Morgunblaðið - 30.06.1957, Side 3
Sunnudagur 30. júní 1957
MORCVNBLAÐIÐ
1
þessari góðu gjöf og þeim vinar-
hug, sem hún lýsti.
Klukkan 3.40, eða þar um bil,
komu sænsku konungshjónin
fram á suð-vestur svalir Ráð-
herrabústaðarins og voru hyllt af
mannfjöldanum. f fylgd með
þeim voru forsetahjónin. Þegar
þetta gerðist, hafði sameiginleg-
ur kór úr Fóátbræðrum og Karla-
kór Reykjavíkur tekið sér stöðu
á Tjarnargötunni og söng hann
nokkur íslenzk og sænsk lög,
þ. á m. sænska konungssönginn,
undir stjórn Ragnars Bjömsson-
ar og Páls ísólfssonar. Síðan var
hrópað ferfalt húrra fyrir kon-
Ungi og drottningu Svíþjóðar.
Þegar karlakórinn hafði lokið
söng sínum, kom konungur út á
götuna og þakkaði hann kórn-
um og söngstjónmum. Forseti
Islands var í fylgd með konung-
inum, og röbbuðu þeir saman
stundarkorn á gangstéttinni, en
einnig ræddi konungur kumpána-
lega við söngstjórana, spurði m.a.,
hvort kórarnir hefðu farið í söng
för til Svíþjóðar. Söngstjórarn-
ir gátu frætt konung um, að svo
hefði verið. Fór hið bezta á með
þeim, enda er konungur vingjarn
legur maður og augsýnilega
fróðleiksfús. Á meðan konungur
og forseti voru þarna á stétt-
inni, klappaði mannfjöldinn fyr-
ir þeim og var mikill ákafi í
mönnum að missa ekki af þessu
minnisstæða augnabliki. Kon-
ungur tók kveðju fólksins, veif-
aði til þess og brosti góðlát-
lega, en gekk svo ásamt forseta
inn í Ráðherrabústaðinn aftur.
Héldu þá allir, að athöfninni
væri lokið, og lögðu margir af
stað heim. En þá kom konungur
enn fram á svalir Ráðherrabú-
staðarins, í þetta sinn á norð-
austur svalirnar, og var þar
hylltur af mannfjöldanum.
Nokkru síðar kom drottning
hans einnig fram á svalirnar og
iauk svo þessari athöfn með því,
að konungur og drottning Sví-
þjóðar voru hyllt af fagnandi
mannfjölda sem minnist lengi há-
tíðlegrar stundar með alþýðlegu
konungsfólki.
Ilmandi orkideur skreyttu borb bióð-
höfðingjanna i kvöldveizlunni
í GÆRKVÖLDI hélt forseti ís-
L lands konungshjónunum
sænsku veglega veizlu að Hótel
Borg. Sátu hana um 160 manns
og báru flestir heiðursmerki. Við
þetta tækifæri fluttu þjóðhöfð-
ingjarnir ræður, sem birtar eru
annars staðar í blaðinu.
Þess má geta, að veizlusalurinn
var fagurlega skreyttur og allur
undirbúningur hinn bezti. Lagði
starfslið Hótel Borgar og skreyt-
ingarmenn mikla vinnu í undir-
búninginn, og er óhætt að segja,
að veizlusalurinn hafi verið til
sóma. Enda var það svo, að hirð-
Háborðið var við suðurvegg, og
var það skreytt með hinum feg-
urstu blómum. í vösum voru
gular rósir og blótt íris ásamt
léttum sumarblómum. Stærsta
skálin var fyrir framan konung
og forseta, en þar voru einnig
nokkrar dýrmætar orkideur, lilla
bláar að lit. Er þetta í fyrsta
skipti sem veizluborð er skreytt
með þessum fögru og dýrmætu
blómum hér á landi, en ástæðan
mun vera sú, að Svíakonungur
hefir sérstakar mætur á þessu
blómi. — Á öðrum borðum voru
um 30 sm. háir blómavasar með
Övíst um
Forsetafrúin og drottningin við Hótel Borg í gærkvöldi.
næsfta fund
SÁTTAFUNDURINN í fyrrinótt
stóð til klukkan um 3,30. Þegar
sáttanefndin sleit fundi, var um
það rætt að fundúr yrði í gær,
en til hans hafði ekki verið boðað
þegar síðast fréttist. Fundurinn
í fyrrinótt varð árangurlaus.
mey drottningar, Steuch, lét í
ljós ánægju sína með skreyting-
arnar, þegar hún leit sem snöggv-
ast inn í veizlusalinn í gærdag.
