Morgunblaðið - 03.09.1957, Side 3

Morgunblaðið - 03.09.1957, Side 3
Þriðjudagur 3. september 1957 MORCVNBLAÐ1Ð 3 Samkomugestir nlýða á ræðu Péturs Ottesens, alþm. Efla þarf þann vísi skála, sem þegar er Ánægjulegur bændadagur á Hvanneyri s.l. sunnudag Hvanneyri, 2. sept. BORGFIRÐINGAR fjölmenntu hingað á sunnudaginn er hér var haldinn hinn árlegi bændadagur Borgfirðinga. Var veður gott og fjölmenni mætt, svo 'sem vænta mátti, en þó höfðu samkomugest- ir orð á því, að æskilegra hefði verið að héraðsbúar hefðu mætt þar enn fjölmennari, en um 400 manns komu. Bændadagurinn hef ur verið hvorttveggja í senn skemmti- og fræðsludagur fyrir bændur og búalið, og svo varð einnig að þessu sinni. Tókst bændahátíðin í hvívetna mjög vel og voru samkomugestir á einu máli um það. Hafði safnazt saman mikið fjölmenni hér á staðnum laust fyrir klukkan 2 er samkomugest- ir gengu til kirkju og hlýddu þar messu. Sr. Bergur Björnsson prestur í Stafholti prédikaði, en Guðmundur Þorsteinsson prestur staðarins þjónaði fyrir altari. Úr ræðustól setti Ingimundur Ásgeirsson formaður Búnaðar- samb. Borgarfjarðar, samkom- una. Bændadagur er nú að verða fastur liður í skemmtanalífi hér- aðsins. Er það fyrir prýðissam- vinnu búnaðarsambandsins og Hvanneyrarskóla að til bænda- dagsins er svo vel vandað. Pétur Ottesen alþingismaður Borgfirðinga, flutti aðalræðuna. Ræðumaður minntist HvanneyrT arskóla. Kvað, hann mikla og knýjandi nauðsyn að bæta og efla enn frekar þann vísi að búnaðar- að búnaðarhá- f £ I háskóla, sem við skolann er. Taldi hann það metnaðarmá) Borgfirðinga að efla þessa land búnaðarmiðstöð. í þessari ágætu ræðu sinni vék Pétur Ottesen einnig að bændadeginum, ekki að eins sem samkomudegi borg- firzkra bænda, heldur bæri að stuðla að því að bændastéttin um land allt ætti sinn eigin „dag“ líkt og aðrar stéttir þjóðfélagsins. Ræðumaður vék og máli sínu að markaðshorfum landbúnaðarins og kvað bændur ekki mega láta stundarerfiðleika á sölu landbún aðarafurða buga sig, því úr myndi rætast með síaukinni fólksfjölg- un og aukinni iðnvæðingu lands- ins og benti þar á mikla mögu- léika. Var gerður góður rómur að ræðu alþingismannsins. Björn Blöndal bóndi og rithöf- undur í Laugarholti las ágæta frumsamda sögu. Milli þess sem ræður voru haldnar skemmtu þeir Sigurður Ólafsson og Guð- mundur Guðjónsson með söng, sungu tvísöng við hinar beztu undirtektir. Þessu næst var gengið austur á tún, þar sem sýndar voru ýms- ar landbúnaðarvélar við vinnu. Einkum beindist athygli manna að nýrri gerð sláttuvéla, sem notuð hefur verið í Gunnarsholti. Vélin er mjög frábrugðin þeim sláttuvélum sem hér hafa tíðkazt. í stað venjulegs ljás, eru valsar á þessari vél, alsettir hnífum, en þeir snúast með feikilegum hraða. Um leið og hún slær saxar hún grasið og þeytir pví upp í heyvagn, sem dreginn er á eftir vélinni. Þykir mönnum þessi vél muni bezt henta þeim bænd um sem því koma við að hafa samvinnu um votheysgerð, en þó nokkrir bændur í sveitunum fyrir austan Fjall og eins hér í Borgarfirði hafa tekið upp slíkt samstarf. Fylgdust samkomugest- ir af áhuga með vinnu vélanna sem sýndar voru. Samtímis þessari vélasýningu voru kvikmyndir sýndar heima á staðnum. Að lokum var svo stiginn dans af fjöri fram á kvöld Var komið brúnamyrkur er samkomugestir héldu heim til sín glaðir í bragði, og margs fróð- ari, en slíkt er einmitt einn helzti tilgangurinn með hinum borg - firzka bændadegi. — J.F. Bændadagsgestir horfa á amerísku sláttuvélina að slætti. — Sundurlyndi rikisstjórnarinnar Frh. af bls. 1. gerðu kröfu til launasamræming- ar við alla fyrrgreinda aðila. Rökin fyrir kaupkröfunum voru