Morgunblaðið - 14.05.1957, Page 20

Morgunblaðið - 14.05.1957, Page 20
Veðrið A-stinningskalði, lítils háttar rigning síðdegis. 106. tbl. — Þriðjudagur 14. maí 1957. Námsflokkarnir Sjá bls. 11. MÁLGAGN Hermanns Jónassonar forsætisráðherra, Tíminn, birti á sunnudag frásögn af því að Sigurður Nordal muni brátt láta af sendiherrastarfinu í Kaupmannahöfn. Bætir blaðið því við, að glöggir menn hefðu hafið máls á þvi, að ekki sé rétt að skipa sendiherra í Kaupmannahöfn að nýju, fyrr en Danir hafa skilað handritunum. Auður sendiherrastóll muni minna Dani á að þeir eigi eftir að skila handritunum. AÐALFRETT DANSKRA BLAÐA Þessi ummæli blaðsins hafa að sjálfsögðu vakið feikilega at- hygli í Danmörku og hefur þetta verið aðalfrétt danska út- Formannarábstefnu Sjálfstæðisflokks- ins lokið FORMANNARÁÐSTEFNA Sjálfstæðisflokksins var eins og áður hefur verið skýrt frá, sett í Sjálfstæðishúsinu kl. 2 s.l. laugar- dag. Stóðu umræður allan þann dag fram til kl. 7, um skipulags- mál flokksins. Jafnframt voru gefnar skýrslur um flokksstarfsemina í einstökum landshlutum. Þessir menn tóku til máls á laugardagsfundinum, auk formanns flokksins og formanns skipulagsnefndar, Birgis Kjarans: Gunnar Bjarnason, Hvanneyri; Guðmundur Erlendsson, Núpi; Jónas Rafnar, Akureyri; Ólafur Bjarnason, Brautarholti; Þor- Birgir Kjaran flytur framsögu- ræðu sina um skipulagsmál flokksins. valdur G. Kristjánsson, Reykja- vík; Páll Kolka, Blönduósi; Bald- vin Tryggvason, Reykjavík; Sig- urður Pálmason, Hvammstanga; Ásberg Sigurðsson, ísafirði; Sveinn Jónsson, Egilsstöðum; og Magnús Jónsson, Reykjavík. SUNNUDAGSFUNDURINN Á sunnudaginn hófst fundur ráðstefnunnar kl. 1,30. Fóru þá enn fram umræður um skipu- lagsmál og síðan um stjórnmála- ályktun ráðstefnunnar. Þessir menn tóku til máls: Jón Bjarnason, Akranesi; Stein grimur Daviðsson, Blönduósi; Gísli Jónsson, Reykjavík; Jón ís- berg, Blönduósi; Birgir Kjaran, Reykjavík; Bjarni Benediktsson, Reykjavík; Jón Sumarliðason, Dalasýslu, séra Jónas Gíslason, Vík; Gunnar Sigurðsson, Selja- tungu; Karl Friðriksson, Akur- eyri; Sigurður Bjarnason frá Vigur; Þórður Halldórsson, Kefla vík; Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, Reykjavík; Gunnar Helga- son, Reykjavík; frú Kristín Sig- urðardóttir, Reykjavík; Friðrik Þórðarson, Borgarnesi; Einar Reynis, Húsavík; Magnús Jóns- son, Reykjavík; og Gunnar Thor- oddsen, Reykjavík. Að umræðunum loknum var stjórnmálaályktun miðstjórnar- innar afgreidd. Þá kvaddi Ólafur Thors for- maður Sjálfstæðisflokksins sér hljóðs og þakkaði mönn- um fyrir góða fundarsókn og ánægjulegar samvistir þá tvo daga, sem ráðstefnan hafði staðið. Sérstaklega þakkaði hann þeim, sem komnir voru langa vegu utan af landi til fundarins. Sagði hann ráð- stefnunni siðan slitið. Hafði hún í öllu farið hið bezta fram og sýnt mikinn einhug og áhuga Sjálfstæðis- manna á eflingu flokks sins. varpsins og birzt í dönsku blöð- unum með stórum fyrirsögnum. HERMANN AFNEITAR TÍMANUM I gær birti Berlingske Aften- avis símtal, sem blaðið átti við Hermann Jónasson forsætisráð- herra. í þessu samtali neitar Hermann algerlega að ríkisstjórn hans standi að baki þeirri hug- mynd sem Tíminn setur fram. Segir Hermann m. a.: — Tíminn verður sjálfur að bera alla ábyrgð á þessum um- mælum. ÍHUGAR FÆKKUN SENDIRÁÐA Hermann upplýsir hið danska blað um það, að ríkisstjórnin íhugi að leggja niður nokkur sendiráð, en engin ákvörðun um það hafi verið tekin, ekki heldur um sendiráðið í Kaupmanna- höfn. SJALFSTÆÐIS- FLOKKSINS DRAGIÐ ekki að gera skil fyrir þá miða sem yður hafa verið sendir. Einkum er áríðandi að þeir miðar sem ekki seljast berist af- greiðslu happdrættisins