoma í kvöld
8,30. Allir velkomnir.
kl.
Hj álpræðisherinn
í kvöld kl. 8,30; Almenn sam-
koma í Ungmennafélagshúsinu
við Langholtsveg. Allir velkomnir.
Tvöfaldur
Begóniu-laukur
nýkominn. — Takmarkaðar birgðir.
RÓSIN
VESTURVERI
Þakka hjartanlega öllum, sem glöddu mig á 60 ára af-
mæli mínu með heimsóknum, gjöfum eða á annan hátt.
Stefán G. Helgason,
Austurgötu 43, Hafnarfirði.
Silfurtunglið
Opið í kvöld til klukkan 11,30
Hin vinsæla hljómsveit R I B A leikur.
Húsið opnað kl. 8 — Ókeypis aðgangur.
Simi: 82611. Silfurtunglið.
Getum útvegað alls konar skemmtikrafta, svo sem
einsöngvara, leikara, gamanvísnasöngvara, Rock ’n‘
Roll dansara o. m. fL
Bra hringja í síma 82611, 82965 og 81457.
Félag suðurnesjamanna
heldiu:
SPIL AKVÖLD
í Breiðfirðingabúð, uppi, föstudaginn 22. þ. m.
klukka 9 síðdegis.
Skemmtinefndin.
Afmœlishátíð
Barðstrendingafélagsins
verður endurtekin 30. þ. m., ef næg þátttaka fæst.
Áskriftarlisti í rakarastofu Eyjólfs Jóhannssonar,
Bankastræti 12.
Stjórnin,
Kvenfélagið
heldur dansleik í Silfurtunglinu föstudaginn 22. marz
klukkan 9.
ROCK ’N‘ ROLL sýning.
Aðgöngumiðar seldir hjá eftirtöldum konum:
*
Frú Valgerði Jónsdóttur, Kambsvegi 6, sími 6016.
Frú Guðnýju Guðmundsdóttur, Miklubraut 66, sími 1190.
Frú Kristínu Sigurðard. Bræðraborgarst. 49, sími 82883.
Frú Inu Jóhannsdóttur, Barmahlíð 15, sími 3153.
Árshátíð Kennaraskólans
hefst í kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu.
Skemmtiatriði:
Frásögn — Söngur.
Leikþættir — Þjóðdansar
Aðgöngumiðar seldir í Sjálfstæðishúsinu frá kl. 5.
Dansað tif kl. 2 e. m.
Skemmtinefndin.
AÐALFUN DUR
Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík
verður haldinn í Fríkirkjunni sunnudaginn 24. mar* n. k.
klukkan 3,30 e. h.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnur mál.
Safnaðarstjórnin.
Maðurinn minn
BJÖRN BENEDIKTSSON
framkvæmdastjóri,
lézt í Landakotsspítala hinn 18. þ. m.
Þórunn Halidórsðóttir.
KRISTVIN KRISTJÁNSSON
andaðist 13. þ. m. — Jarðarförin hefur farið fram.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.