svo sterk, að enginn gat hrakið þau. Þó nægðu þau ekki til að sannfæra ábyrga menn, sem skelltu skollaeyrum við, og bera því tvímælalaust ábyrgð á hinu langa verkfalli og því tjóni sem af hlauzt. Á síðasta ári eða allt frá þvi að stóra verkfallinu lauk ár>ð 1955, og sjálft Alþýðusamband íslands skipulagði, hafa yfirmenn kaupskipanna kvartað mjög við stéttafélög sín yfir því hversu afkoma þeirra færi versnandi. Og ennfremur, að launakjör há- seta og kyndara væru orðin hærri en yfirmanna. Af þessu tilefni hóf stjórn Vélstjórafélags Islands rannsókn á launakjörum allmargra stétta. Launakjara- rannsóknin náði allt aftur til árs- ins 1938. Fram að þeim tíma voru launakjör hér á landi all- stöðug um langan tíma. Tel ég því eðlilegt að taka tillit til þeirra launahlutfalla. Að rannsókn lokinni, sem var mjög athyglisverð, kom í ljós að stéttir í landi fylgdust mjög að við að bæta kjör sín. Yfirmenn kaupskipanna drógust hins vegar stórkostlega aftur úr, á sama tíma sem hásetar þessara skipa gnæfðu upp úr kauphækkunar- öldunni. Ég læt hér fylgja nokkrar töl- ur máli mínu til staðfestingar. Verkalýðspostular Alþýðusam- bands íslands ættu að íhuga þær gaumgæfilega, áður en þeir kasta næsta steini.------- 1) Verkamaður hefur rúmlega 7-faldað kaup sitt á árunum 1938 til 1957. — 2) Háseti kaupskip- anna hefur 9-faldað grunnlaun sín. Þegar tillit er tekið til sæng- ur- og vinnufatapeninga, sem nú eru komnir inn í grunnkaupið hefur hásetinn 8,3-faldað sitr. kaup. — 3) Járnsmiðir hafa hækkað sín grunnlaun 6,47-falt en raunverulega 6,75-falt, ef tek ið er tillit til þess bvað föst viku- laun þýða umfram tímakaup sem var 1938. — 4) Bæjarstarfs- menn hafa 7-faldað sín laun og verkamenn þar yfirleitt 7,7-fald- að launin frá 1939. — 5) Vélstjór- ar kaupskipanna í 5. fl. hafa 6,13 faldað sín grunnlaun að með taldri þeirri hækkun, sem verk fallið gaf. Ef mótorþóknunin er tekin með, sem er hliðstæð við það sem verkamenn og járn- smiðir fá fyrir sérlega slæm störf, hafa vélstjórar 6,4-faldað sitt grunnkaup miðað við árið 1938. Til gamans get ég þess hér, að verkamenn við vélgæzlustörf í Aburðarverksmiðjunni fá 3400 kr. í grunn pr. mánuð, eða 350 kr. hærra en 3. vélstjóri á Gull- fossi fær eftir fjögra ára starf < þjónustu útgerðar. Dagsbrún samdi svona vel án þess að nokk- ur hefði við það að athuga. Ég læt þessar staðreyndir nægja til að sýna, að yfirmenn kaupskipanna hafa enn ekki hlotið fullan launajöfnuð við stéttir í landi. Yfirmenn verða því ekki sakaðir með réttu að hafa hleypt kaupskr'ðu á stað Sjávarútvegsmálaráðherra var og þetta ljóst, þegar hann kynnti sér málin. Hins vegar benti hann réttilega á, að ekki væri nokkur möguleiki á, að ná fullkomnum iöfnuði, þar sem bilið væri svona stórt og aðstæður í þjóðfélaginu slæmar. Þgssa ábendingu tóku farmenn gilda og gengu að samn- ingum, sem voru mun lakari en ætlað var að ná. Það sem mér fannst athyglis- verðast í deilunni, var að útgerð- arfélögin sjálf virtust algjörlega úr leik. Þau lögðu árar í bát án þess að gera nokkra tilraun til bjargar. Þetta áttu útgerðarfé- lögin ekki að gera, og af þessu leiddi hið hörmulega verkfall. — Útgerðirnar áttu að taka vanda- málinu, eins og það kom fyrir Athuga í samvinnu við farmenn hvað væri eðlilegt og úhjákvæmi legt í kröfunum. Síðan gátu báð • ir aðilar ’ sótt sameiginlega á stjórnarvöldin, ef þyrfti lausn á fj árhagshliðinni. Sjávarútvegsmálaráðherra, sem ég þakka fyrst og ’ fremst, að deilan er leyst, kom í fyrstu sem einstaklingur til okkar og kynnti sér málin. Sýndi hann þar mjög mikinn dugnað og þekkingu á störfum sjómanna. Síðar kom hann méð takmarkað. að