sem allra fyrst. Skilagrein verður sótt til þeirra sem þess óska. Afgreiðsla happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu er opin til kl. 6 daglega, sími 7100. □-------------------□ ÞAR SEM ríkisstjórnir íslands og Bretlands óska að efla þau bönd vináttu, sem tengja saman lönd þeirra, hafa ríkisstjórnirnar ákveðið að hækka sendiherra sína í London og Reykjavík í ambassa- dora. (Frá utanríkisráðuneytinu). Fundur formanna félaga ungra Sjálfsfœðismanna ASUNNUDAGINN var haldinn fundur formanna og fulltrúa félaga ungra Sjálfstæðismanna víðs vegar að af landinu. Var fundur þessi haldinn í sambandi við Formannaráðstefnu Sjálf- stæðisflokksins, sem stóð hér í Reykjavík laugardag og sunnudag. Nær 30 fulltrúar sóttu fundinn og voru rædd skipulagsmál ungra Sjálfstæðismanna. Jón ísberg, varaform. S.U.S. stjórnaði fundinum og bauð full- trúa velkomna til hans, í fjar- veru formanns, Ásgeirs Péturs- sonar. Gunnar G. áchram annar varaform. S.U.S. flutti skýrslu stjórnarinnar um starf hennar á undanförnu ári. Miklar umræður urðu um skipulagsmál Sambands ungra Sjálfstæðismanna og starfsemi hinna einstöku félaga. Tóku flestir fulltrúanna til máls. Þing Sambands ungra Sjálf- stæðismanna verður haldið í haust á Suðurlandi, en ekki hef- ur fundartíminn enn endanlega verið ákveðinn. Þessum bíl, G-1428, varð heldur illilega „fótaskortur“ á gömlu bryggjunni í Hafnarfirði um hádegisbilið í gær. Þetta er fimm manna Ford-bíll. Bílstjórinn var að snúa við á bryggjunni, er hemlamir biiuðu skyndilega og stakkst bíllinn aftur á bak niður i vélbátinn, sem í „sakleysi" sínu lá þarna við bryggjuna. Til allr. ai mildi var enginn maður staddur á þilfarinu, er hinn óvæntl gestur kom um borð. Fallið mun vera um þrjá metra, því fjara var. Þótt ótrúlegt sé, slasaðist bílstjórinn ekkl. Bíllinn er ekki mikið skemmdur og báturinn ekki heldur. Mjóu munaði þó að stálstólpi sem er á þilfari bátsins, notaður til að styðja fiskgrindur, rækist inn um glugga bílsins er hann kom niður á þilfarið, þeim megin sem bílstjórinn var. (Ljósm. Studio), Um 1000 stúlkur í Kven- skátafélagi Reykjavíkur Auður Garðarsdóttir kjörin félagsforingi í deildir og starfa nú 7 deildir, sem verða staðsettar eftir skóla- hverfum bæjarins. Aðalvanda- málið nú er að finna viðeig- andi húsnæði í úthverfum bæjar. ins, sem hentug gætu orðið til fundahalda, einkum handa þeim yngri. Yfir 20 skátastúlkur úr K.S.F, R. munu sækja alheimsmót kven skáta í Englandi á sumri kom. andi, en í allt verða um 60 ísl, skátastúlkur þátttakendur. Sumarstarf hefst þegar próf. um er lokið i skólunum. FYRIR SKOMMU var haldinn aðalfundur Kvenskátafélags Reykjavíkur. Sátu hann 110 flokks- og sveitarforingjar auk stjórnar. Félagið telur nú um 1000 meðjimi. Hefur starfið auk- izt mjög hin síðari ár og stend- ur nú með miklum blóma. Sér- staklega þetta sl. ár hefur áhugi stórum aukizt og má áreiðanlega einkum þakka það heimsókn Lady Baden Powell s.l. sumar og hátíðahöldunum í sambandi við 100 ára afmæli stofnandans Bad- en Powells í febr. sl. Sú breyting hefur orðið, að Hrefna Tynes, sem verið hefur félagsforingi sl. 10 ár hefur látið af störfum en í hennar stað verð ur Auður Garðarsdóttir félags- foringi. Einnig var félaginu skipt SIGLUFIRÐI, 13. maí: — 1 gær voru fermd 40 börn hér á Sglu- firði og næsta sunnudag verða fermd 35 bórn. Var fermingunni tvískipt vegna þess hvað börnin voru mörg. — Guðjón. Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna og formenn og fulltrúar félaga ungra Sjálfstæðismanna, sem fundinn sátu. — Ljósm. Studio. Hermann Jónasson vill ekki hera ábyrgð á orðum Tímans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.