Morgunblaðið - 18.07.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.07.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur. 158. tW. — Fimmtudagur 18. júlí 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins, ,Pabhi, pabbf hrópabi stúlkan — Þegar verðirnir leiddu hina dauBadæmdu úr salnum Áfakanlegt að heyra< til fólksins, sem missti ástvini sína í snörur Kadars BÚDAPEST, 17. júlí. — Fólfc á áheyrendabekkjum grét og barmaði sér, þegar hæstirétt- urinn í Búdapest kvað í dag upp dauðadóm yfir sjö ung- um mönnum, sem ákærðir voru fyrir að hafa myrt leyni lögreglumenn í uppreisninni í haust. Einn hinna sjö dauðadæmdu snéri sér til dómarans, þegar dómurinn hafði verið lesinn upp, og bað hann um að leyfa | sér að segja nokkur orð viðl konu sína í síðasta sinn. Kona hans var stödd í rétt- arsalnum og hann veifaði til hennar um leið og hann hróp- aði: Ég bið þig einskis. Guð mun hjálpa mér. Konan hrópaði: Hengið mig með honum. Sá yngsti hinna dauða- dæmdu, 21 árs, féll saman og grét þar sem hann sat á bekk með hinum dauðadæmdu. Maður, sem sat ekki alls fjarri meðal áheyrenda hróp- aði til hans: Gráttu ekki barnið gott! Konur hrópuðu í örvænt- ingu og báðu um réttlæti. Þegar verðirnir leiddu hina dauðadæmdu út úr salnum, hrópaði ung stúlka, undir tví tugsaldri, í örvæntingu: „Pabbi, pabbi“. Dauðadómur yfir nokkrum öðrum mönnum var mildaður í réttinum í dag — Reuter, Ekki skaðaði, að Zhukov og Wilson rœddust við — segir Eisenhower WASHINGTON, 17. júlí: — A fundi með blaðamönnum í dag fórust Eisenhower svo orð, að gagnlegt gæti orðið, að varnar- málaráðherrar Ráðstjórnarríkj- anna og Bandaríkjanna, þeir Zhukov og Wilson, ræddust við. Kvaðst Eisenhower vera reiðu- búinn til þess að gera allt, sem í hans valdi stæði til þess að jafna öldurnar milli austurs og vest- urs. En Eisenhower bætti því við, að slíkur fundur mætti ekki verða til þess að vekja falskar vonir í brjóstum manna um góð- an árangur. Nú væri aðaláherzlan lögð á viðræðurnar í afvopnun- arnefndinni — og það væri betra en að sitja auðum höndum, enda; þótt lítið miðaði áfram þar. Minntist Eisenhower lítillega að kynni þeirra Zhukovs. í lok síðustu styrjaldar — og lauk hann lofsorði á viðkynninguna. Var hann loks spurður álits á síðustu hreinsunum í Kreml. Sagði Eisenhower, að ekki væri hægt að loka augunum fyrir því, að mennirnir, sem nú hefðu ver- ið fjarlægðir, hefðu verið úr flokki Bolsivikanna, sem hefðu verið rígbundnir í kenningunni. 12 mílna landhelgi? OSLO 17. júlí. — Innan nokkurra mánaða verður efnt til alþjóða- ráðstefnu um landhelgismál á vegum Sameinuðu þjóðanna. Oslo gengur sá orðrómur, að norska stjórnin muni á þessari ráðstefnu krefjast 12 mílna land- helgi — og búizt er við því, að mörg önnur lönd muni fara að dæmi Norðmanna og krefjast út- vökkunar landhelginnar. Einkum er reiknað með því að, Kanada- menn fylgi fordæmi Norðmanna. Mynd þessi er tekin, er nokkrir foringjanna í Kreml létu í fyrsta skipti sjá sig opinberlega í Moskvu eftir hreinsanirnar á dögunum. Var það í síðdegisboði í bandaríska sendiráðinu í borginni. Þarna er Mikojan (t. v.) í samræðum við Richard Davis, bandarískan sendiherra. Danir telja eðlilegt að tiskveiðUand- helgin við Fcereyjar verði stœkkuð Inflúenzan BAGDAD og Nicosia 17. júlí. — Asíuinflúenzan hefur stungið sér niður í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins og virðist vera að breiðast út. í írak hafa marg- ir tekið veikina, þar af tæplega 3,000 í Bagdad. í Jórdaníu er vitað um 1,700 tilfelli — og sér- stakar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar á Kýpur til þess að forðast að veikin leggist þungt á eyjarskeggja. Nýtt hrabamet LONDON 17. júlí. — Brezku hernaðaryfirvöldin skýrðu frá því í dag, að þota af gerðinni P-l, smíðuð hjá English Electric, hefði flogið hraðar en 1,132 mílur á klst., en það er núgildandi hraðamet, sem brezk flugvél á. — Af öryggisástæðum er ekki gefið upp hve langt flugvélin fór fram úr gamla metinu. Fœkkar í hernum WASHINGTON 17. júlí. — Wil- son landvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna skýrði svo frá í dag, að fyrir lok þessa árs yrði fækkað um 100 þús. manns í bandaríska hernum. Nær fækk- un þessi til landhers, flughers og flota. Lét Wilson þess getið, að fækkunin mundi ekki draga úr herstyrk Bandaríkjanna. Fyrir- hugað væri að fækka nokkuð enn. Sagt er, að franska kvik- myndadísin Anne Marle Mer- sen, sé eina stúlkan, sem Karim prins, nú Aga Khan IV., hafi nokkru sinni litið verulega hýru auga. Hún er nú í París, en er að ferðbú- ast og fara til fundar við Karim. Þau hittust fyrst fyrir einu ári í Cannes. Myndin er af ungu stúlkunni. Mörg hundruð drukknuðu HONG KONG 17. júlí. — Felli- bylurinn, sem geisað hefur á vest- anverðu Kyrrahafi að undan- förnu, gekk í dag inn yfir Kína. Olli hann miklum spjöllum í sjávarþorpum og á fiskibátum, sem voru að veiðum undan suður ströndinni. Útjaðar bylsins fór yfir Hong Kong og olli einnig þar spjöllum. Reisti bylurinn mikla flóðbylgju, sem olli mikiu tjóni á Filippseyjum. Mörg hundruð manns drukknuðu og þúsundir eru heimilislausar. „Flokksíjandi44 LONDON, 17. júlí: — Búlg- arska fréttastofan skýrir svo frá, að æðstaráð búlgarska þingsins hefði svipt Georgi Chankov embætti fyrsta að- stoðarforsætisráðherra. Var honum gefið að sök að hafa lagt stund á starfsemi fjand- samlega flokknum. — eftir að íslendingar riðu á vaðið EINS og áður hefir verið frá skýrt hér í blaðinu var nýlega haldin ráðstefna í London og önnur i Kaupmannahöfn um stærð fiskveiðilandhelginnar við Færeyjar. Fyrir skömmu sendi danski sendiherrann í London orðsendingu frá ríkisstjórn sinni til utanríkisráðuneytisins brezka þar sem lagt er til að viðræður Heldur Cromyko velli? Verður Patolitjev arftaki hans? LONDON — Búizt er við því að forystan í Kreml útnefni innan skamms menn í embætti fyrsta aðstoðarutanríkisráðherra í stað þeirra, sem vikið var úr stöðum á dögunum. Molotov, Kaganovitj, Saburov og Pervukhin gegndu allir em- bætti fyrsta aðstoSarforsætisráð- herra, en Malenkov gegndi auk raforkumálaráðherraembættis- ins, aðstoðarforsætisráðherraem- bætti. Eftir hreinsanirnar á dög- unum sitja nú einungis tveir að- stoðarforsætisráðherrar í