Morgunblaðið - 30.06.1957, Page 12

Morgunblaðið - 30.06.1957, Page 12
tt MORCVNBL4ÐIÐ Sunnudagur 30. júní 1957 SA i i ustan Edens eftir John Steinbeck 69 I „Nú jæja, vertu þá kyrr. En talaðu ekki við mig. Gerið þér svo vel að fara með lampann og loka hurðinni á eftir yður“. — Síðustu orðunvun var beint til Samúels. Samúel gekk aftur fram í stof- una. Hann setti lampann á borð- ið, við hliðina á körfunni og leit á litlu, sofandi tvíburana. Þeir sváfu léttum, lausum svefni. — Samúel strauk með vísifingrin- um yfir heitu ennin. Annar tví- burinn opnaði munninn og geisp- aði letilega, án þess ag vakna til fulls. Samúel sneri sér við, opnaði útidyrnar og gekk út á hlaðið. Kvöldstjarnan blikaði svo skært, að það var því líkast sem hún breyttist í logandi blys, sem brann hægt og dvínaði samtímis því, er hún smá lækkaði á himni og hvarf loks að baki vestur- fjallanna. Það bærðist varla hár á höfði og Samúel fann hinn kunnuglega salvíuilm í loftinu, sem jafnan fylgdi sólríkum degi. Nóttin var niðamyrk. Samúel hrökk við, þegar rödd barst o---------------------□ Þýðing Sverrii Haraldsson □---------------------□ skyndilega til hans, utan úr myrkrinu. „Hvernig líður henni?“ „Hver er þar?“, spurði Samúel. „Það er ég — Kabbit“. Mað- urinn kom nær og sást ógerla í skímunni frá opnum dyrunum. „Eigið þér við móðurina, Rabbit? Jú, henni liður ágæt- lega“. „Lee sagði, að það hefðu verið tvíburar". „Já, rétt er það — tveir strák- ar. Enginn getur óskað sér meira“. Samúel vissi varal hvers vegna það var, sem hann breytti um umtalsefni: „Rabbit, hvað haldið þér að það hafi verið, sem við fundum?Loftsteinn, hvorki meira né minna“. „Hvað er það, hr. Hamilton?“ „Stjörnuhrap, sem átti sér stað fyrir milljónum ára“. „Nei, segið þér satt?En hvernig meidduð þér yður á hendinni?" „Ég sagði nú fyrst, að ég hefði brennt mig á loftsteini". Samúel hló. „En svo fáheyrt var það raunar ekki. Ég marði bara hendina á milli steina“. „Er það ekki sárt?“ „Ekki svo mjög“. „Tveir strákar“, sagði Rabbit. „Ja, kerlingin mín verður víst öf- undsjúk, þegar hún heyrir það“. „Viljið þér ekki koma inn og rabba við mig stundarkorn, Rab- bit?“ „Nei, þökk fyrir. Ekki núna. Mér er víst bezt að flýta mér í háttinn.Morgunninn virðist sífellt koma fyrr og fyrr með hverju árinu“. „Já, svo hefur mér líka fund- izt, Rabbit. Jæja þá, góða nótt“ Liza Hamilton kom klukkan 4 um morguninn. Samúel sat sof- andi á stól og dreymdi, að hann héldi um rauðglóandi járnstöng og gæti með engu móti sleppt henni. Liza vakti hann og skoð- aði særðu höndina nákvæmlega, áður en hún gerði svo mikið sem ranna augum til körfunnar. Svo gaf hún honum hin ströngustu fyrirmæli og sendi hann af stað. Hann átti tafarlaust að söðla Doxology og ríða beint til King City. Þar skyldi hann tafarlaust vekja lækninn upp og láta búa um sárið. Og ef engin hætta væri á ferðum, átti hann að halda heim og bíða hennar. Það var — sagði hún — hreinasti glæpur að skilja yngsta soninn einan eftir við borholuna — hann sem var naumast annað en barn og hvernig átti hann að bjarga sér þarna úti í eyðimörkinni, einn og yfirgefinn? Það var mál, sem Hann myndi ekki láta afskipta- laust. Liza rak eiginmann sinn af stað löngu fyrir dögun. Klukkan 11 í sínum eigin stól, við sitt eigið borð, skjálfandi af sótthita og Tom var að sjóða hænu, til þess að