Morgunblaðið - 24.03.1957, Blaðsíða 16
JWíirpwMiMiSi
70. tbl. — Sunnudagur 24. marz 1957.
Reykjavíkurbréf
er á bls. 9.
Ungverskt flóttafólk í
Reykjavílí í fyrrinótt
Flugvél þess gat ekki lent í Keflavík
IFYRRINÓTT lenti hér í Reykjavík Skymasterflugvél frá ame-
rísku flugfélagi, Trans American, með 74 ungverska flótta-
menn innanborðs. Hafði flugvélin ætlað að lenda í Keflavík, en
þar var ólendandi vegna veðurs. Hér í Reykjavík var aítur á móti
hið bezta veður.
ENGIN AÐSTAÐA
Hér í bænum er sem kunnugt
ér engin aðstaða til þess af op-
inberri hálfu að taka á móti flug-
vélum sem svo óvænt þurfa hér
að lenda. Var það ráð þá tekið
að leita til Loftleiða um að
hlaupa undir bagga. Var Bolli
Gunnarsson fulltrúi hjá Loftleið-
um kominn út á flugvöllinn rétt
í þann veginn að flugvélin var
að renna upp að flugturninum.
Var veitingastofa flugfélagsins
opnuð fyrir hinum óvæntu næt-
urgestum. Síðan var „ræst“ út
starfsfólk veitingastofunnar til
þess að matbúa handa Ungverj-
unum. Gekk þetta allvel og greið
lega fyrir sig. Þetta flóttafólk var
að koma beint frá Vínarborg, en
allur hafði hópurinn verið í bæn-
um Salzburg. Var fólkið á leið
til Bandaríkjanna. f hópnum voru
m. a. tveir bræður, sá eldri 13
Eru hreindýrin úr
allri hættu?
FRÉTTARITARI Mbl. á Egils-
stöðum símaði í gær, að veður-
blíða hefði verið austur á Héraði
á föstudaginn og eins í gær. Suð-
austanátt, bjartviðri og hlýindi.
Eru þegar komnir upp góðir hag-
ar og ætti hreindýrunum að vera
borgið ef ekki harðna veður á
nýjan leik.
Á föstudaginn tókst þrem stór-
um 10 hjóla bilum cð brjótast
yfir ófærðina í Fagradal.
Síðosto einvigis-
skákin í dag
í ÐAG kl. 1 hefst 6. og síðasta
skák í einvígi þeirra Pilniks og
Friðriks Ólafssonar. Skákin verð-
ur tefld í Sjómannaskólanum. I
ára, sem báðir höfðu flúið, og
hafði lögregla Kadars lýst eftir
eldri drengnum. Foreldrar þeirra
eru í Ungverjalandi.
Flugvélin hafði hér nær 4 klst.
viðdvöl. Ætlaði flugstjórinn að
fljúga héðan beint til New York.
Flugvélin varð að lenda hér á
íslandi til að taka eldsneyti, því
mjög er á benzínbirgðir flug-
véla gengið eftir jafnlangt flug
án viðkomu og frá Vínarborg til
íslands.
Lundsflokku-
glímon á föstu-
dnginn
Landsflokkaglíman fór fram að
Hálogalandi á föstudagskvöldið
Var þátttaka mikil og sigurveg-
arar í einstökum flokkum urðu:
í 1. fl. Ármann J. Lárusson, UM
FR; í 2. fl. Hafsteinn Steindórs-
son UMFR; í 3. fl. Reynir Bjarna-
son UMFR. í drengjaflokki Þórir
Sigurðsson UMFR og í unglinga-
flokki Gunnar Pétursson UMFR.
Nánar um glímuna í þriðjudags-
blaðinu.
Siðusfu fónleikarnir
RÚMENSKI píanóleikarinn
Mindru Katz heldur síðustu tón-
leika sína í kvöld kl. 7 í Austur-
bæjarbíói. Á efnisskránni eru
verk eftir Bach, Beethoven,
Chopin, Fauré, Ravel, Kabalévski
og Katsjatúrjan.
Katz hefur haldið tvenna
hljómleika fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélagsins og hlotið góða
dóma fyrir leik sinn.
