Morgunblaðið - 02.06.1957, Side 2
2
M O R C UIV B L 'A Ð1Ð
Sunnudagur 2.júní195?
Ljómondi falleg tízkusýning
Lítil breyting á tizkunni siðan i haust
en hún er nú hentugri og klæóilegri
en nokkru sinni fyrr
SL. LAUGARDAG efndu tvær
tízkuverzlanir hér í Bæ, hattaverzl
unin „Hjá Báru“ og: kvennfata-
verzlunin „Guðrún“ til tázkusýn-
ingar í Sjálfstæðishúsinu. Húsið
var þéttsetið áhorfendum og kom-
ust færri að en vildu. — Sýning-
in var hin prýðilegasta í alla
staði. — Kynnir á sýningunni var
Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur.
— Smekklegar skreytingar á svið-
inu og í salnum annaðist hinn
kunni blómaskreytingamaður, hr.
Foged í Hrauni í Bankastræti.
LÍTIL BREYTING
1 upphafi gat Sveinn þess að
litlar breytingar hefðu orðið á
hattatizkunni síðan í haust, —
helzt hefðu síðan þá komið á sjón-
arsviðið barðastórir hattar, sem
væru óhentugir hér á landi vegna
loftslagsins. Litur sumarsins er
„ljósdrapp" og mikið er í tízku að
skreyta hattana með margvísleg-
um blómum, og þá einnig lifandi
blómum.
FÖCUR SÝNING
Sýningin í heild var í einu orði
sagt dásamiega falleg. — Fyrst
voru sýndar nokkrar svissneskar
kápur, sem komið höfðu til lands-
ins á laugardag. Voru þær sérlega
smekklegar. Sérstaka athygli vakti
dökkblár „jersey" frakki, með
hvítu uppbroti á ermunum og með
hvítum hatti úr sama efni.
Kjólarnir voru bæði hentugir
dagkjólar, sumarkjólar í hinum
ýmsu litum, og kvöldkjólamir
einkar smekklegir. Sérstaka at-
hygli vakti milliblár kvöldkjóll úr
„jersey“ efni, var hann svo hag-
anlega gerður að efnið leit út eins
og það væri „chiffon".
Kjólarnir eru allir frá Guðrúnu
nema brúðarkjóllinn frá Báru.
Hattarnir voru einkar klæðileg-
ir flestir úr silki pan efni, og
einnig úr strái, í öllum regnbog-
ans litum. Mest bar á ljósdrapp,
þá rauðu, gulu, hvítu og svörtu.
Þá var sýndur lítill en snotur
hattur sem gerður var úr lifandi
blómum, rósablöðum, nellikkum o.
Samþykkt tillaga um cndur-
hcimt hundritonna
Á SÍÐASTA fundi Alþingis sl.
föstudag afgreiddi það þings-
ályktunartillögu þeirra Péturs
Ottesen og Sveinbjarnar Högna-
sonar um endurheimt íslenzkra
handrita frá Danmörku, sem þeir
fluttu fyrir alllöngu á þessu
þingi. Nefndin gerði lítils háttar
breytingar á tillögunni, en enga
efnisbreytingu.
Tillagan var samþykkt frá Al-
þingi svohljóðandi með 45 sam-
hljóða atkvæðum:
Alþingi ályktar í samræmi við
fyrri samþykktir um endurheimt
íslenzkra handrita úr dönskum
söfnum að skora á ríkisstjórnina
að beita sér fyrir því við dönsk
stjórnarvöld, að skilað verði aft-
ur hingað til lands íslenzkum
handritum, fornum og nýjuno,
sem borizt hafa héðan til Dan-
merkur og geymd eru í söfnum
þar, svo sem safni Árna Magnús-
sonar. Tekur þetta einnig til
þeirra íslenzka handrita, er koh-
ungur landsins hefur fengið héð-
an fyrr á tímum og enn eru varð-
veitt í Danmörku.
