Morgunblaðið - 30.06.1957, Page 1
; 1 "».. ipywiij.ii1'.
\:.i:
? v-\ ..
v
'■!-■■■■■ í:wí:sís
W<N A.x
■m
Kouungshjónin í fylgd með foisetahjónunum ganga framhjá heið ursverði lögreglumanna. — (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Þegar þjóðsöngur Svía hljómaði á flur*
veilinum hrauzt sólin fram úr skýjunum
Mannfjöldi fagnaði sænsku konungs-
hjónunum og söngvarar hylltu þau
t'ÁNUM SKREYTT fagnaði Reykjavík í gær hinum
tignu gestum þjóðarinnar, Gustav VI. Adolf Svía-
konungi og Louise drottningu. Konungsflugvélin „Arn-
grim Viking“, með sænska konungsfánann í stafni, settist
á Reykjavíkurflugvöll stundvíslega klukkan 3 síðdegis.
Gott veður var, en þá stundina sem flugvélin var á lofti
yfir bænum og settist, var sólarlaust, hægur sunanand-
vari, og hlýtt veður. — Skömmu síðar birti upp og brutust
sólargeislarnir fram úr skýjaþykkninu. Konungsflugvélin,
sem var frá skandinaviska flugfélaginu S.A.S., hafði fengið
mjög hagstæðan byr yfir hafið. Hafði konungur orð á því
við nærstadda á flugveliinum að flugferðin hefði í alla
staði verið hin ánægjulegasta. Á flugvellinum var mann-
fjöldi samankominn, er forseti íslands og forsetafrúin
buðu gestina velkomna. Konungur var glaður og reifur,
tiginn og virðulegur í senn og ber hann háan aldur mjög
vel. Móttökumar í gær báru vott gleði þjóðarinnar yfir
komu sænsku konungshjónanna. Einlæg hylling mann-
fjöldans er konungshjónin komu fram á svalir Ráðherra-
bústaðarirfs, sýndi glögglega þann hlýhug sem íslendingar
bera til sænsku bræðraþjóðarinnar og þjóðhöfðingja hennar.
Nokkru áður en hin konung-
lega flugvél settist var verið að
ljúka síðasta undirbúningi að
móttökunum. Verið var að leggja
hinn hárauða dregil út að flug-
vélinni og voru menn önnum
kafnir. Skammt frá hinum ný-
málaða flugstjórnarturni á flug-
vellinum, stóðu bruhabílar og
sjúkrabílar voru til taks. Við
afgreiðsluhús Loftleiða söfnuðust
biaðamenn og ljósmyndarar. Þar
í hópnum voru sænskir blaða-
menn fjölmennastir. Þá var þar
fréttastjéri útvarpsins, Jón
Magnússon sem lýsti því er fram
fór og annar frá sænska útvarp-
inu. Náungi einn frá amerísku
fréttamynda- og sjónvarpsfyrir-
tæki, UP-Fox, sagði að frétta-
mynd af komunni myndi verða
sýnd í kvikmyndahúsum í París
og fleiri Vestur-Evrópuborgum
og einnig í Suður-Ameríku og
Tokíó, á mánudagskvöldið. —
Sænsku blaðamennirnir spurðu
mikið um það sem fyrir augu
bar: — Hvað heita fjöllin þarna
langt í burtu, og hvað heitir svosuðvesturloftinu. Um líkt leyti
þetta, og áttu þá við Reykjanes-
fjallgarð og Esjuna. — Ljós-
myndararnir voru stöðugt með
ljósmælana á lofti, því hér mátti
ekkert mistakast hjá neinum.
Allt í einu barst frá flugstjórn-
arturninum karlmannleg rödd
sem sagði frá þvi, að flugvél
sænsku konungsfjölskyldunnar
væri yfir Seltjarnarnesi, ofan
skýja, en myndi nú lækka flug-
ið. Klukkuna vantaði 7 mín. í
3, er flugvélin birtist á skýjuðu
tok að rigna, en skúraleiðingar
voru í gær. Fyrr en varði hætti
þó að rigna.
Flugvélin flaug í stórum boga
yfir bæinn og gafst þá konungs-
hjónunum tækifæri til að sjá
höfuðborgina úr lofti. Þetta
var í fyrsta skiptið, sem drottn-
ingin leit hana augum, en kon-
ungur hafði komið hingað á Al-
þmgishátíðina 1930, þá krónprins,
en síðan hefur bærinn gerbreytzt.
Meðan flugvélin var yfir bæn-
um gengu forsetahjónin út á flug-
völlinn og þeir aðrir, er viðstadd-
ir voru komu konungshjónanna,
ráðherrar og embættismenn, og
voru í hópnum tvær konur, þær
frú Auður Auðuns bæjarstjórnar-
forseti og frú Sigrún ögmunds-
dóttir. Nú gekk einnig fram 18
manna heiðursvörður lögreglu-
manna undir stjórn Erlings Páls-
sonar. — Mannfjöldi var við girð-
inguna umhverfis móttökusvæð-
ið. —
Framh. á bls. 2
Konungsfylgdin ckur aff Ráðherrabústaðnum.
(Ljósm.: Mbl. Ól. K. M.).