Sagði hún, að skreytingarnar
væru hinar fegurstu. — Verður
nú salnum lýst í stuttu máli:
(Ljósm.: Mbl. Ól. K. M.).
rauðum, gulum og hvítum rós-
um. — Á suðurveggnum var
tjaldað royalbláu „velourtjaldi",
sem var skreytt með fimm fögr-
um blómvöndum. Á norður-
veggnum voru sænsku fánalitirn-
ir, en á hliðarveggjunum voru
sænskir og íslenzkir fánar bundn
ir saman með blómvöndum. Mót-
tökusalir voru einnig skreyttir
með blómvöndum.
Þjónarnir voru í kjólfötum, en
þjónustustúlkurnar í svörtum
kjólum með hvíta kappa á höfði.
Kvöldverðurinn var sem hér seg-
ir: fyrst var borið inn skjald-
bökuseyði og með því drukkið
Dry Sack Sherry, síðan reyktur
lax með spínati og hrærðum
eggjum. Með laxinum var
drukkið franskt hvítvín frá
1948. Aðalrétturinn var lamba-
hryggur með grænmeti, árstíðar-
salati og compot. Chateau Leo-
ville rauðvín frá 1948 var drukk-
ið með honum. Síðan var borinn
fram ís og með honum drukkið
franskt kampavín. Að lokum
fengu gestir kaffi og líkjör. —
Meðan gestirnir drukku kaffi
frammi í fremri salnum voru
þeir kynntir fyrir konungi, sem
átti við þá óformlegar viðræður.
Jóhannes Jósefsson
heiðraður
Svíadrottning Louise heilsar forsetafrúnni við dyr Hótel Borgar.
FORSETI fslands hefur í dag, að
tillögu orðunefndar, sæmt Jó-
hannes Jósefsson, hóteleiganda,
fyrsta formann Ungmennafélags
íslands, riddarakrossi fálkaorð-
unnar.
Forsíðumynd heftisins New Sheet-
Þorir Þórðarson, dósent:
Góðir gestir
LANGHOLTSSÖFNUÐ í Reykja-
vík sóttu heim góðir gestir
skömmu fyrir helgina. Þeir eru
tæpir tveir tugir ungra manna og
kvenna frá Danmörku, Svíþjóð,
Þýzkalandi, Bretlandi, Hollandi
og Bandaríkjunum, sem ætla að
vinna sjálfboðavinnu við bygg-
ingu Langholtskirkju um mán-
aðar tíma ásamt fimm islenzkum
stúdentum og þeim safnaðar-
mönnum Langholtssafnaðar, sem
kynnu að bjóða fram frístunda-
vinnu sína.
Reykvíkingar bjóða þessa er-
lendu gesti og kristnu bræður
velkomna ti.1 bæjarins. Þeir eru
hingað komnir til þess að rétta
hjálparhönd í starfi fyrir kirkju
Krists á íslandi með því að leggja
fram vinnu handa sinna og með
því að efla um leið kynni Lang-
holtssafnaðar af þróttmiklu starfi
kirkjunnar með nágrannaþjóð-
unum.
Þessir góðu gestir eru hingað
komnir fyrir milligöngu og til-
stilli alkirkjuráðsins, sem hefir
bækistöðvar í Genf í Svisslandi.
Alkirkjuráðið er nú orðið 9 ára
gamalt en á sér rætur tæplega
hálfrar aldar sögu. Alkirkjuhreyf
ingin vill efla samstarf og sam-
stöðu hinna ýmsu kirkjudeilda
um málefni kristindómsins, að
kirkja Krists megi vakna til
starfs og endurnýjast í trú á
Drottin sinn og frelsara, Jesúm
Krist. Takmark hennar er ekki
það að steypa kirkjudeildum sam
an og stofna nýtt páfadæmi.
Hver einstök kirkjudeild á þann
arf, sem henni ber að varðveita
og miðla öðrum af. Hreyfingin
hefir komið á fót umræðum og
þingum, í því skyni að menn
gætu lært hver af öðrum, miðl-
að hverir öðrum af reynslu sinni,
hún hefir leitazt við að auka
þekkingu og skilning einnar
kirkju á annarri. • Hefir af starfi
þessu hlotizt merkt samstarf um
kirkjumál, mannúðarmál og
kristniboð, enda var fyrsta upp-
haf alkirkjuhreyfingarinnar það,
að menn komu saman í Edinborg
árið 1910 til þess að stofna sam-
band nokkurra kirkjudeilda um
kristniboð.