búa til súpu handa honum. I þrjú dægur lá Samúel í rúm- inu og barðist við vofur og svipi er birtust honum í óráðsdraum- um, unz hestaheilsa hans vann bug á sótthitanum og blóðeitrun- in rénaði. Samúel leit á Tom, skýrum augum og sagði: „Nú verð ég að drífa mig á fætur". Svo gerði hann veika tilraun, en hneig út af aftur og hló stuttum hlátri, eins og venjulega, þegar eitthvað bar að höndum, sem var honum of- jarl. Hann var þeirrar skoðun- ar, að jafnvel þegar hann var ofurliði borinn, gæti hann stolið sér örlitlum sigri með því að hlæja að ófþrunum. Og Tom bar í hann súpuna hvort sem hann vildi eða vildi ekki. Hjátrúin er enn ekki útdauð í heiminum og enn eru til manneskjur, sem trúa því aS hænsnasúpa sé allra meina bót og græðilyf við hverju sári. 4. Liza var að heiman í heila viku. Hún gerði allsherjar hreingern- ingu á húsi Trask-hjónanna, frá gólfi til lofts. Hún þvoði allt, sem í stóra þvottapottinn komst og hitt skúraði hún úr sterkum sápulegi. Hún umgekkst Lee eins og þræl, þar eð hún treysti hon- um ekki fyllilega. Adam virti hún ekki viðlits vegna þess að hún gat ekki notað hann til neins. Að vísu lét hún hann þvo glugg- ana, en gerði það svo aftur sjálf, er hann hafði lokið því. Liza sat við rúmstokk' Cathys nógu lengi til þess að komast að þeirri niðurstöðu, að hún væri skynsöm stúlka, sem ekki talaði mikið eða reyndi að kenna göml- um hundi að sitja. Hún rannsak- aði hana jafnframt gaumgæfilega og sannfærðist um það, að hún væri fyllilega heilbrigð og hraust, en myndi samt aldrei geta haft tvíburana á brjósti. „Enda gildir það nú einu“, sagði hún. „Þessi litlu átvögl myndu sjúga allan þótt úr jafnlítilli brúðu og yður“. Hún gleymdi því alveg, að sjálf var hún minni en Cathy og hafði samt haft öll sín börn á brjósti. Á laugardag, að hádegi liðnu, fullvissaði Liza sig um það, að allt væri í röð og reglu, skrifaði Happdrætti Víkings Dregið var hjá Borgarfógeta og upp kom Nr. 17 5 3 5 Vinningsins sé vitjað til Þorláks Þórðarsonar Öldugötu 47. Knattspyrnufélagið Víkingur. Ankoferð Aukaferð verður farin frá Reykjavik til Kaupmuina- hafnar og Stafaagurs miðvikudaginn 3. júlí. khukkau 29. Væntanlegir farþegar gjöri svo vel að hafa samband við skrifstofu Loftleiða hið allra fyrsta. Loftleiðir heijaramikinn listá með fyrir- var búið að binda um hönd hans sikpnum og ráðum við öllum og klukkan 5 um daginn sat hann hugsanlegum plágum, allt frá Kork iy2“ og 2“ Trétex Lakkplötur og listar Páll Þorgeirssofi Laugavegi 22 — Vöruafgreiðsla Ármúla 13 i M ABKÚS Eftir Ed Dodd » OÖHM WÁLKINS AWAV J THÖU6HT HB WAS DVIN6, >R. HIÚEV, AND HE TOLD MB THAT VOO AR6 HIS COU5IN... Rfl HE GAVE " THIS BNVELOPE- m CÖNTAINING A NOTB SCRIBBLED ON A PIECE OP WRAPPING PAP6R... „ WHICH VOUR WIFE MANAGED TÖ WRITE AFTER SHE WAS CRUSHEO BV A SNOWSLIDe/ ] f VOU'RE WRON6, MR. 1 HILLEV... old john savs SHE WORSHIPPED VOU AND RISKED HSR LIFE FOR VOU.i V' X DON'T 1 ' WANT TO 41 READ IT... MARTHA LEFT ME WHEN SHE LEARNEDX WAS PART INDIAN ! 1) _ Jói Indíáni hélt að hann aetti skammt eftir ólifað og trúði mfr þá íyrir því, að þið væruð frændur .... 2) — ... hann lét mig hafa þetta umslag, en. í því er bréf ritað á umbúðarpappír . . . 