Morgunblaðið - 29.09.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.09.1957, Blaðsíða 1
16 síður og Lesijök i Þegar björgunarskipið sigldí út úr regnboganum sáu skipbrotsmenn ógleymanlega sjón Frásögn af því, þegar Pamir fórsf LUNDÚNUM, 28. sept. — Nú hafa fengizt frekari upplýsingar um Pamir-slysið, og er eftirfar- andi frásögn byggð á samtali við þá skipbrotsmenn, sem af kom- ust. Þeir segja: Um morguninn s. 1. laugardag 21. sept. fengum við fyrstu frétt- ir um, að hvirfilbylurinn „Carrie" stefndi með ofsahraða í áttina til okkar. Var okkur skýrt frá því, að hann næði okkur tveim- ur klukkustundum síðar. Við fengum fyrirskipanir um að und- irbúa allt undir óveðrið. Um það bil klukkustund síðar fór vind- hraðinn að aukast og vaktmenn- irnir fengu þá þegar skipun um að bjarga seglunum, en áður en þeir höfðu lokið því verki. kubb- aði sviptivindur annað siglutréð í sundur og reif seglin. Vindur- inn var nú kominn upp í 150 km á klst. og skall á hliðinni á skipinu. Það lét undan síga og hallaðist á hliðina, fyrst 30 gráð- ur, síðan 35 og loks 40 gráður. Sjórinn fossaði upp á dekk. Þá var hrópað upp í hátalara: Allir Upp á dekk. í nokkrar mínútur hengum við allir á lunningunni og undir var hyldjúpt Atlants- hafið. Skipið byrjaði nú að kastast til og frá, svo að nokkrir skips- manna hentust fyrir borð. Við vorum allir með björgunarvesti, höfðum fengið sígarettur og vískípela, sem við geymdum und- ir vestinu. Skipið byrjaði nú að sökkva. Nokkrir skipverjanna stukku um borð í björgunarbát, sem hafði oltið á hliðina, en þeim tókst að koma honum á réttan kjöl. Saltur sjórinn fossaði yfir mennina í bátnum, svo að það var næstum því ómögulegt að ná andanum, en þeir gátú þó séð, hvar Pamír sökk skömmu síðar. Gerðist það mjög skyndilega, og var skipið horfið á augabragði. Mennirnir í björgunarbátnum sáu nú hvar 25 skipbrotsmenn brutust um í löskuðum björgun- arbáti, sem var hálffullur af sjó. Þeir misstu fljótt sjónar á þeim og sáu þá aldrei síðan. Við reyndum eftir megni að stjórna björgunarbátnum í öldu- ganginum, en það var ekkert áhlaupaverk, því að öldurnar voru 10 metra háar. Þannig köst- uðumst við fram og aftur í 54 tíma. Við höfðum ekkert drykkj- arvatn. Fimm skipbrotsmann- anna í bátnum dóu úr vosbúð, sumir þeirra köstuðu sér jafnvel fyrir borð án þess að hægt væri að koma í veg fyrir það. Fyrstu nóttina voru allmörg skip í námunda við björgunar- bátinn, en hróp skipbrotsmann- anna köfnuðu í storminum. í dagrenningu sáu skipbrotsmenn- irnir flugvélar á sveimi ekki langt frá þeim stað, þar sem þeir voru, en flugmennirnir komu ekki auga á þá. Skipbrotsmenn- irnir urðu mjög óttaslegnir vegna þess að enginn leitarmanna kom auga á þá. Næsta dag sáu þeir bandaríska björgunarskipið „Sax- on“. Það bar við regnboga og segjast skipbrotsmenn aldrei hafa séð aðra eins sjón. Skipið sigldi í áttina til þeirra og bjargaði þeim, sem eftir lifðu. í dag komu fimm skipbrots- manna af Pamir til Casablanca og halda rakleiðis til Frankfurt með bandarískri flugvél. Sá sjötti er væntanlegur til Puerto Rico. Reykjavíkurbær stofnar skrifstofu til þess að auka sparnað og hagkvæmni í vinnu Ýtrustu ráðdeildar gætt i rekstri bæiar- ins - Skrifstofan tekur væntanlega til starfa um áramótin Ró í Arkansas WASHINGTON, 27. sept. — Allt