Morgunblaðið - 18.07.1957, Blaðsíða 16
158. tbl. — Fimmtudagur 18. júlí 1957.
2-24-80
2-24-80
Engin síldveiði
Veður heldur grálynt
SKÖMMU fyrir miðnætti í'
nótt er Mbl. átti tal við Rauf-
arhöfn var engar síldarfrétt-
ir að hafa og ekki útlit fyrir
síld næsta sólarhringinn. —
Kom þar bæði til slæmt veiði-
veður og lítill sem enginn
afli.
★
Undir miðnættið voru um 30
bátar að koma inn, þeir sem
verið höfðu að veiðum austur af
Langanesi og allt austur á Hér-
aðsflóa. Var búizt við að þeir
væru með um 10.000 mál, en sú
síld fer öll í bræðslu, en er ósölt-
unarhæf fyrir það hve hún er
mögur.
Flestir bátar voru úti í gær-
kvöldi, en veður var kalt og
norðan kæla og ekki gott í sjó-
inn. Menn voru þó sæmilega von
góðir því síld sást víða í leitar-
tækjum, beðið var bara eftir þvi
að hún kæmi upp. — Allri
bræðslu var lokið á Raufarhöfn
og ekkert var saltað þar í gær.
Þegar síðast fréttist hafði einn
Norðmaður séð síld við Kolbeins-
ey og annar bátur torfu við
Grímsey.
Flotinn heldur út
SIGLUFIRÐI, 17. júlí: — í dag
er lygnara á miðunum en verið
hefur undanfarið og er síldveiði-
flotinn að halda úr höfn. Er
óslitin skipalest út fjörðinn og út-
lit fyrir að öll skipin verði kom-
in á miðin í kvöld.
Frétzt hefur að síld hafi sézt
hér úti í morgun en ekki hefur
heyrzt að neitt hafi veiðzt ennþá
enda ekki orðið það lygnt að
þess sé að vænta. — Guðjón.
Bræðsla hafin á
Seyðisfirði í gær
SEYÐISFIRÐI, 17. júlí: — Síld-
arverksmiðjan hér hefur nú feng
ið rúmlega 2000 mál til bræðslui
og verður bræðsla hafin í kvöld.
Mörg skip hafa beðið um af-
greiðslu nú í kvöld en engin síld|
er ennþá söltunarhæf. Nokkuð
hefur verið fryst af síld.
— Benedik..
Fjölmargir hafa stundað sól og sjóböð í Nauthólsvíkinni að undanförnu, og þar hitti ljós-
myndari Mbl. þessar fjórar ungu blómarósir.
Áhöfn Sólfaxa í sóttkví vegna
hættu á Asíu-inflúenzunni
Brauðgerðarhúsum lokað
frá og með deginum í dag
Kartöf luley si
yf irvofandi
f AUGLÝSINGU, sem birtist
blaðinu í gær, lýsti Bakarameist-
arafélag Reykjavíkur, Alþýðu-
brauðgerðin h.f. og Brauðgerðar-
húsin í Hafnarfirði því yfir, að
öll brauðgerðarhús yrðu lokuð
frá og með fimmtudeginum 18.
þessa mánaðar um óákveðinn
tíma.
Að undanförnu hafa verðlags-
yfirvöldin verið að gera reki-
stefnu út af verði ó flatkökum
og mun það hafa verið lækkað
um 5 aura eða úr 1,40 í 1,35.
Leituðu verðlagsyfirvöldin upp
alla þá, sem bökuðu flatkökur,
sem fyrst og fremst munu vera
konur, til þess að koma sínum
lögum yfir þær. Mun þessi flat-
kökuhernaður vera hið eina fram
lag ríkisstjórnarinnar til lausnar
því vandræðaástandi, sem lokun
brauðgerðahúsanna leiddi til.
250 hvalir hafa
veiðst
AKRANESI, 17. júlí: — 250 hval-
ir hafa nú veiðst hjá Hvalveiði-
stöðinni í vor og sumar. Það sagði
Loftur Bjarnason mér í dag. Það
hefir verið meir en nóg að starfa
í Hvalstöðinni undanfarið, við að
taka á móti þessari miklu og góðu
veiði. Hingað kom í dag frá Eng-
landi norska skipið sem flutti
fyrsta hvalkjötsfarminn þangað.
í gær tók skipið 160 lestir af hval
kjöti í Hafnarfirði og hér tekur
það 550 lestir af kjöti en þrátt
fyrir það mun þriðji farmurinn
bíða útflutnings í hraðfrystihúsi
Heimaskaga h.f., enda hefir þar
verið óhemjumikið að gera í
Nú eru brátt sjö vikur liðnar
síðan bakarasveinaverkfallið sumar. — Oddur.
hófst. Engar líkur eru til þess
að það fari að leysast og ekkert
hefir þar gerzt til sátta síðustu
vikurnar.
Fáir samningafundir hafa ver-
ið haldnir. Aðilar hittust að til-
hlutun sáttasemjara sl. föstudag
en þá þokaðist ekkert um. Hafði
þá ekki verið haldinn sáttafund-
ur hálfa þriðju viku.
Ástæðan til lokunarinnar nú
er sú, að bakarameistarar, sem
unnið hafa baki brotnu undan-
farið og starfsfólk þeirra, taka
nú allir sumarfrí á sama tíma.
Lokað verður um óákveðinn
tíma, en væntanlega opnað aft-
ur að sumarfríum loknum.
