Morgunblaðið - 22.03.1957, Síða 6

Morgunblaðið - 22.03.1957, Síða 6
6 MORCUHBLADIÐ Föstudagur 22. marr 1957 IÞROTTIR Framkv.stjórn ÍSÍ tók ekki aistöðu til, kvort bonnu ætti íþróttaviðskipti við Rússn En stjórnin lýsti samúð með Ungverjum ★★★ ÍÞRÓTTASAMBAND fslands hefur haft til meðferðar til- lögu um að banna að nokkru íþróttasamskipti við Rússland og Ungverjaland. Lá sú tillaga Landsgangan og skíðamót Hafnarfj. HAFNARFIRÐI — Núna um helgina, á laugardag og sunnu- dag, heldur Landsgangan áfram við Setberg. Verður gengið báða dagana frá kl. 2—6 og þeim, sem setla að ganga, leiðbeiut á staðn- um. Þátttaka í göngunni hingað tU hefur verið góð, og hafa bæði ungir og gamlir tekiö þátt í henni. Yngstu þátttakendurnir eru tveir þi iggja á -a drengir, Sigurður Kristjánsson (f. 19. 10. ’53), sem á heima við Öldugötu, og Jón Þorleifsson (f. 15. 10. ’53) heima við Selvogsgötu. Sá elzti er 65 ára. Um síðustu helgi fór frarn skíðamót Hafnarfjarðar, og var það háð á sömu slóðum og Lands- gangan fer fram. Vom þátttak- endur margir, svo og úhorfendur. Urslit. í einstökum greinum urðu sem hér segir: Svig: — 1. Kristjan Jónsson; 2. Garðar Jónasson; 3. Gunnlaug- ur Þorfinnsson. — Svig (dreng- ir): — 1. Ásgeir Christiansen; 2. Sig. I. Kristjánsson; 3. Böðvar Hermannsson. — Stökk (20—32 ára): Kristján Jónsson 145,2 stig; 2. Kristmundur Magnússon 124,8. — Drengjaflokkur: 1. Ásgeir Christiansen 132,8 stig. — Ganga (20—32 ára, — um 5,5—6 km): 1. Sveinn Kristjánsson 21,30 mín. — 17—19 ára: 1. Kristmundur Magnússon 30,51 mín. — Drengja flokkur (um 4 km): 1. Aðalsteinn Einarsson 28,02 mín.; 2. Árni Guðbjartsson 28,37; 3. Gunnar Ingi 29,12. Skíða- og skautafélag Hafnar- fjarðar sá um keppnina. Félagið hefur nú um nokkur ár átt skíða- skála á Hellisheiði, og hefur yfir- leitt verið íarið í hann um hverja helgi í vetur. Formaður íélagsins er Ólafur Pálsson. — G. E. fyrir þegar beiðni barst frá Val um fararleyfi til Rúss- lands, en þangað hefur knatt- spyrnuflokki félagsins verið boðið í haust, eins og skýrt hefur verið frá. ★★★ Tillögunni um bannið var vís- að frá á þeim forsendum, að hér væri um stefnumál að ræða, sem framkvæmdastjórn- in ein gæti ekki tekið afstöðu til, með eða á móti. — Innan íþróttaforystunnar eru tvö æðri stjórnarstig til en fram- kvæmdastjórn ÍSÍ, þ. e. sam- bandsráð og íþróttaþing. ★★★ í frávísunartillögunni var hins vegar lýst samúð íslenzku í- þróttahreyfingarinnar með ungversku þjóðinni vegna of- beldisverka þeirra sem framin hafa verið í Ungverjalandi. ★ ★★ Þegar málið hafði fengið þessa afgreiðslu var samþykkt far- arleyfi Valsmanna til Rúss- lands, en boðið hljóðar upp á heimsókn um mánaðamótin september/október. Edda Ólafsdóttir Biering Minnirigarorð Fædd 2. maí 1930 Dáin 8. febr. 1957 — Og blómstrið það á f:f: þrótt að veita vor og yndi um vetrarmiðja nótt. M. Jochumson. Síminn hringir — tækni nú- tímans er að verki. — Fréttin he'fur borizt yfir hafið, frá einni heimsálfunni til annarrar. En ég trúi ekki því, sem ég heyri. — Ég heyri sjálfa mig neita — það getur ekki verið rétt — nei — ekki hún!! Það er eins og tíminn nemi staðar, eins og öll veröldin mót- mæli með mér. Hún, sem var svo hlaðin lífs- orku, lífsgleði, starfselsku og þrótti. Hún, sem átti framtíðina svo fagra og bjarta fyrir sér. Hún, sem var í blóma lífsins, aðeins að byrja, en þó búin með svo margt — var horfin. En hvað þýðir að mótmæla, lífið sýnir enga miskunn, það þýtur áfram og spyr ekki að þeim, sem nú líða. Líf kviknar og líf slokknar stöðugt. Stöðugt eru það einhverj Búnaðarráðunautur ráðinn í Dalasýslu BÚÐARDAL, 19. marz. — í gær kom hingað búnaðarráðunautur sem ráðinn hefur verið til bún- aðarsambands Dalasýslu en það hefur ekki haft slíkan ráðunaut fyrr. Er þetta Bjarni Arason, sem áður hefur verið ráðunautur í Eyjafirði. — Elías. ir, sem gleðjast, en það er eins og að á altari þeirrar gleði sé hinum fórnað, sem á sömu stundu hafa um hjartasár að binda. Þannig er lífið óstöðvandi og óútreiknanlegt. Edda, á þessari skilnaðar- stundu, koma minningarnar frá liðnu árunum kraftmeiri, en nokkru sinni fyrr.