Morgunblaðið - 29.09.1957, Page 15

Morgunblaðið - 29.09.1957, Page 15
Sunnudagur 29. sept. 1957 nronnrnvnr 4ðib i» — Reykjav'ikurbréf Framh. af bls. 9 þær yfirlýsingar, sem gefnar höfðu veríð í sambandi við nauð- »yn á samstarfi við þau öfl, sem mikilsráðandi væru innan Al- þýðusamtakanna". Hér snýr Eysteinn Jónsson staðreyndunum hreinlega við. — Hann segir, að samningarnir við kommúnista hafi verið í „sam- ræmi við þær yfirlýsingar, sem gefnar höfðu verið“, þó að þær brytu alveg og óumdeilanlega þvert á móti þeim. Spurningin er þessi: Er Eysteini, sem hefur haft það sér til ágætis, að hafa ljósa greind, og vilja standa við orð sín, svo brugðið, að hann greini ekki lengur á milli og villist al- gjörlega á sönnu og ósönnu, eða grípur hann til vísvitandi ósann- inda sér til afsökunar? Ekki einsdæmi tír þeirri spurningu skal ekki reynt að leysa hér, en aðeins rifj- að upp, að þetta er ekki í eina sinnið, sem Eysteinn Jónsson verður á síðustu mánuðum ber að ósannindum, hvort sem þau eru vísvitandi eða um minnisbil- un er að ræða. Eysteinn neitaði því á sl. vori, að ríkisstjórn Ólafs Thors hafi fyrir kosningar 1956 átt kost á láni til Sogsvirkjunarinnar, vest- ur í Bandarikjunum og á stórri lántöku í Þýzkalandi. Eysteinn Jónsson hefur öll skilyrði til að vita eða a. m. k. kynna sér, að í þessari yfirlýsingu fór hann með rangt mál. Lántaka til Sogsins var fáan- leg í Bandaríkjunum á þessum tíma, ef menn vildu binda sig til sölu rafmagns til herstöðva Bandaríkjamanna á Keflavíkur- flugvelli. Eins og á sóð fyrir kosningarnar þótti ekki rétt að taka málið upp á þeim grund- velli, heldur sjá, hvað úr yrði eftir kosningarnar. Þetta hlýtur Eysteinn Jónsson að vita eða a. m. k. geta kynnt sér, hafi það farið fram hjá honum vegna fjarveru í kosningabardaganum 1956. Með öllu er aftur á móti óhugsandi, að Eysteini hafi ver- ið ókunnugt um lánstilboðið frá Þjóðverjum rétt fyrir kosningarn ar 1956. Synjun Eysteins á vit- neskju sinni um það er því ótrú- legri en tali taki. A sama veg gerði Eysteinn Jónsson hlut sinn of lítinn, þeg- ar hann lét Tímann hafa það eft- ir sér, að hann minntist ekki þess að fyrrverandi menntamálaráð- herra hefði á sínum tíma stungið upp á því að sameina mennta- málaáðuneytið dómsmálaráðu- neytinu, en sú tillaga strandað á algerum afsvörum Eysteins Jóns- sonar. Þetta er staðreynd, sem óskiljanlegt er, að Eysteinn skulí hafa geð í sér til að neita. Framsóknarmenn sýna veik- leika sinn í fáu betur en hinum sífeldu ósannindum, er einkenna málflutning þeirra. Þó er hér stig munur á, þegar Bernharð Stef- ánsson segir t. d.: „----------ekki er annað hægt að sjá, en að Sjálfstæðisflokkur- inn----------hafi nú stutt þessi verkföll og hvatt til þeirra“, þá er rétt, að ekki er annað hægt Isskápur 7 cbf. þvottavél NORGE, eldavél, ryksuga, nýlegt, til sölu, eftir kl. 1, mánudag, að Spítalastíg 1, 3ja herb. íbúð til leigu Miðhæð í nýbyggðu húsi til leigu frá 2ö. okt. n.k. Hálfs árs fyrirframgreiðsla ósk- ast. Tilboð merkt: „Hagar — Grímstaðarholt — 6774", sendist Mbl. fyrir mánudags kvöid. Fasteignir og verðbréf sf. Austurstræti 1 Til sölu fuligerðar og fokheldar ibúðir og heil hús í Reykjavík, Hafnarfirði og í Kópavogskaupstað. Höfum kaupendur að íbúðum af ýmsum stærðum. Sími 13400. Stóruvogar, Vatnsleysuströnd, Guilbr.sýslu. tvær íbuðir fást leigðar þar aðgreindar eða sameiginlega. Upplýsingar í síma 14554. að sjá af Tímanum. Ef Bernharð trúir Tímanum enn, þá er fyrir- gefanlegt, að hann