Morgunblaðið - 11.08.1957, Page 10

Morgunblaðið - 11.08.1957, Page 10
10 MOnCIJlSBl 4ÐIÐ Sunnudagur 11.ágúst 1957 l^ESTMANNAEYINGAR eru merkilegir menn og jm margt líkir frændum sín- um Islendingum! Þeim dugar skki að halda eina þjóðhátíð, eins og flestir menn aðrir láta 3ér nægja, heldur halda þeir aðra síðar á sumrinu og kalla hana auðvitað líka þjóðhátíð — þjóðarinnar, sem í Vest- mannaeyjum býr. Sú þjóðhátíð er engu minni en hin, sem haldin er til minning- ar um að fyrir 146 árum var einn efnissveinn í þennan heim borinn vestur á Rafnseyri við Amar- íjörð, — og þar vantar heldur ekki þjóðlegheitin og ættjarðar- ástina. Þjóöhátíðin í Vestmannaeyjum er ákaflega merkilegt fyrirbrigði, og þá þrjá daga í ágústbyrjun, sem hún stendur má segja, að ibúar hinna sæbröttu eyja gangi að því með jafnmikilli ódrepandi elju og þrautseigju að skemmta sér og þeir draga þann gula úr söltum sjó aðra daga ársins. Ég hefi aldrei séð fólk jafnstaðráðið í að skemmta sér eins og á þjóð- bátíðinni í Vestmannaeyjum, og þegar ég segi fólk, á ég ekki bara við stelpur og stráka á rokk- aldrinum, sem telja Elvis Presley mestan mann í samanlagðri kristninni, á eftir Hauki Mortb- ens. Þar ber neínilega ekki minna á föngulegum peysufatakonum, á skínandi upphlutum með dýrind- is frönsk sjöl og sylgjur úr skíru gulli og rosknum virðulegum Vestmannaeyingum, sem hvísla því að þér í trúnaði eftir mið- naetti á föstudagskvöldið, þegar Ijós flugeldanna brenna marg- litust og bjarmann slær á Molda, að enginn maður hafi fastar stigið dansinn né átt fleiri naeyja munað en þeir, þegar öld- in var enn kornung í vöggu. Eiginlega er þessi merkilegi siður Vestmannaeyinga sprottinn af einskærri vanafestu, af því að þegar eitthvað tekst vel þá eru menn ófúsir að afljuka þeim góða sið og halda honum því áfram, þótt tilefnið sé löngu dottið úr sögunni. ' Þannig er það um þjóðhátíðina. Hún byrjaði þannig, að eyja- skeggjar töldu ástæðu til þess eins og fleiri að gera sér ein- ★ Á þjóðhátíð * I Vesfmannaeyjum Séð yfir hluta af tjaldbúðunum miklu í Herjólfsdal á þjóðhátíðinni fyrir viku. hvern dagamun á þúsund ára af- mæli íslandsbyggðar 1874. — Ákváðu þeir þá að efna til þjóð- hátíðar, sem samtímaheimildir kalla að vísu „Þjóðminn- ingahátíð“. Var hún síðan hald- in við fjölmenni mikið á einum fegursta staðnum á Heimey, í Herjólfsdal, þar sem fyrsti landnámsmaður eyj- anna setti bú sitt endur fyrir löngu. Tvœr íbúðir óskast til kaups nú þegar. — 2ja herbergja ný eða gömul innan Hringbrautar og 3ja h'erbergja hæð á góðum stað, ekki í blokk. Tilboð merkt: Stað- greiðsla — 6070, sendist Mbl. fyrir 14. þ.m. Skatfar 1957 Athygli skattgreiðenda og kaupgreiðenda í Reykjavík er vakin á eftirfarandi: % hluti þinggjalda 1957 féll í gjalddaga 1. þ.m., og hafi þessi hluti þeirra ekki verið greiddur fyrir 15. þ.m., falía skattarnir allir í gjalddaga og eru lögtakskræfir. Gjalddagar skattanna í ár eru 1. ágúst, 1. septem- ber, 1. október og 1. nóvember V* hluti skattanna i hvert sinn. Fastir starfsmenn, sem greiða reglulega af kaupi, mega þó skipta skattinum á 6 mánuði, þannig að auk fyrrnefndra gjalddaga komi 2. janúar og 1. febrúar 1958, enda sé þá greitt á hverjum gjald- daga. Hinn 1. marz n.k. hefjast fyrirframgreiðslur upp í skatta 1958. Reykjavík, 9. ágúst 1957 Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli. Idag er þessi fyrsta hátið mjög rómuð og ekki er að efa að tígulegar hamraborgirnar umhverfis dalinn hafa enduróm- að af glöðum söng snarborulegra sjómanna og fagurra dætra Vest- mannaeyja, svo sem enn er í Herjólfsdal. En það sem þó einna helzt þykir frásagnarvert og að- komumaðurinn er fljótur að glöggva sig á er rausn eins kaup- mannsins sem þá höndlaði í Eyj- um. Enn þann dag í dag, brátt heilli öld síðar, má sjá í Herjólfs- dal miðjum kringlótta, grasi- vaxna torfu. — Það er „veizlu- borðið“ svonefnda, líklega eitt óforgengilegasta veizluborð, sem um getur í sögunni, og á því bauð kaupmaður þessi, sem vart mun hafa átt sinn líkann í Eyjum eða í landi um matarrausn, öllum til