Morgunblaðið - 01.10.1957, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 1. okt. 1957
MORCUNBLAÐ1Ð
13
Ólafur T. Sveinsson
fyrrverandi skipaskoðunarstjóri
ÓLAFUR Theódór Sveinsson, |
eins og hann hét fullu nafni var
fæddur þann 6. janúar 1884 á
Flateyri í önundarfirði. Foreldr-
ar hans voru þau hjónin Sveinn
Rósinkranzson skipstjóri og Sig-
ríður Sveinbjarnardóttir.
Um aldamótin var mikið at-
hafnalíf við önundarfjörð og
lífgaði hvalveiðistöð Elleffsens
allmikið upp atvinnulífið. Hafði
Elleffsen þar stórt vélaverkstæði,
sem annaðist viðgerðir fyrir hval
veiðaskipin. A þessu verkstæði
vann Ólafur um nokkurra ára
skeið og þar mun áhugi hans hafa
fyrst vaknað fyrir vélfræðinni.
Árið 1908 sigldi hann síðan til
Kaupmannahafnar og gekk þar á
Köbenhavns Maskinistskole. —
Lauk hann þar fyrst hinu al-
menna vélstjóraprófi og síðan
meira vélstjóraprófinu. Á þessum
árum vann hann einnig nokkuð
við vélsmíði í Kaupmannahöfn
og meðal annars um eins árs
skeið hjá Köbenhavns Flydedok
& Skibsværft. Að afloknu námi
1913 kom hann heim til íslands
og réðist skömmu síðar sem vél-
fræðiráðunautur til Fiskifélags
íslands. Störf hans hjá Fiski-
félagmu voru meðal annars í því
fólgin, að kenna og sjá um mótor-
námskeið félagsins, sem hrundið
hafði verið af stað, til þess að
búa menn undir vélgæzlustörf
á hinum ört vaxandi vélskipa-
flota. Tók hann þá saman mótor-
fræði, sem kennd var á náms-
skeiðunum og mun það vera
fyrsta rit vélfræðilegs efnis, sem
gefið hefur verið út á íslandi.
Hjá Fiskifélagi íslands starf-
aði hann síðan fram til ársins
1920 að hann setti á stofn skipa-
og vélaeftirlitsskrifstofu í félagi
við Bjarna heitinn Þorsteinsson.
Skömmu síðar var hann skipaður
í nefnd til að undirbúa löggjöf
um eftirlit með skipum og vél-
um og hóf síðan starf sitt við
Skipaskoðun ríkisins árði 1923.
Má segja að með þessu hefjist
aðalþátturinn í lífsstarfi Ólafs.
Skipaskoðunarstjóri var hann
skipaður árið 1930 og gegndi því
starfi, þar til á öndverðu árinu
1954, að hann lét af störfum fyr-
ir aldurs sakir.
Samhliða hinu umfangsmikla
starfi við Skipaskoðun ríkisins
voru honum falin fjölmörg önn-
ur trúnaðarstörf og m. a. var
hann prófdómari við Vélskólann
í Reykjavík frá upphafi.
Eins og að líkum lætur þarf
mikið átak til að byggju upp
og skipuleggja slíka stofnun, sem
Skipaskoðun ríkisins. Til þess
þurf ti kunnáttu og einbeitni, sam-
fara lipurð í umgengni við þá,
sem hlut áttu að máli. Gegnum
löng kynni mín af Qlafi get ég
fullyrt, að þessum eiginleikum
var hann ríkulega búinn, enda
bar árangurinn verkum hans
vitni.
Ég átti því láni að fagna að
kynnast honum í byrjun starfs
míns, að afloknu námi og aðstoð-
aði hann um skeið við störf hans
í þágu skipaflokkunarfélagsins
Germanischer Lloyd. Kynntist
ég þá starfsaðferðum hans og
var það mér ómetanlegur skóli.
Frekari kynni mín af honum, um
nærri 30 ára skeið urðu til þess
að sanna mér æ betur mannkosti
hans.
Ólafur var friðsamur maður,
sem helzt ekki vildi eiga í úti-
stöðum við nokkurn mann, en þó
kaus hann heldur, ef því var að
skipta að þola aðkast en láta af
því, sem hann taldi réttast í lausn
þeirra mála, sem um var að
ræða og öll hans störf einkennd-
ust fyrst og fremst af samvizku-
semi og réttsýni.
