Morgunblaðið - 14.05.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.05.1957, Blaðsíða 1
20 síður 44. árgangur 106. tbl. — Þriðjudagur 14. maí 1957. Prentsmiðja MorgunblaSsina Stjórnmálaályktun formannaráðsfefnu Sjálfstœðisflokksins: Athafnafrelsi líklegast fil að skapa hag- sœld og vel- liðan alþjóðar Uppbygging stóri&naðar — Jafnvægi efnahagslifsins — Aukin vernd fiski- miða — Lýbræðisleg kjördæmaskipun — Húsnæbisumhætur — Samvinna vib vestrænar lýðræbisþjóðir Nvaft til sóknar fyrir frjálslyndri fram- kvœmdastefnu gegn höftum og ofstjórn T LOK þriðju formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins var samþykkt stjórnmálaályktun, þar sem mörkuð er í höfuðdráttum afstaða flokksins til íslenzkra stjórnmála í dag. Lýkur ályktuninni með áskorun til Sjálfstæðismanna um land allt um að efla samtök sín og herða baráttuna fyrir sigri Sjálfstæðisflokksins svo að hann geti enn að nýju markað stefnu þjóðarinnar til frelsis, hagsældar, friðar og Frá þriðju formannaráðstefnu Sjálfstæðisflokksbis öryggis. Stjórnmálaályktunin fer hér á eftir í heild. Sótt fram til frelsis. Hin síðari ár hafa Islendingar sótt fram til frelsis og frama á flestum sviðum með meiri hraða en dæmi eru til í sögu þjóð- arinnar. Alit þetta framfaratímabil hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið áhrifaríkasta aflið í þjóðfélaginu og á þessu tímabili hefur tekizt m. a.: 1. Að leiða sjálfstæðismálið til lykta með stofnun íslenzka lýðveldisins. 2. Að halda þannig á utanríkismálum með aðild að alþjóð- legum samtökum og með samvinnu við vestrænar lýðræðis- þjóðir, að þjóðin hafði aflað sér virðingar, trausts og vin- sælda þeirra á meðal. 3. Að auka svo verklegar framkvæmdir í landinu, að engin sambærileg dæmi eru áður til á því sviði. Er þar m. a. um að ræða ræktunarframkvæmdir, samgöngubætur, húsbygg- ingar, virkjun fallvatna, hagnýtingu jarðhita, aukningu fiski- og kaupskipaflotans, öflun nýtízku flugflota, marg- hliða iðnvæðingu og vélvæðingu landbúnaðarins. 4. Að efla margvíslegar menningarlegar og félagslegar fram- farir í landinu, svo sem með fullkominni tryggingalöggjöf, byggingu sjúkrahúsa og aukinni heilsuvernd, skipulögðu skólakerfi, byggingu skóla og félagsheimila. 5. Að auka verulega friðun fiskimiðanna umhverfis landið. Eingarréttur og athafnafrelsi: Sjálfstæðisflokkurinn byggir nú sem fyrr starf sitt á þeirri þjóðmálastefnu, að eignarréttur og athafnafrelsi einstaklinganna og félaga þeirra sé líklegast til þess að skapa hagsæld og vellíðan alþjóðar og lítur svo á, að ofstjórn, ofsköttun og óeðlileg höft í viðskipta- og atvinnulífi þjóðarinnar sé niðurdrep fyrir atvinnu- vegi hennar og velmegun. En Sjálfstæðisflokkurinn tekur nú ekki þátt í ríkisstjórn. Sú breyting, sem orðin er á stjórnarháttum nú, er þó ekki vegna fylgisrýrnunar flokksins, því að hann hlaut 35 þúsund atkvæði við síðustu alþingiskosningar og er enn sem fyrr lang sterkasta stjórn- málaaflið á Íslandi, enda sýndu úrslit kosninganna mjög vaxandi fylgi flokksins, þar sem atkvæðahlutfall hans óx úr 37,1% upp í 42,3%. Brottrekstur varnarliðsins. Eitt