Morgunblaðið - 11.08.1957, Side 16

Morgunblaðið - 11.08.1957, Side 16
2-24-80 JMmpittSrifo 178. tbl. — Sunnudagur 11. ágúst 1957. 2-24-80 Líflegt í hinum gamla síldarbœ Seyðisfirði í BÆJUNUM á Austfjörðunum, Neskaupstað og Seyðisfirði, var mikið að starfa í gærdag, er síldarskip komu þangað inn með sölt- unarsíld og bræðslusíld. Var t. d. firði í gær í um 2000 tunnur. Síldin virðist eftir því sem sjómenn segja frá,.hafa fært sig miklu nær landi, þannig að skip- in hafa ekki þurft að sækja hana langt. T. d. sögðu Norðfirðingar síldina uppi við landsteina. Voru menn vongóðir um góða síldveiði í gær. Laust eftir hádegi í gær biðu 11 skip löndunar á Seyðisfirði, og voru þar allar síldarþrær fullar. Taldi verksmiðjustjórinn, Þórður Sigurðsson, að í þróm og skipum sem löndunar biðu, væru um 10 þús. mál síldar. búizt við að saltað yrði á Seyðis- Á söltunarstöðvunum þar var saltað af fullum krafti og vant- aði fólk til starfa, en söltunin taf- samari fyrir það að síldin er afar misstór. í Neskaupstað var einnig mjög líflegt í gærdag, því þangað komu nokkur skip með síld til sölt- unar. Togarinn Jón Þorláksson land- aði á Hjalteyri í gær 1126 málum, togarinn Surprise 724 og Akraborg 928 málum. Biður um síma en kemur til oð stela peningum TELPA sem er á að gizka 10—12^ ára hefur undanfarna 10 daga stolið hér í bænum hátt á fjórða þúsund kr. Rannsóknarlögregl- unni hefur ekki tekizt að hafa uppi á telpunni. Reykjavíkur- meistarar Fram Telpan, sem er lýst þannig að hún sé dökkskolhærð, stuttklippt en virðist aldrei vera eins klædd, hefur stolið þessum peningum frá afgreiðslufólki í ýmsum búð- um. Hefur hún komið í búðirnar, beðið búðarfólkið um leyfi til að nota síma, séu þeir í herbergi inn af búðarplássinu. Þar hefur búðarfólkið peningaveskin sín. Hefur telpan farið í veskin og stolið peningunum. í einni búð stal hún til dæmis 1200 krónum. f eitt skiptið var hún með 6—7 ára dreng með sér. Síðasta pen- ingaþjófnaðinn, sem rannsóknar lögreglunni er kunnugt um, framdi telpan í fyrradag. Vorugeymslurnar senn málaðar ÞEIR sem ekið hafa um Laugar- nesveginn undanfarið hafa marg- ir hverjir verið að velta því fyrtr sér hvort nú sé búið að mála hinar miklu skemmur Eimskipa- félagsins við Borgartún. Svo er að vísu. Það hefur verið borið á þær þéttiefni, sem flintkót heit- ir, en síðan á að mála yfir það og er verið að fikra sig áfram varðandi heppilegt og í senn smekklegt litaval, en húsin eiga að vera tvílit. Munu þau verða máluð á næstunni, eða þegar byggingafulltrúi bæjarins hefur samþykkt litaval Eimskipafélags manna. fara óstyrktir gegn Rússum í KVÖLD kl. 8 er þriðji leikur hinna rússnesku knattspyrnu- gesta Vals og KR. Reykjavíkur- meistarar Eram mæta þá Rússun- um. Lið Fram er óstyrkt frá fyrri leikum: Geir Kristjánsson, mark vörður, Gunnar Leósson og Guð mundur Guðmundsson bakverð- ir, Hinrik Lárusson, Halldór Lúð víksson og Reynir Karlsson, framverðir, Karl Bergmann, Björgvin Guðmundsson, Dag- bjartur Grímsson, Guðmundur Óskarsson og Skúli Nielsen fram herjar. Albert stöðujil í reynsliísiglingu SÁ dagur nálgast að björgunar- skúta Norðurlands, Albert, hefji gæzlustarf. — Undanfarna daga hafa verið farnar reynslu- ferðir