í vinahóp var Ólafur glaðvær
og skemmtinn og kunni vel að
meta græskulaust gaman.
Árið 1925 giftist Ólafur eftir-
lifandi konu sinni Ólöfu Sigurð-
ardóttur, hinni ágætustu konu,
sem bjó honum vistlegt og
ánægjulegt heimili. Ekki eignuð-
ust þau hjónin nein börn, en þó
munu þau árin vera færri, sem
ungmenni ekki dvöldu á heimili
þeirra, þar sem þau nutu skjóls
á hinu góða heimili og umsjár
hins trausta heimilisföður.
Með Ólafi er genginn einn af
landsins traustustu sonum, að af-
loknum gifturíkum starfsdegi.
Ég votta eiginkonu hans og öðr-
um ástvinum innilegustu samúð,
um leið og ég kveð þennan góða
vin.
^órður Runólfsson.
í DAG verður jarðsettur Ólafur
T.Sveinsson, fyrrverandi skipa-
skoðunarstjóri.
Það mjög athyglisvert og ein-
kennandi fyrir okkar unga ís-
lenzka þjóðfélag á nútíma mæli-
kvarða, að einn maður skuli hafa
verið skapandi og stjórnandi
skipaskoðunar- og skipaskráning-
ar á íslandi fram á síðustu ár. Á
árunum 1920 til 1923 vann Ólafur
að undirbúningi skipaskoðunar-
innar, en var árið 1930 skipaður
skipaskoðunarstjóri og gegndi því
starfi fram til vorsins 1954.
Ekki var upphaf þessa starfs
auðvelt verk, því skilningur
manna hér heima mun hafa verið
misjafnlega mikill á nauðsyn þess
að hafa eftirlit með öryggi og
búnaði skipa, enda munu þessi
mál, svo og skráning skipa, að
langmestu leyti áður hafa verið
framkvæmd í Danmörku. Fór
Ólafur utan til að kynna sér
þessi mál sérstaklega, bæði mæl-
ingu á tonnatölu skipa, skráningu
þeirra og eftirlit með öryggi
skipa. Kom hann heim með mik-
inn fjölda skjala um íslenzk skip,
sem þá var geymt í Danmörku,
en vann síðan að því að koma
þessum málum öllum hér heima
smátt og smátt í það horf, sem
þau eru nú.
Er tímar liðu varð samstarf milli
siglingaþjóða æ meira um „l!t er
að siglingu og öryggi skipa lýtur,
og var Ólafur þá fulltrúi íslands
á mörgum fundum ytra um þessi
mál, og lagði á ráðin hér heima
hvernig haga skyldi ákvæðum
um þessi mál varðandi íslenzk
skip.
Oft var hér um mikinn vanda að
ræða, því eins og oftast ei' í slík-
um málum sýnist sitt hverjum.
Ólafur var maður samvizkusam-
ur með afbrigðum og vildi vera
sanngjarn við alla menn og reyna
að leysa allan ágreining á frið-
samlegan hátt, þótt hann hins
vegar héldi fast fram sinni skoð-
un, þegar hann var sannfæraður
um að fara með rétt mál eftir
eigin samvizku. Ólafur átti in-
dælt heimili með samhentri og
alúðlegri eiginkonu sinni Ólöfu
Sigurðardóttur, sem ég vil votta
mína innilegustu hluttekningu.
Kynni mín af Ólafi T. Sveins-
syni eru ekki ýkja margra ára.
Fyrst komst ég í náin kynni við
hann er honum var falið eftirlit
með smíði fyrsta stálskipsins á
íslandi, dráttarbátsins Magna
fyrir Reykjavíkurhöfn. Síðar
hafði hann og með höndum eftir-
lit með smíði björgunarskútu
Norðurlands, Alberts. Þetta starf
leysti Ólafur af hendi með mikilli
prýði, enda sérlega vel til þess
hæfur að þekkingu og mannkost-
um. Hvatti hann mig til að sækja
um skipaskoðunarstjórastarfið,
þegar hann hætti sökum aldurs.
