Morgunblaðið - 24.03.1957, Side 1
16 siður og Lesbók
44. árgangur
70. tbl. — Sunnudagur 24. marz 1957.
Prentsmiðja MorgunblaSsinc
Bermisda-ráðstefnunni lokið :
Framleiðsla kjarnorkuvopna og fjar-
stýrðra flugskeyta loka dagskráratriði
Bermuda, 23. marz.
IDAG er síðasti dagur Bermuda-ráðstefnunnar. Þeir Eisenhower
og Macmillan ræddu í dag um landavarnarmál — og ætlað
er, að umræður hafi að miklu leyti snúizt um framleiðslu kjarn-
orkuvopna og fjarstýrðra flugskeyta.
o O o
Fréttamenn eru þeirrar skoð-
unar, að sameiginlegrar yfirlýs-
ingar þeirra Eisenhowers og
Macmillans um árangur fundar-
ins sé ekki að vænta fyrr en í
Hafsteinn Austmann
Í»ESSA viku verða verk eftir einn
»f yngstu listmálurum okkar til
Sýnis á vegum Eistkynningar
Morgunblaðsins. Er það Hafsteinn
Austmann, sem er Austfirðingur
að ætt, fæddur að Ljótsstoðum
í Vopnafirði árið 1934. Er hann
því aðeins 23 ára að aldri.
Hafsteinn Austmann hóf list-
nám hér heima og lauk prófi við
Handíða- og myndlistarskólann.
Hann stundaði síðan listnám í
Farís í um það bil eitt ár.
Hann tók fyrst þátt í samsýn-
ingu hér í Reykjavík árið 1953.
Vöktu verk hans þá þegar at-
hygli. Síðan tók hann þátt í sýn-
ingu í „Salon de realité Novelle“
í París.
Þá var hann með í sýningu
Félags íslenzkra myndlistar-
manna hér heima haustið 1955.
Sumarið 1956 hélt hann einnig
sjálfstæða sýningu á verkum sín-
um hér í Reykjavík.
Hafsteinn Austmann málaði
„figurativt“ í upphafi listamanns
ferils sins en upp á síðkastið
fylgir hann algerlega „abstrakt-
stefnu“ í list sinni.
Hann sýnir nú sex listaverk i
sýningarglugga Morgunblaðsins.
Er það ein lágmynd úr tré og 5
©líumálverk. Allar myndirnar
nema ein eru til sölu hjá lista-
manninum eða Morgunblaðinu.
Enn vart jarðskjálfta
í San Francisco
San Francisco, 23. marz.
BRÁÐABIRGÐAVH>GERI) á því, er aflaga fór í gær í jarð-
skjálftanum í San Francisco var rétt hafin í dag, er annar
jarðskjálfti raskaði ró borgarbúa. Mikill ótti greip um sig meðal
fólksins og þustu þúsundir manna út á götur af ótta við að hús
hryndu. Ekkert meiri háttar tjón varð þó í dag, því að jarðskjálfti
þessi var ekki eins snarpur og sá í gær.
Tíðirtdalítill
fundur
KAIRO, 23. marz — Ilammar-
skjöld og Nasser ræddust við
í dag í opinberri móttökuhöll
egypzku stjórnarinnar skammt
fyrir utan höfuðborgina. Að
fundinum loknum hélt Hamm-
arskjöld til Kairo. Ekki lét
hann neitt uppi við frétta-
menn — og ekki mun heldur
vera ákveðinn annar fundur
þeirra Nassers. Hins vegar er
líklegt, að Hammarskjöld ræði
við Fawsi, egypzka utanríkis-
ráðherrann, á morgun. Einnig
mun Hammarskjöld eiga fund
með aðstoðarmönnum sínum
á morgun — og er Burns her-
foringi kominn til borgarinn-
ar til viðræðna við hann.
í jarðslcjálftanum í gær urðu
allmiklar skemmdir um gervalla
borgina. Ekki er vitað til þess,
að neinn hafi beðið bana, en um
30 manns munu hafa særzt. Stór-
byggingar léku á reioiskjálfi og
stór hengibrú yfir „The Golden
Gate“ skalf eins og hrísla í vindi.
Á eftir jarðskjálftanum fylgdu
miklar drunur, sem líktust
sprengingum.
