Morgunblaðið - 30.06.1957, Page 13
Sunnudagur SO. júní 1957
MORCTJIVRL4ÐIÐ
13
— Reykjavíkurbréf
Frh. aí bls. 9.
Sterki maðurinn
frá Jonstrup
DANSKUR blaðamaður, sem ný-
leg« var hér á ferð, birti í blaði
sínu v jtal við líannibal Valdi-
marsson, félagsmálaráðherra, und
ir fyrirsögninni: „Islands stærke
mand er seminarist fra Jons-
trup“.
í þessu viðtali segir blaðamað-
urinn:
„Vinnudeilur vofa stöðugt yf-
k.“
Sá sterki svarar:
„Komizt var hjá prentaraverk-
falli, sem boðað hafði verið og
enn öðru verkfalli, vegna þess
að aðilar komu sér saman, og
stórdeilur eru ekki framundan.
íhaldsmenn reyna að skapa óróa
á vinnumarkaðinum, en ég trúi
ekki að þeim muni heppnast
það.“
Blaðamaðurinn bætir því við:
.Socialminister Hannibal----
har travlt. Han skal til möde i
den internationale arbedjes-
organization i Genéve.“
Þátttaka í alþjóða samstarfi er
nauðsynleg en'hún má ekki taka
svo upp hugi manna, að þeir
gleymi skyldustörfunum heima
fyrir. Þó að Hannibal væri upp-
tekinn, átti hann m. a. að vita,
að yfirvofandi var verkfall, sem
stöðvað gæti kaupskipaflota þjóð
arinnar. Sú deila er nú búin að
standa í nær hálfan mánuð, mik-
Mi hluti kaupskipaflotans er
stöðvaður og enn sér ekki fyrir
enda deilunnar. Ábyrgðarlaust
hjal þeirra sem sjálfir beita sér
stöðugt fyrir kauphækkunum til
hinna hæstlaunuðu um að „íhald-
ið“ valdi vandræðunum, leysir
engan vanda. Það er raunhæf for
ysta og kjarkur til að horfast í
augu við staðreyndirnar, sém
hér duga. Hvorugt er því miður
fyrir hendi hjá ríkisstjórninni
eg þess vegna sígur stöðugt á
ógæfuhlið.
Hannibal og
húsmæðurnar
ANNARS skal ekki vefengt ,að
Hannibal hafi það „travlt", en
mjög dregið í efa, að hann sé
önnum kafnari en húsmæður á
flestum heimilum bæjarins. Þeim
ætlar hann samt ofan á öll önnur
störf að bæta bakstri brauða og
öðru því umstangi, sem leiðir
af bakara-verkfallinu. Á manni,
sem í senn er félagsmálaráðherra
©g forseti Alþýðusambands ís-
lands, hvílir ríkari skylda en
öllum öðrum til að gera sitt til
að firra almenning þeim óþæg-
indum, sem leiða af þessu verk-
falli og öðrum.
Lestur Valtýs
VALTÝR BLÖNDAL, fyrrum
bankastjóri, er sílesandi fróðleiks
maður. Kunnugir fullyrða, að
einkavinur hans, Hermann Jónas-
son forsætisráðherra, hafi oft
notið þar góðs af. Valtýr hefur
nú betri tíma en áður til lestrar
&& hefur auðsjáanlega blaðað í
ritum Jóns forseta Sigurðssonar,
því að í 17. júní ræðu sinni vitn-
ar Hermann til þessara ummæla
Jóns:
„Látið hvergi eggjast til að
fara lengra eða skemmra en að
skynsamlegt er og sæmir gætn-
um og þó einörðum mönnum —
— —. Með lögum skal land
byggja en með ólögum eyða.
Leitist við sem mest hver í sinn
stað að útbreiða og festa meðal
yðar þjóðlega skynsemd og þjóð-
lega reglu.“
Þessi orð eru sígild og er sann-
arlega gleðiefni, að athygli Her-
manns Jónassonar skuli nú hafa
verið vakin á þeim.
Aðvörun Ólafs
EF HERMANN Jónasson hefði
fylgzt með því, sem gerzt hefur
hér á landi undanfarin ár á með-
an hann var sjálfur utan ríkis-
stjórnar, þá hefði hann getað
sparað Valtý vini sínum þessa
leit að tilvitnun. Þá hefði hann
fyrirhafnarlaust getað vitnað til
orða Ólafs Thors um áramótin
1954.
