Morgunblaðið - 15.09.1957, Side 1
16 síður og Lesbók
<*■
44. árgangur.
208- tbl. — Sunnudagur 15. september 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins-
Konrad Adenaur foringi CDU. Erich Ollenhauer foringi SPD. Reinhold Maier foringi FDP.
Fær Adenouer meirihlutu eðu
Muier odduuðstöðu?
í DAG fara fram kosningar til
sambandsþingsins í Bonn. í þeim
eru 242 þingmenn kjördæmakosn
ir, en þar að auki er úthlutað
samkvæmt sérstökum regium 245
uppbótarþingsætum.
Það þykir ljóst, að hinn Kristi-
legi flokkur Adenauers verði
áfram öflugasti flokkurinn. Um
það virðist því aðallega teflt,
hvort hann haldi áfram meiri-
hlutavaldi sínu á þingi.
Rússar vilja fremur veiða
í Norðursjó en við ísland
RÚSSAR hafa ákveðið að auka verulega síldveiðar sínar í Norð-
ursjó, segir Fishing News. Telur blaðið að þetta stafi af því að
síldveiðar Rússa í norðurhluta Atlantshafs við ísland hafi verið
mjög misjafnar og síldin einnig misjöfn að gæðum.
Nú hefur verið stofnuð í Rúss-
landi sérstök nefnd til að rann-
saka og fylgjast með síldveiði í
Norðursjónum. Þykir Rússum
vænlegra að leita þangað heldur
en á norðlægari slóðir. Þeir
munu einkum beita sér að veið-
um meðfram vesturströnd Nor-
egs, við Orkneyjar og Suðureyj-
ar.
Þá skýrði blaðið frá því, að
Rússar hyggi á samstarf við Norð
menn. Þeir vilji skiptast á ýms-
um upplýsingum við þá. Rúss-
neskur síldveiðifloti hefur verið
að undanförnu við Skotlands-
strendur, en samt er það álit
manna, að Rússar hafi enn ekki
öðlazt *ægilega reynslu í Norð-
urs j ávarveiðum.
Ritari greinarinnar í Fishing
News virðist hafa nokkrar á-
hyggjur af þessum fyrirætlunum
Rússa. Telur hann að þegar sé
gengið of nærri fiskistofninum
í Norðursjó og muni það ekki
bæta úr skák ef Rússar auka sína
hluttöku í veiðunum.
Kýpurbúar munu halda áfram
að berjasf, segir Aþímos
Wan prins fer til Moskvu og Búdapest
New York, 14. sept. — Wan Wait
hayakon frá Taílandi, forseti 11.
Allsherjarþings Sameinuðu bjóð-
anna hefur tekizt á hendur ferð
til Moskvu og Búdapest að beiðni
Allsherjarþingsins. Hann sagði
við fréttamenn í dag: „Ég hef
óbilandi trú á réttlæti Samemuðu
þjóðanna í þessu máli“, og átti
við afstöðu samtakanna til Ung-
verjalandsmálsins. Hann kvaðst
mundu beita siðferðislegum rök-
um til að reyna að fá lausn í mál
inu, en hins vegar kvað hann
allt á huldu um árangurinn af
ferð sinni. „Ég er bjartsýnis-
maður og trúi á sannleik hins
gamla orðtaks: Að vilja er að
geta“, sagði hann í útvarpsviðtali
frá S.Þ. Hann kvað siðferðisafl
almenningsáltsins í heiminum
vera raunverulegt afl, sem jafn-
vel Sovétríkin yrðu að taka tillit
til. „Það er ekki ljóst ennþá, hvað
ég get gert, en ég hef óbilandi
trú á málstað okkar — nefnilega
frelsi Ungverjalands, og að bak-
hjarli hef ég trúnaðartraust Alls-
herjarþingsins.
Ef hann heldur meirihluta-
valdi sínu, mun áfram verða
Vestur Þýzkalandi sterk stt ' n
Er hann missir meirihlutann
hefst stjórnarkreppa og m
þriðji stærsti flokkur landsins
Frjálslyndi flokkurinn bá fá odda
aðstöðu og geta ráðið hvort Kristi
legi flokkurinn eða Jafnaðarmenn
setjast í stjórn. Er helzt að skilja
að Frjálslyndi flokkurinn myndi
fremur kjósa samstarf við Jafn-
aðarmenn.
Úrslit kosninganna verður beð-
ið með mikilli eftirvæntingu, ekki
aðeins í Þýzkalandi, heldur út
um alla Evrópu og allan heim.
