Morgunblaðið - 13.09.1957, Blaðsíða 16
VEÐRIÐ
Norðan stinningskaldi. Úrkomu-
laust að mestu.
Við fúngarðinn
Sjá bls. 9.
206. tbl. — Föstudagur 13. september 1957.
-menn krefjast hlutdeildar ■
flutningum austan úr Arnessýslu
Hafa skofið máli þessu til Lands-
sambandsstjórnar ®
V ÖRUBÍLSTJÓRAR hér í Rvik
héldu fund fyrir nokkrum kvöld
um í félagi sínu, Þrótti, og var
þar til umræðu úrskurður stjórn
ar Landssambands vörubílstjóra
í deilu þeirri, er reis upp við
Vörubílstjórafél. Mjölni í Árnes-
sýslu út af efnisflutningum aust-
ur að Efra Sogi. Fundurinn sam-
þykkti að krefjast hlutdeildar í
byggingarefnisflutningum úr Ár
nessýslu svo og í kjötflutningum
að austan sem eru á vegum Slát-
urfélags Suðurlands.
Þessi fundur Þróttarbílstjóra
var fjölmennur. Fundarmenn for
dæmdu einhuga úrskurð stjórnar
Landssambands vörubílstjóra og
töldu hann enga stoð eiga í lög-
um sambandsins. Eigi að síður
kváðust fundarmenn mundu
sætta sig við úrskurðinn fyrst
um sinn, og samþykkti fundur-
inn einróma aðgerðir stjórnar fé
lagsins og trúnaðarmannaráðs í
þessu deilumáli.
Kröfur Þróttarstjórna>
Kom fram á fundinum að stjórn
Þróttar hafði þegar sent stjórn
Landssambands vörubilstjóra
bréf þess efnis, að skorað er á
landssambandsstjórnina að úr-
skurða Vörubílstjórafél. Þrótti
hlutdeild í flutningi á sandi og
vikri til bygginga í Reykjavík,
svo og í kjötflutningum Mjölnis-
manna fyrir Sláturfélag Suður-
lands, hingað til Reykjavíkur.
Töldu Þróttarmenn á fundi
þessum að með því fyrirkomulagi
sem á þessum flutningum hefur
verið, hafi Mjölnismenn þver-
brotið 2. og 3. grein vinnuskipta-
reglnanna. Hafi Þróttarmenn
látið þetta afskiptalaust, þar eð
það hafi verið sjónarmið þeirra
að vörubílstjórafélögin ættu
meiri rétt á að aka vörum út
af vinnusvæði sínu en inn á það.
Lagði fundurinn einróma
áherzlu á að stjórn vörubílstjóra
landssambandsins hraðaði úr-
skurði sínum svo í máli þessu,
að Þróttarmenn gætu þegar tek-
ið þátt í kjötflutningum að aust-
an, er þeir hefjast á þessu hausti.
Blaðaskrifin
Form. félagsins Friðleifur í.
Friðriksson ræddi á fundinum
um skrif blaðanna meðan á deil-
unni stóð og lýsti hann því yfir
að Mbl. hefði eitt Reykjavíkur-
blaðanna flutt hlutlausar fréttir
af því sem gerist, án þess að
taka afstöðu til deilunnar sem
slíkrar og gerði fundurinn í
þessu máli svohljóðandi ályktun:
Fundurinn harmar að sum dag-
blöð bæjarins skyldu meðan
deila Þróttar ogMjölnis stóð út af
efnisflutningum að Efra Sogi,
túlka málið einhliða Mjölnis-
mönnum í vil, en hirða ekki um
að kynna sér málstað og rétt
Þróttar í þeirri deilu.
Fangaflufningar
að Litla Hrauni
austur
í gær
„Steinninn“ verður endurbættur og fanga-
garðurinn mannhelduj: gerr
UM KLUKKAN 2 í gærdag tóku vegfarendur eftir því er þeir áttu
leið um neðanverðan Skólavörðustíginn, að eitthvert meiri háttar
tilstand var í hegningarhúsinu. Stóð þetta í sambandi við flutning
á föngum sem þar hafa afplágað refsingu. Fylgdu lögreglumenn
13 föngum upp í lögreglubíla. Ferðinni var heitið austur að Litla
Hrauni, sem lokað hefur verið frá því í nóvembermánuði síðastl.
Tíu fanganna voru fluttir í®--------------
stórum vagni lögreglunnar, og
voru með í bílnum til öryggis 5
lögreglumenn. Þrír fangar voru
fluttir í minni lögreglubílnum.
Suður í Hafnarfjörð voru sóttir
3 fangar, sem þar hafa verið til
geymslu undanfarið, Þar eð
„Steinninn" var yfirfullur orð-
inn.
Austur á Litla Hrauni tóku 6
varðmenn og fangelsisstjórinn,
Helgi Vigfússon, við föngunum,
sem fylgt var til hinna nýupp-
gerðu fangaklefa, sem allir eru
einsmanns klefar að tveimur und
anskildum.
