Morgunblaðið - 01.10.1957, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.10.1957, Blaðsíða 8
8 M O R C TJ N B T 4 Ð 1Ð Þriðjudagur 1. okt. 1957 FRA S.U.S. RITSTJÖRI: ÞÓRIR EINARSSON Stoínuð tvö iélötf ungra SjáU- stesðismanna í MúSasýslum Formenn kosnir Guttormur Þormar og Arnbór Þórólfsson FYRIR nokkru voru stofnuð félög ungra Sjálfstæðismanna í Múla- sýslunum. Fóru stofnfúndir fram sunnudaginn 15. þ.m. í félags- heimilinu á Reyðarfirði. Forgöngu um stofnun þessara félaga hafði stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna, og var formaður sambandsins, Ásgeir Pétursson, á fundinum ásamt Sig- urði Helgasyni erindreka. Stofnuð voru tvö félög, hvort fyrir sína sýsluna. í stjórn þeirra voru kosnir: Fyrir Norður-Múasýslu: Gutt- ormur Þormar í Geitagerði, for- maður, Grétar Brynjólfsson, Skipalæk, Þráinn Jónsson Gunn- hildargerði, Ragnar Sigvaldsson Borgarfirði, Sveinn 'Stefánsson Brekkugerði. Endurskcðsendur voru kosnir þeir Sveinn‘Björns- son og Eiríkur Eiríksson. í félaginu í Suður-Múlasýslu var Arnþór Þórólfsson, Reyðar- firði, kosinn formaður, en með honum í stjórn þeir Margeir Þór- arinsson, Fáskrúðsfirði, Guð- mundur Auðbjörnsson Eskifirði, Magnús Þórðarsson Neskaupstað, Irigimar Sveinsson Egilsstöðum, Baldur Pálsson Breiðdalsvík og endurskoðendur þeir Gunnar Wedholm og Sigurjón Gíslason. Á fundunum voru samþykktir 65 stofnendur í félagið í S-Múl. og 45 í N-Múl. Voru þeir á aldrin um 16—35 ára. Að loknum stofnfundarstörfum flutti Ásgeir Pétursson framsögu ræðu um stjórnmálin. Tóku marg ir fundarmenn til máls að ræðu hans lokinni, og var mikill áhugi ríkjandi á fundinum um þjoð- málin og sérmál Austfirðinga. Voru rædd mörg mál, er varða einkum hagsmuni Reyðfuðinga, þ.á.m. rafmagnsmál, vegamál. af- urðasölumálin o. fl. í fundarlok kvaddi sér liljóðs Einar Sigurðsson frambjóðandi Sjálfstæðismanna í Suður-Múla- sýslu. Þakkaði hann stjórn S.IJ.S. fyrir að hafa beitt sér fyrir þess- ari félagsstofnun í samvinnu við hina áhugasömu ungu Sjálfstæð- ismenn á Austfjörðum. Benti Einar á að stofnfundirnir væru spor í rétta átt enda væri ungt fólk orðið þreytt á ofstæki komm únista og framsóknarmanna og vildi fá aukið frelsi til athafna — og í skjóli þess vaxandi velmeg- un almennings. I franskri tilraunastöð í 1 libanon. Talið frá vinstri eru fulltrúar frá Noregi, Svíþjóð, Islandi, Malaja, Líbanon og Indlandi. Vandamál sveitaæskunnar rædd á ráðstefnu í Líbanon Rætt við isleuka fulltrúann, Stefán M. Gunnarss. WORLD Assembly of Youth (W. A. Y.) nefnast heimssamtök ein fyrir æskufólk. Þau munu litt kunn hérlendis, en ná þó til flestra landa. Samtökin, sem tru ópólitísk, annast ýmsa fræðsiu- starfsemi fyrir félaga sína og að- stoða þá á annan hátt, svo sem með því að efna til gagnkvæmra heimsókna ungs fólks milli landa. Hefur W. A. Y. orðið vel ágengt í þessu efni, og má geta þess, að samtökin eru ráðgefandi aðilar ýmissa stofnana Sameinuðu þjóðanna. Fyrir nokkrum mánuðum stofn uðu flest heildarsamtök íslenzkra æskumanna undirbúningsnefnd, sem athuga skyldi áðild íslands að W. A. Y. Nefndinni barst í sumar boð um að senda einn fulltrúa á ráðstefnu, sem W. A. Y. hélt í Líbanon um síðustu mánaðarroót og ætluð var fyrir ungt fólk í sveitum. Fyrir valinu varð Stefán M. Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Ungmennafél. íslands m.a. vegna þess, hve ungmennafélögin standa traustum fótum í sveitum landsins. Eftir heimkomuna átti frétta- maður æskulýðssíðunnar tal við Stefán og bað hann að segja les- endum frá ráðstefnunni og dvöl- inni í Líbanon. ★ — Ráðstefnuna sóttu um 70 manns frá 50 þjóðum, segir Stefán. Þótt fulltrúar væru frá flestum Ewrópuþjóðunum, m.a. frá öllum Norðurlöndunum nema Finnlandi, þá voru það fulltrú- arinr frá Asíu, Afríku og Suður- Ameríku, sem voru fjölmennastir og settu svip sinn á ráðstefnuna. Vandamálin sem tekin voru til meðferðar, snertu líka einna mest þau lönd, sem eru skammt á veg komin. Rætt var um skipulagn- ingu og starfsemi samtakanna æskulýðs í sveitum, hlutverk þeirra í viðreisn landanna, að- stoð W. A . Y. við þau, menntun og þjálfun ungs fólks til sveita, fólksskipti milli landa og margt fleira. Á morgnanna voru flutur fyrirlestrar, m.a. um alþjóðastofn anir eins og F. A. O. og I. L. O. Þá voru farnar hópferðir til til- raunastöðva í landbúnaði. — Hvað um árangurinn? — Ráðstefnan var ákaflega fræð andi og gaf góða innsýn í vanda- mál sveitaæskunnar um víða ver- öld, og þar kynntist maður nokk uð starfsemi W. A. Y., en hún er mjög umfangsmikil og snýr aðeins ein hlið hennar að sveita- æskunni. — Hvað geturðu sagt okkur um Líbanon? •— Landið er ekki stórt, aðeins lítill hluti af íslandi. íbúar eru þó tæpl. 1V2 milljón og lifa góðu lífi, þótt sagt sé, að landið sé frekar fátækt. f Beirut, þar sem ráðstefnan var haldin, var mikið af nýjum amerískum bílum, svo að ýmislegt má telja líkt með ís- lendingum og Líbanonmönnum, þótt ótrúlegt megi virðast. Stund- um mátti sjá gljáfægða og glæsi- lega vagna fyrir framan hrörlega mannabústaði. í Beirut er n ikið af ferðafólki frá Sýrlandi og Saudi Arabíu enda ekki nema 3 tíma keyrsla frá Damaskus til Beirut. Enginn fulltrúi var á ráðstefn- unni frá ísrael, enda er andúðin á því megn. Þegar útlendir.gar færa í tal við heimamenn hversu Framh. á bls. 13 Fræðslukvöld ungra Sjálf- sfæðismanna í Siglufirði FUS á Siglufirði efndi nýverið til fræðslukvölda um stjórnmála- stefnur og þjóðmálaviðhorfið. — Starfsemi þessari var komið af stað í samvinnu við stjórn SUS. Fræðslukvöldin hófust mánu- daginn 16. sept. með því að Stefán Friðbjarnarson setti nám- skeiðið með ræðu. Gerði hann grein fyrir nauðsyn þekkingar og fræðslu í þeim málum, sem vel- ferð þjóða sem einstaklinga eru undir komin. Skýrði Stefán einnig þær stjórnarstefnur, sem skotið hafa rótum í íslenzku þjóðlífi. Þá flutti Einar Ingimundarson erindi um upphaf Sjálfstæðis- flokksins, sögu hans og helztu stefnumál. Var erindi þetta fróð- legt yfirlit um sögu og stefnu- skrá þess stjórnmálaflokks, sem setti sér það markmið í upphafi að tryggja frelsi þjóðarinnar út á við og frelsi þegnanna inn á við. Að erindi Einars loknu sátu þátttakendur kaffiboð Sjálfstæðis kvenna á Siglufirði. Næsta dag flutti stjórnandi fræðslukvöldanna, séra Jónas Gíslason, fróðlegt erindi um utan ríkismál og kommúnisma, Rakti hann þróun þessara mála fram til 1956. Var gerður mjög góður rómur að erindi séra Jónasar. Síðan flutti Ragnar Jóns- son bæjargjaldkeri ágætt erindi um ræðumennsku, Baldur Eiríks- son forseti bæjarstjórnar talaði um Sjálfstæðisflokkinn og Siglu- fjörð og loks var lesið upp