Eftir að ég tók við starfinu reynd
ist Ólafur mér hinn bezti vinur
og kennari meðan ég var að kom-
ast inn í starfið sem og síðan, svo
ákjósanlegri fyrirrennara hefði
enginn getað kosið sér. Er þar
mikill munur á að taka við starfi
manns, sem komið hefir öllu í
fastar skorður, eða eins og hann
að taka við engu öðru en óleyst-
um verkefnum og byggja upp frá
grunni stofnun til starfs fyrir
öryggi íslenzkra sjómanna og til
eflingar íslenzkum siglingum.
Það er víst, að margur íslenzk-
ur sjómaðurinn á Ólafi T. Svexns
syni líf að launa fyrir árvekni
hans og áhuga á búnaði íslenzkra
skipa, en við' vinir hans og sam-
starfsmenn skemmri og lengri
tíma erum þakklátir fyrir að hafa
fengið að kynnast og njóta sam-
starfs slíks ágætismanns.
Hjálmar R. Bárðarson.
— S.U.S.-siðan
Frh. af bls. 8
betlarar séu margir, skjóta aug
Arabanna hatursgneistum ur
leið og þeir segja: Þeir eru flótta
fólk frá ísrael.
— Sástu eitthvað af fyrirmönn-
um ríkisins, sem nú virðast ekki
eiga sjö dagana sæla frekar en
aðrir Arabahöfðingjar.
— Dr. Malik, utanríkisráðherra
Líbanon setti ráðstefnuna með
ræðu. Eftir setninguna var hald
inn kynningarveizla og börðust
menn við hitann, þótt degi væri
tekið að halla. Þar var ég kyrintur
fyrir dr. Malik með þeim um-
mælum, að nú gæfist honum færi
á að fá sér góðan svala, því að
hér væri kominn maður frá ís
landi.
Þá heimsóttu þátttakendur ráð-
stefnunnar forseta landsins, en
hann býr í Þjóðminjasafniu! Safn
ið hefur aðsetur í stórri höll með
mörgum álmum. Þar eru t.d. varð
veittir kofar og aðrir mannabú-
staðir frá liðinni tíð. f einni álm-
unni býr svo forsetinn og telst
ekki til safnsins. Þ. E.
Atvinnurekend ur
Vantar yður mann á bif-
reiðina, lagerinn eða við önn
ur störf hjá yður, gjörið svo
vel og sendið tilboð merkt:
„Föst atvinna — 6781“.
Skrifstofustúlka
Þekkt innflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskast
eftir að ráða stúlku til vélritunar og símavörzlu.
Einhver enskukunnátta nauðsynleg. Upplýsingar
um menntun og fyrri störf, ásamt mynd leggist
inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 7. október merkt:
Skrifstofustúlka.
S jötug
Arnhjörg
sl. sunnudag:
SigurBardóttir
ENGINN, sem ekki vissi hið
sanna, mundi geta ságt rétt til
um aldur Arnbjargar Sigurðar-
dóttur frá Keflavík. Flestir
mundu fremur hafa tilhneigingu
til að segja hana fimmtuga en
sjötuga. En staðreyndum verður
þó eigi á móti mælt. Það verða
allir að sætta sig við þann ótrú-
lega sannleika, að Arnbjörg
stendur í dag á sjötíu ára sjónar-
hóli, enda þótt útlit hennar segi
hana einum eða jafnvel tveimur
áratugum yngri.
Arnbjörg er borinn Snæfelling-
ur. Hún er fædd í Bergþórsbúð
á Arnarstapa 29. sept. árið 1887.
Foreldrar hennar voru hjónin
Sigurður Vigfússon og Sigríður
Guðmundsdóttir. Þær systurnar
voru fjórar, en sú yngsta dó í
æsku. Hinar þrjár eru allar á
lífi. Á sjöunda ári fluttist Arn-
björg ásamt foreldrum sínum að
Smyrlhóli í Haukadal í Dalasýslu.
Þar og á nokkrum öðrum stöðum
í Dölunum ólst hún upp.
Árið 1904 réðist til vinnu-
mennsku á heimili foreldra iienn
ar ungur maður norðan úr Skaga
firði Hannes Einarsson að nafni.
Hann og Arnbjörg felldu brátt
hugi saman, og þar með hófst sú
gæfuríka samleið sem entist í 42
ár.
