Morgunblaðið - 14.05.1957, Side 6

Morgunblaðið - 14.05.1957, Side 6
6 MoncrisjiT srtrp l»riSjudagur 14. mai 1957 Jhtufótkí / ^ttórciet oa. ótc CýCin jci f SAMBANDI við ólguna og á- tökin við botn Miðjarðarhafsins og afstöðu arabisku landanna þar til ísrael hefur vafalaust ekki verið gefinn nógur gaumur að flóttamannavandamálinu, sem skapaðist, þegar fsraelsríki var stofnað. Sama dag árið 1948, og Bretar lögðu niður það umboðs- vald, sem þeir höfðu haft yfir Landinu helga eða Palestínu, efndu fimm arabísk lönd til ófrið- ar gegn hinu nýja Ísraelsríki, sem þá hafði tæplega eina milljón íbúa. Arabisku löndin, með 40 milljónir - íbúa töpuðu styrjöld- inni gersamlega. Afleiðing þess var sú að um ein milljón manna lagði á flótta frá því landssvæði, sem nú er innan endimarka fsra- els. Þessir flóttamenn eru nú í Gaza og arabisku löndunum í kringum fsrael. Kortið, sem hér fylgir með, sýnir hvernig flótta- fólk þetta skiptist á hin ýmsu lönd, Meðal þessara milljóna af flóttafólki eru hinir „landlausu" Jórdaníumenn, sem svo eru kall- aðir, af því að heimili þeirra var Jórdaníu-megin við landamærin en jarðnæði þeirra, akrar og ann- að land lá ísraels-megin. Þessi lönd geta þeir ekki framar nytj- að. Hér er um að ræða allt af því 180 þús. manns og er mestur hluti þessa fólks hjálparþurfi, en ■t Ltn Wd- r&ctrlict^óL óinó handiðnaði, 'en langflestir urðu hjálparvana flóttamenn og fylla nú þann flokk flóttafólks, sem sífellt eykst að tölunni til. Þessi aukning flóttafólksins á sér ýms- ar orsakir. Þrátt fyrir kröpp kjör er viðkoman mikil þar sem barnsfæðingar nema 4% árlega. Dánartala er hins vegar furðu- lega lág. Rauði krossinn og hjálparstarf- semi S.Þ. komu brátt til skjal- anna. Flóttafólkinu var safnað saman í sérstakar búið. Innan S.Þ. var komið á fót sérstakri stofnun UNRWA, sem hefur það að markmiði að bæta úr neyð- inni í bráð og reyna að koma, sem flestum flóttamönnum tii nytsamlegra starfa. Sá daglegi styrkur, sem flótla- mennirnir fá, er ekki hár. Hann samsvarar um 80—90 aurum á dag. En þessi styrkur, ásamt öðru sem til fellur, heldur þó lífinu i flóttafólkinu. Ástandið í búðun- um er talið skárra, en við mætti búast. Vonin um að ísrael verði afmáð, heldur mörgum uppi. Hatrið í garð Gyðinga er óslökkv andi. Þegar afstaða Araba-ríkjanna gagnvart ísrael er athuguð má ekki gleyma flóttafólkinu og A A 3i LIBANON I8ÚAR. 1 393 0001 flÓTTAMtKN 103.167 %At IBUAT01U 7,M J_L SVRLAND ieuAn. 3 906 000 Fiottamínm: 90 919 %A» iBuATÓCU. 2.3 EE JOROANIA iouaa 936.0001 IIOMAMtNN 511 41 3 % Af IbUATOLU 54,61 n GAZ A iðiiAR 99 000 fLÓTTAMtNN 219423 ’/oAf IBUATOIU 221,2. ALLS: O 6.334.000 hins vegar uppfyllir það ekki vandamálum þess. Ýmsir flótta- skilyrði fyrir aðstoð frá S.