Talning atkvæða hefst á mið-
nætti, eða kl. 10 eftir ísienzkum
tíma. Verður atkvæðatölum út-
varpað alla nóttina. Gengur það
yfirleitt vel í Þýzkalandi og mun
fljótt auðið að sjá hvert stefnir.
Auðvelt er að heyra atkvæðatol-
ur hér á landi aðallega í þýzku
miðbylgjustöðvunum RIAS og
NWDR.
Vilja fraustari rúm
NÝJU DELHI, 14. sept. — Hóp-
ur indverskra þingmanna hefur
myndað með sér samtök, og
verða meðlimir þeirra að vega
minnst 200 pund. Tilgangur sam
takanna er að tryggja meðlim-
unum ódýrara far með járnbraut
um, breiðari sæti í flugvélum og
traustari rúm í gistihúsum. Þing-
maður nokkur frá Suðru-Ind-
landi, sem vegur 380 pund, hafði
kvartað undan því, að rúm i
einu gistihúsinu hefði brotnað í
spón, þegar hann lagðist þar til
svefns.
NÍKÓSÍU, 14. sept. — Aþímos
biskup í Kitium, sem er yfir-
maður grísku kirkjunnar á Kýp-
ur í fjarveru Makaríosar, sagði
í dag frá altari Stavros-kirkj-
unnar: „Látum óvini frelsisins,
hvort sem þeir eru Bretar, Tyrk-
ir eða Bandaríkjamenn, vita, að
við erum staðráðnir að halda
áfram baráttunni þangað til frels
ið kemur til Kýpur“. Mann-
fjöldinn, sem á hann hlustaði,
laust upp fagnaðarópi, en talið
var að um 6000 manns hefðu
komið akandi, ríðandi eða fót-
gangandi til að taka þátt í ár-
legri kirkjuhátíð, þar sem bisk-
upinn talaði.
Aþímos kvaðst vona, að stór-
veldin stæðu nú við loforðin,
sem þau hefðu undirskrifað um
að styðja allar þjóðir til sjálfs
ákvörðunar, og vonandi mundi
Makaríos erkibiskup, sem i
stæði „úti fyrir hliðum Samein-
uðu þjóðanna", geta minnt þau
á heit sín. Hann sagði, að erki-
biskupinn hefði að baki sér
40.000 grískumælandi Kýpurbúa
og hina friðelskandi grísku þjóð
En verði kröfur okkar ekki
virtar af S. Þ., þá munum við
halda áfram baráttunni hér. —
Hún kann að vera erfið á stund-
um, en við erum ákveðnir að
sigra á endanum". Hann bað
söfnuðuinn síðan að biðja fyrir
hetjunum, sem „gáfu líf sitt og
blóð fyrir frelsi Kýpur“. Fagn-
aðarlætin voru mikil og lang-
varandi, og hrópaði mannfjöld-
inn hvað eftir annað: „Lengi lifi
Makaríos".
Blaðið „Washington Post“ lét
í ljós þá von í morgun, að Mak-
aríos erkibiskup reyndi ekki að
hella olíu á eldinn í Kýpurdeil-
unni, meðan hann væri í Banda-
ríkjunum. „Að líkindum er eng-
in algerlega viðunandi „lausn“ á
málinu fyrir hendi nú, en þess
er brýn þörf að reyna að koma
á friði og jafnvægi", sagði blað-
ið. —
Fréttir í stutfu máli
Varðarfundur um út-
svarsmálið nk. þriðjud.
ÁKVEÐIÐ er, að landsmálafélagið Vörður haldi fund
nk. þriðjudag, þar sem úrskurður fclagsmálaráð-
herra í útsvarsmálinu verður tekinn til umræðu.
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri verður frum-
mælandi á fundinum og mun hann skýra allan gang
málanna í þessari síðustu og ósvífnustu herferð
vinstri flokkanna gegn Reykjavíkurbæ.
ANKARA, 14. sept. — Flotamála-
ráðunautur rússneska sendiráðs-
ins i Tyrklandi og einn aðstoð-
armaður hans hafa verið beðnir
að hverfa úr landi innan 48 klst.
Er þeim gefið að sök að hafa
tekið þátt í njósnum og m.a.
reynt að fá ungan Tyrkja til að
útvega sér hernaðarleyndarmál.
