Morgunblaðið - 24.03.1957, Page 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 24. marz 1957
s
GULA
II herhetgið
eftii MARY ROBERTS RINEHART
Daglega
eitthvað nýtt
¥
/ fyrramálið:
Barnagallar
Allt á barnið
Framlialdssagan 83
heyrðist úti í ganginum og Harri-
son læknir kom inn. Hann var al-
varlegur og stúrinn á svip, er
hann leit á Carol.
— Ég er hræddur um, að ég
hafi sorgarfregn að færa þér,
góða mín.
Hún spratt upp úr sætinu. —
Ekki þó Greg?
— Nei. Kichardson ofursti dó
við skrifborð sitt, fyrir klukku-
stund. Leið út af, þjáningalaust.
Hann var að skrifa bréf og ....
já .... það er skiljanlegt. Hann
var búinn að taka sorgarfregnum
eins og karlmanni, í tvö ár. En
gleðif regn....
Dane dró andann djúpt, en augu
Carol fylltust tárum. — Hann var
einhver bezti maður, sem ég hef
þekkt, sagði hún lágt. — Ég ætti
að fara þangað. Hann var þarna
aleinn með þjóninum sínum.
Kannske gæti ég gert eitthvað.
Dane náði í Alex í símanum,
jafnskjótt sem Carol var farin út
úr dyrunum. Hann gaf honum ein-
hverjar stuttorðar skipanir og
lagði svo símann. Hugur hans var
þegar fullur af hugsuninni um að
fá kæruna á Greg tekna aftur
sem fyrst. Þegar Alex hringdi aft
ur, sagði hann ekki annað en „Allt
í lagi“ og Dane varð við, rétt eins
og hræðilegri byrði hefði verið létt
af herðum hans.
Stundu síðar sat Floyd andsþæn
ÚTVARPIÐ
Sunnudagur 24. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Hallgrímskirkju
(Prestur: séra Jakob Jónsson. —
Organleikari: Páll Halldórsson).
13,15 Erindi: Siðgæðið í deigl-
unni; 1: Um heimilislíf og trúar-
brögð (Séra Jóhann Hannesson
þjóðgarðsvörður). 15,00 Miðdegis
tónleikar (plötur). 17,30 Barna-
tími (Helga og Hulda Valtýsdæt-
ur). 18,30 Tónleikar: Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leikur; Albert
Klahn stjórnar. 20,20 Um helgina.
Umsjónarmenn: Björn Th. Björns
son og Gestur Þorgrímsson. 21,20
Irsk þjóðlög og önnur þjóðleg tón-
list frá Irlandi. — Sveinbjöm
Jónsson leiklistarráðunautur flyt-
ur inngangserindi eftir Gearóid
MacEoin. 22,05 Danslög: Ólafur
Stephensen kynnir plöturnar. —
23,30 Dagskrárlok.
Mánudagur 25. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Bændavika Búnaðarfélags
Islands hefst: a) Ávarp (Steingr.
Steinþórsson búnaðarmálastjóri).
b)Eyðing illgresis (Agnar Guðna-
son ráðunautur). c) Nautgripa-
rækt (Ólafur E. Stefánsson ráðu-
nautur). d) Vélarnar (Haraldur
Árnason verkfæraráðunautur). —
18,00 Forr.3Ögulestur fyrir börn
(Helgi Hjörvar). 18,30 Skákþátt-
ur (Baldur Möller). 19,10 Þing-
fréttir. — Lög úr kvikmyndum.
20,30 Útvarpshljómsveitin; Þór-
arinn Guömundsson stjórnar. —
20,50 Um daginn og veginn
(Andrés Kristjánsson blaðam.).