Þessi kvöldkjóll er úr Ijósbleiku
organdy, alsettur Iitlum hvít-
utn blótnum. Ljómandi falleg-
ur. — Hatturinn er úr bleiku
strái, sérstaklega klæðilegur.
fl., af hr. Foged og hefur slíkt
ekki sézt fyrr hér á tízkusýningu.
Þá voru einnig sýndir, í fyrsta
sinn hér á landi hattar fyrir
yngstu dömurnar, — 8 til 9 ára
gamlar. Sýndu þá tvær litlar stúlk
ur, sem ungur herramaður leiddi
Landhelgismólin í athugun
hjd ríkisstjóininni
Einkar fallegur sumarkjóll úr
rósóttu efni. Takið eftir sér-
kennilegum hattinum sem er
úr grænleitu strái.
1 FYRRADAG á síðasta fundi
Sameinaðs þings kvaddi Pétur
Ottesen sér hljóðs utan dagskrár
og spurðist fyrir um hvað
ylli því að tillaga hans til
þingsályktunar um verndun
fiskimiða umhverfis ísland hefði
ekki verið tekin til afgreiðslu í
allsherjarnefnd, en nefndin hefði
afgreitt öll önnur mál sín. Til-
laga þessi er um það að Alþingi
lýsi yfir þeim vilja sínum að
sjávarútvegsmálaráðherra setji
ekki síðar en að loknu yfirstand-
andi þingi Sameinuðu þjóðanna
reglugerð er ákveði 12 mílna
landhelgi.
Lúðvík Jósefsson svaraði því
til að mál þetta væri nú í athug-
un hjá rikisstjórninni og hefði
nefndin tvívegis rætt við sig um
málið. Kvað hann nú vera stadd-
an hér á landi þann mann, sem
lengst hefði verið ríkisstjórninni
Alþingi lauk svo ú utanríkismála-
nefnd kaus ekki lögskipaða undir-
nefnd til ráðgjafar ríkisstjórninni
Fyrirspurn Bjarna Benediktssonar
til ráðuneytis í þessu máli. Kvað
ráðherrann ekki ástæðu til þess
að samþykkja tillögu í þessu
formi, heldur væri nægilegt að
afgreiða málið með auglýsingu
eins og dæmi væru til að áður
hefði verið gert. Kvað Lúðvík
þetta vera ástæðuna til þess að
nefndin hefði ekki afgreitt þetta
mál.
Gilbert Mwray
um salinn. Voru þær í sumarklæðn
aði, með hatt og tilheyrandi tözku
fyrir sinn aldursflokk.
Þetta unga fólk hélt uppi slöri
brúðarinnar, sem inn kom síðust.
Brúðarkjóllinn og búnaður allur
var sá fallegasti sem sézt hefur á
sýningu hér og brúðurin hin tígu-
legasta.
Sýningarstúlkurnar voru Rúna
Brynjólfsdóttir, Elsa Breiðfjörð,
Elín Ingvarsdóttir, Rannveig Vig-
fúsdóttir og Svanhvít Ásmunds-
dóttir. Þær eru nú allar orðnar
þaulæfðar í starfinu. En fru Bára
Sigurjónsdóttir hefur þjálfað
stúlkurnar og snyrti þær fyrir
sýninguna.
Eiga þær Guðrún Stefánsdóttir
og Bára Sigurjónsdóttir þakkir
skilið fyrir tízkusýningar sínar,
sem nú eru orðnar fastur liður í
bæjarlífinu og enginn vill missa
af. — A. Bj.
Brúðurin í skarti sínu.
látinn
A FUNDI Sameinaðs þings í
fyrradag kvaddi Bjarni Bene-
diktsson sér hljóðs og spurðist
fyrir um það hverju það sætti
að utanríkismálanefnd hefði ekki
kosið sér undirnefnd þá sem lög-
boðið er að skuli vera ríkisstjórn
inni til ráðuneytis í utanríkismál-
um. Benti hann á að ef ríkis-
stjórnin teldi sig ekki þurfa á
aðstoð nefndarinnar að halda, þá
væri ákvæðið numið úr lögum,
en þar sem það væri enn í gildi
væri ekki fært að slíta svo þingi
að nefndin væri ekki kosin.