með skipið hér út í Faxa- flóa og ytri höfnina, en það hef- ur ekki fengizt upplýst hve gangmikið þetta litla, rennilega skip er. Þessum reynsluferðum mun verða haldið áfram þessa viku, en að þeim tíma loknum verður skipið brátt tekið í tölu hinna íslenzku varð- og björgun- arskipa, með formlegum hætti. Arbær að rísa Hin rauðmáluðu bæjarþil á hin um gamla gisti- og veitingastað í Árbæ fyrir ofan Elliðaár, hafa dregið að sér athygli fjölda fólks í sumar, en þar fer nú fram við- gerð og endurnýjun. Vona ég að hægt verði að bjoða fólki að skoða bæinn í góðu veðri á sunþu dögum nú í sumar, sagði Lárus Sigurbjörnsson, er Mbl. kom að máli við hann um daginn. í vor er leið, tók bærinn Árbæ í sína vörzlu, en hann var þá að falli kominn og allt brotið og bramlað innandyra. Hefir síðan verið unnið að því að lagfæra bæjarhúsin. Vonast ég til, að því verki verði það langt komið á 171. afmælisdegi Reykjavíkur, 18. úr „öskunni" þ.m., að almenningur geti skoðað bæinn. En þegar hann verður opinn, verður það gefið til kynna með fána á stöng við Árbæ. — Er ekki hugmyndin að búa Árbæ húsgögnum? Vissulega er það meiningin, — og þið mættuð í Mbl. geta þess, að við munum með þökkum þiggja gömul húsgögn og annan húsbúnað, sem tíðkaðist þegar Árær var í senn býli og sveita- veitingastaður, eða kringum síð- ustu aldamót. — Ég vil geta þess, að í Árbæ er hlóðaeldhús og sam byggt fjós, og er það elzti hluti bæjarins. Hefir hvort tveggja verið mikið skoðað í sumar af innlendum sem útlendum. Laugarnesið og hlnn nýi íþróttavöllur í Laugardalnum. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Kjölur lagður að nýjum Fossi SL. mánudag var í hinni miklu skipasmíðastöð í Álaborg lagður kjölur að nýju skipi, „Bygging 125“. Er hér um að ræða næsta Foss, sem Eimskipafélagið lætur byggj a. Verður það skip um 1000 tonnum stærra en „þríburarnir“ svonefndu, en minna en Trölla- foss. Þessi Foss á að vera tilbú- inn í árslok 1958. Fyrstu fiskfarmarnir á leið út eftir verkfall ÞÚSUNDIR tonna af hraðfryst- um fiski eru nú á útleið héðan, fyrstu farmarnir að loknu far- mannaverkfallinu. Er hér um að ræða innlend skip og erlend leiguskip og eru þau nú öll lögð af stað með fiskinn til ákvörð- unarstaðar að einu undanskildu, sem lætur úr höfn á morgun. Tröllafoss er á leið til Banda- • ríkjanna, Vatnajökull á leið til Rússlands og Svíþjóðar, Dranga- jökull fer til Hamborgar með fisk sem fara á austur til Tékkó- slóvakíu, tvö leiguskip Ice princ- ess og Henry Horn eru á leið til Rússlands, einnig Lagarfoss og á mánudaginn fer Goðafoss héðan áleiðis til Bandaríkjanna með fiskfarm. i rœðileg útgáfa á sam- felldri sögu Reykjavíkur Bjúgnakrækir á ferðinni EINHVER af ættfólki hins við- fræga jólasveins Bjúgnakrækis virðist hafa brugðið á leik hér í bænum í fyrrinótt. Nótt þessa var framið innbrot í kjötverzlunina Búrfell við Vitatorg og var þar stolið hvorki meira né minna en þrem kössum af kindabjúgum, 15 kg. hver og einum kassa af niðursoðnum baunum. Átti þetta að fara út á land og var merkt þangað. Gullfoss með 110 farþega í gær GULLFOSS fór í gær fyrstu för sína til Leith og Kaupmanna- hafnar eftir verKfallið. — Með skipinu voru um 140 farþegar. Á þilfari