Morgunblaðið - 24.03.1957, Page 15
Burmudaguf 24. marz 1957
MOJtGUrí SLAÐIÐ
15
— Reyljavíkurbréf
Framh. af bls. 9
öðrum kaupstöðum. Samtímis og
sá boðskapur er látinn út ganga,
tönnlast Alþýðublaðið og Þjóð-
viljinn á „svikum stjórnar
Ólafs Thors“ á lánveitingum
til íbúðabygginga. Tíminn aftur
á móti keppist við að halda þvi
fram að allt, sem ávannst í þeim
efnum undir stjórn Ólafs Thors,
hafi verið Steingrími Steinþórs-
syni að þakka, en fjárskorturinn
nú á auðvitað að vera Ólafi
Thors að kenna!
Sannleikurinn er sá, að Sjálfr-
stæðismenn beittu sér bæði fyrir
setningu löggjafar um þessi efni
og allri fjárútvegun, þó að málin
heyrðu undir Steingrím Stein-
þórsson og hann væri allur af
vilja gerður til að leysa þau. A
skönmuun tíma vannst ótrú-
lega mikið á, þó að hitt væri
auðvitað ekki mögulegt, að
tryggja nægilegt fé til bygginga
í framtíðinni. Allra sízt þar sem
allt byggðist með eðlilegum hætti j"
á áframhaldandi sparifjársöfnun. I
Ætlunin var að taka allt að
helmingi sparifjáraukningar til
íbúðahúsabygginga. Meðan rík-
isstjóm Ólafs Thors sat við völd
jókst sparifjársöfnunin og var
aldrei meiri en fyrrihluta síðasta
árs. Þegar vinstri stjórnin tók
við, skipti gersamlega um. Spari-
fjáreignin minnkaði í stað þess
að aukast áður. Þetta er aðalor-
sök erfiðleikanna nú.
Húsnæðismálaráðherrann
Hannibal Valdimarsson, játaði á
Alþingi í vetur, að hann skildi
alls ekki samhengið hér á milli.
Sama vanþekkingin kemur enn
fram í Þjóðviljanum 20. marz. —
Þar er það með velþóknun haft
eftir Birni Bjamasyni, að hann
hafi á Iðjufundinum sagt: „auk
þess færi fé lagt í banka að veru-
legu leyti í brask.“
Með þessum hugsunarhætti er
beinlínis verið að vinna á móti
því, að menn leggi sparifé sitt í
banka eða sparisjóði og það geti
þar með orðið undirstaða upp-
byggingar í landinu. Ekki er von
að vel fari, þegar slíkur hugs-
unarháttur er ríkjandi hjá ráð-
andi mönnum þjóðfélagsins.
Samkomur
Almennar samkoinur
Boðun fagnaðarerindisins.
Austurgötu 6, Hafnarfirði, á
sunnudögum kl. 2 og 8.
Z I O N
Sunudagaskóli kl. 2 e.h. Almenn
samkoma kl. 3,30 e.h. — Hafnar-
fjörður: Sunnudagaskóli kl. 10 f.
h. Samkoma kl. 4 e.h. Allir vel-
komnir. —
Heimalrúboð leikinanna.
Hj áipræðisheri n n
Sunnudag kl. 11,00 Helgunar-
samkoma. Kl. 14,00 Stmnudaga-
skóli. Kl.20,00 Bænasamkoma. Kl.
20,30 Almenn samkoma. Velkom-
in. —
V
HEIMDATJ.T'R félag ungra
Sjálfstæðismanna
Kvöldvaka
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld klukkan 8,30.
Dagskrá:
Ávarp: Ásmundur Einarsson,
Einsöngur: Kristinn Hallsson
Leikþáttur.
Dans.
★
Aðgöngumiðasala frá kl. 2 e. h. í Sjálfstæðishúsinu.
Dansað frá klukkan 3—5
Gömlu dansarnir
í Búðinni í kvöld klukkan 9.
★ SIGURÐUR ÓLAFSSON syngur.
Á NÚMI stjórnar dansinu.
Aðgöngumiðasala frá kl. 3—5 og kl. 8.
OPIÐ Á MORGUN FRÁ KL. 9—11,30
Silfurtunglið
GÖMLU DANSARNIR
í KVÖLD TIL KLUKKAN 1.
Hljómsveit RIBA leikur.
Dansstjóri er hinn vinsæli Baldur G'unuarsson.
Þar sem f jörið er mest
skemmtir fólkið sér bezt.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 8.