útbreiði þessa kenningu. Hann býr ósannindin a. m. k. ekki til, heldur hefur þau aðeins eftir öðrum. Eysteinn Jóns son fer öðru vísi að. Hann er sjálfur staðinn að verki sem upp- hafsmaður margfaldra ósann- inda. Ef málstaður hans væri góð ur, myndi hann ekki þurfa á þvi- líku að halda, og vissulega er að honum kreppt, þegar maður með hans vitsmuni lætur leiða sig til slíks. Samkomur Fíladelfía Sunnudagsskóli kl. 10,30 í Eski hlíðarskóla á sama tíma og Hverf- isgötu 8, Hafnarfirði. — öll börn velkomin. Safnaðarsamkoma, kl. i. Söfn- uðurinn beðinn að fjölmenná. Vakningarsamkoma kl. 8,30. Ræðumenn Kyvik og Ásmundur. — Allir velkomnir. ZION Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30. Hafnarfjörður: — Almenn sam koma í dag kl. 4 e.h. — Allir vel- komnir. — Heimatrúboð leikmanna. Bræðraborgarstíg 34. Almenn 'samkoma í kvöld kl. “,30. — Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. Kl. 11 Helgunarsamkoma. — Kl. 14 Sunnudagaskóli. — KI. 20,30 F'agnaðarsamkoma fyrir deildarstjórann S. major Gulbrand sen. Mánudag: Kl. 16 Heimilasam- band. — Kl. 18 Barnasamkoma. Almennar samkomur Boðnn fagnaðarerindisins Austurgötu 6, Hafnarfirði, á sunnudögum kl. 2 og 8. C. E. Guenther frá Washington flytur erindi í Aðventkirkjunni í kvöld kl. 8,30 um efnið: Það er lausn að fá á vandamálum nútím- ans. — Allir velkomnir. Aðventsöfnuðurinn. Mjög ódýrt ORGEL til sölu á Kópavogsbraut 50 (neðri hæð). Félagslíf Hauslmót 3. fl. A Sunnudaginn 29. sept. á Há- skólavellinum kl. 9,30 K.R. — Þróttur. Kl. 10,30 Valur — Fram. — Mótanefndin. Haustmót 2. fl. A Sunnudaginn 29. sept. á Há- skólavellinum kl. 14.00 K.R. — Víkingur. — Mótanefndin. Haustmót 3 fl. B Sunnudaginn 29. sept. á Vals- vellinum kl. 9,30 Valur — Fram. — Mótanefndin. Skiðafólk Munið eftir sjálfboðaliðsvinn- unni um helgina, við lýsinguna og dráttarbrautina í Hverardölum. — Skíðaráð Reykjavíkur. Þróttur — Handknattleiksdeild Aðalfundur dcildarinnar verður haldinn í skála félagsins við Ægis síðu, miðvikudaginn 2. október kl. 20,30 og hefst réttstundis. Dag- skrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. — Áríðandi er að þeir, sem hyggjast æfa í vetur, mæti. — Stjórnin. I. O. G. T. Stúkan Framtíðin no. 173. Fundarefni annað kvöld: Kosning embættismanna. Skuggamyndir. Minnzt merkis afmælis. Kaffi.— Æt. Stúkan Vikingur. Fundur annað kvöld, mánudag, kl. 8,30 í GT-húsinu. Félagsmál. Kosning embættismanna. Við gluggann. Frásaga. Fjölsækið stundvíslega. — Æ.t. Barnavinafélagið SUMARGJÖF Framhaldsaðalfnndur verður haldinn að Tjarnargötu 33, miðvikudaginn 2. október nk. og hefst kl. 8,30. DAGSKRÁ: 1. Framtíðarrekstur félagsins 2. Lagabreytingar 3. Stjórnarkjör 4. Onnur mál. Stjórnin. Röskur sendisveinn ÓSKAST STRAX Olíufélagið Skeljungur hf. Tryggvagötu 2. Ábyggileg stúlka óskast hálfan daginn, til afgreiðslustarfa. Upplýsingar á staðnum. Útför eiginmanns míns ÓLAFS T. SVEINSSONAR fyrrverandi skipaskoðunarstjóra ,er andaðist hinn 22. þ. m., verður gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 1. okt. kl. 2 e.h. Blóm eru afþökkuð, en vilji einhverjir minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. Ólöf Sigurðardóttir. Þökkum hjartanlega alla samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐLAUGAR TÓMASDÓTTUR Sérstaklega þökkum við læknum hjúkrunar og starfs- liði Hvítabandsins fyrir auðsýnda einstæða alúð og umönnun. Guð blessi ykkur öll. Sigurður Guðmundsson Tómas Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.