Þ. vegna þess að það á sér þak yfir höfuðið, þó landslaust sé. Nokkuð af flóttafólkinu gat kom- ið sér fyrir innan arabisku land- anna, vegna menntunar sem það hafði hlotið eða sérstakrar kunn- áttu á einhverju sviði, svo sem í menn frá ísrael hafa komizt til talsverðra áhrifa í nágrannalönd- unum vegna þeirrar menntunar, sem þeir höfðu hlotið í skólum Palestínu, meðan landið var und- ir brezkri stjórn. Flóttamennirn- ir og neyð þeirra eru Aröbum sífelld hvatning um að láta til skarar skríða gegn ísrael og held ur hatursbálinu logandi. Það er heldur ekki gleymt meðal Araba, I6UAR, FtOTTAMENN 924.92Z AF IBUATOI-U 14.6 að þeir skyldu bíða svo stór- kostlegan ósigur fyrir ísraels- mönnum, sem raun varð á, fyrir tæpum áratug. Innheimtir R.R. útvarpsgjöldin? ÚTVARPSST J ÓRI hefur fyrir nokkru óskað eftir því að fram færi á því athugun hvort mögu- legt væri að skrifstofa Rafmagns veitunnar tæki að sér að annast innheimtu afnotagjalds Ríkisút- varpsins hér í bænum. Skrif- stofa Rafmagnsveitunnar telur möguleika á þessu, en hún hefur haft málið til athugunar. Á fundi bæjarráðs er haldinn var á föstudaginn, bar mál þetta á góma þar. Var samþykkt að heimila rafmagnsstjóra að hefja viðræður við útvarpsstjóra um það hvort Rafmagnsveitan taki þessi innheimtustörf að sér. WASHINGTON, 11. maí. — Kj arnorkunef nd Bandaríkj- anna hefir boðið fulltrúum 47 ríkja að vera viðstaddir kjarn- orkutilraunir í Nevada síðari hluta þessa mánaðar. Engum full trúa frá kommúnistaríki verður boðið. Aftur á móti verður öll- um ríkjum innan Atlantshafs- bandalagsins boðið, svo og Bag- dad-ríkjunum og aðildarríkjum Suð-Austur-Asíu bandalagsins, Suður-Ameríkuríkjunum, Spáni, Víet-Nam, Suður-Kóreu og loks verður boðið fulltrúa frá kín- versku þjóðernissinnastjóirininni á Formósu. Reykjalundi berst gjöf frá Khöfn OSVALD Kvasman veitingamað- ur í Restaurant Glypoteket Kaupmannahöfn, hefir sent Reykjalundi, Vinnuheimili S. í. B. S. að gjöf litla höggmynd eftir sjálfan sig, sem hann kallar „Sólskinsstúlkan". Kvasman er mikill íslandsvin- ur og hefir undanfarin ár sent Reykjalundi, Háskóla íslands og Blindrafélaginu góðar gjafir. • Árlega hefur hann sent tugi og hundruð bóka og hljómplatna til Vinnuheimilisins og nýlega sendi hann Reykjalundi að gjöf fyrsta listaverk sitt, mótaða mynd, sem hann nefnir „Sólskinsstúlkan“. úr skrif*ar daglega lifinu UT AF FRÉTT, sem birtist hér í blaðinu fyrir skömmu hef- ir því borizt eftirfarandi bréf: í „Spóahret á Norðurlandi“ MORGUNBLAÐINU 3. maí sl. er dálítil klausa um veðr- áttuna undir þessari yfirskrift. Mér þótti heitið „spóahret" fall- egt, en þó jafnframt nýstárlegt og framandi fyrir mig. Ég er uppalinn á Austurlandi og hefi þó aldrei heyrt þetta orð fyrr. Á Austurlandi, Fljótsdalshér- aði, lék enginn vafi á hvað hret eða kæla í maíbyrjun skyldi heita. Það var auðvitað kross- messukælan, krossmessuhretið. En krossmessan (3. maí) var fyrir austan hinn mesti merkis- dagur fram um aldamótin síð- ustu að minnsta kosti. Þá var vinnuhjúaskildagi, fardagur hjúa og flutningur milli heimila. Nóg fólk í boði milli búa, en hins vegar vandi mikill að tefla rétt. Sjálfgefið var að tíðarfarið kæmi hér mjög til greina til mats og minninga. Spóinn ekki kominn, því síður krían. Þá var það auð- vitað