Ein af deildum alkirkjuráðsins
í Genf fer með æskulýðsmál.
Vinnuflokkastarfsemin er ein
grein þeirra og í ár vinna um
1000 manna í vinnuflokkum í 50
löndum. Skrifstofur alkirkjuráðs
ins skipuleggja vinnufllokka í
öllum álfum heims í samráði við
kirkjulega aðila í hverju landi,
taka við umsóknum ungra manna
og kvenna og senda þá þangað,
sem þörf krefur, þó ekki lengra
en svo, að hver hafi ráð á því
að kosta sína för sjálfur, e.t.v.
með lítils háttar tiistyrk alkirkju
ráðsins, og greiðir auk þess hver
þátttakandi með sér litla upp-
hæð fyrir hvern dag, sem hann
er í vinnuflokknum, ef efni
leyfa.
Vinnuflokkastarfsemin hófst
eftir síðustu heimsstyrjöld á því,
að bandarískir æskumenn kristn-
ir héldu til Evrópu til þess að
hjálpa til við uppbyggingu í
þeim löndum, sem harðast urðu
úti í styrjöldinni. Á undanförn-
um árum hefur verið unnið að
hinum óskyldustu verkefnum.
Einn flokkur 23ja manna aðstoð-
aði við byggingu alþjóðlegs heim-
ilis fyrir bækluð börn í Nýsted
í Danmörku, annar 26 manna
flokkur vann ásamt nokkrum
holdsveikum mönnum við bygg-
ingu holdsveikrahælis í Bethel í
Þýzkalandi og lagði auk þess veg
að flóttamannahæli. 28 manna
flokkur gróf grunn og lagði und-
irstöður grískrar kirkju, sem
eyðilagzt hafði í hernaði í þorp-
inu Lefkohori á Grikklandi. í
Betlehem í Jórdaníu gerði 18
manna flokkur leikvöll fyrir
munaðarlaus börn lúthersks
munaðarleysingjahælis, í Taegu
í Kóreu byggði 50 manna flokkur
svefnskála fyrir 20 námsmenn við
kristilegan skóla þar, í Pedra
Sonora í Brasilíu byggði 32ja
manna flokkur kristilegt tóm-
stundaheimili, — og svo mætti
lengi telja.
f vinnuflokkum þessum er unn
ið 6 klukkustundir á dag alla
virka daga og frístundum varið
til guðrækniiðkana, biblíulestra,
umræðna um margvísleg áhuga-
efni og til hollra skemmtana.
Takmark starfsins er ekki ein-
göngu erfiðisvinnan heldur einn-
ig andleg uppbygging einstakl-
inganna og þess safnaðar, sem
vinnuflokkurinn starfar með.
Það er von þeirra, sem nú
sækja oss heim, að heimsókn
þeirra mætti verða til þess að
enn fleiri safnaðarmenn Lang-
holtssafnaðar fengju áhuga á
kirkjulegu starfi. Færi vel á
því, að safnaðarmenn í Lang-
holtssöfnuði slægjust í hópinn og
legðu fram sjálfboðavinnu við
kirkjubygginguna á meðan flokk
urinn dvelst hér og strengdu
þess heit að koma þeim hluta
byggingarinnar upp fokheldum
fyrir haustið, sem ráðgert er að
byggja í þessum áfanga.
Byggingarnefnd Langholtssafn
aðar og safnaðarnefnd hafa unnið
að því með góðum árangri að
búa svo í haginn, að vinna ófag-
lærðra sjálfboðaliða mætti nýt-
ast á ákjósanlegan hátt. Þegar
vinnuflokkurinn hóf að vinna nú
fyrir helgina, biðu hans nægileg
verkefni, sem ófaglærðra manna
er þörf við. Þetta undirbúnings-
starf er ef til vill hið allra þýðing
armesta til tryggingar því, að
tilraun þessi muni hafa beina
kostnaðarlækkun í för með sér
fyrir söfnuðinn, og skyldu ‘þeir
athuga þennan þátt málsins, sem
hafa í hyggju að koma á fót
sjálfboðavinnu 1 vinnuflokkum
við kirkjubyggingar hér á landi 1
framtíðinnni, því að vonandi verð
ur þetta aðeins fyrsti en ekki
síðasti vinnuflokkurinn, sem hér
lendur söfnuður stofnar til.