Á Islenzkri listsýningu i Paris
Eins og kunnugt er hélt Nína Tryggvadóttir listmálari fyrir skömmu málverkasýningu í París. Var
þessi mynd tekin á sýningunni er tvær islenzkarkonur heimséttu hans. Á myndinni eru taliff frá
vinstri: Frú Nína Tryggvadóttir, listmálari, frú Ólöf Bjarnadóttir kona Agnars Kl. Jónssonar,
scndiherra Ísíands í París og frú Ásta Helgadóttir, kona Hans G. Andersen sendiherra íslands hjá
Atlantshafsbandalaginu.,
Síðasla umferð
ídag
HAFNARFIRÐI. — Nú er öllum
biðskákum lokið á skákmóti Tafl
félags Hafnarfjarðar og verður
þá síðasta umferð tefld í Góð-
templarahúsinu kl. 2.
Eggert Gilfer er efstur með
7%, Stígur Herlufsen 6, Jón
Kristjánsson 4y2, Björn Jóhann-
esson 4, Ólafur Stephensen 3 og
Ólafur Sigurðsson 2. í 2. fl. er
Hilmar Ágústsson með 9 af 11,
Ólafur Magnússon 9 og Þorsteinn
Jónsson með 8 vinninga. í þeim
flokki eru 13 þátttakendur. —
Keppnin hefir oft og tíðum verið
spennandi og margir áhorfendur
hafa fylgzt með þessu skákmóti.
— G. E.
JVýtt pípuorgel vítft
í Stykkishóhnskirkju
Pilnik — hefur tryggt sér þrjá
vinninga.
Staðan er nú þannig, að Pilnik
hefur 3 vinninga og því þegar
tryggt sér jafntefli. En vinni
Friðrik skákina í dag, og þeir
verði enn jafnir að vinningum,
þá tefla þeir 2 aukaskákir sam-
kvæmt samningi þeim er gerður
var er Pilnik skoraði á Friðrik.
Þessi skák ræður því öllu um
það, hvort Pilnik vinnur einvíg-
ið eða hvort um verður að ræða
aukaskákirnar tvær.
STYKKISHÓLMI, 23. marz. — A
morgun, sunnudag, verður nýtt
pípuorgel vígt við hátíðlega at-
höfn í Stykkishólmi. Orgel þetta
er sams konar og Patrelcsfj arðar-
kirkja fékk á dögunum. Er það
frá verksmiðju í Ludwigsburg í
Þýzkalandi.
Undanfarið hefur sérfræðingur
frá verlcsmiðjunum unnið að því
að setja orgelið upp í kirkjuna
og er þvi verki lokið fyrir
skömmu. Ekki er enn vitað hve
mikið orgelið kostar uppkomið,
en sennilega er það aldrei langt
frá 100 þúsundum króna.
Undanfarið hefur verið söfn-
un meðal bæjarbúa í orgelkaupa-
sjóð og hóf kirkjukór Stykkis-
hólms söfnun í sjóðinn með ágóða
af söngskemmtun, sem hann hélt.
dagurinn
Slarfsfræðslu-
í DAG er í Iðnskólánum hinn
fyrirhugaði starfsfræðsludagur.
Hefst þessi fræðslustarfsemi, sem
er einkum ætluð ungu fólki, 14
til 20 ára, klukkan 2 og stendur
yfir til kl. 5. Fulltrúar um 80
starfsgreina munu leiðbeina og
veita hvers konar upplýsingar
varðandi starfsgreinarnar.
Fyrirtæki, opinberir aðilar og
bæjarbúar hafa nú þegar gefið
í orgelkaupasjóðinn um 7G þús-
undir króna.
Orgelið er mjög vandað og full-
komið. Orgelleikari kirkjunnar
er Víkingur Jóhannsson, en söng-
stjóri kirkjukórsins er Ólafur P.
Jónsson, héraðslæknir.
— Fréttaritari.
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir
Browning-þýðinguna á miðvikudag
Með leikritinu verður sýndur stuttur einþátfungur
NÆSTKOMANDI miðvikudag frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur
leikritið Browningþýðinguna, eftir Terence Rattigan, í þýð-
ingu Bjarna Benediktssonar frú Hofteigi. En vegna þess að leikrit
petta tekur skemmri tíma en venjulega gerist með leiksýningar,
verður sýndur einþáttungur með, „Hæ, þarna úti“, eftir William
Saroyan, í þýðingu Einars Pálssonar leikara. Skýrði formaður
Leikfélags Reykjavíkur, Jón Sigurbjörnsson ,leikari fréttamönnum
frá þessu á fundi í gær.
