Morgunblaðið - 03.09.1957, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.09.1957, Qupperneq 1
44. árgangur. 197. tbl. — Þriðjudagur 3. september 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins- Finnska stjórnin endur- skipulögð HELSINKI, 2. sept. — Pinnska stjórnin var endurskipulögð í dag og hefur hin nýja stjórn breiðari grundvöll en fyrri stjórn. Nokkr- ir ráðherranna hafa dregið sig út úr stjórninni, en Sukselainen frá Bændaflokknum *er áfram for sætisráðherra. í stjórninni eru nú 6 menn frá Bændaflokknum, 5 frá öðru broti Jafnaðarmanna, 2 frá Finnska þjóðflokknum og tveir óháðir ráðherrar. Kekkonen forseti samþ. ráð- herralistann í kvöld. Fyrr í dag hafði Sukselainen gengið á fund forseta og spurt hann, hvort þörf væri nýrra kosninga, en Kekkon- en á að hafa svarað, að hann væri ekki hlynntur nýjum kosn- ingum, því þær mundu tefja nauð synlegar aðgerðir til að tryggja áframhaldandi framleiðslu og koma í veg fyrir atvinnuleysi. Mundi það hafa afdrifaríkar af- leiðingar. Fréttir í stuttu máli Lútherska helmssambandið hélt nýlega 10 daga þing í St. Paul í Minnesota-fylki í Bandaríkj- unum. Þar er mjög heitt á sumrin, og þar sem margir fundanna voru haldnir undir berum himni, urðu þátttakendur að nota stráhatta í brennandi sólarhitanum. Eins og sjá má á mynd- inni eru þetta þægileg og klæðileg höfuðföt. Mennirnir eru frá vinstri: Ásmundur Guðmunds- son biskup, séra Benjamín Kristjánsson og séra Tennyson Liu frá Hong Kong. Sundurlyndi ríkisstjórnannnar um lausn farmannadeilunnar ÞREFÖLD UMMYNDUN LUÐVIKS MERKILEGAR upplýsingar um ósamlyndi ríkisstjórnar- innar og furðuleg vinnubrögð Lúðvíks Jósefssonar í sam- bandi við lausn farmanna- deilunnar síðustu koma fram í grein eftir Örn Steinsson í nýkomnu hefti sjómanna- blaðsins Víkings. Ummæli Arnar eru enn eftirtektarverðari fyrir það, að Þjóðviljinn prentar s.l. sunnudag með augljósri ánægju og mótmælalaust upp nokkurn hluta þeirra. En samkvæmt frásögn Arnar, sem á þennan veg hefur ver- ið staðfest af Þjóðviljanum, verður ekki um það deilt, að Lúðvík Jósefsson hefur talið farmönnunum trú um, að ágreiningur væri milli sín og hinna ráðherranna um lausn málsins. Fyrst þykist Lúðvík einungis skipta sér af deil- unni „sem einstaklingur“. A næsta stigi kom hann með „takmarkað“ umboð frá rík- isstjórninni. Það var ekki fyrr en hann hafði „fullkomið“ umboð, þ. e. a. s. samráðherr- arnir gátu ekki lengur spillt fyrir, að lausnin fékkst! Sér- staklega er sveigt að Hanni- bal um fjandskap við sjó- menn. Vitnisburður Arnar um dæmafá óheilindi Lúðvíks Jósefssonar fær aukið gildi, af því að Örn hefur sjálfur íátið ánetjast í blekkingum ráðherrans og hyggur sig vera að hrósa honum, þegar hann gefur. hinar fellandi upplýs- ingar fyrir Lúðvík. Þá kemur og berlega fram. að samningsaðilar farmanna hafi einskis ágreinings orðið varir milli útgerðarfélaganna innbyrðis, enda stóð ekki á þeirh um lausn deilunnar eft- ir að ríkisstjórnin hafði gert upp sinn hug. Loks lýsa ummæli Arnar greinilega, hversu fráleitar