„En á þessum góðum gjöfum
Njarðar er sá galli að menn
kunna sér ekki hóf. Þetta er í
sjálfu sér ósköp eðlilegt. En það
er jafnhættulegt fyrir því. Fari
svo að þjóðin missi fótanna í pen-
ingaflóðinu, heilbrigð þróun og
þjóðarmetnaður drukkni, og æði
og ofmetnaður vaði uppi, myndi
þrátt fyrir allt hafa reynzt far-
sælla að „flýta sér með hægð“,
frá fátækt til bjargálna, svo góð
og gleðileg sem umskiptin þó
voru.
Það er speki, sem menn eru
farnir að kannast við, að engin
þjóð getur til langframa eytt
meiru en aflast. Þetta hafa marg-
ir sagt oft. Líklega svo oft að
fólk er hætt að taka eftir því.
En góð vísa er aldrei of oft kveð-
in. Og fyrir því kveð ég nú þessa
vísu og kveð við raust, að mér
er nú stundum órórra en áður“.
Þessum aðvörunarorðum Ólafs
Thors sinnti Hermann Jónasson
og kommúnistar ekki veturinn
og vorið 1955. Þá höfðu kommún-
istar og Hermann samstarf um
að sprengja þáverandi stjórnar-
samstarf með gegndarlausum
kröfum. Þjóðvilj inn hirti ekki um
að dylja þakklæti sitt til Tímans
og sagði:
„Undanfarið hefir Tíminn skrif
að um kjarabaráttu verkalýðs-
flokkanna mjög á aðra lund en
fcann er vanur og er ástæða til
að fagna því.“
Helgihjúpurinn og tilvitnanir
þessara kumpána í rit Jóns Sig-
urðssonar nú fer þeim því óneit-
anlega heldur illa. Kaupgjalds-
baráttan var þeim aldrei annað
en tæki til að ryðja sér braut til
valda, en þeim fer sem fleirum,
að þeir eiga erfitt með að ráða
við þann draug, sem þeir sjálfir
vöktu upp.
Orðrómur hefir verið á
um það að undanförnu, að Huss-
ein Jórdaníukonungur hafi í
hyggju að skilja við drottningu
sína, Dínu, sem er fædd í Egypta-
landi og dvelur nú þar í landi.
Þessu hefur þó verið mótmælt
opinberlega. Þau hjón eiga eina
dóttur barna. Dína er 29 ára en
Hussein 22.
Framköllun
Kopiering
Fijót og góð
vinna. — Afgr. i
Orl o f s búðinni,
Hafnarstræti 21.
Höfum opnað aftur eftir brunann
Seljum gallaða poplinfrakka
og drengjahúfur með miklum
afslætti. —
Mikið úrval af herravörum
P. EYFELD
Ingólfstr. 2, sími 5098
Lokað í dag og á
morgun
Leikhúskjallarimi
Söluskúr
Tilboð óskast í söluskúr, sem er jafnframt biðskýti.
Skúrinn stendur við Matvælageymsluna við Lang
holtsveg. Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofunnL
Máiflutningsstofa Sigurður Reynir Pétursson hrL
Agnar Gústafsson, hdl.,
Gísli G. ísleifsson, hdi.
Austurstræti 14, sími 82478.
Seljum á morgun
(mánudag) 150 pör af spænskum háhæluð-
um kvenskóm fyrir aðeins kr. 95 parið.
Skésalan
Snorrabraut 36
Vegna sumarfría vantar heildverzlun
Skrifstofustúlku
í júlí n.k. Upplýsingar í síma 82698 kl. 1—3
eftir hádegi 1. júlí
Scanclia
eldav&lar
Svehdborgar
þvottcipottar
ALLAR SCANDIA-ELDAVÉLAR eru nú með hraðsuðu—
hellu og hellum yfir eldholum í stað hringa.
ÞVOTTAPOTTAR emaileraðir. — Með tæmingar-hana.
BIERIIMG
Laugaveg 6. — Sími 4550.
DANMÖRK - ÍSLAND
Landskeppnin í frjálsum íþróttum hefst á íþróttavellinum í Reykjavfk annað kvöld kl. 20,30 (mánudagskvÖld).
Keppt verður í 100 m, 400 m, 1500 m, 5000 m hlaupum, 110 m grindahl., 4x100 m boðhlaupi, hástökki, laiig-
etökki, kringlukasti og sleggjukasti.
Sala aðgöngumiða hefst á íþrótlavellinum kl. 1 e.h. á morgun.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á vellinum frá kl. 20.00 stjórnandi P. Pampichler.
NU VERÐUR BARIZT UM HVERT STIG
MÓTSNEFNDIN.