krossmessan sjálf, sem sat uppi með alla töfrana til góðs eða ills. Já, oft kom eitthvert írennsli um krossmessuleytið, ef nokkuð hafði þá svíað tii áður. Annars var það rétt eftir göml- um mönnum að festa sér í minni hinar tíðu sveiflur veðráttunnar, einkum á vorin og háttsemi dýra og fugla eftir árstíðum. Þetta var aldagömul venja og aug’jós þörf, studd af sívökulli eftirtekt, ýmist til spásagnar um veðrið eða þá til túlkunar undangeng- inni reynslu — einn þátturinn í þjóðfræðum alþýðunnar. Nú er hætta á að dofna taki þessi sérgáfa gamla fólksins og hætti að berast rétta boðleið til yngri kynslóðarinnar — allt lend ir það nú yfir á hjólin, vogsteng- urnar og vísana. Mundi þá samt ekki einhvers staðar verða skarð fyrir skildi? B. Þ.“ Gildur fjársjóður VIÐ ÞÖKKUM B. Þ. þetta á- gæta bréf hans. Jú vissulega verður skarð fyrir skildi ef við glötum einhverju af hinum sí- gildu þjóðfræðum alþýðunnar, einnig ef við glötum næminni fyrir veðrabrigðum. Það er jafn- vel skaði að missa gigtina úr mjöðminni fyrir norðanrosann. Þess vegna er það dýrmætur fjár- sjóður þjóðmenningu vorri er gamlir menn taka sér penna í hönd og rita niður minningar um hætti og venjur eins og gerð- is í þá gömlu góðu daga. Sumir hafa gert þetta og bjarg- að miklum verðmætum. Þannig getum við lesið um spóahretið og kríuhretið í Þjóðháttum Jónasar á Hrafnagili. Til gaman skulum við athuga hvað Jónas segir um vorhretin: „í apríl og maí fara farfugl- arnir að koma, og eiga allar stór- hríðar að vera úti, þegar lóan kemur. í þessum mánuðum ganga vorhretin af, og telur Jón Árna- son þau sex: Sumarmálahret, kóngsbænadagsíhlaup (-hret), krossmessukast, uppstigningar- dagsrumba, hvítasunnusnas (-kast) og fardagaflan. Stundum lendir tveimur þessum hretum saman, og stundum falla fleiri eða færri af þeim niður, þegar vel vorar, og þykir þá vel fara. Heyrt hef ég talað um hrafna- hret, þegar hrafninn verpir 9 nóttum fyrir sumar (sumir segja að hrafninn fari að draga að hreiðri sinu 9 nóttum fyrir sum- ar). Spóahret og kríuhret nefna og sumir, og nyrðra var algengt að tala um skiparumbu, þegar vorskipin komu. Síðast allra hreta var fráfæruhretið, en til var líka rúningarhret. En þá eru úti öll vorhret, þegar spóinn lang vellir (vellir graut) og hrossa- gaukurinn hneggjar". Þannig farast hinum mikla þjóðfræðingi Jónasi Jónassyni á Hrafnagili orð. Fyrir störf í þágu öryrkja í heimalandi sínu og erlendis, hef- ir Kvasman hlotið fimm heiðurs- merki, þar á meðal kross hinnar frönsku heiðursfylkingar. Osvald Kvasman varð fyrir 13 árum fyrir slysi og missti sjón— ina. Síðan hefir hann óslökkv- andi áhuga á velferðarmálum ör- yrkja og er meðal þekktustu brautryðjenda á því sviði í Dan- mörku.Afrek hans í þágu blindra manna þar í landi eru víðkunn og frábær. Fegurðardrottning fs- lands kjörin í júní Aðeins ein fegurðarsamkeppni í sumar FEGURÐARDROTTNING íslands 1957“ verður kjörin í Tívolí um miðjan næsta mánuð. — Sú, sem fyrir valinu verður, mun fara vestur til Kaliforníu og