í gærkvöldi var ekki einn ein-
asti gæzlufangi í Steininum og
sagði Valdimar Guðmundsson yf
irfangavörður, að nú stæðu fýrir
dyrum ýmsar aðkallandi endur-
bætur á fangageymslunni sjálfri
og eins yrði fangagarðurinn gerð
ur mannheldur. Sagði Valdimar
að ef gera ætti Steininn al-
veg upp og að traustu hegn-
ingaihúsi, þá myndi það senni-
lega verða jafnkostnaðÉ-samt
að byggja nýtt hegningarhús. Að
því mun að sjálfsögðu koma,
sagði hann. Taldi hann heppileg-
an stað fyrir það, einhvers staðar
í námunda við Elliðaárvog.
Benkö gerði jafntefli við
Stahlberg en Pilnik vann
í GÆRKVÖLDI hófst „Stórmót“ Taflfélags Reykjavíkur. Gunnar
Thoroddsen setti mótið með því að leika fyrsta leik mótsins fyrir
Pal Benkö sem hafði hvítt gegn sænska stórmeistaranum Stahl-
berg. Lék borgarstjórinn c4 fyrir Benkö og skák meistaranna lykt-
aði með jafntefli eftir 26 leiki hvits.
Kalt um allt land
NORÐANSTREKKINGUR er um
allt land, sums staðar hvassviðii
og kalt mjög í veðri. Þegar bæj-
arbúar risu úr rekkju í gærmorg-
un var Esjan hvít af snjó í efstu
eggjum, en grá niður í miðjar
hlíðar. Er það í fyrsta skipti á
haustinu að svo mikla hríð gerir
í þetta fallega fjall.
í gær var hitinn um land allt
yfirleitt 4—6 stig, sums staðar á
annesjum nörðan lands 3 stig og
kaldast var á Grímsstöðum á
fjöllum, nær 0 stig hiti. í gær-
kvöldi var hitinn 4 stig hér í
Reykjavík, en hafði verið 6 stig
í gærdag.
Eigendur hinnar nýju blómabúðar í Lækjargötu „BIómið“.
Lengst til vinstri er Ragna Jónsdóttir, í miðjunni Margrét
Hinriksdóttir og síðan Aðalheiður Knudsen.
Ný blómaverzlun opnuð
að Lœkjargötu 2
Hefur hlofið nafnið „Blómið"
Lítil síld
AKRANESI12. september. — Að-
eins einn reknetabátur héðan var
á veiðum í. nótt. Það var Skipa-
skagi og fékk hann 174 tunnur
af ágætri síld. Er hún söltuð.
Enginn bátur var úti í nótt vegna
storms. — Oddur.
f GÆR vor opnuð hér í bænum
ný blómaverzlun. Hefur hún hlot
ið nafnið „Blómið“ og er til húsa
í Lækjargötu 2, þar sem áður var
bókaverzlun Eimreiðarinnar. —
Eigendur „Blómsins“ eru þrjár
konur, Aðalhefður Knudsen,
Margrét Hinriksdóttir og Ragna
Jónsdóttir. Buðu þær fréttamönn-
um að skoða hina nýju verzlun
í gærdag.
Smekkleg lítil verzlun
, Allmiklar breytingar hafa ver-
' ið gerðar á húsakynnunum að
Lækjargötu 2. Innréttingu verzl-
unarinnar hefir annazt danskur
arkitekt, Ernst Michalik. Er hún
mjög snoturlega gerð og smekk-
leg. Einnig annaðist hann lýs-
ingu verzlunarinnar. Málningu
sá Ósvald Knudsen um. Verzlun-
in er björt og vistleg þótt ekki
sé hún stór og blómunum kom-
ið fyrir af hinni mestu smekk-
VÍSl.
Blóm og gjafavörur
Ætlunin er að auk blómanna
Skák Benkös og Stahlbergs
vakti mesta athygli í gærkvöldi
og voru þó áhoffendur margir á
mótinu. Benkö hafði mun betri
stöðu, en átti aðeins 5 mín. eftir
af umhugsunartíma sínum er
hann samdi jafntefli og átti þá
Stahlberg eftir 55 mín„ en hann
hafði svart.
Eftir 14 leiki sömdu Ingi R.,
sem hafði hvítt og Arinbjörn
jafntefli. Taldi Ingi sig hafa haft
verri byrjun.
Skák Friðirks og Gunnars
Gunnarssonar fór í bið, en Frið-
rík hafði betri stöðu.
Sögulegust varð skák Guðm.
Ágústssonar og Pilniks. Guðm.
átti unna stöðu, er hann
skyndilega lék að óþörfu drottn-
ingunni í dauðann og gaf skák-
ina. Hann átti þá kost á afger-
andi leik í skákinn og einnig á
drottningarkaupm. Pilnik fékk
þarna ódýran vinning.
Skák Benkös og Stahlebrgs var
þannig:
Hvítt: Benkö
Svart: Stáhlberg
1. c4 e6 2. Rf3 Rf6 3. g3
b6 4. Bg2 Bb7 5. 0-0 Be7
6. d4 0-0 7. Re3 Re4 8.