21,10 Einsöngur: Britta Gíslason
syngur; Fritz Weisshappel leikur
undir á píanó. 21,30 Útvarpssag-
an: „Synir trúboðanna" eftir
Pearl S. Buck; VIII. (Séra Sveinn
Víkingur). 22,10 Passíusálmur
(31). 22,20 lþróttir (Sigurður
Sigurðsson). 22,35 Kammertónleik
ar. (Hljóðritað á tónleikum í Aust
urbæjarbíói 15. jan. ».l.). 23,10
Dagskrárlok.
is honum, og var fúll á svipinn.
— Jæja, svo að þér eruð búinn
að gera mig að asna, sagði hann.
— Hvernig í fjandanum vissuð
þér þetta?
— Ég vissi ekki neitt, en ein-
beitti mér aðeins að Terry Ward
um skeið. Það hlaut að vera ein-
hver óþekktur aðili í málinu:
Hver hafðist við í Grenihlíð?
Hver komst inn til Lucy Norton
og hræddi hana svo, að það varð
henni að bana? Hver rakst á
Elinor Hilliard um nóttina og
skaut á hana, til þess að verða
ekki þekktur aftur? Frá Washing
ton komu þær upplýsingar, að
Terry væri enn fyrir vestan og
hefði ekki þaðan farið.
— Kannske hef ég verið farinn
að trúa á kraftaverk sjálfur! En
ég var þarna kominn í mát. Was-
hington hafði engar fregnir af
því, að Don væri á lífi, og fyrir
vestan var engar upplýsingar að
hafa. Og samt voru Wardhjónin
að halda verndarhendi yfir ein-
hverjum. Og það var ekki Terry,
sem hafði alls ekki komið austur.
En þau höfðu verið í þessu frá
upphafi. Þau....
— Ætlið þér að segja mér, að"
Nat gamli Ward hafi falið fötin?
— Bezt að spyrja hann sjálf-
an, svaraði Dane, undirfurðulega.
— Gott og vel. En hvernig ætl-
ið þér að sanna, að Don Richard-
son sé sekur?
Dane hallaði sér aftur í stóln-
um. — Ég hef aldrei sagt, að
hann hafi myrt stúlkuna.
Floyd eldroðnaði í framan.
— Hættið þér nú þessum skrípa
leik, æpti hann. Fyrst fremur Don
morðið. Og segist hafa gert það.
Svo hefur hann ekki gert það.
Hver fjandinn gerði það þá, má
ég spyrja?
— Ofurstinn, svaraði Dane. —
Ofurstinn gerði það og án þess
að vita af því.
Floyd varð alveg orðlaus, og
Dane hélt áfram.
— Athugið þér sjálfur. Þarna
var alltaf eitthvert X — einhver
óþekktur aðili — með í leik. Og sá
hinn sami hagaði sér ekki eins og
sekur maður. Hann dokaði við á
staðnum, eftir að morðið hafði ver
ið framið. Hann beið eftir réttar-
haldinu. Hann reyndi að tala við
Lucy Norton, til þess að fá að
vita hvað hún vissi, en hefði ekki
látið uppskátt. Hefði ekki sekur
maður forðað sér í mesta snatri?
.— Sniðugt hjá yður, er það
ekki? sagði Floyd. — Þér hafið
víst fengið mest af þessum fróð-
leik hjá Ward gamla í morgun.
— Gott og vel, svaraði Dane. —
Ég átti um tvo að velja, til að
geta upp á, sem sé Don eða ofurst
ann. En ef það væri Don, var þó
allt með felldu. Hvers vegna hitti
hann ekki föður sinn? Hann hefði
lagt lífið í sölurnar til þess að
forða syni sínum. 1 stað þess lét
Don sér nægja að horfa á hann að
skilnaði inn um gluggann. En
ofurstanum varð hverft við þessa
heimsókn og elti hann. Ég efast
um, að hann hafi vitað, að þarna
var sonur hans kominn. Bezt gæti
ég trúað, að hann hafi haldið
manninn vera Terry Ward.
Floyd dró upp vasaklútinn og
þurrkaði sér í framan. Hann var
allur í einu svitakófi.
