Morgunblaðið - 01.10.1957, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 1. okt. 1957
MORGXJISBLAÐIÐ
3
Breidagerðisskólinn — myndinvar tekin í júlí sL
20 nýjar kennslustofur í
Reykjavík á þessu ári
Þó verða enn þrengsli í skólum vegna ónógra fjárfestingar-
leyfa, sem auk Jbess komu of seint
HAUSTIÐ 1956 skoraði bæjarstjórn Reykjavíkur á fjárfestingarvfir-
völdin að veita leyfi tii að byggja árlega á næstu 5 árum 25 al-
mennar kennslustofur auk húsrýmis til annarra nota. Var sótt um
Jeyfi í samræmi við þetta og framkvæmdir hafnar tafarlaust þegar
þau fengust. Leyfin komu hins vegar bæði seint og með eftirgangs-
munum. Alls var sótt um fjárfestingarleyfi til framkvæmda fyrir
15,5 miilj. króna, en leyfi voru veitt til að vinna fyrir 7.950.000 kr.
Umsóknirnar voru sendar um áramótin, en leyfin voru ekki veitt
fyrr en í júní. Varð þetta að sjálfsögðu til að tefja mjög fyrir fram-
kvæmdum, og verða því enn nokkur þrengsli í skólum bæjarins í
haust. Hefði það ekki orðið, ef ríkisstjórnin og önnur fjárfestingar-
yfirvöld hefðu brugðizt betur við, þegar til þeirra var leitað.
Breiðagerðisskólinn
Hér fara á eftir nokkrar upp
lýsingar um skólabyggingar 1
Reykjavík, er Jónas B. Jónsson
fræðslustjóri gaf á fundi með
blaðamönnum á föstudag.
Haustið 1956 voru 5 stofur tekn
ar í notkun í einni álmu Breiða-
gerðisskóla. S.l. vor var byrjað á
aðalhluta hússins, sem er 2 hæðir
og kjallari. í kjallaranum eru
handavinnustofur, kennslustofur,
hreinlætisherbergi o.fl., en á 1.
hæð eru kennslustofur, skrifstof-
ur, kennarastofa, húsnæði fyrir
heilbrigðiseftirlit allt o.fl. Kjall-
arinn og 1. hæðin verða tekin
í notkun 7. október.
Á 2. hæð verða samkomusalur,
kennslustofur og bókasafn, en
þessari hæð er ólokið. Næsta sum-
ar verður væntanlega byggð ný
álma með 8 kennslustofum og
sundlaug, er almenningur fær að
gang að.
Gagnfræðaskólinn við Réttar-
holtsveg
Fyrsti- áfangi byggingarinnar
var reistur í sumar, og eru þar 8
kennslustofur tilbúnar svo og
nokkur önnur salarkynni, m.a.
fyrir samkomur nemenda. —
Kennslan hefst 7. október.
Hagaskóli
Dráttur varð á, að leyfi, fengj-
ust til að hefja smíði þessa skóla,
en. framkvæmd hófst 2. júlí.
Byggt er eftir sömu teikningu og
Réttarholtsskóli var reistur eftir.
Byrjað var á 8 stofum í 2 almum,
en vegna semmentsskorts er að-
eins önnur álman fokheld. Verð-
ur hún tekin í notkun 15. nóvem-
ber, en hin álman í árslok. Hús-
næðið verður notað fyrir 7—9
ára börn úr Melaskóla.
Vogaskóli
Framkvæmdir við Vogaskóla
hófust snemma í júlí er leyfi feng
ust og er unnið að byggingu
álmu með 8 stofum. Byggingin er
ekki tilbúin til notkunar, og hef-
ur húsnæði í félagsheimili ung-
mennafélagsins við Holtaveg ver-
ið tekið á leigu í staðinn. Verður
Fyrsti millilandoílugstjóri
Loftleiða væntanlegur í heimsókn
ÞEGAR Hekla, fyrsta íslenzka
millilandaflugvélin, lenti hér á
Reykjavíkurflugvelli fyrir rúm-
um 10 árum var gamall og góð-
kunnur bandarískur atvinnuflug-
maður, Byron Moore að nafni,
við stjórnvöl hennar. Hann hafði
þá fengið frí frá störfum hjá flug
félagi því, er hann vann hjá í
Ameríku, til þess að vera um
eins árs skeið í þjónustu Loft-
leiða, en að því liðnu var gert ráð
fyrir að hann yrði búinn að
þjálfa flugmenn félagsins í
stjórn hinna nýju flugvélateg-
unda.
