Morgunblaðið - 30.06.1957, Síða 16
Engín síld
Landlega
f FYRRINÓTT var stormur á
síldarmiðunum fyrir norðan og
enginn afli. Skipin lágu öll inni,
flest frá Siglufirði. Nokkur þeirra
leituðu vars við Grímsey og láu
þar í fyrrinótt og fram eftir degi
í gær.
Cm miðjan dag í gær voru
nokkur skip farin út á mið, en
flest voru þó enn inni. Flugvélin
leitaði ekki síldar í gær, vegna
slæms veðurs. Landað var úr
siðasta skipinu á Siglufirði kl. 9
í gærmorgunn.
Hús flutt leyfislaust til
Kópavogs
SUÐUR á Hafnarfjarðarvegi í
Kópavoginum stóð í gærdag á
flutningavagni allstórt timbur-
hús, sem lengi hefur staðið við
Hafnarfjarðarveginn. Ófært þótti
að láta húsið standa þar í sam-
bandi við komu sænsku konungs
hjónanna og var eigandanum
skipað að fara með það suður
í Kópavog, en þangað hefur ver-
ið ætlunin að flytja það. En deila
er á milli eigandans, Ólafs Mal-
bergs Sigurjónsson og yfirvald-
anna í Kópavogi. Er komið var
með húsið á veginn hjá læknum
í Fossvogi, sem skilur bæjar-
löndin, var numið staðar. Hús-
eigandinn mun ekki hafa nein
byggingarréttindi í Kópavogs-
kaupstað og að því er Sigurgeir
Jónsson bæjarfógeti í Kópavogi
tjáði blaðinu í gær hefir hús-
eigandinn ekki sótt um leyfi til
hans, til þess að flytja húsið um
lögsagnarumdæmi Kópavogs.
Bæjaryfirvöldin í Kópavogi
hafa kært yfir öðru húsi, er flutt
var þangað ó fimmtudagskvöld-
ið. Var það flutt suður á Digra-
nesháls og er nú hafið lögreglu-
mál vegna þess. Jafnframt
kröfðust bæjaryfirvöldin þess að
allur ólöglegur húsaflutningur
yrði stöðvaður um lögsagnarum-
dæmi Kópavogs.
í gær stóð húsið enn á vagni
við mörk bæjarlandsins og ekki
var vitað þegar síðast fréttist á
hvern hátt þetta mál yrði leyst,
Svíakonungur og drottning
munu aka þessa leið til Bessa-
staða um hádegið í dag.
Landskepprtin á morgun:
Sumir Dananna hafa hætt
árangur sinn síðustu daga
Náðu sumir góðum árangri móti Sviss
Annað kvöld hefst hin spennandi landskeppni Dana og íslendinga
Danska liðið var væntanlegt undir miðnætti í nótt. Það kemur
svo til beint frá harðri landskeppni, en á föstudagskvöldið iauk
landskeppni í frjálsíþróttum milli Dana og Svisslendinga. Við vit-
um ekki um úrslit síðari dags, en eftir fyrri daginn höfðu Sviss-
lendingar 2 stig vfir, 54 gegn 52.
Þjóðhöfðingjarnir hlýða á þjóðsöngvana við laiidganginn um borð í „Arngrim Viking" við konv-
una til Reykjavíkur í gærdag. (Ljósm.: Mbl. Ól. K. M.).
Konungsheimsóknin:
í Reykjavík
Þingvalla á
DAGSKRÁ konungsheimsóknar-
innar í dag verður á þá leið, að
kl. 10 árdegis heimsækja kon-
ungshjónin Háskóla íslands. Þau
munu þar hafa um klukkustund-
ar viðdvöld, en aka síðan að Þjóð
minjasafninu. Þar verður einnig
höfð klukkustundar viðdvöl, en
síðan munu konungshjónin ásamt
forsetahjónunum aka heim til
forsetans að Bessastöðum. Þegar
þangað kemur munu konungs-
hjónin ganga til kirkju og hlýða
guðsþjónustu. Biskupinn yfir
íslandi, Ásmundur Guðmundsson
prédikar. Kirkjan verður öllum
opin og hefst guðsþjónustan kl.
12,30, og lýkur kl. 1 e. h. Frá
kirkju ganga konungshjónin til
í dag, til
morgun
forsetaseturs og snæða þar há-
degisverð með forsetahjónunum
og fylgdarliði. Síðdegis í dag,
kl. 4, hefur borgarstjórinn mót-
töku í Melaskólanum fyrir kon-
ungshjónin. Kvöldverð snæða
konungshjónin ásamt forseta-
hjónunum og fylgdarliði í Nausti.
Verða þar og viðstaddir Undén
utanríkisráðherra, Guðmundur
í. Guðmundsson utanrikisráð-
herra, sendiherra Svíþjóðar hér
og sendiherra íslands í Svíþjóð,
Henrik Sv. Björnsson ráðuneyt-
isstjóri og Haraldur Kröyer for-
setaritari. Kl. 8 í kvöld verður
svo hátíðarsýning í Þjóðleikhús-
inu á „Gullna hliðinu". Leikhús-
gestir verða allir í samkvæmis-
MÁNUDAGURINN
Á mánudagsmorguninn munu
konungshjónin heimsækja tvö
fiskiðjuver hér í bænum: Fisk-
iðjuver ríkisins og fiskverkunar-
stöð Bæjarútgerðarinnar. Verð-
ur fyrst farið í Fiskiðjuver rík-
isins, en síðan til Bæjarútgerð-
arinnar. Kl. rúmlega 11 leggur
konungsfylgdin af stað austur til
Þingvalla. Verða með í förinni
þeir dr. Sigurður Þórarinsson og
próf. Einar Ól. Sveinsson. Há-
degisverður í boði ríkisstjórnar-
innar verður snæddur í
Valhöll. Þaðan verður lagt af
stað um kl. 2.30, og þá ekið „hring
inn“. Hefur komið til tals, að
konungurinn muni á leiðinni að
austan, jafnvel staldra við á
Kambabrún, verði bjart veður.