Ólafur Jóhannesson varð fyrir
svörum og kvaðst ekki hafa feng-
ið tilefni til að kalla nefndina
saman, síðán hann hefði tekið
við störfum Steingríms Stein-
þórssonar á þingi, en hann hefði
verið formaður nefndarinnar.
Bjarni Benediktsson benti á að
hann hefði fyrir nokkru hreyft
þessu máli í Sameinuðu þingi og
þá hefði fyllilega gefizt tækifæri
til þess að kalla nefndina sam-
an. Kvað hann nefndina aðeins
einu sinni hafa verið kallaða
saman og þá til þess að kjósa
sér formann, en þá hefði verið
látið undir höfuð leggjast að
kjósa undirnefndina, sem þó væri
bein lagaskylda.
2. deildaikeppni
MÁNUDAGINN 3. júní hefst
keppni 2. deildar hér í Reykjavík
og leika þá Víkingur — iþrótta-
bandalag Keflavíkur. Verður leik
ið á Malarvelli og hefst leikur
inn kl. 20.30 Nú eru 2 af Reykja-
víkurfélögunum með í þeirri
keppni og munu þau kappkosta
að komast upp í 1. deild aftur,
en róðurinn verður þungur því
að með Víking og Þrótti í þess-
um riðli eru sterk lið frá Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Sand-
gerði.
Næsti leikur verður miðviku-
daginn 5. júní og eigast þá við
Þróttur og Víkingur, og ef til vill
verður það úrslitaleikur riðilsins.
LONDON: — Nýlega er látinn
í London hinn frægi brezki fræði-
maður dr. Gilbert Murray, 91 árs
að aldri. Hann var einn þekktasti
fræðimaður þessarar aldar í
grískri sögu og menningu. 23 ára
gamall var hann skipaður próf-
essor í grísku við háskólann í
Glasgow, en varð síðar aðalkenn-
ari í grískum fræðum við Ox-
ford-háskóla. Frægastur hefur
Murray orðið fyrir þýðingar sín-
ar á leikritum Evripidesar og fyr-
ir bækur sínar um þetta merka
harmleikskáld Hellena.
Viljo ió útvaip
í vngnana
STRÆTISVAGNASTJÓRAR
hafa sent bæjaryfirvöldunum
bréf þar sem þeir fara fram á
það að útvarpsviðtæki verði sett
í vagnana, til afnota fyrir vagn-
stjórana.
Máli þessu var ekki að þessu
sinni vísað til strætisvagnafor-
stjórans, heldur til umferðarmála
nefndar, þar eð rétt var talið að
fá álit hennar á þessu.
JurtakynbótasKð
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn, var samþykkt
með 4 atkv. gegn 1, að ætla jurta-
kynbótastöð Atvinnudeildar há-
skólans allt að 20 ha. svæði úr
landi Korpúlfsstaða austanverðu,
eftir nánari útvísun bæjarverk-
fræðings, er ákveður leiguskil-
mála og setur önnur skilyrði.
Leigutími verði ekki meiri en 7
ár. Byggingar á landinu eru háð-
ar samþykkt bæjarráðs og bygg-
ingarnefndar.
Guðm. Vigfússon greiddi at-
kvæði á móti ályktuninni.
Fyrirlesfur um
umbúðir og pökkun
HINN 10. iúr.r næstkomandi eru
væntanlegir. til landsins, á vegum
Iðnaðarmálastoínunar Islands,
tveir erlendir sérfræðingar í pökk
unarmálum og munu þeir flytja
hér fyrirlestr.. og heimsækja fyr-
irtæki í leiðbeiningarskyni.
Menn þessir eru Hollendingur-
inn Cornelius Hillenius, sem veit-
ir forstöðu hollenzkri rannsóknar-
stofnun á sviði pökkunar, og
Bandaríkjamaðurinn Bernard
John Bolter, sem er sérfræðingur
í vöru- og umbúðateiknun.