Ekki hefur orðið vart við jafn
snarpan jarðskjálfta í San Franc-
isco í 30 ár, en fyrir rúmum 50
árum, eða árið 1906, nær evddist
borgin í jarðskjálftum.
Seinni fréttir herma, að 100
þús. börn hafi verið flutt frá
Allir greiddu
siglingugjöldin
KAIRO, 23. marz. — Tilkynnt
var í Kairo í dag, að Súez-skurð-
urinn væri nú fær skipum allt
að 2.500 léstir að stærð. í dag
sigldu um skurðinn mörg skip,
bæði á norður og suðurleið. Hin
egypzka stjórn skurðarins hefur
lýst því yfir, að siglingagjöld
hafi verið greidd fyrirfram fyrir
öll þau skip, sem farið hafa um
skurðinn frá því að hann opnað-
ist á ný. Þá tilkynntu Egyptar og,
að siglingaþjóðunum yrði gert
aðvart um opnun skurðarins —
15 dögum áður en hann yrði opn
aður að fullu. Björgunarlið S. Þ.
vinnur nú af öllu káppi að því
að fjarlægja tvö síðustu flökin úr
skurðinum. — Reuter.
MADRID, 23. marz. — Fjórir létu
lífið og tuttugu slösuðust í dag,
er langferðabifreið rann út af
þjóðveginum milli Malaca og Al-
meria. — Reuter.
skólum sínum í dag. er jarð
skjálftans varð vart.
nótt eða í fyrramálið. Eisen-
hower mun stíga á skipsfjöl strax
að fundinum loknum — og ætl-
að er, að hann haldi heimleiðis
með morgunsárinu.
Ákvörðun Bandaríkjamanna
um að gerast aðili að hermála-
nefnd Bagdad-bandalagsins hefur
verið vel tekið í bandalagslönd-
unum. Talsmenn stjórna Tyrk-
lands, fraks og Pakistans hafa
látið þá skoðun í ljós, að þátt-
taka Bandaríkjamanna muni
styrkja bandalagið til muna.
Talsmaður íraksstjórnar
bætti því við, að þetta bæri
vott um raunsæjan vilja
Bandaríkjamanna til þess að
verja Mið-Asíu gegn ágangi
kommúnismans.
o—O—o
Stjórnir Pakistan og íraks
hafa og látið í ljós þá ósk sína,
að Bandarikjamenn yrðu inn-
an skamms fullgildir meðlim-
ir Bagdad-bandalagsins. —
Engin olía um Súez
eflir 5-8 ár!
Af olíuflutningaskipum
þeim, sem nú eru í smíðum,
munu 292 verða 40 þús. lestir
eða meira — og þar af leið-
andi of stór til þess að sigla
um Súez-skurðinn. 39 þessara
skipa verða 60—100 þús. lest-
ir að stærð, en 24 verða yfir
100 þús. lestir. f Bandaríkjnm-
um er það álit manna, sem
starfa að olíumálum, að
Evrópa þurfi ekki lengur að
nota Súcz-skurðinu eftir 5—
8 ár. hvað olílflutningunr
frá Asíu viðkemur.
7000 km hraði á klst.
Þess mun verða skammt að
bíða, að Bandaríkjaher taki 1
notkun nýja gerð þota, sem á »ð
taka við af X-2, þeirri hraðfleyg
ustu, sem til er.
Þessi nýja flugvél er af gerð-
inni X-15 og á að fljúga hvorkl
meira né minna en 7.000 mílur á
klst. Er henni sérstaklega ætlað
að rannsaka nánar lögmál þau,
sem háloftsflugvélar eiga í höggi
við, er þær koma aftur inn í loft-
hjúp jarðar.
EK SA HLLTLAIJS, SEM HORFIR AÐ
GERÐARLAIJS Á, AÐ MAÐUR
ER MYRTUR ?
Nýtt félag, FRJÁLS MENNING, stofnab
til verndar frjálsri hugsun og lýðræði
Danski rithöfundurinn Hans Jörgen Lembourn flutti
fróðlegt erindi á stofnfundinum
Camalt olíuskip lengt
Á dögunum lauk Betlihem-stál-
fyrirtækið í Baltimore við að
lengja 20,000 lesta skip á þennan
hátt. Var 48 feta miðhluta bætt
inn í skipið — og jók hann burð-
arþol þess um sem svarar 30,000
olíufötum. — Kostnaðurinn við
breytinguna varð aðeins 3 millj.
dollara, en að áliti eigendanna,
mun skipið hins vegar uppfylla
kröfur næstu áratuga og verða
samkeppnisfært mun lengur en
ella.