Þegar komið verður í bæinn
hefst í sænska sendiráðinu mót-
taka fyrir sænska boðsgesti, en
þessum all-stranga degi lýkur
með kveðjuveizlu í Þjóðleikhúss-
kjallaranum, sem konungshjónin
* MÓTI SVISS
Árangur Ðananna fyrri daginn
var þessi:
110 m gr.hlaup: N. Andersen
nr. 2 á 15,1. Erik Nissen nr. 4
á 15,6 sek.
100 m hlaup: Kock Jensen nr.
3 á 10,8 og Jörgen Fengel nr. 4
á 11,0 sek.
5000 m hlaup: Tögersen nr. 1
á 14:36,2 og Michaelsen nr. 3 á
14:55,6 mín.
Sleggjukast: Frederiksson nr.
1 56,11 m og Cederquist nr. 2
54,13 m.
400 m hlaup: Roholm nr. 3
á 49,6 og Jochimsen nr. 4 á 50,8.
1500 m hlaup: Stender nr. 1
á 3:57,1 og Anderson nr. 4 á
3:59,2 mín.
Langstökk: Thomsen nr. 2
7,08 m og Andersen nr. 3 6,82 m.
4x100 m hlaup: Danmörk nr.
2 á 43,5 sek.
Hástökk: Dörig nr. 1 1,83 m
og Christensen nr. 4 1,70 m.
í sumum greinum hafa Dan-
irnir bætt sig t.d. í 400 m hlaup-
inu, en þar vorum við að von-
ast eftir tvöföldum sigri. í 100
m er Jensen sterkari en búizt var
við.
En nýjar vonir vakna annars
staðar t.d. í 1500 m hlaupinu og í
hástökki.
En það getur margt ráðið úr-
slitum þessarar keppni, veðrið,
heppni og ekki sízt áhorfendur
með hvatningarhróp á réttum
tona.
klæðnaði
og verða þar borin
halda forsetahjónunum og all-
Þessi mynd er frá landskeppni Dana og Svisslendinga í frjálsum
iþróttum. Keppnin fór fram í Höfn á fimmtudag og föstudag. Mynd-
in er tekin í 1500 m hlaupinu og sýnir Danina tvo. Stender er að
fara fram fyrir Andersen 300 m frá marki. Þá voru Svisslending-
arnir á eftir, en þeir náðu Andersen áður en að marki kom.
heiðursmerki.
mörgum gestum öðrum.
Mikil afmœlishátíð
UMFÍ á Þingvöllum
IGÆR fór fram afmælishátíð UMFÍ á Þingvöllum. Var mikill
fjöldi manns samankominn, tjaldbúðir allmiklar á völlun-
um og var hátíðin hin bezta. Eftir hádegi fór fram íþróttakeppni
á völlunum undir Fangbrekku, sund í Hveragerði og um kvöidið
var útifundur.
Veður í gær var allsæmilegt til
útihátíðahalda. Seinnihluta dags
hófst íþróttamótið og voru þar
Maðor fær skamm-
byssuskot í magaan
SÍÐARIHLUTA dags í gær var
maður einn í Kópavoginum,
Bjarni Hallmundsson, að hreinsa
skammbyssu sína. Gáði hann
ekki að því að byssan var hlaðin
og þegar minnst varði hljóp skot
úr byssunni og reið í maga
Bjarna. Þegar í stað var náð í
sjúkrabíl og var Bjarni fluttur
í Landakotsspítalann.
Þar var hann skorinn upp svo
til samstundis og kúlan fjarlægð
og var líðan hans eftir atvikum
í gærkvöldi.
ýmis merk afrek unnin. Jón
Pétursson frá Ungmennasamb.
Snæfellsness- og Hnappadalss.
stökk 13.65 m í þrístökki og
kemur hann því til greina sem
annar maður í landskeppninni
við Dani í þessari grein. Ingólfur
Bárðarson frá Ungmsamb. Skarp-
héðinn í Árnéssýslu stökk 1.85 í
hástökki og Gestur Guðmunds-
son, Ungmennasamb. Eyjafjarð-
ar kastaði kringlunni yfir 39 m.
Þátttakendur í sundinu voru
mjög margir, 60 talsins, en það
fór fram í Hveragerði.
Útifundur var í gærkvöldi og
fluttu fulltrúar landsfjórðung-
anna framsöguræður. Síðan var
dansað.
I dag verða guðsþjónustur og
prédikar sr. Eiríkur J. Eiríksson.
Þá verður fimleikasýning. Bern-
harð Stefánsson flytur ræðu og
sr. Jóhann Hannesson einnig. —
Erlendir fulltrúar flytja ávörp.