Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 1
20 síður FRÁ (JTFÖR HÁKONAR KONUNGS SJÖUNDA. — Mynd þessi var tekin í gær, þegar líkvagninn ók írá konungshöllinni í Osló. Ljósm.: Aftenposten, Osló Virðuleg útíör tíákonar VII Noregskonungs fór fram í gær ÓSLÓ, 1. okt. (NTB). — ! dag kl. 13.50 eftir norskum tíma var fáni Noregs drcginn að hún um allt landið, kirkju- klukkum var hringt, og skot- ið úr fallbyssum til merkis um það, að Hákon konungur sjöundi hefði verið lagður til hinztu hvíldar í grafhvelf- ingu setuliðskirkjunnar í Ak- ershus-kastala í Ósló. Hákon konungur var borinn til graf- ar með þeirri viðhöfn, að al- gjörlega stakk í stúf við ó- breyttar lífsvenjur hans. Talið er, að um 250 þúsund manns hafi staðið á gangstéttUn- um á leið þeirri, sem líkfylgdm fór um og er það fjölmennasti syrgjendahópur, sem um getur í sögu Noregs. Alla leiðina frá kon ungshöllinni að dómkirkjunni og síðan að kastalanum var óslitin röð manna. Veður var hið feg- ursta og haustsólin hellti geislum sínum yfir landið og fólkið, sem kvaddi ástfólginn þjcðhöfðingja 1 hinzta sinn. En það voru fleiri en þeir er viðstaddir voru, sem fylgdust með útförinni. Hundruð þúsunda Norðmanna, bæði á sjó og landi, hlustuðu á útvarpið og vottuðu þjóðhöfðingja sínum á þann veg virðingu sina. I NTB- skeyti hermir, að segja megi með sanni, að heil þjóð hafi fylgt kon- ungi sínum til grafar. Sonur kveður föður í hinzta sinn Þegar athöfnin náði hámarki sínu í gömlu Akershús-kirkjunm, voru ekki aðrir vibstaddir en nánustu ættingjar konungs, er- lendir þjóðhöfðingjar og sérstak- ir fulltrúar þeirra, ráðherrar, Os- car Torp, stórþingsforseti, Einar Gerhardsen, forsætisráðherra, og forseti Hæstaréttar, Sverre Gretta. — Athöfnin í Akershus hófst kl. 13.30 eða strax og lík- fylgdin kom frá minningarguðs- þjónustunni í Óslóardómkirkju Akershus-kirkj a var fagurlega en þó látlaust skreytt. A rauðurn múrsteinsveggjunum loguða kertaljós og á líkpallinum, sem var þakinn purpura, loguðu fjög- ur kertaljós, hvert kerti einn metri á hæð. Þau stóðu í æva- gömlum kertastjökum. Þarna var einnig komið fyrir hinum feg- urstu blómvöndum. Þegar kistan hafði verið borin á líkpallinn, fékk Ólafur konungur sér sæti við hægri hlið hennar, en sín cil hvorrar handar við hann sátu systur Hákonar konungs, þær Ingeborg prinsessa af Svíþjóð og greifafrú Castenskjöld. Prinsessu Ingeborg til hægri handar sat Haraldur krónprins og prinsess- urnar Astríður og Ragnhildur og frú Lorentzen. Vinstra megin við kistuna sátu erlendir konungar ásamt forsetum íslands og Finn- lands. — Eftir dálítinn orgelinn- gang var sunginn sálmurinn „Lýs milda ljós“, en síðan kastaði Jo- hannes Smemo Óslóarbiskup rek- unum. Það ríkti algjör þögn í kirkjunni, þegar biskupinn sagði fram orðin: Af moldu ertu kom- inn, að moldu skaltu aftur verða, af moldu skaltu aftur upp rísa. Fréttaritari NTB segir, að menn hafi haft það á tilfinning- Framh. á bls. 2 Hæftulegar filraunir TÓKÍÓ, 1. okt. — Japanskur vísindamaður, próf. Takao Kashi- wabara við Ibarako-háskólann í Mið-Japan, hefur skýrt frá þeirri skoðun sinni, að japanska þjóðin verði þurrkuð út á næstu 10 ár- um, ef tilraunum stórveldanna með kjarnorkusprengjur verður haldið áfram Þessar skoðanir mínar, sagði prófessorinn enn- fremur, byggi ég á tilraunum, sem ég hef gert með mýs. •-------------------------------------------------------------- Fréttir í stuttu máli Lundúnum, 1. október. COTY, Frakklandsforseti, er byrjaður viðræður sínar við franska stjórnmálamenn um myndun nýs ráðuneytis. Stjórnmálafréttaritar- ar telja, að erfiðlega muni ganga að mynda ráðuneyti í Frakklandi. Talið er víst, að það hafi verið Jacques Soustelles, sem fékk óháða l ægrimenn til að greiða atkvæði gegn stjórn Bourges-Maunourys, en það varð henni að falli. Nú hefur þjóðvörðurinn í Arkansas tekið við af fallhlífasveit- unum, sem Eisenhower sendi til Little Rock í því skyni, að halda þar uppi lögum og reglu. Þjóðvörðurinn er nú undir stjórn forset- ans. Talið er sennilegt, að fallhlífasveitirnar verði ekki fluttar strax á brott úr borginm af öryggisástæðum. í ræðu, sem H. C. Hansen, forsætisráðherra Dana hélt í dag við cpnun þjóðþingsins, sagði hann, að efnahagsmálin og þá einlcum gjaldeyrismálin yrðu höfuðviðfangsefni þingsins í vetur. Ekki kom til neinna átaka milli hægra arms brezka Verka- mannaflokksins og Bevans-manna, þegar kosið var í miðstjórn flokksins á þinginu í dag. Segja fréttamenn, að nú sé að mestu búið að brúa bilið milli þessara hópa, a. m. k. sé lítill skoðana- rnunur á yfirborðinu, eins og sjá megi af kosningunni. Mikil ókyrrð ríkir nú í dvergríkinu San Marino á austanverðri Italíu. Þar hafa kommúnistar verið við stjórn í 12 ár, en fyrir skömmu gengu nokkrir kommúnískir þingmenn i lið stjórnarand- stöðunnar og felldu stjórnina. Kommúnistastjórnin neitar að hverfa úr ráðhúsinu og krefst þess, að nýjar kosningar fari fram í land- mu. Hefur hún heitið á alla lögreglumenn landsins, 200 að tölu, að svna sér hollustu. Stjórnarandstaðan hefur búið um sig í verk- smiðjuhúsi ekki alllangt frá ráðhúsinu. — í San Mai ,no eru íbú- arnir aðeins 14 þúsund að tölu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.