Þ.að verður að teljast mikið
happ íslenzkum flugmálum, að
Byron Moore skyldi ráðast til
Loftleiða. Hann hafði að baki sér
mikla reynslu, var djarfur, örugg
ur og kunnáttusamur í sérgrein
sinni, kennari góður og hinn
bezti félagi. íslendingarnir tóku
smám saman við stjórn Heklu
undir handleiðslu hans, fyrst Al-
freð Elíasson, þá Kristinn Olsen,
og var fyrsta alíslenzka áhöfnin
búin að taka við Heklu fáum
mánuðum eftir að Byron Moore
flaug heim í fyrsta skipti frá
Bandaríkjunum áleiðis til ís-
lands.
Moore hefir ritað nokkrar bæk
ur og er góðkunnur rithöfundur
í heimalandi sínu. Síðasta bók
hans „Fyrstu fimm milljón míl-
urnar“ kom út fyrir hálfu öðru
ári.
Moorehjónin hafa nú ákveðið
að koma hingað til nokkurra
daga dvalar í byrjun októbermán
aðar ,en héðan munu þau svo
halda til Spánar. Þau eignuðust
marga vini meðan þau bjuggu
hér í Reykjavík, og mun því
mörgum þykja gott til þess að
vita, að þau skuli væntanleg aft-
ur til þess að rifja upp gömul og
góð kynni. — (Frá Loftleiðum).
þar 1. bekkur gagnfræðastigs úr
Langholtsskóla. Kennsla hefst 11.
oktober.
20 nýjar kennslustofur
Af því, er að framan greinir,
sést, að á þessu ári verða teknar
í notkun 20 nýjar kennslustofur,
og auk þess 5—7 stofur í leigu-
húsnæði. Þess má geta, að teikn-
ingar að skólahúsi við Hamra-
hlíð verða tilbúnar næst.u daga
★
Við þessa frásögn fræðslustjóra
má því bæta, að sótt hefur verið
um leyfi til að hefja framkvæmd-
ir við Hamrahlíðarskólann, en
umsókninni hefur verið synj-
að. Er því ekki vitað, hvenær
Hlíðabúar fá þetta skólahús sitt.
Iðnnemaþingi lokið
15. ÞING Iðnnemasambands ís-
lands var sett í Reykjavík s. 1.
laugardag. Þingið sóttu 30 iðn-
nemar frá 7 félögum víðs vegar
á landinu.
Gunnar Guttormsson, fráfar-
andi formaður sambandsins, setti
þingið, en síðan flutti Hannibal
Valdimarsson ávarp. Þennan dag
var og kosið í embætti þirngsins
og nefndir og fluttar skýrslur
stjórnarinnar og einstakra félaga.
Á sunnudag var rætt um skýrsl-
ur þessar, setið kaffiboð Hanni-
bals Valdimarssonar og loks kos-
in stjórn og þinginu slitið.
Hin nýkjörna stjórn er þannig
skipuð: Þórður Gíslason, húsa-
smíðanemi, form., Lárens Rafn,
húsasm.n., varaform. Meðstjórn-
endur: Lúther Jónsson, prentn.,
Jónas R. Guðmundsson, prentn.
og Jón R. Guðmundsson, rafv.n.
í varastjórn: Jóhannes B. Jóns-
son, rafv.n., Helga Magnúsdóttir,
máláran., Ásgeir H. Höskulds-
son, húsasm.n., og Eðvarð Ólafs-
son, rafvn., Allir eru stjórnar-
menn úr Reykjavík nema Jón og
Eðvarð, sem eru Hafnfirðingar.
Að þessu sinni mun ekki verða
rætt ýtarlega um þetta þing eða
starfsemi Iðnnemasambandsins
yfirleitt. Þess skal þó getið, að
á þinginu kom fram, að á fyrsta
starfsárinu voru 14 félög í sam-
bandinu, en nú eru þau 8 eða 9
og lítt starfandi. Skýringarinnar
er að leita í því, að iðnnemar
hafa yfirleitt lítinn áhuga á starf-
seminni, enda hefur sambandið
verið gert að útibúi Æskulýðs-
fylkingarinnar, og aðalstarfsemin
hefur verið fólgin í þátttöku í
kommúniskum áróðursherferð-
um.