- Ljúfar minn- ingar frá ógleymanlegum ánægju stundum, minningar, sem aldrei munu mást. Stundir úr góðum vinahóp, stundir frá kyrrlátum vetrar- kvöldum með íslenzkan vetur æðandi fyrir utan litlu gluggana, en inni svo hlýtt og gott. Stundir frá fannhvítum fjöll- um og heiðum klæddar í töfra ljóma og silfurskrúð lífsvekj- andi vorsólar, lausar við ys og þys þessarar ofboðslegu hraða aldar — fylltar gleði hins frjálsa heilnæma lífs, fylltar hreysti og framtíðardraumum, þar sem tími og rúm vart komust að. Og ég minnist stunda svo langt frá þér í fjarlægum löndum en þó svo nálægt. — Bréfin þín löngu og góðu, sem drógu mann sbrifar ur daglega lífinu FYRIR fáeinum dögum kom afi einn að máli við mig og hafði raunasögu að rekja að hans dómi. Kom grátandi heim. ÞANNIG var mál með vexti, að barnabarn hans er lítil og gæf stúlka um 10 ára að aldri. Hún fór eins og fleiri góð börn til merkjasölu fyrir Ruða kross- inn á öskudaginn-og vildi á sinn hátt styðja gott málefni með því að leggja fram starfskrafta sína. Og ekki spillti það heldur að nokkrum launum var heitið, bíó- ferð sem umbun fyrir söluna. Litla stúlkan seldi merkin sín allan daginn og fór svo í bíóið. Og þá er komið að kjarna sög- unnar. Því að heim kom hún af jÞ námskeið “ í GLUGGASÝNINGUM Fimmtudaginn 28. þ.m. hefst þriggja vikna námskeið í skreytingum verzlanaglugga, og verður það bæði bók- legt og verklegt. Kennari verður norski kunnáttumaðurinn Per Skjönberg. Nánari upplýsingar hjá Guðmundi H. Garðarssyni, Iðn- aðarmálastofnuninni, Sigurði Magnússyni, Loftleiðum og Þorvarði J. Júlíussyni, Verzlunarráðinu. Þátttaka tilkynnist eigi síðar en 26. þ.m. SÖLLTÆKMI bíóinu hágrátandi og skelkuð og það var bíómyndin, sem þessi áhrif hafði haft. Lengi vel gátu foreldrar hennar og afi litlar upplýsingar fengið um hverjir þeir atburðir hefðu verið, sem hrætt hefðu litlu stúlkuna svo mjög, en um síðir skýrði hún kjökrandi frá því. Þar höfðu ver- ið manndráp sagði hún, mörg, menn skornir á háls og blóð hafði runnið dreyrrautt og í stríðum straumum. Þetta hafði fengið svo mjög á litlu hnátuna að hún fór grátandi heim enda allsendis ó- vön slíkum lystilegum gleðskap eins og þarna var boðinn henni og nokkur hundruð öðrum börn- um. Blóð á ekki við börn. AFANUM, sem við mig spjall- aði, þótti hér heldur langt gengið, og bað mig að koma því á framfæri við þá góðu merkis- stofnun sem Rauði krossinn er, að þegar hann stefnir heilum skara barna til sýningar í bíó að launum fyrir vel unnið dags- verk þá láti hann ekki sýna þeim blóðugar morðmyndir heldur eitt hvað, sem betur er við hæfi barna. Vafalaust hefir hér að- eins verið um gáleysi hjá yfir- mönnum stofnunarinnar að ræða en koma þarf í veg fyrir að það endurtaki sig næsta ár. Læstar dyr á öskudaginn. DÁLKUNUM hefir borizt bréf frá reiðum Akurnesing. Og satt að segja get ég vel skilið reiði hans. Svo er mál með vexti, að hann og kona hans tóku sig upp fyrir nokkru klæddust sín- um sparifötum og tóku sér ferð á hendur í höfuðstaðinn. Mark- mið ferðarinnar var að fara á kvöldvöku Stúdentafél. Reykja- víkur sem auglýst hafði verið þá um kvöldið. (Þetta var á ösku daginn). Þau komu á staðinn rétt fyrir níu og drápu þar á dyr. Enginn svaraði og dyrnar voru harð- læstar. Þau hjón gerðu nú ráð fyrir að hið „akademiska kortér" gilti þarna og gengu burtu, en komu örlitlu seinna aftur að dyrunum. En þá sat allt við það sama, enginn svaraði og hópur manna, sem þarna var kominn sömu erinda stóð ráðalaus við dyrnar. Af hendingu gengu nokkrir menn framhjá, sem sögðu frá því að skemmtuninni hefði verið aflýst og auglýsing þess efnis lesin í hádegisútvarp- inu. En nú vil ég spyrja þá heið- ursmenn, segir Akurnesingur. Var til of mikils ætlazt að ein- hver fulltrúi félagsins stæði við dyrnar klukkutíma eða svo til að gefa fólki