Morgunblaðið - 18.08.1957, Blaðsíða 15
Sunnudagur 18. ágúst 1957
MORGZJNBL AÐ1Ð
15
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 9
bandamönnum sínum ,eða láta
með óhlutdrægum hætti kanna
til botns, hvað rétt er í ásökun-
rnn þessum.
Hlífðin við Lúðvík
Eymd Alþýðuflokksins hefur
lýst sér með margvíslegu móti
að undanförnu, en e. t. v. á eng-
an hátt betur en því, hve Al-
þýðublaðið hefur forðazt að skýra
frá afglöpum Lúðvíks Jósefsson-
ar við stjórnarstörf hans. Áreið-
anlega er engum kunnugra en
einmitt Alþýðuflokksráðherrun-
um, hvernig aðfarir Lúðvíks í
sambandi við farmannadeiluna
leiddu til þess bæði að lengja
hana og magna kröfurnar, sem
að lokum varð að ganga að. Ein-
hvern tíma hefði Alþýðuflokkur-
inn haft kjark til þess að láta
ekki slík glappaskot af hálfu yf-
irlýsts Moskvukommúnista þegj-
andi fram hjá sér fara, ekki sízt,
þegar þau urðu í verkalýðsmál-
um, þar sem Alþýðublaðið hefur
þó öðru hverju látið koma fram,
að lítil sem engin samvinna væri
á milli flokkanna. En Alþýðu-
blaðið þegir nú þunnu hljóði um
frammistöðu Lúðvíks og hjálpar
kommúnistum þannig til að kom-
ast úr einni verstu klípu, er þeir
hafa lent i vegna framhleypni
sinnar og kunnáttuleysis um að
sameina stjórnarstörf og verka-
lýðsbaráttu.
Þegar þetta er íhugað, er ekki
að furða, þó að óánægjan innan
Alþýðuflokksins með stjórnar-
Bamstarfið og bandalag Alþýðu-
flokksins við kommúnista fari
dagvaxandi.
Kjördæmamálið
Hin magnaða óánægja brauzt
m. a. út i grein Jóns Emils um
kjördæmamálið, er Alþýðublað-
ið birti i síðustu viku. - Sú grein
var skynsamlega og hóflega rit-
uð. Lýsti berlega hinum miklu
vonbrigðum, sem margir Alþýðu-
flokksmenn hafa orðið fyrir út
af samstarfi Alþýðuflokksins við
Framsókn og kommúnista. —
Reynslan hefur margsýnt, að
lausn kjördæmamálsins í sam-
Starfi við Framsókn er vonlaus.
Fláttskapur eg tækifærishugur
kommúnista er einnig svo magn-
aður, að erfitt mun verða að
hemja þá til ærlegs samstarfs í
þessum efnum. Allir þeir, sem
átta sig á hvílík hætta lýðræði á
íslandi stafar af núverandi á-
standi, verða því áui tillits til
flokksbanda að taka saman
höndum og reyna að finna við-
unanlega lausn.
Silfurtunglið
Gömlu dœgurlögin
leikin í kvöld.
Stjórnandi Baldur Karlsson.
Hljómsveit Karls Jónatanssonar
leikur.
Þar sem fjörið er mest, skemmtir fólkið sér bezt
Opið i síðdegiskaffitimanum
Drekkið síðdegiskaffið í Silfurtunglinu.
Silfurtunglið.
Útvegum skemmtikrafta. Sími 19611, 19965 og 18457.
Hlégarður Leiksýning.
Sýnum gamanleikina
Fesfamœr að láni
og geimfaran
í Hlégarði, sunnudagskvöld kl. 9.
Flokkur úr leiklistarskóla Ævars Kvaran.
Stúlka
óskast í skartgripaverzlun.
Tilboð sendist Morgimblaðinu merkt:
A B —6150.
L i t i ð
Einbýlishús
á góðum stað í bænum, sem er 3 lítil herbergi og eldhús,
bað og búr, ásamt 2 geymslum og þvottahúsi (allt á sömu
hæð), 560 ferm. leigulóð, til sölu nú þegar.
Hóflegt verð, ef samið er strax.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudag
merkt: Rólegt —7834.
