Morgunblaðið - 14.05.1957, Page 12

Morgunblaðið - 14.05.1957, Page 12
12 MORGVrtBLAÐir triðjudagur 14. mai 1957 NÁMSFLOKKAR Reykjavíkur er merkileg stofnun. Merki- legri ef til vill en í fljótu bragði virðist, því þar er mikið merm- ingarstarf unnið í kyrrþei Náms- flokkarnir eru nú einn stærsti framhaldsskólinn á landinu, og lang stærsti almenni framhalds- skólinn. Þeir eru eini skólinn hér í Reykjavík, þar sem ekki er krafist neinna inntökuskii- yrða eða fyrri menntunar, og allir hafa frjálsan aðgang. Og náms- flokkarnir eru líka eini skólinn, þar sem menn geta aflað sér menntunar, hafi þeir ekki tíma til þess að verja til þess mestum hluta dagsins eða kaupa sér dýra einkakennslu. Og loks er valið milli námsgreinanna alveg frjálst, menn geta lagt stund á ieftna þeirra eða margar eftir hjartans lyst og fróðleiksfýsni hvers og eins. Þannig má segja að Námsflokkarnir séu sniðnir við hæfi hvers alls almennings, og þeim svo hagað að hver og einn, hvernig sem persónulegum ástæðum hans, aldri eða vinnu er hagað eigi kost góðrar mennt- unar hjá úrvalskennurum fyrir sama sem ekkert gjald. í þessu er gildi Námsflokka Reykjavíkur fólgið, og margar þúsundir manna minnast þeirra með hlýhug fyrir þá menntun sem þeir sóttu þangað. ggs. Söfnunarsjóður íslands Frá slitum Námsflokkanna nú í vor. — Námsflokkarnir Framh. af bls. 13 sem komu á erlendum skipum í höfnina. Og þá er ekki ferill miðaldra konu einnar ómerkilegri, í Náms flokkunum. Hún hefir alls tekið þátt í 16 námsflokkum á 7 árum og lokið prófi í þeim öllum með 1. einkunn eða ágætisejnkunn. Þar hefir sannarlega verið mik- illi fróðleiksfýsn fyrirað fara. Fólk úr öllum stéttum sækir um nám í Námsflokkunum. En eftir því sem Ágúst Sigurðsson telur, þá er fólk úr skriístofu og verzlunarstétt fjölmennasti hóp- urinn. En þarna eru margar aðr- ar stéttir samankomnar. Margar húsmæður eru þarna, einkum þær sem hafa komið börnum sínum á legg, hafa öðlast meira næði og vilja nota tímann til þess að mennta sig og víkka sjóndeildarhringinn. Margar þeirra leggja stund á tungumála- nám. Skrifstofufólkið lærir helzt tungumál, vélritun og bókfærzlu. Þama er einnig dálítið af skóla- fólki, en þó telur skólastjórinn nám í almennum skólum og Námsflokkunum ekki falla vel saman, sökum þess, að skyldu- námið er þegar orðið of tíma- frekt til þess að unglingar hafi efni á því að vera tvö kvöld í viku við annan skóla. Aftur á móti eru einstaka menri, sem hafa gert sér skóla úr Náms- flokkunum og stunda enga vinnu með þeim. Eru það flestir menn, sem komnir eru yfir þrítugt. Þeir stunda námið yfirleitt vel, því þeim er bláköld alvara, að afla sér sem mestrar menntunar. Jafn- vel kennarar sækja til náms þar líka m.a. í dönsku og fleiri grein- um. Og aldraður bóndi einn úr óstýrilát úr hófi fram. Það kem- ur varla fyrir einu sinni á vetri að ég verði að setja ofan í við nágrenni bæjarins hefir stundað nemanda í Námsflokkunum fyr- þarna nám í átta ár samfieytt. Erfitt er að kveða á um það hver er vinsælasta námsgreinin, segir Ágúst Sigurðsson. En þessa mánuðina er föndur mjög í tízku í skólanum og virðist vera mjög vinsæl námsgrein. Fjölmennasta námsgreinin er enska. Þar eru alls 13 námsflokkar starfandi, þar af 6 fyrsta árs flokkar, en nemendur í ensku eru yfir 300 talsins. ÞEGAR ég átti tal við Ágúst Sigurðsson um starfsemi Námsflokkana fyrir skömmu spurði ég hann m.a. að því hvernig nemendunum sæktist námið, þar sem