stjórn- inni, en þeir eru Mikojan og Kuz- min. Fastlega er búizt við því, að Zhukov verði einn þeirra, sem hreppa embætti þessi. Mikið er rætt um stöðu Gro- mykos. Hann var, eins og al- kunna er, náinn samherji Molotovs og allt þykir benda til þess, að þess verði ekki ýkjalangt að bíða, að hann verði látinn hverfa úr utan- ríkisráðherraembætti. Það eitt að Gromyko fylgdi Krúsjeff og Búlganin ekki til Tékkó- slóvakúu, færir mönnum heim sanninn um það, að hann er ekki fastur í sessi. Fyrsti aðstoðarutanríkisráðherra, Ni- kolai Patolitjev að nafni, var með þeim félögum í förinni til Tékkóslóvakíu. — Margir stjórnmálasérfræðingar telja mjög líklegt, að hann verði eftirmaður Gromykos. Kjarnorkuvopn tií NATO-ríkja WASHINGTON, 17. júlí: — Eis- enhower Bandaríkjaforseti lét svo um mælt á fundi með blaða- mönnum í dag, að sjálfsagt og eðlilegt væri að Atlantshafs- bandalagið hefði yfir að ráða byrgðum kjarnorkuvopna, sem hægt yrði að grípa til fyrirvara- laust, ef til styrjaldar kæmi. Ekki kvað forsetinn neinar áætlanir hafa verið gerðar um að Bandaríkin létu eitthvað ákveðið magn kjarnorkuvopna af hendi við Atlantshafsbandalagið, en málið væri í rannsókn. Sagði forsetinn, að bandalags- ríkjunum væri það brýn nauðsyn að hafa slík vopn undir höndum, ef á þau yrði ráðist, því að rík- in gætu ekki varið hendur sínar án slíkra vopna. Frá fjárhagslegu sjónarmiði væri það ekki hag- fellt, að bandaríkin framleiddu hvert í sínu lagi kjarnorkuvopn, því að framleiðsla þeirra væri mjög dýr. um málið hefjist aftur, og verði síðar ákveðið hvenær ráðstefn- an hefjist. Frá þessu er skýrt í siðasta blaði „Fishing News“. FORDÆMI ÍSLENDINGA Ráðstefna var haldin í Kaup- mannahöfn dagana 18. og 19. júní og var þá rætt um landhelgis- mál Færeyinga, og ræddust þar við fulltrúar danskra stjórnar- valda og færeyskra. í orðsendingu danska sendi- herrans í London til Breta segir: „Það er mjög skiljanlegt að íbúar Færeyja vænti þess að fiskveiðilandhelgin við eyj- arnar verði færð út eftir að Bretar hafa sætt sig við að íslendingar stækkuðu sina fiskveiðilandhelgi“. Gildandi fiskveiðitakmörk við Færeyjar voru ákveðin í viðræð- um Dana og Breta 1955. Á fund- inum í Kaupmannahöfn í júni var einnig rætt um vernd fiski- miðanna við Færeyjar. Mun danska stjórnin síðar leggja fram tillögur um friðun miða. Brezka stjórnin hefir enn ekki svarað orðsendingunni sem danski sendiherrann kom áleiðis. Safit er. að hún sé löng og ítarleg oe er hún enn í athugun í utaö- ríkisráðunevtinu. Rússinn þa«;ði LONDON og WASHINGTON, 1’ júlí: — Selwyn Lloyd, ut&nríkis ráðherra Breta, mætti í dag fundi undirnefndar afvopnunai nefndar S.Þ. í London. Lag? hann til, að komið yrði á fót séi stökum nefndum til þess að ræð fimm höfuðatriði afvopnunai Fækkun hermanna, minnku vopnabúnaðar, gagnkvæmt eftii lit úr lofti, eftirlitsstöðvar á lanc og stöðvun tilrauna með kjarri orkuvopn. Fulltrúar Frakk; Kanadamanna og Bandaríkjc manna lýstu sig hliðholla tillög unni í meginatriðum, en Rúss neski fulltrúinn vildi ekki lát skoðanir sínar í ljós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.