Morgunblaðið - 24.08.1957, Síða 2

Morgunblaðið - 24.08.1957, Síða 2
7 MOKGU l\ fíl. 4 OIÐ Laugardagur 24. ágúst 1957 Vihburharík nótt v/ð Efra-Sog er Þróttarbílstjórar brutust gegnum. vegavirki starfsbræðra sinna r * i .r «----------- Leysa verður deiluna áður en til stórtíðinda dregur At'BURÐIR þeir, er gerðust aust- ur við Efrá-Sog í fyrrinótt, eru í eðli sínu mjög alvarlegir, þar sem fjrrst og fremst er um að ræða átök milli tveggja fjöl- mennra verkalýðsfélaga, árekstra milli manna, sem vinna sömu störf og eru í landssambandi, sem þeir hafa stofnað til verndar hags munum sínum. Þó ekki kæmi til handalögmála milli hins fjöl- menna hóps Þróttar-vörubílstjóra úr Reykjavík og Mjölnis-vörubíl- stjóra úr Arnessýslu, mátti heyra á máli bílstjóranna í kappræð- um við Efra-Sog í fyrrinótt, að viðhorf austanmanna og Reyk- víkinganna til þessa alvarlega máls eru mjög ólík. Við svo búið má ekki standa, og það verður að leysa hnútinn, áður en til stór- vandræða og jafnvel líkamsmeið- inga kemur. Segja verður það eins og það er, að ekki mátti mik- ið út af bera, að þarna drægi tii stórtíðinda með Arnesingum og Reykvíkingum. Báðir deiluað- Uar höfðu við orð að grípa tU enn róttækari ráðstafana, ef hinn aðilinn hefðist fleira að: Boðuðu enn frekari liðssamdrátt við Efra Sogsbrú, austanmenn til þess að stöðva bílalestir Þróttarmanna, og Þróttarmenn til þess að ryðja bílum sínum braut í gegnum þá farartálma, er kynnu að verða settir á leið þeirra. A sama tíma og svo alvarlegir atburðir gerast í röðum vörubifreiðastjóra, hefur stjórn landssambands þeirra ekk- ert það aðhafzt í máiiny, sem verða mætti til úrlausnar. Sama máli gegnir um stjórn Alþýðu- sambands íslands, sem að sögn stjórnarmanna í Mjölni hefur enn sem komið er daufheyrzt við kröfum Arnesinga um afskipti af þessari deilu. í fyrrinótt var logn, milt veð- ur, en mikil rignmg austur við Sog. Þegar tíðindamann blaðsins og ljósmyndara þess bar þar að, hittu þeir brátt í myrkrinu hóp manna, sem spurðu hvort ekki væru fleiri úr Reykjavík þar á ferð. Og þeir bættu við: — Við eigum nefnilega von á eigi all- fáum vörubílstjórum þaðan, sem ætla að brjótast með bila sína yfir Efra-Sogsbrúna. Þetta voru vörubilstjórar úr Mjölni, og þeir sem höfðu orð fyrir þeim í stuttu samtali við tíðindamann blaðsins, voru þeir Sigurður Ingvarsson formaður félagsins og ritari þess, Björgvin Sigurðsson. I þessu sam tali, sem fram fór á veginum fyr- ir ofan brúna, sögðu þeir, að allt, sem þeir hefðu að segja í þessu máli, væri hægt að lesa í annarri og þriðju grein laga sambands vörubílstjóra, sem þeir teldu að Þróttarmenn hefðu þverbrotið. Það kom síðar fram, að deila sú, sem Mjölnismenn telja sig eiga í við verktakana, Efrafall h.f., er nánast nafnið eitt. Verktakarnir höfðu, nokkrú áður en Mjölnis- menn komu til skjalanna, gert bindandi samning við Þróttar- vörubílstjóra um flutning á öllu efni frá Reykjavik að virkjunar- stað. Er eiginlega um að ræða endurnýjun a sams konar samn- Framh. á bls. 3. Þegar búið var aS opna veginn fengu menn sér i nefið. 