margir þeirra ynnu fullkomnan vinnudag og væru á öllum aldri. Nemendurnir eru flestir áhugasamir, svaraði Ágúst. Hinir áhugalausu heltazt mjög fljótt úr lestinni. Hingað koma menn vegna þess að þeir þrá að iæra, ekki vegna þess að þeir verði að læra, að námið sé skyldunám. Þessvegna er mjög gaman að kenna þeim. Við reynum að isníða kennsluna eftir þörfum fólksins á hverjum tíma og ég held að óhætt sé að segja það að námið komi nemendunum að mjög miklum notum. Á síðustu árum hefur því ver- ið haldið á lofti hve framkoma unga fólksins væri slæm og hve mikillar ókurteisi gætti oft í fari skólaæskunnar. Það þekkj- um við ekki í námsflokkunum. Þar hafa nemendurnir ávallt sýnt sérstaka prúðmennsku, og því hallast ég að því að stundum sé of mikið gert úr því að Reykja- víkuræskan sé uppiðvöslusöm og ir agabrot. Það er allt hið prúð- asta og námfúsasta fólk. Þannig kemst skólastjórinn að orði um nemendur sína, en þó að þar sé fólk á öllum aldri er þó mestur hlutinn í hópi ungs fólks. Herra ritstjóri. EFTIR að hafa lesið frásögn þingfrétta í blaði yðar s.l. laug- ardag, langar mig til að biðja yður fyrir eftirfarandi athuga- semd: A 3. bls., 4. dálki, er sagt frá afgreiðslu á frumvarpi um Söfn- unarsjóð íslands og sagt frá breytingartillögu Páls Zophoní- assonar, sem felur í sér að ó- heimilt sé að hækka vexti á eldri lánum sjóðsins eða að segja þeim upp. í öllum samningum milli þeirra, sem lán hafa tekið í Söfn- unarsjóði íslands, stendur þetta: „Lónveitandi og lántakandi hafa hvor um sig rétt til að segja höfuðstól lánsins upp að meira eða minna leyti, með sex mánaða fyrirvara, á hvora hlið“. Af öll- um þessum samningum hafa ver- ið greidd lögboðin gjöld og þeim þinglýst. Það sem um er deilt, er því hvort með lagasetningu eigi að meina Söfnunarsjóðnum að // Atvinna, V2 daginn" Kvenmaður óskast í léttan iðnað hálfan daginn. Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtudagskvöld xnerkt: „V2 daginn" —7790. Er kaupandi að fokheldu einbýlis eða tvíbýlishúsi. — Tilboð sendist á afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Hús—2935“. Átfræð: Frú Cuðrún Brynjólfs- dótfir í Þórshamri FRÚ Guðrún Brynjólfsdóttir í Þórshamri átti áttræðisafmæli s. 1. laugardag. Sótti hana þá heim fjöldi vina og ættingja og sýndu henni margvíslegan vott vináttu og tryggðar. *» Frú Guðrún er fædd í Engey, dóttir hjónanna Þórunnar Jóns- dóttur og Brynjólfs Bjarnason- ar frá Kjaransstöðum á Akra- nesi. Ólst hún þar upp, en gift- ist 21. október 1901, Þorsteini Þorsteinssyni skipstjóra, sem þá var einn harðduglegasti sjósókn- ari við Faxaflóa og síðar braut- ryðjandi á sviði togaraútgerðar, og hinn mesti merkismaður. Lézt hann árið 1953, þá rúmlega 83 ára gamall. Hafði hjónaband frú Guðrúnar og hans staðið í rúm 50 ár. Heimili þeirra stóð um skeið í Bakkabúð, en lengstum í Þórs- hamri við Vonarstræti. Þar hefur frú Guðrún nú átt heima í rúm 40 ár. Þar byggði hún ásamt manni sínum upp glæsilegt og fallegt heimili. Þau hjón eignuðust þrjú börn, Gunnar, hæstaréttarlögmann, Brynjólf skipstjóra og Þórunni gifta Gunnari Benjamínssyni lækni. Á sviði slysavarnamála unnu þau hjón mikið og þjóðnýtt starf. Frú Guðrún í Þórshamri hef- ur verið mikil lánskona. Hún var gift traustum og ágætum manni, þau eignuðust mannvænleg og vel gefin börn og heimili þeirra varð hlýtt og svipmikið. Frú íbúd til leigu 2 herb. og eldhús, nálægt Miðbænum, til leigu nú þeg ar með eða án