keppa þar um titilinn „Miss Universe", en sú keppni fer fram í Long Beach í júlímánuði næstkomandi. — I Long Beach munu fegurstu stúlkur 42 þjóða keppa um hinn eftir- sótta titil, „Miss Universe", en auk þess munu þær 14 stúlkur, sem næstar verða henni í röðinni, hljóta verðlaun, sem jafngilda sam- tals hálfri þriðju milljón íslenzkra króna, en allar stúlkurnar, sem þátt taka í keppninni hljóta einhver verðlaun og sumar munu eiga þess kost að undirrita samninga við kvikmyndaframleiðendur. Hátíðahöldin vegna keppninn- ar í Long Beach munu standa í vikutima. Forráðamenn keppn- innar þar eru borgarstjórinn í Long Beach, stærsta snyrtivöru- firma heimsins, Max Factor, Catalina-verksmiðjurnar og fleiri fyrirtæki og stofnanir. Fegurðarsamkeppnin í Long Beach, vekur jafnan alheims- athygli og nú í ár mun verða sjónvarpað frá henni um allan heim. í fyrra tóku þátt í keppninni stúlkur frá 40 þjóðum. Sigurveg- arinn var amerísk stúlka. Önnur í röðinni var þýzk, en hin þriðja sænsk. Geta má þess til gamans, að stúlkur frá Norðurlöndum hafa þrisvar borið sigur af hólmi í þessari keppni. Reynslan hefur sýnt, að fjöld- inn allur af öðrum þátttakendum en þeim, sem komið hafa til úr- slita, hefir fengið margvísleg og glæsileg tilboð um atvinnu við sjónvarp, hjá heimsfrægum tízku húsum og víðar, en auk þess hafa þær fengið mikið af gjöfum frá alls konar fyrirtækjum, félaga- samtökum, t. d. flugfélögum, ver- ið boðnir styrkir til náms í hljóm list, leiklist og fleiru. Forráðamenn Miss Universe keppninnar hér á íslandi hafa nú ákveðið að taka í annað sinn þátt í Long Beach keppninni. Þótti vel takast um val íslenzka full- trúans í fyrra, enda þótt hann kæmist ekki í úrslit. Var það mál manna, að íslenzka stúlkan hefði með framkomu sinni orðið landi og þjóð til sóma. í keppninni hér heima, verð- ur sem fyrr segir, valin „Feg- urðardrottning íslands 1957“, sem jafnframt verður fulltrúi íslands í Long Beach. Auk fyrstu verðlauna verða veitt fern verð- laun, sem öll eru mjög freistandi. Fegurðardrottningin fær, auk ferðarinnar til Kaliforníu, rífleg- an farareyri, tvo kvöldkjóla og sundföt. Önnur verðlaun eru ferð til meginlands Evrópu, þriðju verðlaun ferð til Lundúna, fjórðu verðlaun gullúr og fimmtu verðlaun dýrmætar snyrtivörur frá Max Factor. Mjög verður vandað til keppninnar og munu forráðamenn hennar sjá um að saumaðir verði sams konar kjólar á allar stúlkurnar, sem þátt taka í henni. Allar stúlkur á aldrinum 17— 28 ára, eru hlutgengar til keppn- innar. Þar sem vitað er, að hér á landi er margt fallegra stúlkna, sem til greina gætu komið í vænt anlegri keppni, eru það tilmæli forráðamanna keppninnar að vitneskju um þær sé komið á framfæri í síma 6056, 6610 eða í pósthólf 368, hið allra fyrsta. Er þess að vænta, að almenningur taki sem virkastan þátt í að velja stúlkur, sem líklegastar eru til þess að verða landi og þjóð til sóma hér heima og á erlendum vettvangi í væntanlegri keppni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.