LONDON, 14. sept. — Bretar
hafa byrjað nýjar kjarnorkutil-
raunir í Ástralíu, og var fyrsta
tilraunin gerð í morgun.
LONDON, 14. sept. — Um þessa
helgi verða hátíðahöld í Bret-
landi til minningar um það, að
liðin eru 17 ár, síðan „orrustan
í skemmtiferð til Nígeríu. Stjórn
in í Ghana hefur höfðað mál gegn
honum fyrir að senda úr landi
fréttaskeyti um brottvfeun
manna frá Ghana, þeirra á meS-
al tveggja leiðtoga Múhameds-
trúarmanna, en þessar fréttir
vöktu heimsathygli á sínum
tíma.
DJAKARTA, 14. sept. — Hern-
aðaryfirvöldin í Djakarta hafa
lokað nokkrum dagblöðum og
tveimur fréttastofum í höfuð-
borginni um óákveðinn tíma.
Ekki hefur verið látið neitt uppi
um ástæðuna. Blöð hafa verið
bönnuð í Indónesíu öðru hverju,
um England" stóð sem hæst. i síðan herlög voru sett í landinu
Talið er, að milljón manns taki
þátt í hátíðahöldunum, en þau
verða einkum fólgin í flugsýn-
ingum, skrúðgöngum og þakkar-
guðsþjónustum.
KORSÍKU, 14. sept. — A.m.k. 8
manns hafa látið lífið í skógar-
eldi, sem geysar á norðvestan-
verðri Korsíku Hefur hann eytt
þúsundum ekra af ávaxtagörðum um.
í marz sl.
WASHINGTON, 14. sept. — Eis-
enhower Bandaríkjaforseti mun
eiga viðræður við Faubus fylkis-
stjóra í Arkansas í dag og ræða
við hann um þá lögleysu fylkis-
stjórans að beita fylkishernum
til að hindra svertingjabörn í
að sækja skóla með hvítum börn-
og skógum. Hermenn hafa verið
kvaddir til hjálpar slökkviliðinu,
sem hefur barizt við eldinn sam-
fleytt í 24 tíma. Þetta er mesti
skógareldur í sögu eyjarinnar.
ACCRA, 14. sept. — Fréttaritara
brezka blaðsins „Daily Tele-
graph“ hefur verið bannað að
fara frá Ghana, en hann ætlaði I síðastliðnum.
WASHINGTON, 14. sept. — Rúss
ar hafa fallizt á að ræða gagn-
kvæm skipti á útvarps- og sjón-
varpsdagskrá, svo og aukin menn
ingarviðskipti Rússa og Banda-
ríkjamanna. Viðræðurnar hefj. i
næsta mánuði. Bandaríkjamenn
báru fram tillögu um þetta í júni
Allsherjarþingið fordæmir árás Rússa
á Ungverja með yfirgnæfandi meirihl.
NEW YORK, 14. sept. — Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna hefur fordæmt árás
Rússa á Ungverjaland með
yfirgnæfandi meirihluta. Var
ályktun um þetta samþykkt
í gærkvöldi með 60 atkvæð-
um gegn 10, en 10 sátu hjá.
Gegn tillögunni greiddu at-
kvæði kommúnistaríkin,
þeirra á meðal Júgóslavía.
Meðal ríkja, sem sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna voru Ind-
land, Ceylon, Egyptaland,
Sýrland og Saudi-Arabía.
í ályktun Allsherjarþingsins er
Ungverjalandsskýrslan staðfest,
en þar segir m. a., að Rússar hafi
svipt Ungverja öllu frelsi, flutt
þúsundir Ungverja úr landi og
komið á ógnarstjórn, sem þver-
brjóti öll mannréttindi. Skoraði
Allsherjarþingið á Rússa að bæta
fyrir þessi brot sín og útnefndi
Wan prins frá Taílandi, sem læt-
ur af störfum sem forseti Alls-
herjarþingsins í þessari viku, til
að fara til Moskvu og Búdapest
og gera það sem í hans valdi
stendur til að fá vilja þingsins
framgengt.
Fulltrúi S.Þ., sem hefur með
höndum málefni ungverskra
flóttamanna, segist vonást til
þess, að vandamál flestra eða
allra flóttamannanna verði leyst
í árslok. Sagði hann, að 160.000
ungverskir flóttamenn hefðu þeg
ar fundið ný heimkynni. Enn eru
rúmlega 30.000 Ungverjar í Aust-
urríki og Júgóslavíu, sem bíða
úlausnar á vanda sínum.