8 frjálsíþróftamenn KR farnir utan til keppni í GÆRMORGUN fóru utan 8 KR-ingar, allt frjálsíþróttamenn, undir fararstjórn Benedikts Jakobssonar íþróttakennara. — Þeir fara til kappmóta í Svíþjóð, Danmörku og ef til vill í Noregi. Slökk viliðið á ferðiniii f GÆR kl. 12.20 var slökkvilið- ið kallað að Sólvallagötu 70, en þar hafði komið upp eldur í tré- smíðaverkstæði. Reyndist eldur- inn hafa kviknað út frá nf- magnstæki og var kominn í timburklæddan útvegg. Skemmd ir urðu ekki miklar. Tvívegis eftir að slökkviliðið taldi sig hafa ráðið niðurlögum eldsins í seglasaumastofunni (fréttin er á öðrum stað) var það aftur kallað þangað. Kom upp glóð í þiljum en öll þil þar eru stoppuð með spónum. — Slökkviliðið setti vörð á eldstað- inn tvo fyrstu tímana eftir að það yfirgaf staðinn. Þá skeði ekkert en síðan tvívegis siðar um daginn blossaði eldurinn upp. Skákmótið í Hafnarfirði HAFNARFIRÐI. — Eftir fjórar umferðir á skákmótinu er röðin þannig: Ingi R. ZVi vinning, Benkö 3 v. og 1 biðskák, Pilnik 2%, Friðrik 2 og 1 biðskák, Arni Finnsson Wi og 1 biðskák, Sig- urgeir og Jón Kristjánsson 1 v. og 1 biðskák, Kári Vz og 2 biðsk., Jón Pálsson % og 1 biðskák, Stígur % vinning, \ í gærkvöldi voru tefldar bið- skákir úr 3. og 4. umferð. 5. um- ferð verður tefld á sunnudag kl. 2 og eigast þá við Ingi R. og Piln ik, Benkö og Jón Kristjánsson, Friðrik og Kári, Jón Pálsson og Árni, Sigurgeir og Stígur. — G. E. Syndið 200 metra ’ Keppa víða KR-ingarnir sem utan fóru eru Svavar Markússon, Kristleifur Guðbjörnsson, Gunnar Huseby, Guðm. Hermannsson, Þórður B. Sigurðsson, Jón Pétursson, Pétur Rögnvaldsson og Guðjón Guð- mundsson. Fyrsta mótið sem þeir keppa á er á sunnudag í Helsingborg. Síð- an halda þeir til Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Malmö og síðan víðar og víðar og ljúka keppninni í Noregi að öllum lík- indum. Háselahlutur 40 þús- und krónur GRUNDARFIRÐI, 23. ágúst. — Flestir Grundarfjarðarbátar eru nú komnir heim af síldveiður.um fyrir Norðurlandi. Þó eru þar ennþá tveir bátar sem stunda veiðar i reknet, Aflahæsti bátur- inn hér var Grundfirðingur ann- ar, hásetahlutur tæpar 40 þús. kr. Skipstjóri bátsins var Sophonías Sesilsson. Tveir bátar hafa stundað rek- netjaveiðar héðan að heiman í sumar. Afli hefur verið tregur en virðist hafa glæðzt sfðustu dag ana eða allt að 60 tunnur á bát. Reknetjasíldin er öll fyrst, ýmist til útflutnings eða beitu. — Ernil. Prestofélug Suðurlonds í Vík A MORGUN, sunnudag og mánu- dag, heldur Prestafélag Suður- lands aðalfund sinn í Vík í Mýr- dal. A morgun messa 13 prestar á 8 kirkjum, en messurnar eru allar kl. 2 e. h. Prestarnir sem messa eru: í Stóradalskirkju, sr. Jakob Jónsson og sr. Guðmund- ur Guðmundsson, í Asólfsskála- kirkju sr. Sveinn Ögmundsson og sr. Jón Arni Sigurðsson, í Ey- vindarhólskirkju sr. Gunnar Arnason, í Skeiðflatarkirkju sr. Gunnar Jóhannesson og sr. Guð- mUndur Óli Ólafsson, í Reynis- kirkju sr. Óskar J. Þorláksson, í Víkurkirkju sr. Jón Auðuns og sr. Jón Þorvarðarson, í Þykkva- bæjarklausturskirkju sr. Ingólf- ur Astmarsson og sr. Þorsteinn Björnsson og í Grafarkirkju sr. Björn Jónsson. Kl. 9 á sunnudagskvöld flytur sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup erindi. Kl. 9,30 á mánudagsmorgun hefst fundurinn að nýju með morgunbænum, «n síðan hefjast aðalfundarstörf kl. 10. Kl. 11 verður flutt framsöguerindi: „Um breytingar á starfsháttum kirkjunnar". Framsögumenn eru sr. Bragi Friðriksson og sr. Sig- urður Pálsson. Kl. 2 verða al- mennar umræður og kl 5 verður rætt um framtíðartilhögun á fundum félagsins. Fundinum lýkur kl. 7 um kvöldið. Páfagaukur á flækingi ÞAÐ var uppi fótur og fit inni í Herskálakamp við Suðurlands- braut einn daginn, þegar krakk- arnir komu auga á örlítinn gyllt- an páfagauk, sem flögraði þar