Fær góða dóma
HAFNARFIRÐI — Nú fer sýning
um á kvikmyndinni Marcelino í
Hafnarfjarðarbíói að fækka, því
að 'hún verður send af landi burt
(til Khafnar) í næstu viku og
verður síðasta sýning á henni á
þriðjudaginn lcemur, 8. okt.
STAKSTEINHR
,,Sigur lífsins"
ágæt kvikmynd S. í. B. S.
SAMBAND íslenzkra berkla-
sjúklinga sýndi sl. laugardag í
Gamla Bíói fyrir gesti kvikmynd
ina „Sigur lífsins", er samband-
ið lét gera fyrir tveimur árum'
— Er í myndinni rakin í stórum
dráttum saga berklavarnanna á
landi hér frá öndverðu og fram
til síðustu ára.
Þórður Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri SÍBS, bauð gesti
velkomna og gerði grein fyrir
myndinni og tilgangi hennar. —
Kvað hann myndina hafa verið
gerða í þremur eintökum, með
islenzkum, dönskum og enskum
skýringartexta. Væri íslenzka
eintakið ætlað til afnota hér-
lendis, hið danska væri þegar
tekið til sýningar í Danmörku
og mundi fara þaðan til annarra
Norðurlanda, en óráðið.væri um
enska eintakið. Þórður bað menn
að hafa það hugfast, að kvik-
mynd þessi væri ekki gerð til
áróðurs fyrir SÍBS, heldur ætti
hún að fræða menn um starf-
semi sambandsins, gefa mönnum
hugmynd um félagsþroska og
samhjálp Islendinga og vera eins
konar þakkarávarp sambandsins
til allrar þjóðarinnar fyrir frá-
bæran stuðning hennar í barátt-
unni við hið mikla þjóðarböl,
berklaveikina.
Fyrrihluti myndarinnar er
nokkurs konar menningarsögu-
legt yfirlit um lifnaðarhætti þjóð
arinnar allt frá fornöld, híbýla-
kost hennar, atvinnuhætti og að-
búnað, eins og hann var á hverj-
um tíma, en siðarihlutinn segir
frá þróun berklavarnanna hér á
landi eftir síðustu aldamót, til-
komu heilsuhælanna á Vífils-
stöðum og í Kristnesi og loks, og
er það veigamesti hluti myndar-
innar, eru sýnd vinnuheimilin að
Reykjalundi og í Kristnesi, sem
SlBS hefur hrundið í fram-
kvæmd af frábærum dugnaði, ó-
sérplægni og brennandi áhuga
með þeim stóbrotna myndarbrag,
að vakið hefur athygli og aðdáun
manna víða um heim.
Hinn fjölhæfi listamaður,
Gunnar R. Hansen, leikstjóri, hef
ur samið handritið að myndinni
og tónlistina sem henni fylgir og
auk þess stjórnað töku myndar-
innar, en Gunnar Rúnar Ólafs-
son, Ijósmyndari, tók myndina. —
Eins og áður er sagt, er veiga-
mesti hluti myndarinnar frá
Reykjalundi. Eru þar sýndar vist
arverur manna, vinnustofur og
hin margþætta starfsemi sem þar
fer fram. Er hér um geysimikið
fyrirtæki að ræða með miklum
og margvíslegum vélakosti, enda
eru framleiðsluvörur fyrirtækis-
ins fjölbreyttar og vandaðar og
eftirspurn eftir þeim mikil. — I
texta myndarinnar er það upp-
lýst að vinnustundir í Reykja-
lundi séu um 100 þúsund á ári,
sem annars mundu hafa farið for
görðum og er þó gætt ýtrustu
varúðar um að menn vinni ekki
meira en hæfilegt er og heilsa
þeirra leyfir, enda er það höfuð-
tilgangur fyrirtækisins að sjá vist
mönnunum fyrir góðri aðbúð og
vinnu við þeirra hæfi þar til þeir
hafa náð fullri starfsorku.