Tilkynning frá
Ratiðakrossinum
Samkomur
ZIOSS — Almenn samkoma í
kvöld kl. 8.30.
Hafnarfjörður: Samkoma i
dag kl. 4 e. h. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
HiálpraeSishertnn. — KI. 11
Helgunarsamkoma. — Kl. 16
Útisamkoma. — KI. 20.30 Hjálp-
ræðissamkoma. — Allir velkomn-
ir. —
Fíladelfu. — Almenn sam-
koma kL 8.30. — Kristín Sæmunds
og Þórarinn Magnússon tala. —
Allir velkomnirl ____
BræSraborgarstíg 34. — Aím.
Mmkoma í kvöid kl. 8.30. — Allir
velkomnir.
Almcnnar tamkomur
Boðun fngnaðarerindisins
Austurgötu 6, Hafnarfirði, á
gunnudögum kl. 2 og 8.
Vinno
Hreingerningar
Vanir menn. — Fljót afgreiðla.
— Sími 33372. HólmbrœVut.
I. O. G. T.
Stúkan Framtíðin nr. 173.
Fundur annað kvöld. Litskugga
myndir. H. T. Æ. T.
Börn á vegum Rauða Krossins, sem eru á Silunga-
polli koma í bæinn þann 21. þ. m. kl. 10,30 f. h.
og þau, sem eru í Laugarási koma 22. þ. m. kl. 1 e.h.
Aðstandendur komi á planið á móti Varðarhúsinu
til að taka á móti börnunum og farangri þeirra.
fJiLSeitp&ncUtr ccthxígriÓ/
þcuS bort/ar Stt? aS ixta sertroia mmn stcipuZepyja loð jfáar
Vr<* g&rrtm igx?pcfrv0Í2x tx-ramf pZöniit/tJia hoort sern/ber
laitJ okkur', cu*rct asiZzJ jtfctfftr a<J annctsé frarnki/œmdzr.
Hppdraefitr cruAtrofaftx t/cJttr ctj gtarct parjinn i á/örjgrusri
Vertf cct kr Ó00-J600 ^ .
J/,rúJ<rarJaa-U<t*U/.
Vorugeymsla
Húsnæði fyrir vörugeymslu óskast til leigu,
helzt sem næst miðbænum.
N.L.F. búðin
Sími 10263.
Slmastúlka
Ein af stærstu heildverzlunum bæjarins vill ráða stúfku
til símavörzlu frá 15. september nk.
Skriflegar umsóknir merktar: „Símastúlka —6133“, er
greini frá aldri umsækjanda, menntun, fyrri störfum,
símanúmeri, heimilisfangi og öðru sem máli skiptir,
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 25. ágúst.
Mynd umsækjanda fylgi umsóknum og endursendast
slíkar myndir að sjálfsögðu.
Doðlur Gráfikjur
Steinarúsínur — Appelsínur
Nýmalað hveitikorn
Nýmalað rúgkorn.
N.LJr. búðirnar
Týsgötu 8 — sími 10263.
Austurgötu 25, sími 50260. Hafnarfirði.
Aðvörun
Um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á söluskattl,
útflutningssjóðsgjald, iðgjaldaskatti og farmiðagjaldi.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimiíd
í lögum nr. 86, 22. desember 1956, verður atvinnurekstur
þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt, útflutningssjóðsgjald, iðgjaldaskatt og farmiðagjald
H. ársfjórðungs 1957, stöðvaður, þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun,
verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstof-
unnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 16. ágúst 1957.
Sigurjón Sigurðsson.
Eiginmaður minn og faðir okkar
FRIÐRIK MAGNÚSSON,
útvegsbóndi frá Látrum í Aðalvík, er andaðist 12. þ. m.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 19.
ágúst. kl. 2 e. h. — Húskveðja verður að heimili hins látna
Hjarðarhaga 31, kl. 1 e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. ^
Rannveig Ásgeirsdóttir,
Pálína Friðriksdóttir,
Gunnar Friðriksson.
Jarðarför mannsins míns
AXELS SVEINSSONAR
verkfræðings,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. þ.m. kl. 1,30.
Oddný Pétursdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður
okkar
KRISTÓFERS KRISTÓFERSSONAR
Skipholti 12
Björgvin Kristófersson,
Björn Kristófersson.