Þeir félagar starfa um stundar-
sakir á vegum Framleiðniráðs
Evrópu (EPAOEEC) og koma
hingað með tilstyrk þeirrar stofn-
unar, eins og margir erlendir sér-
fræðingar, sem hingað ha x komið
í seinni tíð. Ráðunautarnir hafa
þegar heimsótt Danmörku, Þýzka-
land, Ítalíu og Noreg og flutt þar
fyrirlestra og veitt leiðbeiningar
að beiðni þessara landa. Hafa þeir
getið sér góðs orðstírs alls staðar.
Önnur lönd, sem óskað hafa eftir
heimsókn ráðunautanna, eru Aust-
urríki, Grikkland, Holland, írland,
Svíþjóð og Tyrkland.
í flestum iöndum er pökkun gef-
inn vaxandi gaumur, og eru víða
starfandi samtök. eða stofnanir,
sem sérstaklega vinna að rann-
sóknum í þágu bættrar pökkunar,
ekki aðeins að því er varðar efni
og tegundir umbúða, aðferðir o. þ.
h., heldur einnig með hliðsjón af
sölu- eða auglýsingagildi þeirra,
flutningum, kostnaði o. s. fry. Sér
stakt pökkunarsamband Evrópu
(European Packaging Federa-
tion) er starfandi, og eru flest
OEEC-löndin 1 því.
Fyrir Islendinga hefur pökkun
mikið gildi, og nægir í því sam-
bandi að benda á, að mikill hluti
þjóðarframleiðslunnar er matvæli,
sem seld eru ýmist á erlendum
eða innlendum markaði í umbúð-
um, sem kosta mikið fé og eiga
mikinn þátt í að afla framleiðslu
vorri vinsælda eða öfugt, eftir því,
hvernig á málunum er haldið. — 1
iðnaði okkar, öðrum en matvæla-
iðnaði, er pökkun einnig .rðin hin
mikilvægasta, m. a. vegna sam-
keppni erlendra umbúða, að því er
varðar sölu- og auglýsingagildi.
Loks má geta þess, að sjálfsaf-
greiðsluþróunin gerir nýjar kröf-
ur til pökkunar.
Hinir erlendu sérfræðingar
munu ræða, í fyrirlestrum sinum,
hin ýmsu atriði pökkunar, sem hér
hefur verið drepið á, og nota jafn-
framt skuggamyndir og aðrar
skýringarmyndir eftir föngum.
Fyrirlestrarnir verða haldnir
dagana 11., 12. og 13. júnf í fund-
arherbergi Iðnaðarmálastofnunar-
innar í Iðnskólanum kl. 16—19
alla dagana. Þátttöku þarf að til-
kynna til IMSÍ eigi síðar en 5.
júní. Þátttökugjald verður krónur
250,00 og er þá reiknað með, að
ráðunautarnir heimsæki ókeypis
fyrirtæki þátttakenda, sem þess
óska, til að ræða umbúðir þeirra
og pökkunarvandamál, enda séu
slíkar óskir bornar fram, áður en
frestur til að tilkynna þátttöku
rennur út. Ráðunautarnir munu
dveljast hér á landi í tvær vikur.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á
ensku, en ráðgert er, að þeir verði
túlkaðir jafnharðan í gegnum
heynartól fyrir þá, sem þess óslca.
Búizt er við all-mikilli þátttöku,
enda snertir þetta viðfangsefni
mörg svið, og má í því sambandi
t.d. nefna flestar greinar iðnaðar,
að fiskiðnaði meðtöldum, dreifingu
landbúnaðarafurða og annarra af-
urða, umbúðateiknun og umbúða-
framleiðslu.
Gullhiingui
tupaðist
í GÆR tapaðist, í námunda
við Morgunblaðshúsið, gull-
hringur með plötu, ætlaður
sem signet-hringur- Finn-
andi er vinsamlega heðinn
að skila hringnum til af-
greiðslu Morgunhlaðsins,
gegn góðiun fundarlaunum.