milli bragganna. Hann þreyttist brátt á fluginu, og tókst þá börn- unum að handsama hann og fóru með hann heim, hlynntu að hon- um og gáfu honum að eta. En hann þykir nokkuð grimmur og snöggur upp á lagið, svo nú vilja börnin helzt, að eigandinn komi og sæki hann. Sá hinn sami get- ur farið inn á Suðurlandsbraut 7 og spurt börnin þar um hann. Þau verða víst meira en fegin að fá hann í hendur réttum aðila. Núverandi stjórn Prestafélags Suðurlands skipa sr. Sigurður Pálsson formaður, sr. Sveinn ög- mundsson og sr. Garðar Savavars son. — „Albert“ var vel fagnað í Ólafsfirði ÓLAFSFIRÐI, 22. ágúst- — Varð- og björgunarskipið Albert kom hingað í morgun klukkan 9 og var hér hafður viðbúnaður tU að fagna komu skipsins. Á hafn- argarðinum blöktu fánar, sem og víða í bænum og mannfjöldi stóð á garðinum, er skipið lagði að honum fánum skreytt. Karlakór- inn heilsaði skipi og skipshöfn með söng. Síðan hófust ræðuhöld frá bryggju og af skipsfjöl. Tal- aði fyrstur Þorvaldur Þorsteins- son formaður slysavarnafélagsins hér og þá Rögnvaldur Möller, ea hann á sæti í stjórn björgunar- skúturáðsins. Síðastur talaði Pét- ur Sigurðsson forstjóri Landhelg- isgæzlunnar. Var nú haldið til barnaskólans, en þar höfðu borð verið dúkuð og var drukkið morgunkaffi. Voru þar margar ræður fluttar og voru ræðumenn þeir Þorvaldur Þorsteinsson, for- seti bæjarstjórnar, Magnús Gam- alíelsson, útgerðarmaður, Ás- grímur Hartmannsson bæjarstj., Steindór Hjaltalin, Júlíus Hav- steen fyrrv. sýslumaður, Guð- bjartur Ólafsson forseti Slysa- varnafélagsins og að íokum Pét- ur Sigurðsson, sem þakkaði mót- tökur og hlý orð í garð Land- helgisgæzlunnar og skipshafnar. Meðan skipið lá við bryggju var boðið að ganga fyrstri um borð frú Elínu Þorsteinsdóttur, móður Alberts Þorvaldssonar sjómanns er drukknaði í Ólafs- firði fyrir allmörgum árum, en frú Elín og maður hennar Þor- valdur útgerðarm. Friðfinnsson, sem látinn er, stofnuðu Björgun- arskútusjóð þann, sem varð svo framlag Norðlendinga til bygg- ingar skipsins, til minningar um Albert son sinn, og þannig er nafn skipsins til komið. Um hádegisbilið lét Albert úr höfn og var kvaddur með söng karlakórsins undir stjórn Guð- mundar Jóhannssonar. Var ferð- inni heitið ti’ Dalvíkur. — J. Fká Feneyjum 3 vikna för suður um lönd á vegum ferðaskrifstofu Páls Arasonar FERÐASKRIFSTOFA Páls Ara- sonar efnir á næstunni til þriggja vikna ferðar suður um Evrópu og verður lengst farið suður til Kapri. Ferðin hefst 11. sept. n. k. með því að flogið verður frá Reykja- vík til Parísar og borgin skoðuð í þrjá daga. Þegar ferðalangarnir hafa svalað mestu forvitni sinni þar verður lagt af stað austur á bóginn, til Sviss og þaðan til Ítalíu. A Norður- og Mið-ltalíu verður farið til allra helztu og merkustu borga, svo sem Mílanó, Genúa, Písa, Rómar, Napoli, Florenz og Feneyja. 1 báðum síð- asttöldu borgunum verður dval- ið dag um kyrrt og í Rómaborg þrjá daga. Ennfremur verður komið við í Pompei og dvalið einn dag á Kapri, en allt eru þetta frægir staðir, ýmist fyrir náttúrufegurð, listaverk, söfn og Þyggingar, eða þá fyrir fornminj- ar. Auk þess er seinni hluti sept- embermánaðar einn hinn ákjós- anlegasti tími til þess að ferðast um Ítalíu og Mið-Evrópu. Frá Feneyjum heldur hópurinn norður um Brennerskarð til Austurríkis, Þýzkalands og Dan- merkur og í Kaupmannahöfn lýkur ferðinni raunverular

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.