voru í básum sex hestar, sem fara til Skot- lands og skozkur maður keypti hér. frá í fréttum var nýlega háð nor- rænt vinabæjamót á Siglufirði. Var þetta annað mót sinnar teg- undar hér í bæ ( hið fyrra var háð 1950) og jafnframt annað mót sinnar tegundar hérlendis. — Meðfylgjandi mynd sýnir full- trúa vinabæjanna, er Siglufjörð sóttu heim, og halda þeir á skjald armerkjum bæja sinna, sem þeir afhentu Norræna félaginu að gjöf. — Talið frá vinstri: hr. borg arstjóri P. Munk-Paulsen frá Herning, Danmörku, frú magister Aino Liukkonen frá Utajarvi, Finnlandi, borgarstjórafrú Munk BÆJARRÁÐ hefir fyrir skömmu samþykkt að hafizt verði handa um útgáfu á samfelldri sögu Reykjavíkur eftir frumgögnum í Skjalasafni bæjarins og annars staðar. Fól það forstöðumanni þess, Lárusi Sjgurbjörnssyni, að gera tillögu uín hvernig þeirri útgáfu verði hagað. — Slík út- gáfa tíðkast í öðrum löndum, og má því telja þessa samþykkt bæjarráðs fyllilega tímabæra. Sagði Lárus í samtali við Mbl. í gær, að ekki væri að svo stöddu um að ræða nýja sögu bæjarins, heldur fyrst og fremst fræðilega útgáfu heimildarrita, svo sem gjörðabóka, borgarafunda, bæj- arstjórnar og nefnda frá fyrri tíð. Útgáfa þessi hlýtur að byggj- ast á frumgögnum, sem nú eru varðveitt í Skjalasafni bæjarins og að nokkru í Bæjarfógetasafni x Þjóðskjalasafninu. En á þessu stigi málsins get ég að sjálfsögðu lítið sagt um út- gáfustarfsemi þessa. Það mun verða umfangsmikið starf, sem strand í Noregi og hr. ingeniör Henry Karlberg frá Vánersborg í Svíþjóð. í baksýn hin nýja glæsilega Gagnfræðaskólabygg- ing. Formaður Norræna félagsins hér, Sigurður Gunnlaugsson, hafnargjaldkeri, afhenti síðar bæjarstjórn Siglufjarðar skjald- armerki vinabæjanna, ásamt skjaldarmerki Siglufjarðar, en skjaldarmerkin prýða nú fundar- sal bæjarstjórnarinnar. —• Stefán. einkum er fólgið í ritun skýring- argreina á frumgögnunum. Er sennilegt að útgáfan verði ekki umfangsmeiri en 1—2 hefti á ári, þ.e.a.s. ef farið verður inn á þessa braut. Hermálaráðherra Bandaríkjanna í heimsókn HERMÁLARÁÐHERRA Banda- ríkjanna, Wilbur T. Brucker, kom í gær í stutta heimsókn til íslands. Með honum í förinni voru frú hans og aðstoðarheiv málaráðherrann, Mr. Huth M. Milton III. Ráðherrann kom til Reykjavík- ur með flugvél frá Frakltlandi kl. 6.15 í gær og tók m. a. sendi- herra Bandaríkjanna á móti hon- um. Um kvöldið sat hann fagn- að í sendiráði Bandaríkjanna, þar sem honum gafst m. a. tæki- færi til að ræða við íslenzka ráða menn. Síðar um kvöldið fór hann til Keflavíkurflugvallar þar sem hann hafði nætursetu og í dag ætlaði hann að vera viðstaddur liðskönnun á flugvellinum. Síðan mun hann halda ferð sinni áfram til Thule í Græn- landi og þaðan til Bandaríkjanna. Skipið sokkið SEYÐISFIRÐI, 10. ágúst. — Norska síldveiðiskipið Bövik, sem strandaði við Unaós í fyrradag, er nú sokkið. Þegar það renndi upp á skerið eyðilagðist í því botninn. Svarta þoka var. Skip- brotsmennirnir, sem eru níu tals- ins, eru hingað komnir og munu fara héðan til Reykjavíkur. Vinabæjamót á SigIufirði SVO SEM Mbl. hefur áður skýrt Paulsen frá Herning, Bergny Steen kennslukona frá Holme-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.