upplýsingar eða að minnsta kosti skrifa skilaboð um aflýsinguna og festa hana á hurð ina. Við sem úti stóðum heyrð- um símann hringja í sífellu svo ekki hefði veitt af því að ein- hver maður hefði verið viðstadd- ur til þess að svara þeim sem hringdu. Víti sem ber að varast. ¥~AÐ er heldur mikið hugsun- arleysi hjá þeim, sem fyrir slíkum skemmtunum standa, að hafa ekki fyrir því að afboða þær rækilega, ef á annað borð þarf að fresta þeim, og óþægilegt er það fyrir fólk eins og okkur, sem hefir tekið sig upp úi* öðrum byggðarlögum til þess að fara á skemmtunina. Þetta mæli ég hér vegna þess að ég veit fleiri dæmi um svona háttalag, og vil ég vekja athygli á því svo öðr- um verði það til varnaðar í framtíðinni. með sér með frásagnargleði sinni yfir höf og heiðar á þann stað og til þeirrar stundar sem þú sagðir frá. Og nú síðast svo.full af gleði og von um að koma heim bráð- um. Varla nokkuð annað komst að í huga þér, en gleðin yfir því að fá aftur að sjá ástvini þína hér heima og landið, sem þú elsk aðir öllum löndum fremur. Nú vitum við, að sú stund rennur aldrei upp í þessu lífi, en vonm um að við öll eigum eftir að mætast í heiminum hand an við gröf og dauða, þar sem þekkist ekki kvöl né sorg, gefur okkur styrk í dag. í hugum vina þinna hér er stórt skarð höggvið. Við söknum þín, en um leið gleðjumst við yf- ir og þökkum fyrir, að við feng- um að kynnast þér, það gerði okkur lífið ríkara og betra. Allir þeir mörgu, sem nutu þinnar hjúkrandi kærleikshand- ar heima og að heiman þakka þér klökkum huga fyrir stund- irnar mörgu, sem þú fylltir yl og birtu og það hversu oft þú gerð- ir sorgirnar og erfiðleikana létt- bæra. Já, við erum svo mörg, sem i dag kveðjum góðan vin og félaga, og eftir situr opið svíðandi sár — en sárast verður þó fyrir hann, sem þú áttir að lífsförunaut, hann, sem þú elskaðir og virtir meira en orð geta lýst, að sætta sig við að þú, sem varst hluti af honum sjálfum sért nú horfin á braut. Gunnar, af hjarta samhryggist ég þér. Ó, að þú á þessari stundu gætir séð ljósu deplana, sem reyna að gæjast fram og ýta myrkrinu í burtu. Hvað ég óska þér þess, að þú hleypir þeim að, leyfir græðandi smyrslum að komast að og mýkja sárin. Sjáðu litlu yndislegu stúlkuna ykkar. Sólargeislann, sem kom inn í líf ykkar og gerði tilveruna fegurri en nokkru sinni áður. Hún er minnismerki um ham- ingju, sem var — nokkuð, sem svo margir fara á mis við allt sitt líf, svo að þrátt fyrir allt ert þú ríkur í allri þinni sorg- legu fátækt á þessari stundu. í huga þér áttu heilagar minn- ingar, minningar, sem eru þín einkaeign, sem ekkert getur tekið frá þér. Guð sem er kærleikur og hryggist með þér nú, gefi þér styrk og trú þegar hjarta sorgin særir, sólarljósið byrgja ský. Drottins náð, mér djörfung færir, dagur rennur upp á ný. — P.S. Foreldrar, þið, sem hafið alið hana upp, séð hana vaxa að vizku og dáð, séð hana verða að fullþroska konu, með alla þá góðu eiginleika, sem prýða mega góða dóttur, eiginkonu og móður, þið hafið misst mikið. — Sorg ykkar, svo djúp og hrein getur fengið steinhjarta til að finna til. En þrátt fyrir þunga sorg þá standið þið samt sterk í veik- • leika ykkar, hvort við annars hlið. — Það er margt verra, en að sjá á eftir barninu sínu í gröfina. Við höfum átt hana. Hún var gott barn frá upphafi, sól- arljós á vegi okkar, okkur til sóma og gleði, hvert sem hútr fór og hvar sem hún var. Okk- ur hlýðin og góð dóttir. Hversu satt og hversu aðdáun- arvert að geta á sorgarinnar stund huggað sjálfa sig á þenn- an hátt. Ég dáist að ykkur og þakka fyrir að ég fékk að kynnast ykk- ur, góðum og sönnum manneskj- um. Guð styrki ykkur nú <*g ávallt. „Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa". öllum, sem í dag hafa um sárt að binda, sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Edda, með klökkum huga kveð ég þig og þakka fyrir allt .... Blessuð sé minning þín. H. Jensdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.