Fyrst bjuggu þau Arnbjörg og
Hannes í nokkur ár fyrir vestan,
en árið 1912 fluttust þau alfarin
suður til Keflavíkur og bjuggu
þar allan sinn búskap, eða allt
þar til Hannes lézt árið 1947.
Þótt Arnbjörg beri aldurinn vel,
þá er þó engan veginn þar með
sagt, að líf hennar hafi verið létt-
ur leikur, heldur þvert á móti.
Tólf urðu börnin alls, en þrjú
þeirra dóu þegar á æskuskeiði.
Hin níu, sem upp komust, eru
nú öll gift og búa sex þeirra í
Keflavík, tvö í Hafnarfirði og eitt
í Reykjavík. Það er mikið og erf-
itt hlutverk að vera húsmóðir á
Margir nota nú
GERVITENNUR
áhyggjulítið.
Hægt er að borða, tala, hlægja og
hnerra án þess að óttast að gervi-
gómar losni. DENTOFIX heldur
þéim þægilega föstum. Duftið er
bragðlaust og ekki límkennt, or-
sakar ekki velgju og er sýrulaust
en kemur í veg fyrir andremmu
vegna gervigómanna.
Kiiupið Dentofix í dag
Einkaumboð:
Remedia hf., Revkjuvík
svo stóru heimili, sem heimili
þeirra Arnbjargar og Hannesar
var. Arnbjörg vissi líka vel, hvað
hún hafði við tímann að gera.
Hún helgaði heimilinu aila sína
starfskrafta af hug og sál. Ævi-
starf hennar allt var ein kær-
leiksfórn, sem hún færði, heimili
sínu til heilla og gæfu. Og henni
tókst að skapa manni sínum og
börnum þann griðastað. sem allt-
af var auðugur af hlýju og yljað
ur af kærleika, enda þótt stund-
um væri erfitt að því, er hinn ytra
aðbúnað snerti.
Þrátt fyrir mikið stríð og
margs konar erfiðleika liðinna
ára horfir Arnbjörg nú þakklát
og glöð yfir gengnar götur. „’Skin
og skúrir hafa skipzt á í lífi
mínu“, segir hún. „En ég geymi
aðeins björtu stundirnar hinum
hefi ég reynt að gleyma", bætir
hún við og brosir hlýju sólskins-
brosi.
Arnbjörg á langan starfsdag að
baki. En henni hefir líka auðnazt
að sjá ávexti iðju sinnar og njóta
þeirra í ríkum mæli.
Barnahópurinn stóri hefir verið
samhentur í því að gera henni
efri árin ljúf og björt. Dg hið
sama má segjá um tengdabörnin.
Þau hafa reynzt henni. öll sem
eitt, sem væri hún þeirra eigin
móðir. — Frá því að maður henn-
ar dó hefir hún lengst af verið
til heimilis hjá yngstu dóttir
sinni í Keflavík. En hún hefir
einnig dvalið á heimiium hinna
barnanna sinna og verið þar hinn
velkomnasti gestur.
Á afmælisdaginn dvaldi Arn-
björg að Hringbraut 66 í Kefla-
vík á heimili Ellerts sonar síns
og konu hans Ástu Gísladóttur.
Þar var hún umvafinn ástúð hins
fjölmenna afkomendahóps. Þar
var allt gert til þess, að gleði
hennar yrði sem mest.
Ég óska Arnbjörgu allra heilla
og bið henni af hjarta blessunar
Guðs á þessum merku tímamót-
um.
Ég er einn í þeim fjö’menna
hópi, sem hún hefir yljað með
hinum hógværu sólskihsbrosum
sínum og þýða viðmóti. Megi hún
enn um langt skeið njóta þess
kærleika, sem hún með ævistarfi
sínu hefir áunnið sér í svo ríkum
mæli.
Bj. J.
Abal BÍLASALAN
J95.7 Chevrolet Bel Air
1956 Ford Fair Line
1953 Chevrolet
1952 Ford og Chevrolet
1947 Chevrolet
1957 Moskwitcli
1957 Volkswagen
?55 Anglia og Consul
Oskast ! Skoda ’55 o. fl.
AÐALSTR. 16
Sími: 3-24-54
H júkrunarmaBur
Staða hjúkrunarmanns í Fávitahælinu í Kópavogi
er laus til umsóknar nú þegar.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 15.
október næstkomandi.
Skrifstofa ríkisspítalanna.