ásakanirnar eru um, að aðrir en farmennirnir sjálfir hafi hrint deilunni af stað eða hvatt þá til óbilgirni. Þeir kaflar úr grein Arnar Steinssonar, sem máli skipta eru þessir: „Fagnaðarstund rann upp, þeg- ar verkfalli yfirmanna kaup- skipaflotans lauk eftir nær Ö vikna harða baráttu. Þessi feikna átök urðu svo sterk, að allur þjóðarlíkaminn komst á hreyf- ingu. Einmitt þessi sannindi sýndu hversu ómetanleg störf íslenzki sjómaðurinn vinnur fyr- ir okkar litla þjóðfélag. Mat manna á launakjörum sjómanns- ins stóð þó engan veginn í réttu hlutfalli við þær staðreyndir, að við lifum ekki hér án fiski- og farmanna. Aurkast af versta tagi gat að líta aaglega, meðan verk- fallið stóð, í dagblöðum lands- manna. Almenningur á manna- mótum og klerkur í ræðustól smjattaði á gífuryrðum. Forseti Alþýðusambands íslands ásamt halarófu af verkalýðsfélögum norðanlands sendu „vinsamleg- ar“ vítur á samtök sjómanna Farmennirnir unnu þó ekkert annað til saka en það, að þeir Framh. á bls. 3. Norðmeim hrósa iiæloii-neium ÁLASUNDI, 2. sept. — Vélskipið „Gisköy“ er komið til Álasunds af íslandsmiðum með rúmar 1000 tunnur af síld. Skipið fór frá Álasundi 24. júlí, og þykir veiðin mjög góð á ekki lengri tíma. Ástæðan er talin vera sú, að skip- ið notaði mjög nælon-net, og sögðu sjómennirnir, að það væri merkilegt, hve miklu meira fisk- aðist í nælon-net en í venjuleg baðmullar-net. Skip, sem fóru frá Noregi á undan „Gisköy" með venjuleg net, höfðu ekki fiskað nærri eins vel. GENF, 2. sept. — Kjarnageislun frá Röntgen-tækjum og kjarn- orkuverum eykur ár fr,á ári hætt una á erfðasjúkdómum, segir í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar. sem birt var í dag. Skýrslan er samin af 20 sér- fræðingum frá 9 löndum, sem rannsakað hafa áhrif kjarnageisl unar á erfðir. Sérstaklega benda sérfræðingarnir á hættuna frá alls konar tækjum, sem notuð eru í læknisfræði. Heilbrigði næstu kynslóða stafar mikil hætta frá kjarnorkunni og öðr- um uppsprettum geislunar, þar sem geislun getur leitt af sér alls konar stökkbreytingar í líffær- um manna. í sérstöku fylgiskjali bendir prófessor Court Brown á, að hin auknu mannslát af völdum hvít- blæðis kunni að eiga rætur að rekja til stóraukinnar notkunar á geislavirkum efnum, ekki sízt i læknisfræSi. KAÍRÓ, 2. sept. — Enginn af ut- anríkisráðherrum Arabaríkjanna 9 tekur þátt í fundum Araba- bandalagsins, sem hófust í Kaíró á mánudag. Utanríkisráðherra Súdans var hinn eini, sem kom á vettvang, en hann fór heim aftur eftir að hann hafði látið í ljós vonir um, að fjarvera ann- arra utanríkisráðherra stafaði ekki af misklíð milli Arabaríkj- anna. Venjulega taka utanríkis- ráðherrar þátt í umræðum hinn- ar pólitísku nefndar Arababanda lagsins. NEVADA, 2. sept. — Á föstudag- inn gerðu Bandaríkjamenn 16. kjarnorkutilraun sína á Nevada- eyðimörkinni. Sprengjan var lát- in springa uppi á háum turm, en hún var um helmingi minni en sprengjurnar, sem notaðar voru gegn Japönum 1945. Áhorfend- urnir, sem voru í 13 kílómetra fjarlægð, sögðu, að áhrif spreng