var með kyrrum kjörum í Little Rock í dag, og níu börn blökku- Á FUNDI bæjarráðs á föstudaginn flutti Gunnar Thorodd- sen, borgarstjóri, tillögu sem þar var samþykkt, er miðast að því að auka sparnað og hagkvæmni í rekstri Reykjavík- urborgar. og fela sérstakri skrifstofu að annast það starf. Er hér stigið mikilvægt spor í átt til þess að spara fé í rekstri bæjarins sem mest og gæta ýtrustu hagkvæmni í öllum rekstri bæjarstofnana. Er þess að vænta að góður árangur verði af stofnun þessari, en um starfshætti og skipulag skrif- stofunnar verður farið að erlendum fyrirmyndum. manna héldu áfram að sækja skóla hvitra barna undir vernd hermanna. í öðrum fylkjum Bandaríkjanna, þar sem hvít og blökk börn ganga í sömu skóla, hefur ekki dregið til tíðinda. Það var tilkynnt í Washington, að Eisenhower forseti hefði ekki hlustað á ræðuna, sem Faubus Hefjist um úraniót Tillaga borgarstjóra var svo- hljóðandi: „Samþykkt að setja á stofn skrifstofu, sem hafi það verkefni að gera að staðaldr1 tillögur um aukna hagkvæmni í vinnúbrögð- um og starfsháttum bæjarins og stofnana hans og sparnað í rekstri Bæjarráð kýs 3 menn til þess að undirbúa málið ásamt borgarrit- ara og aðalendurskoðanda, og skal að því stefnt, að þessi starfsemi hefjist um næstu áramót.“ I undirbúningsnefndina voru kjörin Auður Auðuns forseti bæj- arstjórnar, Gunnar Thoroddsen borgarstjóri og Guðmundur Vig- fússon bæjarfulltrúi. Sæti eiga og í nefndinni Gunnlaugur Péturs- son borgarritari og Guttormur Er lendsson aðaiendurskoðandi. Held- ur nefndin fyrsta fund sinn í fyrramálið. Blaðið átti í gær tal við Gunnar Thoroddsen um þetta merka mál og um verkefni og starfshætti sparnaðarskrifstofunnar. Borgar- stjóri kvað stjórn Rvíkurbæjar jafnan hafa haft vakandi auga á því sem til sparnaðar má horfa í rekstri bæjarins og til aukningar hagkvæmni í vinnubrögðum og starfsháttum. Margt hefir verið framkvæmt í þessum efnum á liðnum árum, sem komið hefir að mjög góðu gagni. Má þar nefna stóraukinn véla- kost. Er þar um að ræða bæði stór virk tæki við verklegar fram- kvæmdir og fullkomnar nýtízku I bókhalds- og skrifstofuvélar, sem bærinn hefir haft forgör.gu um að fá til landsins, og þegar hafa sparað mikið fé. Þá hefir og verið komið á gjörbreyttri tilhögun um bílakost og greiðslu kostnaðar vegna hans sem einnig hefur haft mikinn sparnað í för með sér. Ný vinnubrögS og slarfshættir Þannig mætti lengi telja, en hér skulu aðeins þessi tvö dæmi nefnd. Stundum hafa verið skipaðar sér- stakar sparnaðarnefndir sem starfað hafa stuttan tíma og gert ýmsar tillögur. "Fyrir nokkrum ár- um fékk Reykjavíkurbær hingað til lands bandarískan rekstrarsér- fræðing í samráði við ríkisstjórn- ina og gerði hann ýmsar umbóta- tillögur. Síðustu árin hefir starf- að hjá Reykjavíkurbæ sérstök sparnaðarnefnd, sem skipuð er þremur ágætum bæjarstarfsmönn- um. sem eru þaulkunnugir rekstri Reykjavíkurbæjar. Hefir nefndin undirbúið fjárhagsáætlun Reykja- víkur og gert margar tillögur. En um jafnumfangsmikinn rekstur og hjá Reykjavíkurbæ, hélt borgarstjóri áfram, tel ég nauðsynlegt að starfandi sé að staðaldri sérstök sofnun sem hafi það hlutverk að fylgjast með vinnubrögðum og starfsháttum í öllum greinum og gera tillögur um verkaskiptingu, vinnubrögð og nýja* starfsháttu og sparnað