ÁKVEÐIÐ var í gær að stofna
hér á landi félag, sem nefnist
Frjáls menning. Nokkrir menn
komu saman til undirbúnings-
fundar í Tjarnarcafé og var þar
gengið frá stofnun félagsins, en
ákveðið að halda framhaldsaðal-
fund að mánuði liðnum. Á fund-
inum í gær mætti m.a. danski
rithöfundurinn Hans Jörgen Lem
bourn og ræddi hann um hlut-
verk slíkra félaga sem Frjálsrar
menningar, en hið nýstofnaða fé-
lag á hliðstöðu með þeim menn-
ingarsamtökum, sem nefnast á
frönsku Congrés pour la Liberté
de la Culture og starfa víðsvegar
í lýðræðislöndum. — Hin ýmsu
félög eru algjörlega óháð hvert
öðru, en hafa allnáið samstarf m.
a. um alþjóðlegar ráðstefnur, þar
sem frjálshuga menningarfröm-
uðir kynna sjónarmið sín, skipt-
ast á skoðunum og benda á úr-
ræði, eins og komizt er að orði
í boðsbréfi u mstofnun félagsins,
undirrituðu af Gunnari Gunnars-
syni skáldi. Þá gefa þau einnig
út hin ágætustu menningarrit,
t.d. Encounter í Englandi, Preu-
ves í Frakklandi, Der Monat í
Þýzkalandi og Perspektiv í Dan-
mörku. — í boðsbréfinu seg-
ir ennfremur: „Víða í lýðfrjáls-
um löndum hafa á síðustu árum
starfað félög með það megin-
markmið að varðveita og efla
frjálsa menningu og vinna gegn
einræði, ofbeldi og skoðanakúg-
un. Hafa þau þegar látið margt
gott af sér leiða, sameinað lýð-
ræðissinnaða mennta- og lista-
menn og unnið öðrum betur gegn
þeim öflum, er mest ógna skoð-
anafrelsi og frjálsri menningu
yfirleitt".
RÆÐA GUNNARS
GUNNARSSONAR
Gunnar Gunnarsson skáld setti
fundinn með stuttri ræðu, sem
hér fer á eftir:
Góðir fundargestir.
í NAFNI nefndar þeirrar, sem
með mæta menn að bakhjalíi hef-
ur undirbúið stofnun félagsins
Frjáls menning er mér ánægja
að bjóða yður öll hjartanlega vel-
komin og þakka yður fyrir að
þér hafið þekkzt boðið. í nefnd-
inni eiga sæti rektor Háskóla ís-
lands, dr. Þorkell Jóhannesson
próf., Tómas skáld Guðmundsson,
Einar Magnússon menntaskóla-
kennari, Þórir Kr. Þórðarson
dósent, ungir rithöfundar tveir,
sem nýverið sátu þing sænsku
samtakanna í Stokkhólmi og
kynntust þar öðrum ungum mönn
um ýmsra landa, sem óhó.ð menn-
ingarstarfsemi er áhugaefni, þeir
Kristján Karlsson, mag. og Eirík-
ur Hreinn Finnbogason, mag., og
maður sá, sem hiti og þungi dags-
ins hefur hvílt á öðrum fremur,
Eyjólfur Konrán Jónsson lögfr.
H. J. Len boum
Sérstök þökk ber erlendum
gesti vorum og áhugasömum að-
stoðarmanni, danska skáldinu
Hans Jörgen Lembourn, sem
stendur framarlega í dönsku sam
tökunum og menningarrökræðum
yfirleitt. Utan Danmerkur mun
hann sérstaklega að góðu kunn-
ur fyrir bókina De Intellektuelles
Forræderi, sem á íslenzku
mætti kalla Svik gáfnaljósanna.
Herra Lemboum hefur gert okk-
ur þann greiða að koma hér við
á leið til Ameríku og kynna
okkur af eigin reynd starfsemi og
árangur hliðstæðra samtaka á
Norðurlöndum og víðar. Er hann
okkur mikill aufúsugestur.
Framh. á bls. 2.