Kvikmyndin er gerð í litum og
í alla staði frá henni gengið þann
ig að hún er til mesta sóma öllum
þeim, sem þar hafa lagt hönd að
verki, ekki sízt stjórnandanum,
Gunnari R. Hansen, og mynda-
tökumanninum, Gunnari Rúnari
Ólafssyni, er báðir hafa unnið
hér merkilegt starf, oft við erfið-
ar aðstæður.
S. Gr.
Daman er upptekin!
Alþýðublaðið heftur miklar á-
hygsjur af því sl. laugardag, að
Sjálfstæðisflokkurinn líti sam-
vinnu við kommúnista hýru auga
hafi jafnvel í hyggju að bjóða
þeim bandalag alveg á næstunnL
Kemst blaðið síðan að orði á
þessa leið í lok forystugreinar
sinnar:
„En eitt ætti þó Morgunblaðið
að muna: Dömurnar samþykkja
ekki alltaf þó að þeim sé boðið
upp í dans. Nú eru kommúnist-
arnir daman og Sjálfstæðisflokk
urinn herrann. Skyldu þau
leggja vanga að vanga og svifa
í faðmlögum út á gólfið?"
Óttinn við þau ósköp er alveg
óþarfur, kratar góðir. í fyrsta
lagi er „daman“ upptekin í dansi
við tvo „herra“, Alþýðuflokkinn
og Framsóknarflokkinn, og í
öðru lagi er það ólíklegast af öllu
ólíklegu að Sjálfstæðismenn
Iangi til að bjóða henni upp.
Tekst sameiningin?
Eins og kunmigt er skýrði fé-
lagsmálaráðherra kommúnista
frá því í samtali við danskt blað
einu sinni í sumar, að áformað
væri að gera í haust úrslitatil-
raun til þess að sameina Alþýðu
flokkinn og kommúnistaflokkinn
í einn og sama flokkinn.
Þessi tilraun stendur nú fyrir
dyrum. Svo virðist sem Alþýðu-
blaðið kenni nokkurs taugaó-
styrks af því tilefni. Má vera að
hann spretti af ótta við það, að
missa af „dömunni“ rétt áður en
sú „eining andans" kemst á, sem
„seminaristinn frá Jonstrup"
gerði skóna í samtali sínu við hið
danska blað.
Hvorki fugl né fiskur
Það er annars dæmalaust, hve
erfitt heimilisástand getur verið
hjá hinum sósíalísku flokkum
einmitt nú, þegar þeir njóta sæt-
leika valda sinna í blessaðrl
vinstri stjórninni. Alþýðublaðið
og flokkur þess eru eins og áð-
ur er sagt lafhræddir við að
Sjálfstæðisflokkurinn bjóði
kommúnistum upp og svipti
Hræðslubandalagið undurblíðri
„dömu“ þess. En innan kommún-
istaflokksins Iogar allt í rifrildi.
Hinir harðsoðnustu í flokknum,
Moskvumennirnir, sem ráða þar
lögum og lofum, eru æfir yfir
þeirri yfirlýsingu annars ráð-
herra síns, að það hafi verið „rétt
af Islendingum að ganga í At-
lantshafsbandalagið“. Ennfrem-
ur hefur allstór hópur ákveðinna
°S tryggra kommúnista lýst því
yfir að þeir yfirgefi flokkinn ef
hann haldi áfram að styðja „her-
namið“ og vaxandi framkvæmd-
ir á Keflavíkurflugvelii. Segja
Þeir, að stefna flokksins sé nú
„hvorki fugl né fiskur“, og fussa
og sveia er „félagarnir" benda
a allar stöðurnar og bitlingana,
er leiðtogar kommúnistaflokksins
hafi fengið á þessu eina ári, sem
vmstri stjórnin hefur setið að
völdum.
Óorðið af Framsókn
Einna smeykastir eru þó komm
únistar hér í Reykjavík við það
óorð, sem flokkur þeirra hefur
þegar fengið af Framsókn.
Hafa þeir orðið m.a. varir við
að almenningur í Reykjavík tei-
ur að Framsókn gamla, sem allt-
af hefur hatað Reykvíkinga, hafi
gabbað Hannibal til að hefja of-
sókn sína á hendur bænum í út-
svarsmálunum til þess að tor-
velda nauðsynlegar framkvæmd-
ir þar. Gera kommar sér ljóst að
þetta geti þyngt mjög róður
þeirsa í bæjarstjórnarkosning-
unum í vetur.