dýrlegrar veizlu og steikti heilt naut tii kræsinganna. Um það er ekki getið hvort hann hafi steikt það á glóandi teini í heilu lagi, en einhvern veginn finnst manni ekkert annað hafa sæmt þessum merka örlætismanni, en að mat- reiða naut sitt að hætti erlendra herkonunga og veita svo sætt púns og göfugt stríðsöl á eftir. En svo vel þótti öli hátíðin tak- ast sumarið 1874 að Vestmanna- eyingar ákváðu strax að endur- taka hana sumarið 1875. Sumir segja enn þann dag í dag, að þar hafi einhverju um ráðið vonin um að það sumar snerist einnig heill nautsskrokkur yfir hægum eldi í húmi sumarkvöldsins í Herjólfsdal og horn yrðu aftur fyllt sætum miði. En auðvitað er það ekkert annað en flím úr tómthúsmönnum um höfðingj- ana. Þegar við komum á flugvöll- inn með ritvélina í annarri hendinni og skóhlífarnar í hinni (samkvæmt þeim upplýsingum, að í Vestmannaeyjum rigndi 301 dag á ári, aðra daga væri súld), var þar fyrir gífurleg þröng, svo minnti á dánarbúsuppboð fyrir strið. Þar var alís konar félk, og á því yar feikilegur asi, en eitt átti það þó allt sameiginlegt: það var staðákveðið að eyða næstu dögum við vín, vif og söng og vera hvergi hnuggið. Af- greiðslumenn Flugfélagsins hefðu vafalaust ekki getað við neitt ráðið, ef þeir hefðu ekki stjórn- að mannfjöldanum með aðstoð hátalarakerfis og röddin í hátal- aranum, þegar kallað var upp að nú færi næsta vél til Vestmanna- eyja, minnti á kurteisan útvarps- þul, sem kemst í það að lýsa knattspyrnukappleik þegar ís- lendingar hafa betur. Meiri hluti farþeganna, sem skömmu seinna settist í vélinni, en þeir voru 1000 alls sem til Eyja fóru frá Reykja- vík þessa daga, var kornungar stúlkur og piltar, stúlkurnar í síðum buxum og strákarnir með svefnpoka undir handlegg. Og innan stundar risu Eyjarn- ar sæbrattar úr sjó og sjá mátti þar grænast gras á öllu íslandi bera við bláan sjóinn. A flugvellinum stigu allir upp í bíl, sem hlýtur að vera elzti bíllinn í Vestmannaeyjum, svo maður segi ekki í heiminum, og jafnvel þótt víðar væri leitað, sem ákaflega spaklegur bústjóri ók og fór að engu óðslega. Bærinn var tómur, galtómur. Ekki sást sála á götunum, utan einstaka köttur, sem fikraði sig meðfram húsvegg, og imgur pilt- ur með skotthúfu sem var að bera út Þjóðviljann. En innan frá einhverri auðri og hljóðri göt- unni kom þó innan stundar nýr vörubíll akandi, útbúinn einstak- lega haglega gerðum sætum. Og ekki leið á löngu þar til við komumst að því a3 vörubílarhir í Eýjum aka þorskinum allt árið á nóttu sem degi, nema þjóðhátíðardag- ana þrjá; þá aka þeir fólki og hafa til þess sérlega hugvitsam- legan sætaútbúnað, svo þeir verða sem fínustu „drossiur“ og kostar þrjár krónur skottúrinn. Inni í dal, þar sem áður stó3 bær Herjólfs kappa og land- námsmanns er gömul skriða, grasi gróin frá ómunatíð og þar krunkaði hrafninn og barg lífi bóndadóttur. Staðurinn er íturfagur og minn ir á Ásbyrgi, ef í nokkui-n sairi- jöfnuð er unnt að fara um nátt- úrufegui’ð. Þar breiða sléttir vell- ir makindalega úr sér iðgrænir á lit, og í miðju er lítil tjörn skömmu ofar sprettur upp ís- kalt bergvatn og sytrar í tjörn- ina. Fjöll eru á þrjá vegu, girt hamrabeltum, illúðlegum þegar að eggjum dregur, en „dyr“ móti suðri. Og þegar við komum nú ak- andi á fiskbifreiðinni fyrrver- andi inn dalinn stóð hátíðin sem hæst. Þar hafði verið reist gífur- lega mikil tjaldborg og voru tjöldin ekki venjuleg lág tjöld, svo sem þau gerast á íslandi, og valda manni hryggskekkju, ef langdvölum er gist í, heldur „hústjöld" svonefnd, sem hafa þá gerð og náttúru, að unnt er að skála í þeim standandi. Þarná stóð hvert hústjaldið við hlið annars, því svo er það á þjóðhá- tíð að hver fjölskylda í Vest- mannaeyjum, sem ber virðingu fyrir sjálfri sér á sitt tjald, sum eru gamlir og kærir erfðagripir, og reisir það í fyllingu tímans og flytur þangað veizluborð, HiS makalausa harnaball á þjóðhátiðinni. — Bórnin i Vest- manBaeyjum læra að „rokkx" og „tjútta" mörg hver, löngu iM~ »r en þau fermast!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.