aðalverkefni hinnar nýju stjórnar átti að vera það að framkvæma ályktun Alþingis um brottrekstur varnarliðsins frá landinu. Svo sem hinn tólfti Landsfundur Sjálfstæðisflokksins vorið 1956 lýsti yfir, var sú ályktun frá upphafi óhyggileg, þar sem ákvörðunin var gerð fyrst og athugun málsins átti að fara fram síðar. Raunin hefur og orðið sú, að eitt helzta viðfangsefni Framh. á bls. 2 Bretar leyfa sldpam sigla um Súez-skurð London, 13. maí. Einkaskeyti frá Reuter. HAROLD MACMILLAN forsætisráðherra Breta lýsti því yfir í dag, í Neðri málstofu brezka þingsins, að Bretastjórn gæti ekki lengur ráðið brezkum skipafélögum frá því að sigla um Súez-skurð. Yfirlýsing þessi hefur vakið feikna athygli og notuðu stjórnar- andstæðingar tækifærið til að gagnrýna stjórnina harðlega fyrir stefnuleysi sitt og linkind í Súez-málinu. Macmillan sagði að ekki yrði hjá því komizt, að brezk skip, er sigldu um skurðinn New York, 13. maí. ★ BANDARÍSKA herstjórnin til kynnir að Iokið sé smíði fjölda loftvarnarvirkja umhverfis New York borg. Eru virki þessi búin flugskeytum af Moskva, 13. maí Frá Reuter. ic NÆSTUM heilu ári eftir að Bandaríkjastjórn gaf út hina leynilegu Stalin-ræðu Krú- sjeffs á 20. flokksþingi hef- OLL brauðgerðarhúsin hér í Reykjavík og í Hafnar- firði, boðuðu í gærdag til vinnustöðvunar í brauðgerð- um sinum frá og með mið- greiddu fullt siglingagjald til egypzku stjórnarinnar. Munu gjöldin greiðast í sterlings- Níke-gerð. Eru virkin allt um- hverfis borgina og jafnvel á tilbúnum eyjum úti í Atlants- hafi. Hefur nú náðst merki- Iegur áfangi i loftvörnum Frh. á bls. 19. ur Krúsjeft nú afneitað að hafa haldið nokkra ræðu með því efni. Sagði hann þetta í blaðaviðtali við frétta mann bandariska stórblaðs- Framh á bls. 19 vikudeginum. Um þetta er tilk. hér á öðrum stað í blað- inu i dag. Seint í gærkvöldi var frá þessari vinnustöðvun Frh. á bls. 19. sínum ctð pundum og hafa Englands- banki og Egyptalandsbanki gert samning um að greiðsl- ur geti farið fram í reikning í Englandsbanka. Þetta breyt- ir því ekki að eldri innstæður Egypta í enskum bönkum verða áfram frystar, þar sem samkomul. hefir ekki náðst um greiðslur skaðabóta, vegna deilumála ríkjanna. Með þessari yfirlýsingu má se'gj a að hinum raunhæfa þætti Súez-deilunnar sé lokið og hafa Egyptar farið með sigur af hólmi úr honum. Macmillan lýsti því þó yfir í ræðu sinni, að Bretastjórn gaeti ekki samþykkt tillögur þær sem Nasser hefur borið fram um stjórn Súez-skurðar, enda brjóti þær í bág við fyrirmæli S.Þ. um rekstur skurðarins. Sagði Mac- millan, að Egyptar ættu eftir að bíta úr nálinni í því efni og Framh á bls. 19 Ásgeir Ásgeirsson forseti Islands, varð 63 ára í grer, Forsetahjónin eru nú komin til Lundúna eftir dvölina suður á Ítalíu og eru þau á heimleið, 1 gærdag snæddu for- setahjónin hádegisterð í íslenzka sendiráðinu í London. í dag mun forsetinn heimsækja Elísahetu drottningu í Buckinghamhöll, Fullkomið loftvarnakerfi með flugskeytum Krjúsjeff ofneitor Stnlin-ræðu Brauðgerðarhúsin hættu við framleiðslustöðvun *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.