því er virtist, og seinna með fullkomið umboð frá ríkisstjórninni til af- skipta af deilunni. Greiddist þá mjög fljótt úr deiluatriðunum. Síðasti samningasólarhringurinn var mjög skemmtilegur, en pá fengum við að ræða við útgerð armennina, sem þá reyndar köll- uðu sig blaðamenn. Þjóðarmein okkar íslendinga, sjúkt stjórnmálalíf, lék lausum hala á siðum dagblaða lands- manna og spilaði á taugar al- mennings. Farmennirnir sjálfir stóðu utan við þann skrípaleik. Áhugi þeirra beindist einungis að því að leysa deiluna sem skjótast og koma skipunum á sjó að nýju. Farmenn lærðu mikið í deil- unni, en þó fyrst og fremst, að mestu varðar að standa fast sam- an með rökfastan og heilan mál- stað. Það var og verður gert hvað svo sem aðrir mæla.“ STAKSTEIIVAR Ungir jafnaðarmenn fordæma Hamrafells- hneyksli Lúðvíks. Á síðu Sambands ungra jafn- aðarmana í Alþýðublaðinu, er nefnist Æskan og landið, segir s.l. föstudag 30. ágúst m.a. svo: „En hafa kommúnistar efni á að brigzla öðrum um svik við neytendur í þessum málum. Var það ekki Lúðvík Jósefsson, ráð- herra kommúnista, er samdi sjálf ur við eigendur Hamrafells um farmgjöld, er voru mun hærri en eigendur Hamrafells höfðu sjálfir gert sér vonir um, er þeir létu smíða skipið. Einungis vegna þess, að farmgjöldin hækkuðu erlendis af völdum Súez-deilunn ar, fóru eigendur Hamrafells fram á hærri farmgjöld en ástæða var til að fallast á. Það stóð þá ekki á Lúðvík Jósefsson, ráð- herra kommúnista, að fallast á þau, enda þótt með því yrðu neyt- endur að greiða nokkrum millj. kr. meira en ella hefði orðið. Kommúnistar ættu því svo sannarlega að fara sér hægt í skrifum um olíumálin. Þeir hafa ekki svo hreinan skjöld þar“. Segja má, að flest snúist nú Lúðvík til óhags, þegar ungir jafnaðarmenn gera einmitt árás á hann af þessu tilefni, þvi að víst bera þeirra ráðherrar sinn hlut af þessari sök. „12 hræður á Alþvðu- bandalagsfundiíl! Sunnudaginn 1. sept. minnt- ist Alþýðublaðið Lúðvíks enn: „Lúðvík Jósepsson ráðherra kommúnista hefur undanfarið verið á ferðalagi út um land til þess að kanna lið sitt. Ekki hefur hann þó haldið marga opinbera fundi, en blaðinu er þó kunnugt um, að hann hélt opinberan fund á Siglufirði. Árangurinn af þeim fundi var þó slíkur, að ekki þarf að búast við, að Lúðvík reyni að halda fleiri í bráð. Fundurinn var auglýstur með götuauglýsingum víðs vegar út um bæ —--------. Árangurinn af auglýsingaraðferðinni varð þó ekki glæsilegur: Aðeins 12 hræð- ur komu á fundinn“. * „Bar ráðherrum Fram- sóknar verr söguna“. Enn segir í þessari Alþýðublaðs grein: „--------Með því að grjót harðir kommúnistar voru á fund- inum höfðu þeir einkum hug á að vita hvernig „kratarnir í rík- isstjórninni" höguðu sér. Munu þeir hafa orðið fyrir vonbrigð- um, þar eð Lúðvík fékkst ekki til að segja neitt illt um ráðherra Alþýðuflokksins. Hins vegar bar hann ráðherrum Framsóknar verr söguna og kvað þá illa við- ureignar í oliumálunum". Lúðvík hefur auðsjáanlega skilning á nytsemi „kratanna i ríkisstjórninni". Með vist sinni þar veita þeir kommúnistum það skjól, sem þeir þurfa nú á að halda. Mörgum kjósendum Al- þýðuflokksins ofbýður hins veg- ar hlífðin við kommúnista, ekki sízt þögn Alþýðublaðsins yfir öll- um hneykslisverkum Lúðvíks Jósefssonar. Orð hinna ungu jafn aðarmanna um Hamrafells-- hneykslið eru eitt merki þess að almenningur i flokknum hefur á þessu allt aðrar skoðanir en broddarnir. Ætlun Lúðvíks er auðsjáanlega að beina gremjunni að Framsókn. Hann veit, að Her- mann setur ekki fyrir sig, þótt hann fái smáhnútur, aðeins ef hann fær að sitja í stólnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.