Dc2 RxR 9. DxR 15 10. b3
Bf6 11. Bb2 d6 12. Hfdl
De7 13. Rel BxB 14. RxB
Rbd7 15. Df3 e5 16. Habl
17. Bxd4 BxB 18. HxB
19. Df4 Hac8 20. Hbdl
21. De3 Hfe8 22. a4
23. Rf4 Df6 24. Hd4d2
Samsýning á málverkons og mósaik-
myndum opnuð í Sýningarsalnum
Sýnd verk þriggja lisfamanna
í gærkvöldi var opnuð í Sýning-
arsalnum við Hverfisgötu sam-
sýning á málverkum- og mósaik-
myndum þeirra Nínu Tryggva-
dóttur, Valtýs Péturssonar og
Þorvalds Skúlasonar. 21 mynd er
á sýningu þessari, sem er fimmta
samsýning Sýningarsalsins í
sumar. Skoðuðu gestir sýninguna
í gærkvöldi em í dag er hún opin
almenningi frá kl. 10—12 og 2—10
og verður það til 25. september.
cxd4
Re5
Rf7
Hc5
Kf8
25. h4 g6 26. Ha2.
Samið jafntefli og var þá
Benkö langt kominn með tíma
sinn en St&hlberg hafði aðeins
notað sinn til hálfs.
Mósaik úr íslenzku grjóti
Á sýningunni eru fjórar mósaik
myndir eftir Valtý Pétursson,
eru þær nýjar og gerðar úr ís-
lenzku grjóti.
Frá Parisarsýningunni
Nína Tryggvadóttir á 10 olíu-
málverk á sýningu þessari. Eru
þau öll ný og voru á einkasýn-
ingu þeirri er Nína hélt í París
sl. vor, ásamt fleiri málverkum
hennar. Nína Tryggvadóttir er
nýkomin frá París og er á förum
tíl London þar sem hún verður
búsett næstu 2—3 ár. Hún hélt
síðast sýningu hér sl. vor í
„skipi“ Landsbókasafnsins á gler
mósaikmyndum.
Ný málverk
Þorvaldur Skúlason á 7 mál-
verk á sýningunni. Þau eru einn-
ig öll ný. Sýning á verkum Þor--
valds var hér síðast í nóvem-
bermánuði sl. en þá gekkst Félag
ísl. myndlistarmanna fyrir sýn-
ingu á verkum hans í tilefni af
50 ára afmæli hans.
verði jafnan á boðstólum í verzl-
uninni ýmiss konar gjafavörur,
svo sem krystallsvörur margs
konar, keramik, bastkörfur og
skálar svo og smáhlutir unnir úr
vír af ýmsum gerðum. Blóm
verða þar til sölu í miklu úrvali,
bæði pottablóm og afskorin blóm
og munu forráðakonur verzlun-
arinnar kappkosta að hafa blóma
valið sem fjölbreyttast.
Störfuðu hjá Flóru
Eigendur verzlunarinnar, kon-
urnar þrjár, störfuðu allar áður
hjá blómaverzluninni Flóru. Eru
þær því reyndar í starfinu og
þekktar að hinni mestu smekk-
vísi.
Stirð tíð á Fjöllum
GRUNDARHÓLI, 12.'sept. Hér
hafa flóðgáttir himinsins staðið
opnar í nær mánuð, og vart þorn-
að af steini þann tíma. Ekkert
hey hefir náðst upp síðan um
miðjan ágúst og liggur það allt
undir skemmdum. Fyrrihluta
þessa óþurrkatíma voru hlýir
sunnanvindar með skúraleiðing.
um og skemmdust þá hey sem lá
flatt, töluvert.
Síðari hlutann hafa verið norS
an krapaslyddur og hiti verið
rétt yfir frostmark, og einu sinni
nú nýlega gránaði í byggð. Hey
hefir því lítið skemmzt þennan
tíma, en mjög óvænlega horfir
ef ekki þornar bráðlega, því hætt
er við að snjó geti sett niður
eftir að þessi tími er kominn.
Mikið af heyi er úti á öllum bæj.
um og jafnvel óslegin sums stað-
ar. Fyrrihluta samarsins kom
varla dropi úr lofti og spratt því
heldur seint og hófu menn af
þeim sökum slátt seinna en æski-
legt hefði verið. Annars var túna
spretta með bezta móti en úthagi
fremur lélegur.
V. G.
Mikil hríÍBÍng á œskulýðstón-
leikum Heimdullur í gærkvöldi
í gærkvöldi efndi F.U.S. Heim-
dallur til æskulýðstónleika í Aust
urbæjarbíói. Þar söng þýzki
óperusöngvarinn Hermann Prey
og landi hans Ernst Schönfelder
lék á flautu, en Guðrún Kristins-
dóttir frá Akureyri annaðist und
irleik.
Áheyrendur fögnuðu listafólk-
inu með afbrigðum vel og var
það kallað fram á sviðið og hyllt
með langvinnu lófataki hvað eft-
ir annað. Varð Hermann Prey
að syngja aukalög.
Listafólkinu bárust margir
blómvendir á tónleikunum.