Morgunblaðið - 22.03.1957, Qupperneq 1
44. árgangur
68. tbl. — Föstudagur 22. marz 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mjólkurbú Flóumunnu greiddi ú
sl. úri 2.94 kr. fyrir hvern lítru
AÐALFUNDUR Mjólkurbús Flóamanna var haldinn í gær að Selfossi. Sótti hann mikill fjöldi
bænda aí félagssvæði búsins, sem er Árnes- og Rangárvallasýsla og Vestur-Skaftafellssýsla. —
Formaður stjórnar Mjólkurbúsins Egill Thorarensen setti fund kl. 1 e. h. og nefndi til fundarstjóra
þá Jörund Brynjólfsson bónda í Kaldaðamesi og Þorstein Sigurðsson bónda að Vatnsleysu.
Deila um Queen Mary
setur hörku í verkfall
London, 21. marz.
ALLT útlit er nú fyrir að ein fremsta hafnarborg Englands, Sout-
hampton á suðurströndinni lamist, vegna þess, að hafnarverka-
menn gera samúðarverkfall með verkamönnum í skipaiðnaði. —
Verkfall skipasmiða hefur staðið í sex daga og var það áfall fyrir
ríkisstjórnina, að hafnarverkamenn skuli hafa bætzt í hópinn, því að
þeim mun erfiðara verður að leysa deiluna.
Hið nýja mjólkurbú verður annað
stærsta mjólkurbú á Norðurlöndum
MJÓLKURMAGNHD S.L. ÁR
BÚMLEGA 25 MILLJ. KG.
Egill Thorarensen skýrði svo
Fellst Nosser
d eitirlit S.þ.
með Súez?
SÍÐLA í KVÖLD komu þær
fréttir, að á fundinum með
Hammarskjöld í dag, hefði
Nasser fallizt á nýja skipun
siglinga um Súez-skurð, sem
yrði í því fólgin að Samein-
uðu þjóðirnar hefðu eftirlit
með siglingunum og önnuðust
áfram með Egyptum viðhald
skurðarins.
Hins vegar kvað Nasser
ekki hafa hvikað frá þeirri
kröfu sinni, að öll siglinga-
gjöld um skurðinn skyldu
óskert greiðast Egyptum.
Tyrkir þiggja sátta-
umleifun
PARÍS, 21. marz. —■ Ríkisstjórn
Tyrklands hefur tekið með þökk-
um tilboði Ismays lávarðar, fram-
kvæmdastjóra NATO að hefja
sáttaumleitanir í Kýpur-deilunni.
Brezka stjórnin hefur þegar sam-
þykkt það, en Grikkir hafa hafn-
að sáttastörfum á vegum NATO.
reikninga búsins og las og flutti
skýrslu um framleiðslu þess og
framkvæmdir. Mjólkurmagn á
árinu 1956 var 25.382.207 kg. —
Félagsmönnum var greitt fyrir
mjólk 60.831.852.22 kr. Kostnaður
við bifreiðaakstur búsins var kr.
8.127.298.88. — Laun voru kr.
3.249.069,45. Þetta voru helztu
gjaldaliðirnir.
Hæsti tekjsrliðurinn er seld
mjólk og mjólkurafurðir ásamt
verðuppbótum kr. 87.795.734.54.
Niðurstöðutölur á rekstrarreikn-
ingi fyrir árið 1956 eru 90.631.070,
62 krónur.
Aukning á innveginni mjólk á
árinu var 1.492 þús. eða 6.25%.
Vegabréfin
skoðuð
BÚDAPEST, 21. marz. — Stjórn
Kadars í Úngverjalandi hefur
neitað ásökun bandarísku stjórn-
arinnar um að þeir menn séu
fangelsaðir, sem heimnækja
bandaríska sendiráðið í Búdapest.