Sími: 82611. Silfurtunglið.
í síðdegiskaffitímanum leikur
hljómsveit Riba.
Rock ’n‘ Roll sýning.
Sími: 82611. Silfurtunglið.
GETUM ÚTVEGAÐ alls konar skemmtikrafta.
Símar 82611 —• 82965 — 81457.
BræðraborgarHtígur 34
Sunnudagaskóli kl. 1. Samkoma
í kvöld kl. 8,30. Sæmundur G. Jó-
hannesson talar. Síðasta samkoma
hans að sinni. Allir velkomnir.
I. O. G. T.
Munið Víkingsfundinn
annað kvöld, mánudag. — Æ.t.
Unglingastúkan' Unnur
Félagar, munið fundinn kl. 10
f.h. i dag, sunnudag.
— Gæzlumenn.
Svava nr. 23
Fundur i dag kl. 2.
Kosning embættismanna.
Inntaka. Spurningaþáttur?
Kvikmynd?
Mætum öll. — Gæzlumenn.
Barnastúkan Jólagjöf nr. 107
Munið fundinn í dag kl. 3. —
Kvikmyndasýning.
Vinna
Breingerningar
Vanir menn. Fljót og góð vinna.
Sími 7892 og 9883. — Alli.
Tónlistarfélagið
Rúmenski píanóleikarinn
Mindru Kafz
Píanótónleikar
annað kvöld klukkan 7 í Austurbæjarbíói.
SÍÐASTA SINN
Ný efnisskrá:
Viðfangsefni eftir Bach, Beethoven, Chopin, Ravel
Kabalévski og Katsjaturian.
Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsson og í Austur-
bæjarbíói.
TILKYNMiP^
Aðstoðum bíla á vegum úti. Önnumst ,hífingar‘,
útvegum verkstæðispláss eða geymslu til skemmri tíma.
Höfum aðsetur í
Bflvirkjanum,
Síðumúla 19. Sími 82560 og eftir kl. 7, sími 7259.
Mínar hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig með heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á áttatíu ára afmæli mínu 17. marz sl. Sigurlaug Sigurðardóttir frá Fossi. Laugavegi 87.
Mínar hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig með heimsóknum, heillaóskum og' gjöfum á áttatíu ára afmæli mínu 17. marz sl. Sigurlaug Sigurðardóttir frá Fossi. Laugavegi87.
Verzlunarhúsnœöi óskast tl leigu fyrir húsgögn. Þarf ekki að vera stórt. — Tilboð merkt: „Húsgögn —2398“, sendist blaðinu fyrir mánaðamót.
Chevrolet secidibifrei5 árgangur 1948, til sýnis 'og sölu næstk. mánudag, þriðju- dag og miðvikudag á verkstæði Kr. Kristjánssonar h£. Laugaveg 170. Upplýsingar hjá verkstæðisformanni. Tilboð leggist inn á Pósthúsið, merkt: „Póststofan R. —4730“, fyrir föstu- dagskvöld.
Vegna úttarar verða skrifstofur vorar lokaðar frá hádegi mánudaginn 25. marz nk. Iðnaðarmálastofnun íslands
Vegna utfarar framkvæmdastjórans, verður skrifstofa og verksmiðja okkar lokuð allan daginn, mánudag 25. marz. Netaverksmiðjan Björn Benediktsson HF.
Móðir mín ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR lézt föstudaginn 22. marz. Fyrir hönd bræðra minna og vandamanna Margrét ísólfsdóttir. Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og bróðir HANNES JÓHANNESSON málari, Barónsstíg 21, andaðist í sjúkrahúsi Hvítabands- ins að morgni þéss 23. þ. m. Þóra Guðlaugsdóttir, Ragnheiður Hannesdóttir, Magnús Pétursson, Guðlaugur Hannesson, Ingunn Ingvarsdóttir, Einar Gíslason. Bálför JÓNS S. HALLGRÍMSSONAR fer fram 26. marz kl. 1,30 e. h. og hefst með kveðjustund í Fossvogskirkju. Blóm afbeðin. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Jens Hallgrímsson. Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför HANNESAR SCHEVING stýrimanns Systkini. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför SÓLVEIGAR ÓLAFSDÓTTUR Þorsteinn L. Þorsteinsson, Laufey Þorsteinsdóttir, Kristín Benjamínsdóttir, Ólafur Árnason, Ragnhciður B. Ólafsdóttir. 1