ingarinnar hefðu verið meiri en þeir hefðu nokkurn tíma séð fyrr. Hundrað hermenn voru um 4 km frá hinum 150 metra háa turni, og eftir sprenginguna voru þeir látnir hlaupa hindrunar- hlaup og taka sundur byssur sín ar og setja saman aftur. Var það gert til að sjá, hvaða áhrif spreng ingin hefði haft á viðbragðsflýti þeirra. Nehru varar við ástandimi í Sýrlandi NYJU DELHI, 2. sept. — Jawa- harlal Nehru, forsætisráðherra Indlands, sagði í utanríkismála- umræðum þingsins í dag, að ástandið í Sýrlandi fæli í sér mikla hættu. Beindi hann þeirri áskorun bæði til Rússa og Vest- urveldanna að nota ekki löndin fyrir botni Miðjarðárhafs sem reynslurýju í valdastreitu sinni. Nehru benti á, að við austan- vert Miðjarðarhaf váeri nú hættu legra ástand í alþjóðamálum en á nokkrum öðrum stað i heiminum, og hvert lítið deilu- mál gæti orðið neisti, sem kveikti stórbál. „Við þekkjum ekki allt það, sem er að gerast á bak við tjöldin“, sagði hann, „en sá hlut- ur er vís, að ástandið í Sýrlandi er stórhættulegt“. Nehru var mjög fylgjandi því, að stórveldin kæmu sér sem fyrst saman um takmarkaða afvopnun, þar sem slíkt samkomulag væri þó skárra en ekkert samkomu- lag, en ef afvopnun ætti að vera háð lausn annarra pólitískra vandamála, þá væri hvorki útlit fyrir samkomulag um afvopnun né um lausn pólitískra vanda- mála, sagði Nehru. Bréf Macmillans til Búlganins LONDON, 2. sept, — Macmillan forsætisráðherra Breta, hefur farið þess á leit við Búlganin forsætisráðherra Rússa, að hann taki til vinsamlegrar athugunar tillögur Vesturveldanna um tak- markaða afvopnun, sem var lögð fram á afvopnunarráðstefnunni í London í siðustu viku. Bréf Macmillans var afhent í Moskvu á föstudaginn og birt í dag, en á morgun mun undir- nefnd afvopnunarnefndarinnar koma saman aftur eftir 5 daga hlé. Macmillan bendir Búlganin á, að það sé á valdi hans að greiða fyrir samningum um af- vopnun, en tónn og efni þeirra ummæla, sem Zorin fulltrúi Rússa hafi látið frá sér fara 27. ágúst, séu allt annað en upp- örvandi. Macmillan lætur í ljós von- brigði yfir því, að Búlganin hafi látið hjá líða að svara spurning- um hans varðandi Þýzkalands- vandamálið og leggur eftirfar- andi spurningar fyrir hann: 1) Viðurkennir Sovétstjórnin enn ábyrgð sína á sameiningu Þýzkalands, eins og hún lýsti yfir í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga stórveldanna í Genf sumarið 1955? 2) VilJ Sovétstjórnin enn, að Þýzkaland verði sameinað svo fljótt sem auðið er? 3) Styður Sovétstjórnin hug- myndina um frjálsar kosningar í Þýzkalandi öllu? 4) Viðurkennir Sovétstjórnin, að þýzk stjórn, sem kosin er frjálsum kosningum, hafi rétt til að reka sína eigin sjálfstæðu stefnu í innanríkis- og utanríkis- málum? Macmillan ræðir líka ástand- ið við austanvert Miðjarðarhaf og kveðst vona, að Sovétríkin vilji leggja sitt til þess, að frið- ur verði tryggður þar. En hins vegar verð ég að játa, að aðgerð- ir Rússa virðast gefa allt annað í skyn, segir forsætisráðherrann. —NTB-Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.