Morgunblaðið - 13.09.1957, Side 11
Föstudagur 13. sept. 1957
MORCVNBLAÐIÐ
11
Arnheiður Magnúsdóttir
Minningarorð
í DAG er borin til hinztu hvíld-
ar eftir langt og mikið ævistarf
merkiskonan Arnheiður Magnús-
dóttir, sem lézt eftir stutta van-
heilsu hinn 8. þ. m. á nxtugasta
aldursári.
Hún var fædd 23. febrúar 1868
á Bjalla í Landsveit, dóttir hjón-
anna Magnúsar Magnússonar og
Arnheiðar Böðvarsdóttur. Að
henni stóðu stórmerkar og traust-
ar ættir austur þar. Verður þeirra
ekki getið nánar hér, enda hefur
Böðvar að Laugarvatni, hinn
þjóðkunni bændahöfðingi, bróðir
Arnheiðar, gert því máli glögg
skil í riti sínu „Undir tindum“.
Arnheiður var ein af 9 systkin-
um, og lifa auk Böðvars tvær
systur hennar, Guðrún og Vigdís.
Má nærri geta, að á svo stóru
heimili með lítil efni hafa börn-
in snemma verið vanin á að láta
hendur standa fram úr ermum,
og mun það hafa komið sér vel
fyrir Arnheiði, er hún sjálf hafði
fyrir stóru heimili að sjá, enda
mim hún líka hafa vanið börn sín
á iðjusemi. Foreldrar hennar
fluttust frá Bjalla að Holtsmúla
í sömu sveit og bjuggu þar til
ársins 1880, er þaú fluttu búferl-
um að Úthlíð i Biskupstungum.
Sambýlismaður þeirra í Úthlíð
var Jón bóndi Collin Þorsteins-
son. Þorsteinn sonur hans og Arn-
heiður felldu hugi saman, gift-
ust og stofnuðu bú, fyrst að
Stekkholti í Biskupstungum, þar
sem þau voru í tvö ár, en síðan
fluttust þau aftur að Úthlíð, þar
sem Þorsteinn tók við búi af föð-
ur sírium. Árið 1899 fluttust þau
svo að Eyvindartungu í Laugar-
dal, þar sem þau bjuggu æ síðan.
Fluttist Jón faðir Þorsteins til
þeirra á efri árum og dó hjá þeim
í hárri elli árið 1909.
Þeim Arnheiði og Þorsteini
varð 11 barna auðið. Dóu tvö ný-
fædd, 9 náðu fullorðinsárum, 2
dætur og 7 synir, en þau eru
þessi, talin eftir aldri: Jónína,
húsfreyja að Apavatni, Magnús,
lengi starfsmaður hjá Sláturfél.
Suðurlands, Jón, bóndi að Þór-
oddsstöðum í ölfusi, Þorsteinn,
sem lézt árið 1935, Ari, bifreiða-
stjóri í Reykjavík, Ingólfur, yfir-
varðstjóri rannsóknarlögreglunn-
ar í Reykjavík, Hjörtur, bóndi á
Eyri í Kjós, Sesselja, ekkja
Arreboe Clausens og móðir
íþróttamannanna Hauks og Arn
ar Clausens, og Georg, starfs-
maður í bæjarskrifstofu Reykja-
víkur. Ætt Arnheiðar er ákaflega
frjósöm og fjölmenn, munu bein-
ir niðjar hennar, börn, barnabörn
og barnabarnabörn, nú vera um
70 talsins, og er það fríður og
föngulegur hópur.
Eftir andlát manns síns árið
1919 fluttist Arnheiður alfarin
til Reykjavíkur ásamt nokkrum
barna sinna. Hún bjó framan af
með Sesselju dóttur sinni, en hin
síðari ár hjá Ara syni sínum, og
á heimili hans andaðist hún, en
mikillar ástúðar og umhyggju
allra barna sinna naut hún ávallt.
Fyrsta árið, sem Arnheiður dvald
ist í Reykjavík, bjó hún í húsi
foreldra minna. Tókst með henni
og fjölskyldu okkar hin trygg-
asta vinátta, er hélzt æ síðan.
Arnheiður var í meðallagi há,
fríð kona og svipmikil. Mátti
þegar sjá, að þarna var kona
traust og skapföst, sem oft hafði
háð baráttu við örðugleika lífs-
ins og gengið með sigur af hólmi.
Hún var heilsugóð með afbrigð-
um alla ævi, varð naumast mis-
dægurt, hið eina, sem háði henni
nokkuð var heyrnarleysi hin síð-
ari ár. Hún var ágætum gáfum
gædd og var furðuvel menntuð,
þegar þess er gætt, að í hennar
æsku nutu sveitastúlkur ekki
skólavistar að jafnaði. Hún hafði
mikið yndi af lestri góðra bóka
og var mjög söngelsk eins og
margir ættingjar hennar og niðj-
ar. Arnheiður var trúkona mikil,
vönduð til orðs og æðis og mátti
ekki vamm sitt vita. Hún var
hógvær, en ófeimin að verja það,
sem henni þótti satt og rétt. Slíkri
konu er ánægja að hafa kynnzt
og gott til að vita, að enn fóstrar
ísland svo ágætar dætur.