húsgagna, hvort sem óskað er. Tilboð merkt: „Sér inngangur — 2941“, leggist inn á afgr. Mbl., sem allra fyrst. Guðrún er listfeng og getur víða að líta merki þess á heimili hennar. Hún hefur oftast verið hraust og nú, þegar hún er átt- ræð er hún létt í spori og hress í tali. Heimili frú Guðrúnar í Þórs- hamri er eitt af traustustu mynd- arheimilum þessa bæjar. Það er byggt upp á grundvelli dugmikils starfs á sjó og landi. Þangað hef- ur oft komið fjölmennur hópur frænda og vina, og enda þótt húsbóndinn sé fallinn frá fyrir nokkrum árum eru enn margir, sem eiga þangað leið. Móttök- urnar eru eins og áður, hjartan- legar og hlýjar. Yndi frú Guðrúnar eru nú hin myndarlegu barnabörn hennar, sem sækja hana heim og fylla stofurnar í þórshamri að nýju gleði og lífi. Vinir og ættingjar Guðrúnar í Þórshamri óska henni til ham- ingju með líf hennar og starf um leið og þeir þakka henni liðna tíð. S. Bj. notfæra sér þessa heimild og hækka útlánsvexti upp í 7%, en þeir voru á sínum tíma með lög- um frá Alþingi bundnir við há- markið 5% (1935). í skuldabréf- um Söfnunarsjóðsins er yfirleitt ekki neitt ákvæði um endur- greiðslu, heldur einungis áskilið, að veðinu sé vel við haldið. Nú eru í uppsiglingu lög á Al- þingi, sem ógilda eiga þessa samninga, samanber breytingar- tillögu Páls Zophoníassonar, sem samþykkt var í Efri deild s.l. föstudag. Hefur Alþingi vald til að ógilda löglega gjörða samn- inga milli tveggja aðila eða er þingmeirihlutinn bara að leika sér? Hvað er Söfnunarsjóður Is- lands? hafa margir spurt mig. Hann er rúmlega 1500 sjóðir, um 1000 fastasjóðir auk sjóða, sem útborgast eiga á þar til tilteknum tíma, sem einstaklingar eða félög hafa stofnað. Margir þeirra eru minningarsjóðir um merka menn en allir eru þeir líknar- eða menningarsjóðir. Söfnunarsjóð- urinn er því mjög þörf stofnun, því reynslan hefur oftlega sýnt að sjóðir, sem ekki eiga vissan samastað, hafa glatazt, þegar stofnendurnir eru fallnir frá. Auk þess ætti öllum að vera ljóst að fátt er vænlegra til að skapa jafnvægi í peningamálum þjóð- arinnar en að til sé stofnun, er ávaxtar sjóði, er aldrei má skerða, heldur aðeins greiða af tiltekinn hluta ársvaxta. Stofn- unin er rekin fyrir irínstæðueig- endur, enda er nær öllum vaxta- tekjum Söfnunarsjóðsins skipt milli vaxtaeigenda, í hlutfalli við inneign þeirra. Söfnunarsjóðurinn hefur aldr- ei fengið einn einasta eyri af op- inberu fé, hvorki sem stofn né styrk, og skuldar því hinu opin- bera ekki neitt. Stofnandi Söfn- unarsjóðsins var hinn kunni gáfumaður og stærðfræðingur prófessor Eiríkur Briem og var hann forstjóri hans í 35 ár. Söfn- unarsjóðurinn ei ekki lánsstofn- un. í lögum um Söfnunarsjóð ís- lands, dags. 10. febr. 1888 segir í 2 gr.: „Tilgangur Söfnunarsjóðsins er að geyma fé, ávaxta það og auka, og útborga vextina um ókomna tíð, eftir því sem upphaflega er ákveðið, sem og til að styrkja menn til að safna sérstakri upp- hæð.“ Söfnunarsjóðurinn hefur tvisv- ar áður orðið fyrir árásum af hendi ríkisvaldsins (1935 og 1938) og í bæði skiptin orðið fyr- ii þungum búsifjum. Stofnunin óskar einskis annars í framtíð- inni en að fá óáreitt að rækja skyldu sína gagnvart þeim, sem trúa henni fyrir að ávaxta fé sitt. Reykjavík, 11. febr. 1957. V irðingarf yllst, Gunnlaugur Briem, forstjór- Söfnunarsjóðs íslands. Athí iba Verkfrceö/þjónusta TRAUSTYf Skóta vöröuslig Jð Simi 32624

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.