Bandaríkjastjórn mótmælti
slíkum aðgerðum nýlega með
orðsendingu. Kvaðst hún hafa
sannanir fyrir því að ungverska
lögreglan ofsækti skipulega þá
menn, sem voguðu sér að heim-
sækja bandaríska sendiráðið. —
Vegabréf þeirra manna væru
skoðuð og skömmu síðar væru
þeir handteknir.
Kadar-stjórnin segir þessa
ásökun uppspuna frá rótum. Lög-
regla hennar geri ekki snnað en
skoða vegabréfin í leit að fasist-
ískum glæpamönnum. — Reuter.
Sölumjólk nam 14.956 kg. Fram-
leiðendur voru alls á félagssvæð-
inu 1107; hafði þeim fækkað um
33. í Árnessýslu voru 589 fram-
leiðendur og hafði þar fækkað
um 26. í Rangárvallasýslu voru
446 og hafði fækkað um 8. í V-
Skaft. voru þeir 72 og hafði
Framh. á bls. 2
DEILAN UM QUEEN MARY
Tilefni þess að hafnarverka-
menn gera samúðarverkfall er,
að farþegaskipið Queen Mary
hafði verið í viðgérð. Þegar verk-
fall skipasmiða hófst ákvað
stjórn skipafélagsins að láta skip-
ið fara af stað til Ameríku. Skipa
smiðir lýstu það ólöglegt, þar
sem viðgerð væri ekki lokið og
skipið því heft af verkfalli þeirra.
Vegna mótmæla skipasmiða
neituðu starfsmenn á dráttarbát-
um hafnarinnar að draga skipið
út úr höfninni. Lánaði brezki
Framh. á bls. 2
Bermuda-ráðstefnan hafin
Fyrst var rœtt um að-
kallandi vandamál við
Súez og samþykkt að
gera olíuleiðslu yfir
Tyrkland
Hamilton á Bermuda, 21. mar. — Frá Reuter.
ÍJÁÐSTEFNA þeirra Eisenhowers og Macmillans hófst
snemma í morgun. Eftir fyrstu fundina eru Bretar bjart-
sýnni en áður um árangur þessarar ráðstefnu. Kveðast þeir
nú hafa komizt að því að Eisenhower muni fyrst og fremst
hafa áhuga á að kynna sér sjónarmið Breta, en ekki að
þröngva aðeins fram einhverjum bandarískum sjónarmiðum.
AÐKALLANDI VANDAMÁL
Fyrsti fundurinn stóð tvær
klukkustundir í morgun. Á hon-
um var rætt almennt um ástand-
ið í alþjóðamálum. Því næst
voru rædd nokkuð aðkallandi
vandamál varðandi nálæg Aust-
urlönd, svo sem framtíð Gaza-
svæðisins og siglingar um Súez-
skurðinn og Akaba-flóann.
Kom eindregið fram sú skoðun
Breta að Gaza-svæðið skuli vera
undir alþjóðlegri stjórn Samein-
uðu þjóðanna. Vel mætti hins
vegar vera, að meiri líkur yrðu
fyrir samkomulagi um Gaza-
svæðið ef Israel heimilaði gæzlu-
sveitum S. Þ. að dveljast einnig
innan landamæra fsraels.
FRAMTÍÐAR-VANDAMÁLIN
Á öðrum fundi síðdegis var
rætt um olíumálin og oliuflutn-
inga, hvernig búa skyldi í hag-
inn í framtíðinni til þess að vera
við því búinn að Súez-skurður
Framh. á bls. 2.
Spáir heimsendi
um helgina
Tl/ÍEXICO CITY: — Á sunnudaginn kvaddi mexikanski spámað-
ÍTI urinn Manuel Ponton blaðamenn á fund sinn í Mexico City.
Bað hann blaðamenn að segja jarðarbúum, að innan sjö daga
mundi lífið á jörðunni tortímast: Heimsendir.
IJrræði Fagerholms:
Þarf mikla dirfsku til að
bera slíkar tillögur fram
Vernleg liiskjaroskerðing iinnsku
þjóðarinnor er nileiðing
gjoldþrotsins
. Helsingfors, 21. marz. Frá NTB.