Kristinn Ármannsson.
Fiskimatsnienn í
Norðlendinga-
f jórðungi á nám-
skeiði
HÚSAVÍK, 9. september: — Á
laugardaginn var, var haldið hér
í Húsavík skyndinámskeið á veg-
um Fiskimats riktsins, fyrir mats
menn hraðfrystihúsanna í Norð-
lendingf j órðungi.
Þeir Bergsteinn A. Bergsteins-
son fiskimatsstjóri, og Þorleifur
Ágústsson yfirfiskimatsmaður,
mættu á námskeiðinu ásamt full-
trúum frá sölusamtökum frysti-
húsnna þeir Snæbjörn Bjarnason
húsanna þeir Snæbjörn Bjarna-
son og Valdimar Þórðarson frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Einar M. Jóhannsson frá SÍS.
Það mættu 13 matsmenn frá
þeim 14 hraðfrystihúsum sem
starfandi eru í fjórðungnum. —
Skoðuð voru sýnishorn af fram-
leiðslu frystihúsanna og rædd
mál varðandi freðfiskframleiðsl-
una og kom fram áhugi fyrir
mikilvægi slíkra námskeiða og
auknu samstarfi þeirra aðila,
sem að freðfiskframleiðslunni
starfa.
Að námskeiðinu loknu bauð
Fiskiðjusamlag Húsavíkur þátt-
takendum til hófs í salarkynnum
frystihússins. — SPB
KÓPASKERI, 11. sept. — í dag
hófust göngur í Kelduhverfi.
Fóru menn í dag að smala heið-
arlöndin inn af Kelduhverfi.
Sauðfjárslátrun mun byrja hér
næsta laugardag, Verður slátrað
fleira fé hér í haust en gert var
í fyrra. — Jósep.
Hótel til leigu
Hótel og veitingahús í nágrenni Reykjavíkur til
leigu. Þeir, sem hefðjj áhuga fyrir leigunni sendi
nöfn sín til Mbl. fyrir n.k. mánudag merkt: Hótel
6533. Fyrirframgreiðsla æskileg.
Afgreiðslu og pakkhúsmaður
Iðnaðar- og heildsölufyrirtæki óskar að ráða af-
greiðslu- og pakkhúsmann. Æskilegt að viðkom-
andi hafi bílpróf. Tilboð, er greini aldur og upp-
lýsingar um fyrri störf, merkt: „Föst atvinna —
6528“ sendist blaðinu fyrir 15. þ.m.
Tilkynning
til skattgreiðenda í Reykjavík um gjalddaga
og dráttarvexti
- Annar gjalddagi þinggjalda 1957 var 1. þ.m. og bar
mönnum þá að greiða annan fjórðung þinggjaldanna, svo
samtals er nú í gjalddaga fallinn helmingur þeirra.
Hafi þessi hluti gjaldanna ekki verið greiddur í síðasta
lagi 15. þ.m., falla skattarnir allir í eindaga og eru lög-
takskræfir, og kemur frekari skipting á þeim í gjalddaga
þá ekki til greina.
Jafnframt falla dráttarvextir frá 1. ágúst sl. á alla
skatt'a, sem ekki hafa verið greiddir að hálfu 15. þ.m.
TOLLST JÓR ASKRIFSTOF AN
Arnarhvoli.
Borðstofuskápar
Úr ljósri eik með skúffum, færanlegum hillum
og draghurðum. — Hæð 130x103 cm.
Guðmundur og Oskar
Húsgagnavinnustofa við Sogaveg, sími 14681
Til leigu
er ca. 130 ferm. húsnæði í Varðarhúsinu við
Kalkofnsveg. — Hentugt fyrir smáiðnað eða skrif-
stofur. Uppl. gefur
SVERRIR SIGURÐSSON,
í síma 12200.
Oss vantar nokkrar stúlkur
að síldarsöltunarstöð vorri í Sandgerði.
Upplýsingar i síma 5 eða 42.
Fríar ferðir og húsnæði.
Garður hf. Sandgerði
ér erum sannfærðir um að Parker „51“ penni er
sá bezti, sem framleiddur hefir verið, miðað við verð. 1
hann eru aðeins notuð beztu fáanleg efni . ..
gull, ryðfrítt stál, beztu gæði
og ennfremur frábært plastefni. Þessum efnum
er svo breytt, af málmsérfræðingum, efnafræðing-
um og verkfræðingum í frægasta penna heims . . .
Parker „51“.
Veljið Parker, sem vinargjöf til vildarvina.
Til þess að ná sem beztum árangri
við skriftir, notið Parker Quink
í Parker 61 penna.
Verð: Parker ”51“ með gullhettu: kr. 580. — Sett: kr. 846. —
— Parker ”51“ með lustraloy hettu: kr. 496.00. — Sett: kr. 680
Einkaumboðsmaður: Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283 Reykjavík
Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavörðustíg 5, Rvík
7-5124