ÞAÐ hefur frétzt að yfirvofandi
væri kartöfluskortur. Er það
mjög tilfinanlegt, vegna þess hve
kartöflur eru mikill þáttur í
daglegri fæðu manna.
Ekki er vitað, hvort hér er
um að ræða fyrirhyggjuleysi af
hálfu Grænmetisverzlunar ríkis-
ins, eða hvort aðrar orsakir er
hér að verki.
Góð laxveiði
HÚSAVÍK, 17. júlí. — í Laxá í
Þingeyjarsýslu hefur laxveiði
verið frekar treg undanfarið en
þó misjöfn. Frá hádegi í gær að
hádegi í dag veiddust 21 lax á
14 stengur. Var sá stærsti 22
pund. Mest af veiðinni er í Laxa-
mýrarlandi en í gær og í dag tóku
8 laxar á í Heiðarendanum.
Laxveiðimenn telja töluverða
laxagegnd í ánni og segja að veð-
urbreyting geti gefið góða veiði
en í staðviðri veiðist oft lítið.
— Fréttaritari.
Vöttur landar
ESKIFIRÐI 17. júlí. — Á mánu-
dag og þriðjudag landaði togarinn
Vöttur 330 lestum af ísvörðum
fiski á Fáskrúðsfirði og Eskifirði.
Fiskurinn fer til vnnslu í hrað-
írysthúsunum. — Gunnar.
Síðastliðinn sunnudag var haldið hestamót á Sandlæk
í Gnúpverjahreppi. Á mótinu voru hross svo tugum, jafnvel
hundruðum skipti. Mynd þessa tók Elías Hannesson, er bænd-
ur úr Hreppum og Skeiðum voru að kveðjast eftir ánægju-
legan dag.
’ Kom frá Thule þár sem inflúenza geisar
og situr nú í Heilsuverndarsföðinni
U P PI í bæjarsjúkrahúsinu í Heilsuverndarstöðiifni situr áhöfn
einnar millilandaflugvélar Flugfélags íslands í sóttkví sökum
þess að hætta var talin á því að hin skæða Asíuinflúenza bærist
með henni til íslands. Nú sitja flugmennirnir og flugfreyjurnar
í einangrunarstofum í bæjarspítalanum og una hag sínum sæmi-
lega og tala við gesti sína út um gluggana.
SNÉRU STRAX HEIM
Nánari atvik þess að sóttkvía
varð flugáhöfnina eru þau að á
sunnudaginn fór ein millilanda-
flugvélin, Sólfaxi í leiguflug til
Grænlands, bæði með farþega og
varning. Var förinni heitið til
Thule. Er þangað kom fregnuðu
flugmenn skjótt að þar geisaði
skæð inflúenza sem allar líkur
bentu til að væri Asíuinflúenzan
svonefnda en það er mjög skæð-
ur faraldur. Höfðu þeir því mun
skemmri viðdvöl í Thule en ætlað
var og snéru strax heim aftur.
Flugstjórinn, Björn Guðmunds-
son frá Grjótnesi hafði samband
við flugumferðastjórnina í
Reykjavík og tjáði þeim hvernig
komið var og bað um að heil-
brigðisyfirvöldunum yrði gert
aðvart.
ENGINN VEIKST
Þegar fugvélin lenti hér á
Reykjavíkurflugvelli aðfararnótt
mánudagsins hafði borgarlæknir
ákveðið að setja skyldi flugáhöfn
ina í sóttkví af öryggisástæðum
og var áhöfninni ekið rakleiðis
á sjúkrahúsið. Þar þarf áhöfnin
að dveljast í 4—5 sólarhringa.
Enginn þeirra mun hafa veikst
af inflúenzunni eftir því sem
bezt er vitað. Auk Björns voru
með vélinni Karl Schiöth, annar
flugmaður, Ingólfur Guðmunds-
son vélamaður Eiríkur Loftsson
loftsiglingafræðingur og flug-
freyjurnar Ása Andersen og
Brynhildur Matthíasdóttir. Líkast
til mun Asíuinflúenzan hafa bor-
izt til Thule frá Bandaríkjunum.
Karfaflök til
Rússlands
AKRANESI, 17. júlí: — Reknetja
bátar reyndu fyrir sér á nýjum
stað vestur í djúpinu í nótt. Fékk
annar 10 tunnur en hinn 8 tunn-
ur. Hér kom norskt skip sem lest-
aði 250 lestir af hraðfrystum
karfaflökum til Rússlands. — O.
Vísitalan 191 stig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. júlí s.L
og reyndist hún vera 191 stig.
( V iðskiptamálar áðuney tið
17. júlí 1957).
För Heinttdallar
ó Kerlimgarfföll
UM næstu helgi efnir Heimdall-
ur F.U.S. til ferðar á Kerlingar-
fjöll og um Kjalveg.
Ráðgert er að leggja af stað
frá Valhöll við Suðurgötu kl. 4.30
á föstudag, og verður ekið austur
að Kerlingarfjöllum og gist þar.
Á leiðinni austur verður stanz-
að við Gullfoss.
Á laugardaginn verður gengið
á Snækoll, en seinna um daginn
verður ekið til Hveravalla og gist
þar aðfaranótt sunnudagsins. —•
Lagt verður af stað til Reykja-
víkur um hádegi á sunnudag.
Allar nánari upplýsingar verða
gefnar á skrifstofu félagsins í
Valhöll all avirka daga frá kL
10—5, sími 17103.