Morgunblaðið - 04.07.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.07.1957, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 4. júlí 5 957 MonKrwnr/ZM* f f hita leiksins. sem ísland wann 2Það verður ekki gert með bros á vör að varpa kúlunni 16 metra, sem sjá má af þessari mynd af Skúla Thorarensen. En nú gægöist hann yfir þröskuldinn . . . og fram undan er langur vegur að 16,74 — meti Husebys. 3Úha, loksins er komið að snúrunni, hugsar Guð- jón Guðmundsson — en það mátti ekki vera mikið styttra að henni, svo að Daníel ekki ynni, því hann hafði forystuna eftir 370 m. 4 9y2 hringur yfir grindur og vatnsgryfjur reynir á líkamann, og í þeirri grein eru Danir sterkari tslendingum. Söndergard hefur forystuna, en Ey- firðingurinn kom upp í Stefáni og hann sleppti ekki 2. sætinu fyrr en í fulla hnefana. Bak við liann er Nielsen og loks Bergur. 5I»reyttur var Þórir eftir 2 glæsilega sigra og að afloknu 800 m hlaupinu leiddu þeir Daníel Halldórsson og Hörður Haraldsson hann til bún- ingsklefa. Enn átti Þórir þá eftir að vinna 3. sig- urinn — í boðhlaupinu. Svona auðvelt er að hlaupa 200 m á 21,6. Hilm- ar kemur brosandi í mark 10 metrum á undan næsta manni. — Ljósm. MbL ÓL K. M. ISigur Thögersen (32) og Lauridsen í 10 km var með yfirburðum, en ekki áreynslulaus. Sameig- inlega „brutu“ þeir mótspyrnu Kristjáns, en svo skildu leiðir. Thögersen kvaddi maraþonhlauparann Lauridsen. Aukakeppni í kvold T KVÖLD fer fram á Melavellinum frjálsíþróttakeppni allnýstár- leg. Auk danskra og íslenzkra keppa þar tveir finnskir íþrótta- garpar, annar bezti stangarstökkvari Finna, Piironen, sem stokkið hefur 4,32 m., og Osse Mildh margfaldur sigurvegari í 400 m grindahlaupi og 400 m. Hann varð 5. í 400 m grindahl. á Olympíuleik unum 1952 og á Norðurlandametið 51,5; 400 m hleypiir hann á 48,2. Keppt verður í 100 m, 3000 m, grindahlaupunum báðum, 4x100, stangarstökki, langstökki, kúluvarpi, kringlukasti og sleggjukasti. Tvær finnskar stúlkur sýna íþróttir kvenna. M. a. er þar á ferð finnskur methafi kvenna í kringlukasti. Sýnir hún það, kúluvarp og grindahlaup. Þetta mót gefur ekki Tandskeppninni eftir. Við getum lengri spurt: Hvað gerir Kristleifur móti Kristjáni og Thö- gersen? Hvað gerir Huseby í kúluvarpinu? Heggur Skúii í 17. metrann? Og hvernig fer stangarstökkið milli Larsen, Piironen og Valbjarnar? Og hvernig er kvenfólk í grinda- hlaupi? 'A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.