3) — .... Konan þín skrif- aði það eftir að hún lenti i snjó- flóðinu. — Ég les það ekki. Marta yfir gaf mig, þegar hún komst að því, að í æðum minum rynni Indíána blóð. 4) — Þetta er misskilningur hjá þér, Hallur. Jói segir að hún hafi tilbeðið þig og stofnað lífi sínu í hættu þín vegna. iðrakveisu til árása maura og engispretta, tróð farangri sínum í töskuna og lét Lee aka sér heim. Þar beið hennar skítugt hús og daunillt og hún hóf þegar allsherjar hreingerningu. Samúel jós yfir hana heilu flóði af spurn ingum: Hvernig leið börnunum? Þeim leið ágætlega og þau döfnuðu bara vel. Hvernig var Adam? Jú, hann flæktist um og lézt vera lifandi, þótt fátt annað benti til þess. Herrann gaf af vis- dómi sínum undarlegustu mann- eskjum peninga, kannske vegna þess að þær myndu að öðrum kosti svelta í hel. Og hvernig leizt henni svo á frú Trask? Hún var fátöluð og þreklítil, eins og flestar ríkar austurríkja- konur, (Liza hafði aldrei kynnzt neinni ríkri austurríkjakonu) en jafnframt auðsveip og hæversk. „Það undarlega er“, sagði Liza, — „að ég get ekki fundið neinn verulegan ókost í fari hennar, nema kannske leti, en samt kann ég ekki alls kostar við hana. Það er kannske þessu öri að kenna. Hvernig fékk hún það?“ „Ég veit það ekki“, sagði Sam- úel. Ljza otaði vísifingrinum að hon 'IJÚtvarpiö Sunnudagur 30. júni. Fastir liðir eins og venjulega. 9,30 Fréttir og morguntónleik. ar. — 9.55 Útvarp frá athöfn I Háskóla fslands, er sænsku kon- ungshjónin heimsækja skólanm a) Háskólarektor, Þorkell Jó- hannesson, flytur ávarp. b) Hall- dór Kiljan Laxness rithöfundur flytur ræðu. c) Dómkirkjukórinn syngur sænsk og íslenzk þjóðlög, Söngstjóri: Dr. Páll ísólfsson. Einsöngvari: Guðmundur Jóns- son. —10,15 Morguntónleikar: Sænsk tónlist (plötur). — 12,30 Messa í Bessastaðakirkju, að við- stöddum sænsku konungshjónun- um og íslenzku forsetahjónununj (Biskup Íslands, herra Ásmundur Guðmundsson, prédikar; með honum þjóna fyrir altari prófast- arnir séra Garðar Þorsteinsson og séra Jón Auðuns. Organleik- ari: Páll Kr. Pálsson). — 15,00 Miðdegistónleikar: Sænsk tónlist (plötur). — 16,30 Færeysk guðs- þjónusta (hljóðrituð í Þórshöfn): Séra Jákup Joensen prófastur prédikar. — 17,00 „Sunnudags- lögin“. 18,30 Barnatími (Skeggi Ásbjarnarson kennari). — 19,30 Tónleikar (plötur). — 20,20 Tón- leikar frá Stokkhólmsóperunni: Sænskir söngvarar syngja óperu- aríur (plötur). — 20,35 í áföng- um; II. erindi:Úr Mývatnssveit til Austfjarða. — 21,25 „Á ferð og flugi“. — 22,00 Fréttir og veður- fregnir. — 22,05 Danslög (plötur) — 23,30 Dagskrárlok. Mánudagur 1. júlí. Fastir liðir eins og venjulega. 19,30 Lög úr kvikmyndum (plöt- ur). — 20,30 Útvarpshljómsveit- in; Þórarinn Guðmundsson stjórn ar. — 20,50 Um daginn og veg- inn. — 21,10 Einsöngur: Anna Þórhallsdóttir. — 22,10 Búnaðar- þáttur: Úr Norður-Þingeyjar- sýslu. — 22,25 Frá landskeppni Dana og íslendinga í frjálsum íþróttum. — 22,45 Nútímatónlist (plötur). — 23,10 Dagskrárlok. Þriðjudagur 2. júlí. Fastir liðir eins og venjulega. 19,00 Hús í smíðum: XVI: Marteinn Björnsson verkfræðing- ur svarar spurningum hlustenda, 19,30 Þjóðlög frá ýmsum löndum (plötur). 20.30 Tónleikar Smet- ana-kvartettinn leikur. — 20,55 Frá hálfrar aldar afmælishátíð Ungmennafél. íslands á Þingvöll- um. — 21,45 Kórsöngur: Útvarps- kórinn syngur (plötur). — 22,10 „Þriðjudagsþátturinn". — 23,00 Frá landskeppni Dana og íslend- inga. — 23,20 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.