„BROWNING“-ÞÝÐINGIN
Er „Browning“-þýðingin aðal-
viðfangsefni kvöldsins og tekur
sýningin um IV2 klukkustund.
Leikstjóri er Gísli Halldórsson.
Leikendur eru: Þorsteinn Ö.
Stephensen, Helga Valtýsdóttir,
Þorsteinn Gunnarsson, sem er
ungur Menntaskólanemi og hef-
ur ekki komið opinberlega fram
fyrr, Jón Sigurbjörnsson, Einar
Iiigi Sigurðsson, Sigríður Haga-
lín og Steindór Hjörleifsson.
„HÆ, ÞARNA ÚTI“
Leikstjóri einþáttungsins, „Hæ,
þarna úti“, er Jón Sigurbjörns-
son. Leikarar eru: Steindór Hjör-
leifsson, Margrét Guðmundsdótt-
ir, Valdemar Lárusson, Sigríður
Hagalín og Theódór Halldórsson.
Tekur þessi leikur langtum
skemmri tíma en fyrri leikurinn.
TónJist við einþáttunginn hefur
SnjöbíU ilytur Skógnrstrnnda-
hrepps bændum mot og fóðurvörur
STYKKISHÓLMI, 23. marz. —
Eins og kunnugt er af fregnum
héðan eru snjóalög mikil hér um
Snæfellsnes og hefur snjóað að
heita má daglega fram á þennan
dag, frá því að snjóa tók í jan-
úarmánuði, en þá tepptist fljótt
þjóðvegurinn og lögðust þá niður
allar samgöngur á landi milli
höfuðborgarinnar og Stykkis-
hólms. Um skeið tókst að halda
veginum opnum upp í Kerlingar-
skarð og koma þaðan vörum suð-
ur í hreppa, en nú hefur þessi
leið einnig lokast. Hefur verið
töluverðum erfiðleikum bundið
að ná mjólkinni hingað til Stykk-
ishólms undanfarið. Rúm vika er
nú síðan hingað barst póstur síð-
ast, en á sunnudaginn er póst-
urinn væntanlegur með bátnum
Baldri.
Bændur voru orðnir mjög að-
þrengdir í Skógastrandarhreppi,
en nú er þar í flutningi á nauð-
synjum til bæjanna nýr snjóbíll,
sem keyptur var hingað af sýslu-
sjóði, búnaðarsambandinu og
Bifreiðastöð Stykkishólms. Er
Gísli Kárason bílstjóri á bílnum
og hefur bíllinn nú þegar bægt
algjörum vöruskorti frá heimil-
um bænda í hreppnum.
Heilsufar héraðsbúa hefur yfir-
leitt verið gott í vetur. — Á.
Jón Þórarinsson samið. Leiktjöld
að báðum leikjunum hefur Magn-
ús Pálsson gert.
ALVARLEGS EÐLIS
Báðir leikþættirnir eru alvar-
legs eðlis og gerast báðir á okk-
ar tímum. Báðir hafa þeir verið
sýndir víða um Evrópu og Ame-
risku og þafa hvarvetna notið
mikilla vinsælda. Ríkisútvarpið
hefur tekið bæði leikriiin til
flutnings hér.
Aðctlfundur
HEIMDALLUR F.U.S. heldur a«-
alfund sinn í Sjálfstæffishúsinu
í dag kl. 2 e. h. Á fuudinum
fara fram venjuleg iðalfundar-
störf. Eru Heimdellingar eindreg-
iff hvattir til þess að fjölmenna
á fundinn.
í kvöld verffur svo
Kvöldvaka
í Sjálfstæðishúsinu og hefst hún
kl. 8,30. Verffi affgöngumiða er
mjög stillt í hóf og kostar miff-
inn aðeins kr. 15.00. — Aðgöngu-
miðar verða seldir í Sjáifstæðis-
húsinu frá kl. 2 e. h. á sunnudag.
Á þessari kvöldvöku verður eins
og venjulega vandað mjög til
skemmtiatriða. Dansað verður til
kl. 1.