— Haldið þér áfram með þessa
hugsmíði yðar, Dane! Svo að
ofurstinn drap stúlkuna og fór
svo heim að hátta í mestu róleg-
heitum? Haldið þér áfram! Ég
þoli sitt af hverju!
— Reynið þér heldur að hugsa
málið ofurlítið sjálfur, sagði Dane
í fortölutón. — Ofurstinn hafði
borgað fyrir uppihald sonarsonar
síns, allt frá því, að hann fæddist.
Hann hafði farið vestur að hitta
Marguerite — ef það hefur þá
verið nafn hennar, því að mig grun
ar, að hún hafi heitið Margaret
— og hann þekkti hana. Hugsið
þér yður, hvernig honum muni
hafa orðið við, að sjá hana, morg-
uninn sem hún kom, á leið til
Crestview. Hann var alltaf
snemma á fótum og sagan getur
því aðeins staðizt, að hann hafi
séð hana. Kannske hefur hún líka
séð hann.
— Að minnsta kosti fór hann
að heimsækja hana um kvöldið, eft
ir að Lucy var háttuð. Hún gat
ekki boðið honum inn, en fór í
innislopp og gekk til dyra til þess
að tala við hann. Sennilega hefur
hún sagt honum, að hún væri gift
Greg, og boðið honum mútur. Ef
hann vildi þegja um barn Dons,
skyldi hann ekki þurfa að greiða
neina þagnarpeninga lengur, eða
eitthvað þess háttar.
— Ofurstinn hlýtur að hafa orð
ofsareiðuv. — Hér kom
þessi flækingsstelpa og bauð hon-
um fyrst og fremst mútur og bætti
því við, að hún væri gift Greg og
hefði aldrei verið annað en frilla
Dons. Ekki svo að skilja, að hann
hafi hugsað málið til enda, held-
ur hefur hann blátt áfram sleppt
sér og ráðizt á hana. Vitanlega
vissi hann ekki, að hann hafði
drepið hana. Síðan hefur hann
strax farið leiðar sinnar og allt
þangað til líkið fannst í skápnum,
hefur hann haldið, að hún væri
blátt áfram farin. Ég sá hann
einu sinni sjálfur vera að hring-
sóla kringum húsið, til þess að gá
að, hvort hún myndi vera þar
enn.
— En það næsta, sem hann
frétti, var að hún hefði verið myrt
og fundizt í skápnum.
— Ekki hafði hann komið henni
þar fyrir, og að því er hann frek-
ast vissi, hafði hann alls ekki
drepið hana. Ég held, að honum
hafi fyrst og fremst létt. Hann
Nýkomið
Sérstaklega fallegar úti-
og gangalugtir.
Bæði í loft og á vegg.
Enn fremur mikið úrval
af borðlömpum, vegg-
lömpum og standlömp-
um.
Vesturg. 2 — Laugav. 63
Sími 80946.
Nýkomið
Franskar POPLINKÁPUR
tvöfaldar, nýjasta tízka,
margir litir.
Alullar KÁPUEFNI
mikið úrval.
★
Sendum í póstkröfu.
Vefnaðarvoruverzlutiln
TÝSGÖTU — SÍMI 2335.
Húseign í Sandgerði
til sölu.
Íbúðarhúsið F R Ó N í Sandgerði er til sölu. Húsið er
ein hæð, 5 herbergi, eldhús, snyrtiherbergi og gangar.
í kjallara er, þvottahús, geymsla og miðstöð.
í húsinu eru öll þægindi.
íbúðin er í mjög góðu standi, sólrík og skemmtileg.
Upplýsingar um verð og greiðsluskilmála gefur
ÓLAFUR VILIIJÁLMSSON,
.. ,. Sími 40 — Sandgerði.
1) Bakpoki Láka hefur falliðldýr aðvífandi. Það ar hinn iU-1 2) Jarfinn sér pokana. I 3) Og rseðet á hana.
á jörðina. Þá kemur smávaxið I skeytti jarfi. I |