hvar sem því verður við komið, allt byggt á nákvæmri rannsókn og íhugun. Þessi leið hefir verið far- in í ýmsum borgum nágranna- landanna, sagði borgarstjóri, og ég hefi undanfarin tvö ár kynnt mér Framh. á bls. 2 Prinsessa með inflúenzuna OSLÓ 28. september — Ragnbild, elzta dóttir Olafs V. Noregskon- ungs, er væntanleg flugleiðis til Oslóar annað kvöld ásamt eigin- manni sínum, Lorenzen skipaeig- anda, og tveimur börnum. Þau eru búsett í Rio de Janero og gátu ekki komið fyrr til Noregs vegna þess, að þau hafa bæði legið i Asíu-influenzu. fylkisstjóri í Arkansas hélt í út- varp í gær, en þar réðst hann harkalega á stjórnina í Washing- ton fyrir aðgerðir hennar í Little Rock. Það var tilkynnt í Little Rock í dag, að hópur hvítra mæðra muni biðja Faúbus að loka gagn fræðaskólanum í borginni á morgun, en í dag var þriðji dag- urinn, sem blökkumannabörnin sóttu hann. Segja þessar mæður, að líf barna þeirra sé í hættu. Sú aðdróttun Faubusar fylkis- stjóra í útvarpsræðu hans í gær, að öryggislögreglan (FBI) hefði haldið nokkrum hvítum stúlkum í yfirheyrslu klukkustundum saman, var borin til baka af yfirmanni lögreglunnar, Edgar Hoover, sem sagði að hér væri um svipaðar lygar að ræða og þá yfirlýsingu fylkisstjórans, að lögreglan hefði hlerað símtöl hans. í Albany í Georgíu-fylki brauzt út eldur, sem olli um 300.000 dollara tjóni. Segir lögreglan, að hér hafi verið um íkveikju að ræða, en einn af skólum blökku- manna brann til ösku. Sprengdu Rússar vetnis- sprengju í Barentzhafi síðastliðinn þriðjudag? STÓRBLAÐIÐ New York Times birtir eftirfarandi fregn frá frétta ritara sínum í Moskvu um vetnis- sprengingu Rússa í Norður-ís- hafinu: Rússneska stjórnin tilkynnti á miðvikudaginn að lokið væri æf ingum landhers og flota og hefðu í æfingum þessum verið sprengd- ar bæði venjulegar kjarnorku- sprengjur og vetnissprengjur. í tilkynningunni, sem var gefin út af hinni opinberu Tass-frétta- stofu, segir að bæði kjarnorku- og vetnissprengjur hefðu verið sprengdar á ýmsan mismunandi hátt. Þar er ekki sagt hvar sprengingarnar voru framkvæmd ar né hvenær. Þó greinir Tass-fréttastofan frá því, að til öryggis fyrir íbúa Sovétríkjanna hafi þær farið fram á strjálbýlu svæði. Frétta- stofan bætir því við að her- og flotaæfingarnar hafi heppnazt ágætlega. Rússar hafa Iengi framkvæmt tilraunir með kjarnorku- og vetnissprengjur, en þetta er í fyrsta skipti sem þeir tilkynna að slíkar sprengingar séu fram- kvæmdar í sambandi við her- og flotaæfingar. Þá birtir New York Times eft- irfarandi fregn frá fréttaritara sínum í Washington: Kjarnorkunefnd Bandaríkj- anna tilkynnir að Rússar hafi sprengt stóra kjarnorkusprengju á þriðjudaginn, fyrir norðan heimskautsbaug. Nefndin skýrir frá því að sprengjan hafi verið í megatonn- flokki, það er að sprengikraftur hennar mælist í milljónum tonna af TNT-sprengiefni. Það þýðir, að hér hefur verið um vetnissprengju að ræða, en sprengiorka þeirra er venjulega mæld í megatonnum. — Orka venjulegra kjarnorku- sprengna er hins vegar mæld í kílótonnum, eða þúsundum tonna af TNT. Staðsetning sprengingarinnar vekur upp þær hugmyndir, að hún hafi farið fram í sambandi við flotaæfingar Rússa í Barentz- hafi, fyrir norðan heimskauts- baug. x V »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.