fróð- legt erindi um sjávarútvegsmál eftir Davíð Ólafsson. Fjórða og síðasta kvöldið flutti Jónas Rafnar erindi um stjórn- málaviðhorfið. Rakti hann stjórn málasöguna nokkur undanfarin ár, aðdraganda hræðslubanda- lagsins, fyrirheit vinstri stjórnar- innar á sviði efnahags-, atvinnu- og varnarmála og vanefndir, sem öllum væru kunnar. Gerði hann síðan ljósa grein fyrir stjórn- málaviðhorfinu í dag og þeim vandamálum, sem úrlausnar biðu. Að loknu erindi Jónasar var sezt að myndarlegu kaffiborði, sem nokkrar stúlkur úr FUS höfðu séð um af rausn mikilli. Sveinn Gústavsson lék nokkur lög á píanó, farið var í mælsku- keppni og fleira sér til gamans gert. Margir kvöddu sér hljóðs og þökkuðu forystu ungra Sjálf- stæðismanna og framtak þeirra í þessari fræðslustarfsemi. Séra Jónas Gíslason sleit síðan nám- skeiðinu og var hann kvaddur þökk fyrir komu og fyrirhöfn. Önnur starfsemi FUS verður aðili að héraðs- móti siglfirzkra Sjálfstæðis- manna, sem háð verður 28. sept. n. k. og spilakvöldum, sem fyrir- hugað er að halda' vikulega á komandi vetri, en slík kvöld gáf- ust mjög vel á s. 1. vetri. Frá sambandsfélögum IX „Stefnir", F.U.S. í Hafnnrfirði AÐALFUNDUR Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnar- firði, var haldinn í Sjálfstæðis- húsinu þar í kaupstaðnum mið- vikudaginn 26. þ.m. Magnús Sigurðsson lagan.emi, sem verið hafði formaður félags- ins um eins árs skeið, flutti skýrslu um starfsemina. Hann baðst undan endurkjöri og var Birgir Björnsson vélvirki kosinn formaður. Aðrir stjórnarmenn voru kjörnir: Finnborgi Arndal (vara-formaður), Magnús Þórðar son, Einar Sigurðsson, Sigu-ður Stefánsson og Valur Ásmundsson. Varastjórn: Jóhanna Helgadóttir og Ragnar Magnússon. í skýrslu fráfarandi formanns kom fram, að starf félagsins var fjölbreytt á árinu og bar vott um mikla starfsgleði og áhuga félagsmanna á félagsstarfinu. Síðastliðinn vetur efndi félagið til stjórnmálanámskeiðs sem hlaut mikla þátttöku og vinsæld- ir. Voru þar tekin til meðferðar mörg mál, sem varða land og þjóð og sérhæfir menn fengnir til að flytja erindi um þau. Félags mál æskunnar voru einnig tekin til ítarlegrar meðferðar. En námskeiðið var ekki ein- ungis miðað við fræðslu heldur var það líka mælskuskóli, þar sem þátttakendur æfðu sig í ræðu flutningi og ræddu áhugamál sín. Á hverjum fundi var einnig venja að sýna stuttar kvikmyndir bæði til fræðslu og skemmtunar. Fullvíst er, að námskeið þetta var þátttakendum þess til mikils gagns og þá ekki síður til ánægju Yfir því hvíldi hinn ferski blær, sem einkennir störf æskufólks. Auk þessa námskeiðs gekkst Stefnir bæði fyrir dansleikjum Birgir Björnsson, formaður Stefnis og öðrum skeirimtunum á árinu. Að lokinni skýrslu formanns urðu talsverðar umræður um vetrarstarfið. Stjórnmálanám- skeið á vegum félagsins mun hefjast innan skamms. Þá fara kosningar í hönd og eru Sjálfstæð isfélagar staðráðnir í að láta sinn hlut ekki eftir liggja til að gera sigur Sjálfstæðisflokksins sem glæsilegastan. í fyrri kosningum hefur greinilega komið í ljós, að unga fólkið í Hafnarfitði fyikir sér í æ ríkara mæli undir merki Sj álfstæðisflokksins. Stefnisfélag- ar telja, að í komandi kosningum muni sannast betur en nokkru sinni fyrr, að æskufólkið er kjarni Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.