FAGERHOLM forsætisráðherra lagði í dag fyrir þjóðþingið til-
lögur sínar um efnahagslegar úrbætur. Þessum tillögum er
lýst svo að það sýni hugdirfslcu að þora að leggja þær fram, því
*ð samkvæmt þeim verða bæði kjör bænda og verkamanna skert
nokkuð, sem og líískjör manna almennt. Skattar verða hækkaðir
og innflutningur takmarkaður.
GAMLA KERFIÐ, EN SKERT
í gær voru tillögurnar í heild
sinni lagðar fyrir þingflokka
Bændaflokksins og Jafnaðar-
mannaflokksins. Stóðu fundir i
flokkunum allan daginn og langt
fram á nótt og má segja, að eng-
inn hafi verið ánægður, en menn
töldu þó flestir, að ekki yrði hjá
þessum ráðstöfunum komizt.
Samkvæmt tillögunum á að
halda áfram hinu gamla kerfi
uppbóta á landbúnaðarafurðir
og vísitölu á laun manna, en
núverandi uppbætur verða
skornar verulega niður. Laun
verða greidd samkvæmt vísi-
tölu eins og hún var í árslok
1955, eða 101 stig, en visitalan
er nú 120 stig. Samsvarandi
lækkun verður gerð á uppbót-
um landbúnaðarafurða.
AUKIÐ BRENNI FRAMLEITT
Verðjöfnun verður felld niður
á innfluttum brennsluvörum,
fóðurvörum og tilbúnum áburði.
Innflutningur á brennsluvörum
verður minnkaður um 20% en
samtímis er ætlunin að auka
framleiðslu brennis innanlands.
Verður gefin heimild til að at-
vinnulausir menn skuli vinna við
skógarhögg, til þess að fá atvinnu
leysisstyrk, sem þeir hafa fram
til þessa fengið án þess að vera
skyldaðir til vinnu.
SKATTAHÆKKUN
OG SPARNAÐUR
Skattur á tóbaki verður
hækkaður um 20%, en greiðsl-
ur atvinnurekenda til trygg-
inga hækka úr 1% af launum
í 114%. Ýmsar sparnaðarráð-
stafanir verða gerðar, m.a. að
barnameðlag skuli ekki greitt
út þegar í stað, heldur aðeins
% og skal afgangurinn spar-
aður barninu til góða upp á
seinni tímann. Mörg slík smá-
atriði eru í tillögum Fager-
holms, sem stefna að auknum
sparnaði.
Áður en tillögurnar voru lagð-
ar fram á þingi hafði bæði þing-
flokkur jafnaðarmanna ogBænda
flokksins samþykkt þær.
Kvað hann ástæðurnar vera
þær, að ísinn á heimskautunum
hefði bráðnað það mikið á undan
förnum áratugum, að jörðin
mundi vera í þann veginn að
snúast á ási sínum. Það eina,
sem gæti dregið úr „syndaflóð-
inu“ og gereyðingarafli þess,
væri að biðja.
— Það eina, sem við getum
gert, er að biðja — sagði hann.
Eftir nákvæmlega sjö daga mun
jörðin ganga í bylgjum vegna
hræðilegra jarðskjálfta. Hin
eyðandi öfl munu þá ná yfir-
höndinni. Ef við getum bjargað
einhverju — þá verður því að-
eins bjargað með bænum.
Ponton þessi hefur getið sér
frægðar í heimalandi sínu vegna
spádóma, sem mjög oft hafa
rætzt. Hefur hann oft spóð jarð-
skjólftum, en venjúlega hafa þær
spór aðeins verið bundnar við
heimalandið.
Á blaðamannafundinn kom
spámaðurinn í fjallgöngubúningi,
en ekki vildi hann látu uppi hver
ástæðan væri. Gizkuðu blaða-
mennirnir á, að hann ætlaði að
flýja til fjalla.